Morgunblaðið - 14.01.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANUAR 1982
23
Christian Barnard og Barbara.
Barbara skilur við Barnard
Höfðaborg, S-Afríku, 13. jan. AP.
Engar sannanir
í Dozier-málinu
Kóm, 13.janúar. AP.
FRÉTTUM um að verulega hefði miðað áfram í leitinni að James
L.Dozier hershöfðingja var vísað á bug í dag. „Við erum aftur staddir
þar sem við byrjuðum," hafði Mflanó-blaðið Corriere della Sera eftir
rannsóknarmönnum í fyrirsögn.
BARBÖRU Barnard, eiginkonu hins
fræga suðurafríska skurðlæknis
Christian Barnards, var veittur
skilnaður frá eiginmanni sínum fyrir
dómstóli í Höfðaborg í dag. Sam-
kvæmt suðurafrískum lögum eru
orsakir skilnaðarbeiðni ekki látnar
uppi.
SERKI MYRTUR
BEIRÚT: Háttsettur stjórnar-
erindreki frá Alsír, Rabeh Jerwa,
fannst látinn í úthverfi Beirút á
miðvikudag, fimm tímum eftir að
óþekktir og vopnaðir menn rændu
honum frá heimili hans í borginni.
FASTA í MOSKVU
MOSKVU: Tvær sovézkar hvíta-
sunnukonur hafa lýst því yfir að
þær muni halda áfram mótmæla-
svelti við bandaríska sendiráðið í
Moskvu þrátt fyrir viðvaranir um
að þær kunni að verða afhentar
sovézkum embættismönnum ef
þær komast í lífshættu. „Þetta er
íokatilraun okkar til að komast úr
landi. Við höldum áfram unz yfir
lýkur," sagði önnur konan, Lydia
Vaschenko.
GESTUR BARINN
LONDON: Brezki verkfræðing-
urinn Steven Kitson, sem var
hafður sex daga í haldi í Suður-
Afríku þegar hann heimsótti föð-
ur sinn í fangelsi, segist hafa sætt
barsmíðum öryggislögreglunnar í
Jóhannesarborg, m. a. verið barið
utan í vegg. David faðir hans að-
stoðaði blökkumannasamtökin
ANC og var dæmdur í 20 ára fang-
elsi fyrir skemmdarverk, sem er
lengsti dómur hvíts stjórnmála-
fanga í S-Afríku.
STÁLU OG FLÚÐU
NÝJU DELHÍ: Þrír kunnir
embættismenn stjórnarinnar sem
Rússar styðja í Afghanistan
„stungu af“ í Vestur-Evrópu í síð-
asta mánuði og höfðu á brott með
sér verulegar upphæðir fjár úr
eigu ríkisins að sögn vestræns
stjórnarerindreka. Einn þeirra,
bróðir yfirmanns afghönsku ör-
yggislögreglunnar, hafði með sér
140.000 dollara.
EKKI Á DAGSKRÁ
ÞÓRSHÖFN: Aðild Færeyja,
Grænlands og Álandseyja í Norð-
urlandaráði verður ekki á dagskrá
fundar ráðsins í Helsinki í marz.
Viðræðum í 10-manna-nefnd sem
fjallar um málið er ekki lokið og
nefndin er ekki í aðstöðu til að
leggja fram tillögur á fundinum.
Kosningar í Noregi og Danmörku
hafa seinkað málinu. Nefndin
hittist í Helsinki.
PRESTUR FYRIR
RÉTT
STOKKHÓLMI: Presturinn
Frantisek Lizna í Tékkóslóvakíu
verður leiddur fyrir rétt 21. janúar
fyrir að „skaða þjóðarhagsmuni
erlendis". Hann var handtekinn í
september í fyrra og dæmdur í 20
mánaða fangelsi fyrir ólöglega
prentun trúarrita. Hann hafði lýst
starfsaðstöðu sinni í Tékkóslóv-
akíu í bréfi til systur sinnar á
Englandi.
Barnard varð á sínum tíma
heimsfrægur, er hann varð fyrstur
lækna til að græða hjarta í menn.
Þau hjón giftust 1970 og eiga
tvo syni. Barnard er nú 58 ára.
Hann var áður kvæntur Alettu
Barnard í 22 ár.
