Morgunblaðið - 27.03.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.03.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MARZ 1982 Helguvík: Framkvæmdir hefjast í dag Boranir á miðvikudag FRAMKVÆMDIR í Helguvík hefj- asl í dag og aA sögn Guðmundar Sigurðssonar hjá Jarðborunum ríkis- ins er stefnt að því að hefja boranir nk. miðvikudag.smorgun, en áður þarf að ganga frá vegarstæði, leggja vatnslögn og vinna að öðrum undir- búningsframkvæmdum. Guðmundur sagði að fram- kvæmdir í dag hæfust á því að Íokið yrði við gerð vegarstæðis, en þeir hefðu þurft að hætta við það verkefni, þegar sett var stopp á Helguvíkurframkvæmdirnar. Bor- inn og annar tækjabúnaður yrði síðan flutt á staðinn á mánudag. Notaður verður einn bor, a.m.k. fyrst í stað, en öðrum bætt við, ef talin verður þörf á því. Aðspurður sagðist Guðmundur telja, að ekk- ert vandamál yrði að ljúka verkinu á tilsettum tíma, sam- kvæmt samningnum, ef ekki gerði illviðri á tímabilinu. Jakob Björnsson orkumálastjóri tók í sama streng og Guðmundur hvað varðar það að unnt verði að ljúka verkinu á tilskildum tíma. Hann sagði: „Að okkar mati hefur töfin ekki orðið til þess að við get- um ekki lokið þessu á tilskildum tíma. Borverki á að Ijúka fyrir lok apríl og skýrslugerð fyrir miðjan maí samkvæmt samningum og við stefnum að því að halda þeim dagsetningum." Álvidrædum lokið: Annar fundur í lok apríl eða byrjun maí S::::; tniiiiiiiia •iiiiiiiii 'Mllllll 'IIIIH Á myndinni má sjá líkan af Bændahöllinni með fyrirhugaðri viðbót. Bændahöllin stækkuð FRAMKVÆMDIR við stækkun Bændahallarinnar hefjast í næsta mánuði. Að sögn Konráðs Guð- mundssonar, hótelstjóra á Sögu, hefur lengi staðið til að reisa þessa viðbótarbyggingu. Astæðan til þess væri einkum sú að fyrirsjáanleg er mikil aukning erlendra ferðamanna hingað til lands á næstu árum. Konráð sagði að með tilkomu þessa nýja húsnæðis myndu 90—95 herbergi bætast við þau 106 sem nú eru í notkun. Auk þess verður veitingabúð og ýmiss konar þjónustuaðstaða í þessari byggingu. Þá verður ein hæð hússins lögð undir starfsemi Bændasamtakanna. Það kom fram hjá Konráð að þeir Garðar Halldórsson, Bjarni Frímanns- son og Kristján Flygenring sjá um teikningu og tæknilega hönnun hússins. Og væri stefnt að því að gera húsnæðið fokhelt að tveimur árum liðnum. Hvalfjörður: Heitt vatn úr borholu FYRIR nokkru lauk Orkustofnun við að bora eftir heitu vatni við hvalstöðina í Hvalfirði og náðist mjög góður árangur. Er nú reiknað með að hvalstöðin hafi nægilegt heitt vatn til sinna þarfa frá borhol- unni, en fram til þessa hefur orðið að hita allt vatn, sem notað er við rekstur stöðvarinnar með olíukatli. ísleifur Jónsson hjá Orkustofn- un sagði þegar Morgunblaðið ræddi við hann, að fyrir nokkrum árum hefði verið borað niður á 1000 metra dýpi í nánd við hval- stöðina. Hiti hefði verið í þeirri holu, en borinn sem notaður var, hefði ekki komist dýpra. Síðan dróst lengi að hægt væri að fá stærri bor til að dýpka holuna, þar til nú að borinn Narfi var notaður við það. Borað var niður á 1513 metra dýpi og þar fengust 15 sekúndu- lítrar af vatni, sem er við suðu- mark, þannig að víð lá að holan gysi. Ekki er reiknað með að holan gefi af sér 15 sekúndulítra í sí- fellu, þar sem borholurnar kólna yfirleitt er frá líður. „ÞAD HEFUR verið farið yfir alla málavöxtu af fyllstu alvöru og ég tel viðræðurnar gagnlegar. Við munum hittast síðar og hef ég von um að málin þokist i rétta átt,“ sagði Hjör- leifur Guttormsson