Morgunblaðið - 27.03.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.03.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MARZ 1982 13 Megi sú hreinskiptni og sá heiðarleiki sem ríkir við stjórnun ISAL verða hér ráðandi. — Þá er iðnþróun á Austurlandi vel komið Að loknu yfirliti sem fulltrúar starfshópa gáfu, er þeir komu saman á ný, fluttu erindi Steinar Steinsson, formaður meistarafé- lags Sambands málm- og skipa- smiða og Siguröur Kristinsson, for- seti Landssambands iðnaðar- manna. Steinar sagði m.a. að málm- og skipasmiðir hefðu ný- verið bundist samtökum um að fylgjast betur með því sem væri að gerast á þeirra sviði. Það væri margt sem þeir hefðu misst í hendur útlendinga. Bæta mætti við og auka verkefnin og efla al- menna iðnþróun hérlendis. Þá gerði Steinar sérstaklega að um- ræðuefni hið félagslega umhverfi væntanlegrar verksmiðju og áhrif tilkomu hennar á iðnþróun i kjör- dæminu. Hann nefndi þar sem dæmi álverið í Straumsvík og sagði framkomu og vipskipti þess fyrirtækis vera mjög að skapi þeirra sem reka verkstæði í ná- grenni þess. Mikil viðskipti og góð sem byggðust fyrst og fremst á jákvæðu viðhorfi ÍSAL, hefði komið fótunum undir fjölmörg fyrirtæki, styrkt þau og eflt. Ef sama viðhorf myndi verða hjá ráðamönnum kísilmálmverk- smiðjunnar, þá gæti hún ekki orð- ið nema af hinu góða fyrir iðn- þróun á Austurlandi. Þá lýsti hann í lokin fullum vilja Sam- bands málm- og skipasmiða að standa við bakið á félögum sínum á Austurlandi. Sigurður Kristinsson sagði, að Landsamband iðnaðarmanna hefði síðustu mánuði boðið upp á námskeiðahald fyrir félagsmenn sína, en reynslan hefði verið sú, að landsbyggðarbúar hefðu sýnt þeim mestan áhuga. Hann sagði að Landssambandið teldi sér skylt að aðstoða félagsmenn sína og svo yrði einnig hvað þetta einstaka mál varðaði. Um samvinnu og sameiginlegt verktakafyrirtæki sagði hann frá reynslu sinni og annarra Hafnfirðinga þegar ÍSAL kom til sögunnar. Þá hefðu Hafn- firðingar stofnað 70—80 aðila hlutafélag fyrirtækja og einstakl- inga, Hafnverk hf. Reynslan hefði orðið sú, að enginn vildi yfirgefa fyrirtæki sitt til að helga sig þessu og því hefðu þeir yfirleitt verið með 10% hærri tilboð en aðrir. Þeir hefðu þó fengið verkefni bæði sem félag og einnig ýmsir ein- staklingar innan þess. Sigurður tók einnig undir orð Steins um viðskipti hafnfirskra fyrirtækja við ISAL. „Hrein- skiptni og heiðarleiki í viðskiptum er ráðandi við stjórnun ISAL og það hefur komið fótunum undir mörg fyrirtæki í Hafnarfirði." Hann óskaði Austfirðingum í lok- in til hamingju með það sem væri framundan og sagðist vonast til að sá hinn sami heiðarleiki og hrein- skiptni sem Hafnfirðingar hefðu notið svo mikils góðs af í stjórnun ISAL mætti einnig verða ráðandi í sambandi við kísilmálmverk- smiðjuna á Reyðarfirði. Þá væri iðnþróun á Austurlandi vel komið. Að loknum ávörpum þeirra var gengið til atkvæða um ályktun fundarins og hún samþykkt sam- hljóða. Þá fóru fram almennar umræður og tóku tveir til máls: Gerður Oskarsdóttir, skólastjóri framhaldsskólans á Neskaupstað, og Einar Björnsson í Mýnesi. Jón Guðmundsson, varaformaður iðn- aðarnefndar SAA, sleit síðan fundinum í fjarveru formanns, Theodórs Blöndal. Þakkaði hann mönnum komuna og þátttöku í störfum fundarins. Þá þakkaði hann sérstaklega framsögu- mönnum og óskaði fundar- mönnum góðrar heimferðar ... FP. yrði hinn gullni meðalvegur. Forð- ast yrði að valda mikilli röskun og sín skoðun væri sú að bjóða ætti út hluta af verkinu. Hann lauk máli sínu með því að lýsa yfir að þeir sem nú ynnu að þessum und- irbúningi æsktu þess að fá að kynnast aðstöðu og getu aust- firsku fyrirtækjanna. Verkefnið hlýtur að kalla á marga utanaðkomandi öflun verktaka og gerði sérstak- lega grein fyrir reynslunni sem fékkst í því efni við Járnblendi- verksmiðjuna á Grundartanga. Hann sagði að skiljanlega væri ekki búið að taka ákvörðun um hvernig staðið yrði að málum við kísilmálmverksmiðjuna og fjallaði siðan um helztu galla og kosti hverrar leiðar fyrir sig, auk þess lýsti hann tryggingamálum, fjár- öflunarleiðum, reikningsgerð og lokauppgjöri verka. Guómundur Borgþórsson, tækni- fræöingur, sem var starfsmaður Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga er hún var í undir- búningi, flutti erindi um vélar og búnað. Hann lýsti í upphafi máls síns gangi framleiðslu kísilmálm- verksmiðju og efnum sem notuð eru í framleiðslunni, en þau eru kvartz, koks og tréflísar. Hann sagði