Morgunblaðið - 14.01.1982, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1982
11
Kvenfélag Bústaðasókn-
ar efnir til „vinnuvöku“
Mótmæla ástandinu í þjóðfélaginu, þar
sem allt logar í sundurþykkju og ófriði
„Landmannaleitiru
sýndar í Aratungu
Á FIJNDI í kvenfélagi Bústaðasókn-
ar þann 11. janúar sl. var samþykkt
að hrinda fram áður kominni hug-
mynd, að efna til aðgerða, sem hægt
væri að kalla „vinnuvöku".
Ætlunin er að fjölmenna í fé-
lagsheimili Bústaðakirkju og
skiptast á að vaka og vinna stans-
laust frá kl. 20 á föstudagskvöld
15. janúar nk. til sunnudagsins 17.
janúar, hlýða á messu kl. 14, opna
síðan basar og selja muni þá sem
tekist hefur að vinna á vökunni.
Tilgangur vöku þessarar er tví-
þættur: I fyrsta lagi fjáröflunar-
leið, því peningum þeim, sem inn
kunna að koma, verður varið í
þágu aldraðra á nýbyrjuðu ári
þeirra, og í öðru lagi og ekki hvað
síst til að mótmæla ástandinu í
þjóðfélaginu, þar sem allt logar í
sundurþykkju og ófriði.
Félagskonur vilja hvetja lands-
menn til að sýna samstöðu, kefjast
minna af öðrum, en gefa meira af
sjálfum sér.
Félagið heitir á allar félagskon-
ur og aðra þá sem áhuga hafa á
málefni þessu, að koma á fyrr-
nefndum tíma og hafa með sér
verkefni eða eitthvað til skemmt-
unar. Séð vérður um að heitt verði
á könnunni allan tímann.
SÝNINGAR á kvikmynd Guðlaugs
Tryggva Karlssonar, „Landmanna-
leitir" standa yfir um þessar mund-
ir, og hefur jafnan verið húsfyllir.
Næsta sýning verður nk. föstu-
dag 15. janúar í Aratungu í Bisk-
upstungum og 29. janúar verður
myndin sýnd í Árnesi. Aukamynd-
ir eru sýndar á öllum sýningum og
að jafnaði reynt að sýna myndir er
BJÖRN Baldursson, fyrrverandi
dagskrárritstjóri hjá Sjónvarpinu,
hefur verið ráðinn til Rauða kross
íslands.
Björn var dagskrárritstjóri hjá
Sjónvarpinu í rösk sex ár og ann-
aðist þá m.a. dagskrárkynningar.
Björn er nú deildarstjóri í kynn-
tengjast viðkomandi héruðum.
Meðfylgjandi mynd var nýlega
tekin á sýningu Rangæingafélags-
ins í Fóstbræðraheimilinu í
Reykjavík. Á myndinni má m.a.
sjá heiðursgest sýningarinnar,
Vigdísi Finnbogadóttur, forseta
íslands, Ástríði dóttur hennar og
dr. Alfreð Árnason, formann
Rangæingafélagsins.
ingar- og fjáröflunardeild RKÍ og
verður starf hans þar m.a. fólgið í
því að kynna starfsemi Rauða
krossins hér á landi, aðstoða
deildir félagsins um allt land á því
sviði, sjá um útgáfu- og út-
breiðslumál og ennfremur verða
fjáröflunarmál i umsjá hans.
Bæjarráð Hafnar-
fjarðar:
Veittur verði
10% afsláttur
af fasteigna-
sköttum
Á FUNDl bæjarráðs Hafnarfjarðar
21. desember var samþykkt að
leggja til við bæjarstjórn að veittur
verði 10% afsláttur á fasteignaskatti
íbúðarhúsnæðis árið 1982, þannig að
hann verði aðeins 45% af fasteigna-
mati. Fasteignaskattur af atvinnu-
húsnæði verði \% af fasteignamati.
Ennfremur að gjalddagar fast-
eignaskatts skuli vera 15. janúar
og 15. maí og greiðist hann að
hálfu á hvorum gjalddaga, verði
vanskil á greiðslu fyrrihluta
skattsins fellur hann allur í gjald-
daga þá þegar. Einnig að fram-
talsnefnd athugi framtöl lífeyris-
þega og reikni út lækkun á fast-
eignaskatti, sem efnalitlum elli-
og örorkulífeyrisþegum er gert að
greiða. Þá var lagt til að við álagn-
ingu útsvara og aðstöðugjalda
verði notaður sami gjaldstigi og á
seinasta ári.
Ennfremur var samþykkt að
leggja til við bæjarstjórn að
vatnsskattur og holræsagjald
verði lækkað um 50% á þessu ári,
en heimild verði notuð til að inn-
heimta aukavatnsskatt sam-
kvæmt mæli á 10 aura fyrir hvern
rúmmetra vatns.
Þá var lagður fram listi yfir að-
stöðugjalda-, útsvars- og dráttar-
vaxtaskuldir, sem hafa reynzt
óinnheimtanlegar. Skuldir þessar
námu samtals 1.050.169 krónum.
Samþykkt var að leggja til við
bæjarstjórn að fella þessar skuld-
ir niður.
Ráðinn deildarstjóri RKÍ
Bjóöum nú stílhrein skrifstofuhúsgögn sem gefa
óteljandi möguleika. Hönnun Mario Bellini.
Innan þess kerfis eiga að vera til lausnir sem
henta skrifstofum af hvaða stærð sem er.
Lítil og stór skrifborð, upp í 8 metra löng fundar-
annar búnaður, öllu haglega fyrirkomið.
9 möguleikará litasamsetningum, allt þægilegir
litir, „Massifur" eikarkantur utan um allar borð-
plötur og í plötunum matt harðplast, valið
með tilliti til þæginda við vinnu. Aðstoðum
borð. Vinnukrókar af ýmsum gerðum og við val á réttu lausninni og pöntum eftir
stærðum. Hillur, skáparog hverskonar ykkar þörfum. Samkeppnishæft verð.