Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982 25 „Vonast til að bæta stangarstökksmetió“ Sijjurður T. Sigurðsson KR setti nýtt íslandsmet í stangarstokki, stókk 5,20 metra. „ÉG HEF seft ágætlega í vetur og vonast til að bæta stangarstökksmetið í sumar,“ sagði Sigurður T. Sigurðsson eftir að hafa tekið við viðurkenningu Morgunblaðsins fyrir árangur sinn á síðasta ári, en Sigurður varð fyrstur íslendinga til að stökkva fimm metra í stangarstökki, gerði það á Laugar dalsvelli í fyrravor og síðar bætti hann ís- landsmet sitt í 5,20 metra. „Það eru fram undan hjá mér stremb- in próf í Háskólanum í janúar og aftur í maí, en ég vonast samt til að geta æft vel. Takmarkið er að komast hærra í surnar," sagði Sigurður, en hann hefur verið að bæta innanhússmetið í vetur og nálgast þann árangur sem hann náði utanhúss í fyrra. Sigurður T. Sigurðsson hóf frjáls- íþróttaiðkun fyrir aðeins örfáum árum, keppti fyrst sumarið 1979, en þar áður var hann iðinn við fimleika og íslands meistari í þeirri íþróttagrein frá 1974 t 1979 að báðum árunum meðtöldun Hann er á 25. aldursári og á eflaus mikla framtíð fyrir sér í stangarstökl inu. „Það fer mikill tími í æfingar hj frjálsíþróttamönnum, ekki sízt hjá okke stangarstökkvurunum. Ég vil nota þett tækifæri til að færa vinnuveitanda mír um í fyrrasumar, Ragnari Halldórssyi forstjóra ÍSAL, beztu þakkir fyrir séi stakan velvilja í minn garð og fyrii greiðslu vegna keppnisferða í fyrra. Þ vil ég koma á framfæri þökkum til Balc urs Jónssonar vallarstjóra í Laugard; fyrir aðstoð og áhuga sem okkur stan> arstökkvurum hefur verið sýndur á vel inum, en þar hafa allir verið afar hjáþ legir," sagði Sigurður að lokum. „Mjög bjartsýnn á næsta keppnistímabil“ - segir Sigurlás Þorleifsson sem var ásamt Lárusi Guðmundssyni markakóngur 1. deildar „SVONA viðurkenningar virka alltaf á mann sem góð hvatning og eru Morgunblaðinu til sóma,“ sagði markaskorarinn mikli Sigurlás Þorleifsson fyrirliði ÍBV í knatt- spyrnu. En Sigurlás var ásamt l.árusi Guðmundssyni markahæsti leikmaður síðasta íslandsmóts í knattspyrnu, skoraði 12 mörk. Þetta er í annað skipti sem Sigurlás verður marka- kóngur í fslandsmótinu í knattspyrnu. Árið 1979 er Sigurlás lék fyrir Víking skoraði hann líka 12 mörk í deildinni. Sigurlás sagðist vera mjög bjart- sýnn á næsta keppnistímabil hjá liði sínu ÍBV: — Við höfum líklega aldrei verið með jafnsterkt lið á pappírnum. Við fáum Örn Óskars- son og Svein Sveinsson aftur í lið okkar og verðum líka með sama kjarna og á síðasta keppnistímabili. Við munum stefna á toppinn. Ekk- ert annað kemur til greina, sagði Sigurlás. Þá sagði Sigurlás að það eftirminnilegasta frá síðasta sumri væri úrslitaleikurinn í bikarkeppni KSI. „Það var sætur sigur." Sigurlás skoraði 16 mörk fyrir lið sitt í bikar- og Islandsmóti á síðasta sumri og mest hefur hann skorað fjögur mörk í einum leik. Lárus Guðmundsson gat ekki tek- ið við verðlaunum sínum í hófinu sem Mbl. hélt í gærdag að Hótel Holti. En formaður Víkings Anton Örn