Morgunblaðið - 14.01.1982, Blaðsíða 48
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
jrcgtutMitfrifr
Síminn á afgreiöslunni er
83033
fttftrflinrtlilitfrlfr
FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1982
Sjómannaverkfallið:
Enginn hafði hafnað sátta-
tillögunni klukkan tvö í nótt
Reiknað með 12% gengisfellingu í dag
Meövitundarlaus
ALVARLEGT umferdarsly.s vard um
klukkan 19.30 í gærkvöldi á gatnamót-
um Hafnarstrætis og Kalkofnsvegar.
15 ára gamall piltur á léttu bifhjóli ók
inn í hlid lögreglubifreiðar. Hann var
fluttur meðvitundarlaus í slysadeild
Borgarspítalans.
Filturinn ók norður Lækjargötu og
virðist hafa ætlað áfram norður Kalk-
ofnsveg, en lögreglubifreiðinni var ek-
ið austur Hafnarstræti og áfram í
Hverfisgötu. Biðskylda er á Lækjar
götunni. Drengurinn var með hjálm og
dökkt plastgler til að verjast regni.
Ljóuin. Júlíus
l>E(<AK Morgunblaðið hafði síðast fréttir af samningamálum sjómanna og
útgerðarmanna um tvöleytið í nótt hafði enginn hafnað sáttatillögu þeirri,
sem lögð var fram í gær. Ekki hafði verið skýrt frá innihaldi sáttatillögunnar,
cn eitt höfuðmálið í henni mun vera lausn á frídagamálinu, sem mikill styrr
hefur staðið um síðustu daga.
Ríkisstjórnin kemur saman til
fundar klukkan 9 árdegis og verð-
ur þá tekin afstaða um gengisfell-
inguna og hve mikil hún verður.
Sáttafundur hófst í sjómannadeil-
unni klukkan 9 í gærmorgun og
voru málin almennt rædd fram
eftir degi. Klukkan 18 var húsa-
kynnum sáttasemjara lokað og
fékk enginn að fara út né inn, en
þá var lögð fram innanhússsáttat-
illaga. Morgunblaðið fregnaði í
gærkvöldi, að útgerðarmenn hefðu
tekið sáttatillögunni nokkuð vel og
skilað sínu áliti fljótlega, sömu
sögu væri að segja um yfirmenn á
togurum, nema hvað vélstjórar á
stærri togurunum væru ekki
hrifnir af öllu í tillögunni. Sagt
var að ágreiningur væri um sátta-
tillöguna innan samninganefndar
sjómanna, þar vildu sumir sam-
þykkja tillöguna, en þeir væru
fleiri sem væru á móti.
Einn af viðmælendum Morgun-
blaðsins sagði í gærkvöldi, að ef
ekki næðist samkomulag í déll-
unni í þessari lotu, væri málið
komið á mjög alvarlegt stig og þá
algjörlega óvíst hvenær deilan
leystist. Það eina sem menn gætu
huggað sig við í augnablikinu væri
að enginn hefði hafnað sáttatillög-
unni formlega.
Gengisfelling verður væntan-
lega ákveðin á ríkisstjórnarfundi,
sem boðaður hefur verið klukkan 9
árdegis. Samkvæmt upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur aflað sér,
þá er reiknað með 12% gengisfell-
ingu. Viðmælandi Morgunblaðsins
úr ráðherrastétt sagði í gærkvöldi,
að ákvörðun um gengisfellingu
yrði að mestum líkindum tekin á
rikisstjórnarfundinum, hvort sem
náðst hefði saman í sjómannadeil-
unni eða ekki.
Ríkisstjórnin kom saman til
fundar klukkan 18 í gær og sat
Jóhannes Nordal, seðlabanka-
stjóri, fundinn fram yfir klukkan
19, en þá var ljóst að ekki næðist
saman um sáttatilboð i sjómanna-
deilunni næstu klukkutímana.
Ríkisstjórnarfundurinn stóð síðan
t'il klukkan rúmlega hálf átta, en
þá var ákveðinn nýr fundur í dag
— „ákvarðanafundur", eins og
heimildarmaður Morgunblaðsins
orðaði það í gærkvöldi.