39 TIMA
VINNUVIKA
PARÍS: Franska stjórnin hefur
með tilskipun stytt löglega vinnu-
viku í 39 stundir og innleitt fimm
vikna oriof. Með annarri tilskipun
eru fyrirtæki undanþegin vissum
félagslegum gjöldum ef þau stytta
vinnuviku starfsmanna meir.
Fjölmiðlar höfðu sagt að í að-
gerðum um helgina hefði tekizt
að handsama hryðjuverkamenn
sem hefðu staðið í sambandi við
mannræningjana. Kona sem var
handtekin, Franca Musi, var
sögð hafa flutt skilaboð frá
mannræningjunum á Norður-
Ítalíu til félaga þeirra í Róm.
Lögreglan sagði að hún kynni að
geta upplýst málið.
En Guido Papalia rannsókn-
ardómari, sem stjórnar leitinni,
sagði í dag að engar sannanir
LANDSSTJÓRN Færeyja er
hiynnt áformum um að byggt verði
norrænt farþega- og flutningaskip,
og landsstjórnin leggur til að
stjórnun verði í höndum Færey-
inga og það sigli undir færeyskum
fána.
Þetta kemur fram í svari
landsstjórnarinnar til sam-
göngunefndar Norðurlandaráðs
lægju fyrir um beint samband
mannræningjanna úr Feneyj-
ardeild Rauðu herdeildanna við
þá 14 grunuðu hryðjuverkamenn
sem hefðu verið handteknir í
Róm síðustu daga.
í Verona heimsótti Frederick
J. Kroessen, yfirmaður landhers
Bandaríkjanna í Evrópu, konu
Doziers, Judith. Litlu munaði að
Kroessen biði bana þegar vest-
ur-þýzkir hryðjuverkamenn
sýndu honum banatilræði í
Heidelberg 15. sept.
og þar er bent á að Færeyingar
hafi borið hita og þunga af
rekstri farþega- og flutninga-
skips á Norður-Atlantshafi og ef
norræn ferja fari að keppa við
Smyril muni það stefna atvinnu
hóps manna í voða.
Landsstjórnin segist fús að
taka þátt í undirbúningi málsins
og hugsanlegt sé að áætlun
Smyrils verði tekin með sem
hluti af framkvæmdinni.
Giovanni Senzani, prófessor I af-
brotafræðum, sem hefur verið hand-
tekinn ásamt öðrum félögum úr
Rauðu herdeildunum vegna Dozier
málsins.
Nunnunauðg-
arar játa
New Vork, 13. janúar. Al’.
TVEIR MENN, sem eru ákærðir
fyrir að hafa nauðgað og misþyrmt
nunnu í októbermánuði, fengu leyfi
til að játa á sig ákæruna vegna þess
að þá þarf nunnan ekki að mæta
fyrir réttinum og bera vitni.
Einnig getur þetta átt þátt í
tvennu: dómur kann að verða
mildari og nunnan getur hugsan-
lega jafnað sig af því alvarlega
áfalli sem hún varð fyrir við
nauðgunina og síðan vegna mikils
kvíða um að þurfa að bera vitni og
berja aftur augum nauðgara sína.
Meðan annar mannanna nauðgaði
munnunni risti hinn krossa og alls
komar merki á hendur og fætur
hennar með rakvélarblaði.
Attþú
þér draum ?
Ljúft er aö láta sig dreyma
og enn Ijúfara að láta þá rætast
Þeirsem spila með
ÍHHÍ82 þurfa ekki að
láta koma sér á óvart þó
jafnvel lygilegustu draumar
Vinningaskrá:
þeirra geti ræst. Hvernig líst þérá að vera með þegarviðdrögum út136 milljónir króna? 9 @ 9 — 9 — 198 — 1.053 — 27.198 — 106.074 — 200.000,- 50.000,- 30.000- 20.000,- 7.500, - 1.500, - 750,- 1.800.000- 450.000- 270.000,- 3.960.000,- 7.897.500- 40.797.000 - 79.555.500 -
134.550 450 — 3.000,-' 134.730.000- 1.350.000-
135 000 136.080.000-
■■■■ ■•■••■•• ■••• ■••■ ■■■■■•■■ ■••• •■••••■■ ••■■•••■ •■■• ■■■■•■■•
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
hefur vinninginn
Fréttir í stuttu máli
Færeyingar með í ferjusmíði
lN»rshöfn, Færeyjum, 12. janúar.
Frá fréttaritara Mbl. Jogvan Arge.