Kjærnested veitti viðurkenn- ingu hans móttöku. Lárus hélt utan til Belgíu 27. des. og leikur nú með Waterschei sem atvinnumaður. En eins og öllum er kunnugt var Lárus einn af máttarstólpum Víkings á síðasta keppnistímabili er liðið varð Islandsmeistari. Sextán leikmenn skoruðu fimm mörk eða meira á síðasta keppnis- tímabili og voru þeir eftirtaldir: Markahæstir í 1. deild: Lárus Guðmundsson Víking 12 Sigurlás Þorleifsson ÍBV 12 Þorsteinn Sigurðsson Val 9 Gunnar Jónsson IA 8 Pálmi Jónsson FH 7 Sigurjón Kristjánsson UBK 7 Kári Þorleifsson ÍBV 6 Ómar Jóhannesson ÍBy 6 Guðbjörn Tryggvason IA 6 Asbjörn Björnsson KA 6 Guðjón Guðmundsson Þór 6 Óskar Ingimundarson KR 5 Njáll Eiðsson Val 5 Guðmundur Torfason Fram 5 Jón Einarsson UBK 5 Gunnar Gíslason KA 5 - ÞR. Leikmaður íslandsmótsins í knatt- spyrnu var Sigurður Lárusson ÍA MÖRGUNBLAÐIÐ hefur í mörg undanfarin ár gefið leikmönnum 1. deildar einkunn fyrir leiki sína. Fyrir tveimur árum var sá háttur tekinn upp að gefa leikmönnum einkunn frá 0 og upp í 10. Eins og við mátti búast hefur einkunna- gjöfin ávallt verið nokkuð umdeild. En þegar keppnistímabilinu er lokið eru flestir sammála um þá leikmenn sem hæstu einkunn hafa hlotið. Leikmenn þurfa að leika 15 leiki eða fleiri til þess að teljast gjaldgengir í keppninni um leikmann íslandsmótsins. Að þessu sinni varð Skagamaðurinn Sigurður Lárusson efstur. Hann lék alla leikina með liði sínu og hlaut 119 stig og fékk 6,61 í meðaleinkunn. Sigurður Lárusson er vel að titlinum kominn. Hann ávann sér fast sæti í landslið inu í sumar og lék vel. Sigurður fékk tvívegis átta í einkunn í sumar og átta sinnum sjö. Það sýnir að hann var mjög jafn að getu. Þegar einkunnagjöfin er skoðuð leikmenn sýndu þá framúrskarandi niður í kjölinn má sjá að meðal- mennska hefur ráðið ríkjum í leikj- um deildarinnar. Fáir leikmenn hafa náð að skara fram úr nema leik og leik. Þrír leikmenn, Árni Sveinsson IA, Guðmundur Baldursson Fram og Lárus Guðmundsson Víkingi, náðu þeim góða árangri að ná 9 í einkunn í einum leik. Árni fékk sína einkunn er ÍA sigraði lið Víkings með sex mörkum gegn tveimur, Guðmundur fékk sína einkunn þegar Fram og í A gerðu jafntefli, 1—1, og Lárus sína er Víkingur vann Val 3—2, en þessir góðan leik. Allmargir leikmenn hlutu átta í einkunn fyrir leiki en oft vildi það brenna við að leikmenn lið- anna sýndu mjög misjafna getu í leikjum sínum. Hér á eftir fer listi yfir þá leikmenn í 1. deild sem hlutu sex eða meira í meðaleinkunn í mót- inu síðasta sumar. Nöfn — fél. st. I. m.pink. Sigurdur Lárusson ÍA 119 18 6,61 Lárus (iudm..son Vík. 118 18 6,55 Jón Alfredsson ÍA 111 17 6,52 Olafur Kjornsson I BK 104 16 6,50 Sigurlás l»orl.son ÍBV 116 18 6,44 Árni Sveinsson ÍA 109 17 6,41 Stefán Jóhannsson KR 115 18 6,38 Helgi Bentsson l'BK 115 18 6,38 Helgi llelgason Víkingi 108 17 6,35 Valdimar Valdim. l’BK 114 18 6,33 (>uðm. Kaldurss. Kram 114 18 6,33 Bjarni Sigurðsson ÍA 113 18 6,27 Kiríkur Kiríksson l*ór 113 18 6,27 Omar Torfason Víkingi 100 16 6,25 l>órður