Morgunblaðið - 14.01.1982, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1982
Mark Thatcer með franskri vinkonu sinni, Annie Charlotte Verney, sem þátt tekur í kappakstrinum frá París til
Dakar með honum.
Mark Thatcher ófundinn
í Sahara-eyðimörkinni
<.a« (Malí), Alt'cirsborg, Ixindon, 13. jan. AP.
EKKERT hafði í kvöld
spurzt til Marks Thatchers,
hins 28 ára gamla sonar
Margrétar Thatchers forsæt-
isráðherra Breta, en hann
hefur verið týndur í Sahara
eyðimörkinni í 5 daga ásamt
tveimur förunautum sínum.
Mark Thatcher er kappaksturs-
maður að atvinnu og var staddur í
Sahara eyðimörkinni í Alsír í
kappakstri á leið frá París til Dak-
ar í Senegai, þegar síðast sást til
hans. Hans er nú ákaft leitað af
hermönnum, lögreglu og sjálf-
boðaliðum frá Alsír og Malí.
Franskar herflutningaflugvélar,
sem aðsetur hafa í Senegal, hafa
einnig tekið þátt í leitinni.
Margrét Thatcher skömmu eftir að
hún brast í grát í hótelanddyri í
London í gær vegna þess að sonur
hennar er nú týndur í Sahara-eyði-
mörkinni.
Denis Thatcher, faðir Marks,
kom síðdegis í dag til Alsír til að
fylgjast með leitinni, en forsvars-
mönnum kappakstursins hefur
þótt leitarmenn vinna slælega að
henni. I kvöld var von á Denis
Thatcher og brezka sendiherran-
um í Alsír til borgarinnar Tam-
anrasset, en þaðan er leitinni
stjórnað.
Margrét Thatcher forsætisráð-
herra viknaði í dag tvívegis og tár-
felldi skömmu áður en hún átti að
flytja ræðu á fundi smáatvinnu-
rekenda.
Hún náði þó fljótt valdi á
tilfinningum sínum og flutti 30
mínútna ræðu, eins og ekkert
hefði á skorizt. Ráðherrann aflýsti
síðan fundi með ungverska utan-
ríkisráðherranum.
Umferdarkös í miklum vetr
arhörkum f Bretlandi
l-ondon, 13. janúar. Al*.
JÁRNBRAUTASAMGÖNGUR lögðust niður í Bretlandi í dag vegna
tveggja sólarhringa verkfalls 25.000 lestarstjóra og vinnustöðvunin eykur
þrengingar fólks í Bretlandi af völdum mestu vetrarharðinda í meira en
30 ár.
Verkfallið, fyrsta landsverkfall
á járnbrautunum síðan 1955, hófst
á miðnætti og milljónir Breta
urðu að hafa sig alla við til að
komast til vinnu sinnar, hvort
heldur með bílum, strætisvögnum
eða jafnvel hjólaskautum þrátt
fyrir ísingu á vegum, fannfergi,
frost og þoku, sem náði frá Essex
nálægt London í suðri til Yorks-
hire í norðri.
Margir skrifstofustarfsmenn
höfðust við á skrifstofum sínum í
nótt en aðrir fengu sér gistingu á
hótelum.
Félag bifreiðaeigenda sagði frá
slysum um allt Bretland, m.a.
árekstrum margra bíla í einu. Þeir
árekstrar urðu til þess að fjórar
hraðbrautir til höfuðborgarinnar
lokuðust.
Kona nokkur beið bana í
árekstri í frostþoku á vegi í Yorks-
hire og þar með hafa minnst 20
beðið bana í kuldunum síðan á
föstudaginn. Eitt annað dauðaslys
Brown sviptur öku-
leyfí vegna ölvunar
varð í umferðinni í dag. Skyggni
var víða 5 til 15 metrar.
í London hófst aðalumferðar-
tíminn í morgun tveimur tímum
fyrr en venjulega, um sexleytið.
Umferðarhnútar sem mynduðust
umhverfis höfuðborgina þöktu 800
km svæði um áttaleytið, akst-
ursskilyrði voru afleit og bílarað-
irnar víða allt að 11 km langar.