Boltinn hans
Guðjóns í
Borgarnesi
er í Noregi
MORGUNBLADINU hefur bor
izt bréf frá barna- og unglinga-
skóla á eyju í norska skerjagarð-
inum, Mausundsvær. í bréfinu,
sem skrifað er af cinum af kenn-
urum skólans er þess getið, að
nýlega hafi rekið á fjörur þar
eystra fótbolta. Á boltann sé
skráð nafn, sem menn telja þar
hljóma mjög íslenzkulega.
Áletrunin á boltanum er: „Guð-
jón Borgarnes".
Á þessari norsku eyju er gefið
út skólablað og í þessu blaði sem
öðrum skipa fréttir heiðurssess.
Því var þetta mikil frétt í blað-
inu, er sjómaður frá eynni fann
boltann góða, sem svo langt var
að kominn.
Kennarinn, sem ritar Morgun-
blaðinu bréfið, segir að mönnum
sé umhugað að koma boltanum
til skila. Því leitar hann til
Morgunblaðsins um aðstoð og
jafnframt væntir skólablaðið
þess að saga boltans verði upp-
lýst. „Ef næst í eiganda boltans
yrði það stórfrétt í skólablaðinu"
— skrifar kennarinn. I umboði
norska kennarans lýsir því
Morgunblaðið eftir eiganda bolt-
ans góða, Guðjóni í Borgarnesi,
og er hann beðinn að hafa sam-
band við fréttaritara Morgun-
blaðsins í Borgarnesi, Helga
Bjarnason.
Tap Kisiliðjunnar um 7
milljónir króna í fyrra
Markaðshorfur heldur betri á yfirstandandi ári, segir Hákon Björnsson
„ENDANLEGT uppgjör fyrir árið 1981 liggur enn ekki fyrir, en sam-
kvæmt bráðabirgðatölum verður hallinn á fyrirtækinu eitthvað í nám-
unda við 7 milljónir króna, sem er heldur minna en við höfðum gert ráð
fyrir í upphafi vetrar,“ sagði Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Kísil-
iðjunnar við Mývatn, í samtali við Mbl., er hann var inntur eftir stöðu
mála hjá fyrirtækinu.
1 svari Hákonar Björnssonar
til alþingis í októbermánuði sl.
um hvernig tap fyrirtækisins
væri fjármagnað, sagði hann, að
það væri aðallega gert með
frestun á greiðslum til lánar-
drottna vegna kaupa á vöru og
þjónustu; með því að draga úr
birgðahaldi eins og frekast er
unnt; með frestun á greiðslu af-
borgana og vaxta af láni hjá
John Manville’s Corporation;
með láni úr lánsfjáröflun ríkis-
sjóðs með milligöngu iðnaðar-
ráðuneytisins og Ríkisábyrgða-
sjóðs, 5.950 milljónir króna; með
bráðabirgðaláni úr ríkissjóði,
800 þúsund krónum og loks með
yfirdráttarláni hjá Landsbanka
Islands.
Aðspurður sagði Hákon
Björnsson, að þeir hjá Kísiliðj-
unni gerðu sér vonir um að
ástandið myndi heldur færast í
betra horf á yfirstandandi ári.
„Við þykjumst sjá þess merki,
að markaðurinn sé heldur á
uppleið," sagði Hákon ennfrem-
Á síðasta ári voru framleidd
liðlega 20.200 tonn af kísilgúr,
en að sögn Hákonar Björnsson-
ar gera þeir ráð fyrir 22—23.000
tonna framleiðslu á yfirstand-
andi ári, sem ætti að vera hægt
að selja með skánandi markaðs-
ástandi. Heildarafkastageta
Kísiliðjunnar er um 24.000 tonn,
þannig að hún verður að mestu
nýtt á þessu ári ef að líkum læt-
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna:
Útflutningur til Bandaríkjanna
dróst saman um 24,5% á sl. ári
IJTFLUTNINGUR Sölumióstödvar
hraófrystihúsanna til Bandaríkjanna
dróst saman um 24,5% á síóastliðnu
ári. SH flutti 39.667 tonn af frystum
sjávarafurðum til Bandaríkjanna í
fyrra, á móti 52.545 lestum árið 1980.