Hallgr.son ÍBV 106 17 6,23 Sjpvar Jónsson Val 106 17 6,23 Páll Pálmason ÍBV 112 18 6,22 Magnús Þorv.son Vík. J12 18 6,22 Heimir Karlsson Vík. 105 17 6,17 Sigurður Halld.son ÍA 111 18 6,16 l>órður Marelsson Vík. 111 18 6,16 Jóh. Orétarsson l BK 98 16 6,12 Kári l>orleifsson ÍBV 109 18 6,05 Guðm. Ásgeirsson l'BK 108 18 6,00 Vignir Kaldursson I BK 102 17 6,00 Viðar llalldórsson FH 102 17 6,00 Mart. (.eirsson Kram 90 16 6,00 Þegar þessi listi 27 leikmanna er skoðaður kemur í ljós að Víkingur á sex leikmenn á listanum, Breiðablik á einnig sex leikmenn og í A á fimm leikmenn. Her að neðan má sjá fyrir hvað tölurnar í einkunnagjöfinni standa. ÞR JJfmtm • Sigurlás Þorleifsson og Lárus Guðmundsson í baráttu í landsleikjum með íslenska landsliðinu. Sigurlás er að Nigeríumönnum. kljást við Hollending en Lárus er að skora hjá „Þaó eykur hjá mér áhuga að hljóta þessa viðurkenningu“ - sagöi Margrét Theodórsdóttir handknattleikskona úr FH ,JÚ, VIÐ stefnum ótrauðar á fs- andsmeistaratitilinn og erum efstar tegar mótið er hálfnað, höfum tapað ■inu stigi á móti Val, en Valsliðið er okkar ha'ttulegasti mótherji," sagði Margrét Theodórsdóttir handknatt- eikskona úr FH, sem valin var hand- mattleikskona íslandsmótsins 1980 til 981 af hálfu Morgunblaðsins og við- urkennd fyrir frammistöðu sína í hófi Mbl. í gær. Margrét er 21 árs og sagðist ætla að halda áfram íþróttaiðkun svo engi sem áhugi entist og meðan vel gengi a.m.k. Hún kvaðst hafa stund- að handknattleik frá því hún fluttist til Hafnarfjarðar frá Vestmannaeyj- um í eldgosinu 1973. Lengst af var íún í Haukum, en gekk í raðir i’H-inga í hitteðfyrra. „Ég er þakklát fyrir þá viðurkenn- Margrét Theodórsdóttir FH með verðlaun sín. i.júniii. Kmilía. ingu sem Morgunblaðið veitti mér að þessu sinni. Viðurkenningar af þessu tagi eiga rétt á sér, þær ýta undir áhuga íþróttafólksins, áhugi minn eykst t.d. um allan helming við að hljóta þessi verðlaun," sagði Mar- grét. Margrét sagði er á hana var geng- ið, að sér fyndist íþróttafréttamenn annars sýna kvennahandknattleik minni áhuga en fyrr, og væri nú t.d. ekki fjallað um alla leiki íslands- mótsins eins og verið hefði árið áður. „Það er vonandi að á þessu verði breyting," sagði Margrét. Hún taldi ástæðuna fyrir þessu þá að ekki væri jafn mikil spenna í 1. deildarkeppni kvenna eins og í karlakeppninni, þar sem jafnan væru eitt til tvö afger- andi lið í kvennaboltanum á sama tíma og enginn leikur væri fyrirfram unninn i 1. deild karla. Sundmaður ársins, Ingi Þór Jónsson: „Einkunnagjöfina lesa allir leikmenn í lióunum" Litlu munaði í körfunni „Höfum ekki æft nógu vel“ „Ekki nóg að fá allt upp í hendurnar" - segir Sigurður Lárusson ÍA Sigurður, sem er 27 ára gamall, sagði að hann ætlaði sér að stunda knattspyrnu af fullum krafti næstu sex árin. „Það er hugur í knattspyrnu- Sigurður Lárusson, ÍA, leikmaður ís- iandsmótsins í knattspyrnu, síðasta keppnistímabil. Ljósm. Kmilía. mönnum á Skaganum núna. Við erum bjartsýnir á næsta keppnis- tímabil. Ekki síst vegna