í Manchester og Stockport
mynduðust allt að 10 mílna langar
raðir bifreiða.
Tuttugu vörubílar og fólksbílar
lentu í einum og sama árekstrin-
um í frostþoku á þjóðvegi nálægt
Oxford, en enginn beið bana.
í Bandaríkjunum hafa 116 beðið
bana í kuldakastinu þar síðustu
fimm daga. I suðurríkjunum var
slydda, snjókoma og rigning. Gíf-
urlegar skemmdir hafa orðið á
ávaxtauppskeru í Flórída.
Landsstjóri skip-
aður í Ástralíu
l/ondon, 13. janúar. Al*.
SIR NINIAN Martin Stephen, 58 ára gamall ástralskur dóm-
ari, hefur verid skipaður nýr landsstjóri í Ástralíu, að því er
tilkynnt var í Buckinghamhöll í kvöld og var þar með bund-
inn endir á vangaveltur þess efnis að Karl krónprins myndi ef
til vill taka við þessum starfa.
Á sl. ári voru áleitnar
sögusagnir um að Karl
krónprins væru mjög dús
við þá tilhugsun að verða
landsstjóri í Ástralíu og
sagt var að Malcolm Fras-
er, forsætisráðherra lands-
ins, væri fylgjandi því.
Stjórnarandstöðuflokkur-
inn, Verkamannaflokkur-
inn, var andvígur því og
sömuleiðis lýðveldissinnar í
Ástralíu. I skoðanakönnun
í apríl sl. kom í ljós að 51
prósent Ástralíumanna
voru andsnúnir því að Karl
fengi landsstjórastöðuna
og í annarri skoðana-
könnun vildu 70 prósent
spurðra að Ástralíubúi yrði
skipaður til starfans.
Sir Ninian fæddist í
Englandi, en hefur búið í
Ástralíu síðan hann var
sautján ára að aldri. Hann
tekur við landsstjórastöð-
unni af Sir Zelman Cowen,
sem hefur verið landsstjóri
síðan 1977 og lætur af
störfum næsta sumar.
Veður
víða um heim
Akureyrí 2 alskýjaö
Amsterdam -0 bjart
Aþena 18 bjart
Barcelona vantar
Berlín -6 skýjaö
Brússel 0 bjart
Chicago +15 skýjaö
Denpasar 29 rigning
Dublin 3 bjart
Feneyjar vantar
Frankfurt +3 heiöskírt
Færeyjar 8 rigning
Genl 9 skýjaö
Helsinki +5 skýjað
Hong Kong 17 skýjaö
Jerúsalem 15 bjart
Jóhannesarborg 26 bjart
Kaupmannahöfn +8 skýjaö
Kairó 20 bjart
Las Palmas vantar
Lissabon 12 rigning
London +1 bjart
Los Angeles 19 bjart
Madríd 11 skýjaö
Malaga 12 skýjað
Mallorka vantar
Miami 16 rigning
Moskva +7 bjart
New York +8 snjókoma
Nýja Delhi 21 bjart
Osló +2 skýjaö
Parfs 0 bjart
Perth vantar
Reykjavík 3 rigning
Rfó de Janeiro 28 rigning
Rómaborg 18 bjart
San Francísco 16 bjart
Stokkhólmur +8 skýjaö
Sydney vantar
Tel Aviv 19 bjart
Tókýó 11 skýjaö
Vancouver 5 rigning
Vfnarborg +5 skýjað
Ghazali utanríkisráðherra:
Var hræddari
við kommúnista
en óargadýrin
Kuala Lumpur, 13. janúar. Al*.
GHAZALI SHAFIE, utanríkisráð-
herra Malaysíu sem lifði af flugslys
um helgina fékk í dag að lesa á
sjúkrasæng frásagnir í indónesísk-
um blöðum um lát hans. Ghazali
sagði, að það væri býsna kyndugt að
lesa minningargreinar um sig.