Þessi samdráttur í útfTutningi á þenn-
an markað stafar af minnkandi fryst-
ingu á fslandi, en ekki síst af aukinni
samkeppni Kanadamanna á Banda-
ríkjamarkaði. Á hinn bó(»inn jók SH
sölu til Englands um 38,2%, til Frakk-
lands um 21,7% og til Belgíu um 22,8%.
Sölumiðstöðin jók útflutning sinn
í heild til landa Efnahagsbandalags
Evrópu um 8,1% eða úr 26.778 tonn-
um í 28.940 tonn. Guðmundur H.
Garðarsson blaðafulltrúi SH sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
samdrátturinn í útflutningi til
Bandaríkjanna stafaði ekki
síst af harðnandi samkeppni Kan-
adamanna. Hins vegar sagði Guð-
mundur, að þeir hjá SH viðurkenndu
ekki, að kanadíski fiskurinn væri
jafngóður hinum íslenzka og þess
vegna myndu íslendingar halda
sinni verðpólitík áfram ótrauðir,
enda íslenzki fiskurinn allsstaðar
viðurkenndur, sem úrvals vara.
Forsvarsmenn okkar í Bandaríkj-
unum töldu á síðastliðnu ári, að það
bæri að hækka verð á 5 punda flaka-
pakkningunum og var verðið hækkað
um 13% um mánaðamótin maí—júní
en þá hafði verð á þessari pakkningu
verið óbreytt í all langan tíma.
Það hefur alltaf verið stefna Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna að
gera sitt ýtrasta til að fá sem hæst
verð fyrir afurðirnar og verðhækk-
unin á flökunum var í takt við þá
grundvallarstefnu. Sumir munu
kannski segja, að verðið á islenzka
fiskinum sé hátt samanborið við
verðið á kanadíska fiskinum, en það
er skoðun þeirra sem gjörst til
þekkja, að Kanadamenn muni haga
sinni verðpólitík þannig, að verð-
mismunur á þeirra fiski og þeim ís-
lenzka verði með þeim hætti, að þeir
geti tryggt sér sölu á því magni sem
þeim hentar. I þessu sambandi má
vekja athygli á, að kanadískur sjáv-
arútvegur nýtur hárra styrkja af
hálfu hins opinbera. Það er alvarlegt
að á sama tíma og við erum að reyna
að halda háu verði í erfiðri sam-
keppni, þá snýst öll umræða hér um
að auka allan tilkostnað og álögur á
frystiiðnaðinn og flotinn er stöðvað-
ur af þeim sökum. Þetta ætti að
vekja fólk til alvarlegrar umhugsun-
ar um hvar við erum stödd, sagði
Guðmundur.
Heildarframleiðsla Sölumiðstöðv-
ar hraðfrystihúsanna var 88.230
lestir á síðastliðnu ári, en árið 1980
var framleiðslan 97.499 lestir og er
samdráttur milli ára 9,5%. Fram-
leiðsla Sambandsfrystihúsanna var
á síðasta ári 31.370 tonn, er það 5%
minna magn en árið 1980.
Rækjusjómenn
róa þrátt fyr-
ir verkfallið
RÆKJIISJ()MENN á ísafirði hófu
róóra á mánudag þrátt fyrir verkfall
sjómanna og að verð á rækju hafi
ekki verið ákveðið. Var ákveðið að
hefja róðra upp á það verð, sem
ákveðið kann að verða á næstunni.
Eigendur bátanna eru í Smábátafé-
laginu Huginn, en sjómennirnir í
sjómannafélaginu.
í fyrrakvöld var haldinn fundur
á ísafirði í Bylgjunni, félagi skip-
stjóra og stýrimanna. Rætt var
um óróa meðal sjómanna á Pat-
reksfirði og áhuga þeirra á að
komast út. Á þessum fundi var
algjör samstaða, að sögn heim-
ildamanna Morgunblaðsins, um
að standa saman þar til botn
fengist í kjaramálin og ákvörðun
um fiskverð. Munu Patreksfirð-
ingar fara að tilmælum fundar-
ins.