þess að búið er að ráða Kirby til starfa. En hann hefur fært okkur fjóra góða titla. Síðasta keppnistímabil vantaði ÍA meiri stöðugleika í leiki sína. Vonandi lagast það,“ sagði Sigurður. — ÞR. Ríkharður Hrafnkelsson Val, á fullri ferð í leik gegn KR. Það er Jón Sig- urðsson sem er í vörninni. Ríkharður Hrafnkelsson Val varð hlutskarpastur í einkunnagjöf Mbl. fyrir síðasta keppnistímabil í körfu- knattleik. Hann hlaut því nafnbót- ina leikmaður íslandsmótsins í körfuknattleik árið 1980—1981. Keppnin var geysilega hörð að þessu sinni og aðeins munaði einu stigl á Ríkharði og skæðasta keppinaut hans, UMFN-leikmanninum kunna Gunnari Þorvarðarsyni. Þegar upp var staðið hafði Ríkharður hlotið 141 stig úr 20 leikjum, eða meðaleink- unnina 7,05. Gunnar, sem varð ís- landsmcistari með UMF'N eftir margra ára strit í þá átt, fékk hins vegar 140 stig úr jafn mörgum leikj- um og meðaleinkunnina 7,00. Ríkharður Hrafnkelsson, Val Gunnar Þorvarðarson, UMF’N Kristján Ágústsson, Val Garðar Jóhannsson, KR Torfi Magnússon, Val Jónas Jóhannesson, UMFN Guðsteinn Ingimarsson, UMFN Gísli Gíslason, IS Jón Jörundsson, ÍR Ágúst Líndal KK Valdemar Guðlaugsson, Árm. Bjarni G. Sveinsson, ÍS Tveir leikmenn fengu reyndar hærri meðaleinkunnir, en hvorug- ur lék lágmarksleikjafjölda þann sem Mbl. gerir kröfu til að menn leiki. Það voru þeir Jón Sigurðsson KR, sem fékk 109 stig fyrir 15 leiki, meðaleinkunnina 7,26, og Pétur Guðmundsson Val, sem fékk 52 stig fyrir 7 leiki, eða 7,42 í meðaleinkunn. Aðeins fyrrnefndir fjórir leikmenn náðu því að fara yfir 7,00 í meðaleinkunn. Þar sem þeir Jón og Pétur töldust ekki gjaldgengir, má glöggt sjá af með- fylgjandi lista yfir hæstu leik- menn í einkunnagjöfinni, að þeir Ríkharður og Gunnar höfðu tölu- verða yfirburði. En rennum nú yfir listann: stig leikir eink. 141 20 7,05 140 20 7,00 126 19 6,63 131 20 6,55 129 20 6,45 128 20 6,40 127 20 6,35 125 20 6,25 111 18 6,16 117 19 6,15 122 20 6,10 122 20 6,10 - segir körfuknattleiksmaöur ársins, Ríkharöur Hrafnkelsson SUNDMAÐUR ársins var kjörinn Skagamaðurinn Ingi Þór Jónsson, en hann hefur sett ógrynni ís- landsmeta í sundi á síðustu árum ásamt félaga sínum Ingólfi Gissur arsyni, en valið á milli þeirra félaga var Mbl. erfitt, því erfitt reyndist að gera upp á milli þeirra. Ingi Þór er sem fyrr segir Skagamaður, en 11 ára gamall fór hann fyrst að æfa sund. Eins og ,i*y kk-ír < * Ingi Þór Jónsson á fullri ferð f skrið- sundinu. En hann segir að besti árangur sinn sé íslandsmet hans í 200 metra skriðsundi, 1:58,3 mín. Haraldur Sveinsson, framkvæmdastjóri Árvakurs hf„ afhendir Inga Þór verðlaun fyrir góð afrek. æfingum er háttað hjá honum í dag er öruggt að flestum þætti ekki fýsilegt að leika það eftir honum. Hann syndir 10—12 kíló- metra á dag og er þar að auki í þrekæfingum. Álls æfir hann 5—6 klukkustundir á dag og viður- kenndi hann að það erfiðasta við æfingarnar væri hinn mikli tími sem í þær fer. „Þetta er alveg hrikalega seinlegt allt saman,“ segir Ingi Þór, en þetta skilar sér þó í góðum árangri, því alls setti hann 19 Islandsmet á árinu. Sjálfsagt bætast fieiri við á nýja árinu. Þeir félagarnir á Skaganum æfa ekki við ýkja góð skilyrði heima fyrir og framfarir þeirra hefðu ugglaust orðið meiri ef þeir æfðu við góð skilyrði. En um þetta sagði Ingi Þór: „Það er samt ekki nóg að fá allt upp í hendurnar þó auðvit- að skipti það miklu máli. Það verður einnig að koma til áhugi á því sem maður er að gera.