iðnaðarráðherra eftir að viðræðufundi hans og dr. I'aul Miiller, formanns fram- Aöalfundur Iðnaðarbankans AÐALF'UNDUR Iðnaðarbanka ís- lands hf. verður haldinn í dag, laugardag, í Súlnasal Hótel Sögu og hefst kl. 2 e.h. Auk venjulegra aðalfundar- starfa eru til afgreiðslu tillögur um arð og útgáfu jöfnunarbréfa. Þeir hluthafar, sem ekki hafa þegar vitjað aðgöngumiða sinna, geta fengið þá á fundarstað. kvæmdanefndar Alusuisse lauk í Ráðherrabústaðnum um klukkan 18.30 í gær. Að loknum viðræðufundinum sendu iðnaðarráðherra og dr. Múller frá sér sameiginlega fréttatilkynningu og segir þar meðal annars: „Viðræðurnar fóru vinsamlega fram og báðir aðilar leituðust við að jafna deilumál sín. Þar sem viðræðurnar eru á við- kvæmu stigi og nauðsyn á nánari skoðun af beggja hálfu, hefur ver- ið ákveðið að hittast aftur eigi síð- ar en í lok apríl eða byrjun maí 1982.“ Hjörleifur Guttormsson sagði eftir fundinn að deiluaðilar vildu láta reyna á hvort ekki sé hægt að ná samkomulagi og raunar hefðu menn von um það, en tíminn fram að næsta fundi yrði notaður til að skoða málin. Sjálfstæðismenn með tillögur um kjördæmaskipan: Vilja fjölga reykvískum þing- mönnum um 3, reykneskum um 3 til 4 og frá N-eystra um I ÞINGFLOKKUR sjálfstæðismanna fól nýlega Geir Hallgrímssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, að taka upp viðræður við aðra stjórnmálaflokka um breytingar á kjördæmaskipaninni. Tilgangur tillagnanna er að leiðrétta það misvægi, sem orðið hefur á kjördæmaskipan landsins frá árinu 1959. í tillögu sjálfstæðismannanna er gert ráð fyrir að þingmönnum Reykvíkinga verði fjölgað um þrjá, þingmönnum Reyknesinga um þrjá til fjóra og þingmönnum Norðurlands eystra um einn. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er ástæðan fyrir þessari samþykkt þingflokksins sú, að þingmenn Sjálfstæðisflokksins telja óhjákvæmilegt, að gengið verði frá kjördæmaskipaninni áð- ur en gengið verði til næstu kosn- inga og telja þeir að nokkur merki séu á lofti þess efnis, að skemmra geti verið til kosninga, en lögboð- inn tími segir. Eins og áður segir er gert ráð fyrir 3 þingmanna fjölgun í Reykjavík, 3ja til 4ra þingmanna fjölgun í Reykjaneskjördæmi og eins þingmanns fjölgun í Norður- landi eystra. Þá er einnig gengið út frá því, að reglum um úthlutun uppbótarþingsæta verði breytt á þann veg, að ekki verði úthlutað fleiri sætum en nægilegt er til þess að jöfnuður næðist milli flokkanna. Miðað við þá fjölgun, sem tillagan gerir ráð fyrir á þéttbýlissvæðunum, má gera ráð fyrir að jöfnuður milli flokka nást fyrr en nú, svo að ekki þurfi endi- lega að úthluta jafn mörgum upp- bótarsætum og nú. Borgarnes: Athugasemd frá Helga Bjarnasyni fréttaritara Morgunblaðsins MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá Helga Bjarnasyni, fréttaritara blaðsins í Borgarnesi: Eg vil koma eftirfarandi á framfæri vegna athugasemdar í Morgunblaðinu í gær frá Frið- jóni Þórðarsyni, dómsmálaráð- herra, þar sem hann gerir athugasemdir í tilefni af frétt frá mér í Morgunblaðinu síðast- liðinn þriðjudag um aðalfund Sjálfstæðisfélags Mýrasýslu. Ráðherra staðfestir í athuga- scmd sinni í annað sinn fréttina og ber að þakka það, þó óþarfi sé. En hitt er verra og við það sé ég mig knúinn til að gera athuga- semdir, að hann er með dylgjur um tilurð fréttarinnar. Friðjón segir í athugasemd sinni: „Eftir fundinn datt einhverjum heima- manna* í hug, að senda Morgun- blaðinu fréttir af svo ágætum fundi og féll það í hlut Helga