Tveir létust í slysinu, en Ghazali
tókst með harðfylgi að kasta sér
út úr vélinni skömmu áður en hún
skall til jarðar. Hann sagðist hafa
forðað sér af slysstaðnum hið
bráðasta þar sem vitað er að
vinstrisinnaðir skæruliðahópar
eru á þeim slóðum. „I mínum huga
stafaði hættan frá kommúnistum
en ekki villidýrum þarna í skógin-
um,“ sagði ráðherrann. Þegar
björgunarsveitir tóku að leita á
svæðinu urðu þær hins vegar ekki
varar við neinar skæruliðasveitir
kommúnista og bendir ekkert til
að þær hafi komið að vélarflakinu.
38 drukknuðu í
Viktoríuvatni
Dar es Salaam, Tanzaníu, 13. janúar. Al*.
FRÉTTASTOFA Tanzaníu greindi
frá því í kvöld, að óttazt væri að 38
manns að minnsta kosti hefðu
drukknað er ferju hvolfdi á Vikt-
oríuvatni í morgun.
Tólf komust lífs af. í fréttum
segir að ferjan hafi mátt flytja
25 manns, en sýnt sé að yfir
fimmtíu hafi verið um borð,
þegar ferjan fórst í siglingu frá
Kinese til Musoma við Viktoríu-
vatnið.
ERLENT
llailsham, Knt'landi, 13. jan. Al*.
GEORGE Brown, lávarður, fyrrver
andi utanríkisráðherra Breta, viður
kenndi fyrir rétti í dag, að hann
hefði ekið bifreið undir áhrifum
áfengis og var hann dæmdur til að
greiða 200 punda sekt og sviptur
ökuleyfi í þrjú ár.
Lögreglan skýrði frá því að sézt
hefði til ráðherrans fyrrverandi í
bíl sínum og hefði ökulag verið
mjög undarlegt. Var Brown því
skipað að nema staðar og sam-
kvæmt blóðprufu kom síðan í ljós
að í blóði Brown mældist margfalt
það áfengismagn sem leyfilegt er
til að menn megi aka í Bretlandi.
Brown sagði fyrir réttinum í
dag að hann hefði drukkið hálfa
flösku af víni á leið í lest frá Lond-
on til Polegat í Sussex, en þar sté
hann svo upp í bíl sinn. Hann
sagði, að móðir hans og eiginkona
Egyptar vilja ræða sjálfs-
stjórn Palestínuaraba
Kaíró, Jprúsalem, 13. janúar. Al*.
ALEXANDER Haig, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag í Kaíró,
að Mubarak Egyptalandsforseti hefði gefið sér ákveðið fyrirheit um að
Egyptar myndu halda áfram viðræðum við ísraelsmenn um sjálfsstjórn
Palestínuaraba á Vesturbakka Jórdanár og Gaza af fullri einlægni.
hefðu nýlega fengið hjartaáföll og
hann hefði drukkið vínið til að
sefa ókyrrð í sálinni.
Nú eru innan við 100 dagar þar
til Israelsmenn eiga að skila Eg-
yptum aftur síðasta hluta Sínaí-
skagans í samræmi við Camp
David-samkomulagið.
í ísrael
hafa menn að undanförnu haft
vaxandi áhyggjur af því að samn-
ingsstaða Israels í viðræðum við
Egypta muni mjög versna þegar
þetta land hefur verið látið af
hendi.
Enginn árangur hefur orðið
undanfarna 18 mánuði af viðræð-
um aðila, sem fram hafa farið
undir forystu Bandartkjamanna.
Ymsir Bandaríkjamenn, sem þátt
hafa tekið í viðræðunum, eru
þeirrar skoðunar að gott tækifæri
sé til að koma viðræðum á skrið
áður en Sínaískaginn verður allur
kominn í hendur Egypta á ný.
Sjálfsstjórn Palestínuaraba er
síðasta atriðið, sem enn er ósamið
um í samræmi við Camp David-
samkomulagið, en það var gert
1979.
Fréttir frá ísrael í dag hermdu
að Egyptar og ísraelsmenn hefðu
gert með sér leynilegt samkomu-
lag, sem gerði Israelsmönnum
kleift að fresta brottflutningi
landbúnaðartækja frá Sínaískaga
í nokkra mánuði eftir að landinu
hefur verið skilað.