“ Er óhætt að taka undir það. - gg- „Ég tel mjög gott að Morgunblaðið sé með einkunnagjöf fyrir knattleiks- íþróttirnar. Það lesa allir leikmenn einkunnagjöfina. Þetta er gott framtak og veitir leikmönnum hvatningu. Að vísu má deila um hvað menn fá, í einstaka leikjum því að sitt sýnist hverjum,” sagði leikmaður íslandsmótsins í knattspyrnu, Sigurður Lárusson, ÍA. Ríkharður Hrafnkelsson, körfu- knattleikskappinn snjalli hjá Val, var kjörinn körfuknattleiksmaður ársins 1980—’81. Er Ríkharður sannarlega vel að titlinum kominn. Gunnar Þorvarðarson úr Njarðvík veitti honum hins vegar harða kcppni og hafði Ríkharður naumlega betur. Ríkharður er 24 ára gamall bankastarfsmaður í Reykjavík. Hann er þó fæddur og uppalinn í Stykkishólmi og kom ekki til Reykjavíkur fyrr en hann var 16 ára. En eins og margir Hólmarar, gekk Ríkharður í Val og þrír þeirra leika með meistaraflokkn- um í dag. Ríkharður var 17 ára er hann lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki Vals, á Reykjavík- urmótinu gegn KR. Hefur hann verið fastur maður í Valsliðinu allar götur síðan og því orðinn geysilega leikreyndur miðað við lágan aldur. Mbl. spurði Ríkharð hvort að síðasta keppnistímabil hefði verið hæsti tindur hans til þessa. „Jú, óneitanlega var síðasta keppnistímabil mitt besta per- sónulega tímahil. Sjálfur hef ég aldrei leikið betur. Frá sjónarhóli liðsins var þó tímabilið 1979—’80 betra, enda sigruðum við þá þre- falt, þ.e.a.s. unnum Islandsmótið, bikarkeppnina og Reykjavíkur- mótið.” En körfuknattleikurinn á þessu keppnistímabili? „Ég er ekki nógu ánægður með hann, held helst að liðin hafi ekki byrjað að æfa nógu snemma fyrir tímabilið. Valur er þar ekki und- anskilinn, til dæmis hef ég sjálfur ekki æft eins vel og til dæmis á síðasta keppnistímabili. Ég held að æfingarleysi sé frekar ástæðan fyrir því að körfuknattleikurinn hefur verið heldur daprari að þessu sinni heldur en síðustu árin, ekki að „standardinn" hafi lækk- að. Þá spilar einnig inn í, að bandarísku leikmennirnir sem leika hérlendis eru ekki eins litrík- ir og áður, meiri liðsmenn og ekki eins áberandi." Og að lokum Ríkharður, hvað er framundan? „Já, við setjum stefnuna á ís- landsmeistaratitilinn og eigum vissulega enn möguleika þó að á ýmsu hafi gengið hjá okkur til þessa. Við erum ekki nema fjórum stigum á eftir efstu liðunum og með góðum spretti gætum við brú- að það bil. Þá munum við að sjálfsögðu mæta ákveðnir til leiks í bikarkeppninni og við ætlum okkur að verja þann titil." ~ gg- Körfuknalllelkur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.