Bjarnasonar, sem var einn fund- armanna." Og síðar: „En þá rétt áður hafði ég heyrt, að eitthvað stæði til að birta frá fundinum." Þarna dylgjar Friðjón um trún- aðarbrot, þykist ekki vita að frétt af fundinum væri á döfinni, viðurkennir mig ekki sem frétta- ritara Morgunblaðsins og dylgj- ar um að einhver annar „heima- aðili“ standi að baki. Allt er þetta rangt. Ég er fréttaritari Morgunblaðsins í Borgarnesi og hef verið það í 10 mánuði. Ég reyni að rækja það starf mitt eftir beztu getu. Ég var staddur á aðalfundi Sjálfstæðisfélagsins og skrifaði hjá mér ýmislegt það, sem Friðjón Þórðarson, dóms- málaráðherra, sagði. Yfirlýsingu ráðherra í ríkisstjórn um lífdaga ríkisstjórnar tel ég vera frétta- efni, sem ekki ætti síður erindi til allrar þjóðarinnar en ýmsar fréttir, sem ég hef sent. Það kom og á daginn. Friðjóni er fullkunnugt um, að ég er fréttaritari Morgunblaðs- ins hér á staðnum og að ég punktaði niður eftir honum á fundinum. Það kom einnig opinberlega fram á fundinum í máli eins fundarmanna, að svo væri, enda hafði Friðjón orð á þessu erindi mínu í samtali við mig eftir fundinn. Að síðustu hringdi hann í mig á mánu- dagskvöld til að frétta um þetta. Allt er þetta þó nánast auka- atriði. Það sem skiptir máli er, að fréttin er rétt og það hefur Friðjón ekki rengt. Varðandi út- skýringar ‘Friðjóns á því hvað fyrir honum hefði vakað, hef ég ekkert að segja annað en það, að hafi hann hugsað eitthvað annað en hann sagði um stjórnarslitin, hafði ég ekki frekar en aðrir fundarmenn tækifæri til þess að nema það. Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, virðist vera betri hugsanalesari en ég, því hann ber frétt mína til baka í Morgunblaðinu á miðvikudag, þrátt fyrir að hann hafi ekki ver- ið á fundinum. Þykja mér um- mæli forsætisráðherra undarleg. Friðjón Þórðarson hefur hingað til getað talað fyrir sig sjálfur. Ég harma það að þurfa að gera þessar athugasemdir, því ég hef ekki þekkt Friðjón Þórðarson af öðru en drengskap og heiðar- leika. Borgarnesi, 26. marz, Helgi Bjarnason. Norski utanríkisráðherrann Svenn Stray er staddur hér í opinberri heimsókn í boði Ólafs Jóhannessonar utanríkisráðherra. Myndin var tekin af ráðherr- unum í gær, er þeir skoðuðu Þjóðminjasafnið. Með þeim á myndinni er Þór Magnússon þjóðminjavörður. MorminbiaðiA köe. Ríkisverksmiðjur: Unnið að samræmingu á kaupi og kjörum á Grundarte NÆSTl fundur um samninga í ríkis- ásáttir um að einbeita sér ; NÆSTI fundur um samninga í ríkis- verksmiðjunum verður haldinn hjá embætti sáttasemjara á mánu- dagsmorgun. Kröfur verkalýðsfélag- anna á þessum vinnustöðum eru þær helztar, að áfram verði unnið að samræmingu um kaup og kjör i Járnblendiverksmiðjunni að Grundartanga. í samningunum í febrúar 1981 náðist áfangi i átt til samræmingar og vilja verkalýðsfé- lögin halda áfram á þeirri braut. Á fundum undanfarið hefur einkum verið rætt um vinnubrögð við samn- ingsgerðina, en aðilar munu nú ásáttir um að einbeita sér að frekari samræmingu, en ekki skammtíma- samningi eins og rætt var um á tíma. Samningar verkafólks í ríkis- verksmiðjunum voru lausir 15. desember síðastliðinn og nokkurr- ar óþreyju er farið að gæta þar sem nýir samningar hafa ekki ver- ið gerðir. Einn talsmanna verka- lýðsfélaga sagði í samtali við Morgunblaðið, að framundan væru annatímar í verksmiðjunum og ef knýja þyrfti á um samnings- gerð með aðgerðum þá væru næstu vikur kjörinn tími til þess.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.