stærsta hluta vélabúnaðar vera flutningsbúnað ýmiss konar, s.s. færibönd, kranar o.fl. Þá gerði hann og grein fyrir hvers konar búnað eitt verkstæði þarf að eiga til að geta annast störf við verk- smiðjuna. I lokin sagði hann slíka framkvæmd sem uppbyggingu kís- ilmálmverksmiðjunnar kalla á mörg aukaverkefni og mannafla- þörf gæti einnig orðið mjög sveiflukennd, sveiflur væru upp á 30—40 menn. Tímaáætlun bygg- ingar væri mjög stíf og verkefni hlyti að kalla á marga utanaðkom- andi. Þá lagði Guðmundur mikla áherslu á stjórnunarþátt verksins og sagði það margsinnis hafa komið í ljós að stjórnunarhæfni skorti. Nóg væri af vinnufúsum höndum, en ef stjórnun væri ábótavant, kæmu þær að litlum notum. Það væri talið mjög eðli- legt að reikna með einum tækni- menntuðum manni á hverja 15 starfsmenn. Næstur tók til máls Tryggvi Sig- urbjarnarson verkfræöingur og fjallaði hann um rafbúnað. Hann rakti fyrst áætlun þá sem fyrir lægi um næstu virkjanir lands- manna og sagði að samkvæmt henni ætti nægileg raforka að verða fyrir hendi til handa verk- smiðjunni, en hún krefðist 300—350 gígavattstunda á ári. Hann lagði ríka áherslu á að þrátt fyrir nægilega orku væri við nú- verandi aðstæður geysilega löng flutningsleið á orkunni til Aust- fjarða og þyrfti því Suðurlína að komast í gagnið hið fyrsta. Þá lýsti hann rafbúnaði verksmiðj- unnar, stærðum á rafskautum o.fl., en í lok máls síns tók hann undir orð Guðmundar um stjórn- unaratriði og sagði hann mest áríðandi við verkefnið allt, að fyrir hendi yrði góð stjórnun. „Stjórnun og aftur stjórnun, er það sem við verðum að leggja mest upp úr,“ sagði hann. Baldur Jóhannesson, verkfræó- ingur, flutti fyrirlestur um samn- inga, tryggingar og útboð. Hann gerði í stórum dráttum grein fyrir þeim leiðum sem nota mætti við rúmlega 80. LjÓ8m. Mbl. Frída Proppé. Hluti fundarmanna, en þeir voru alls tískt ákvörðunaratriði hvernig staðið yrði að verktilhögun. Sú skoðun var ríkjandi hjá Austfirð- ingum í umræðunum, að ef til al- mennra útboða kæmi, hlytu stóru verktakafyrirtækin á suðvestur- horninu að gleypa allan bitann og þeir sætu síðan eftir afskiptir. Einn Austfirðinganna lýsti því sem sinni skoðun að verksmiðj- unni fylgdi mikið rask og ef aust- firskir verktakar ættu ekki að sitja fyrir með framkvæmdir væri betra að hætta að hugsa um verk- smiðjuna yfir höfuð. Næg vinna væri fyrir verkamenn á Austfjörð- um og ef flytja ætti allt annað vinnuafl, eins og sér skildist, að sunnan, væri betur heima setið en af stað farið. Þeir Svavar og Bald- ur gerðu aftur á móti grein fyrir þeirri skoðun sinni, að heimamenn litu eflaust of mikið til verk- smiðjubyggingarinnar sjálfrar. Hliðarverkefni, s.s. uppbygging íbúðarhúsnæðis fyrir hið aukna vinnuafl, hafnarmannvirkið og vatnslögnin væri eflaust nægilegt verkefni fyrir heimamenn. Sá hraði sem yrði að vera á fram- verksmiðju og í því sambandi munum við stofna verktakafyrir- tæki. Akveðið var að halda stofn- fund verktakafyrirtækisins mjög fljótlega." Rafvirkjar á Austur- landi munu vera milli 45—60 manns. í ályktun starfshóps um vélar og búnað er slegið á svipaða strengi, en þar segir einnig, að nauðsynlegt sé að taka tillit til þess, sem á eftir kemur þegar upp- byggingu verksmiðjunnar er lokið, þ.e. því sem að viðhaldi og rekstri snýr. kvæmdunum væri peningalegs eðlis, þ.e. að koma þyrfti verksmiðjunni hið fyrsta í notkun eftir að farið væri að dæla stórum peningaupphæðum í verkið. Heimamenn voru í lok umræðna enn ákveðnir í að hér væri ekki um stærra verkefni en svo að ræða að þeir gætu annast það, en skilning- ur virtist þó á því að einhvern meðalveg þyrfti að finna, ef ekki væri unnt að hægja á verkfram- kvæmdum. I ályktun starfshóps- ins segir m.a.: „Það er samdóma álit verktaka sem tóku til máls að verkþættir á sviði jarðvinnu og byggingarvinnu eru ekki stærri en svo, að austfirskir verktakar geta framkvæmt þá auðveldlega." I ályktun starfshópa um raf- búnað segir: „Rafverktakar á Austurlandi leggja áherslu á, að við þá verði samið um framkvæmd á rafmagnshluta í væntanlegri Pólitískt ákvörð- unaratriði hvernig staðið verður að framkvæmdum Að loknu hádegisverðarhléi störfuðu þrír starfshópar. Einn tók fyrir byggingar og jarðvinnu, annar vélar og búnað og sá þriðji rafbúnað. Mest þátttaka og hvað ákveðnastar skoðanir heima- manna komu fram í hópunum um byggingar og jarðvinnu að mati undirritaðs, en þar sátu fyrir svör- um Svavar Jónatansson og Baldur Jóhannesson. Þeir sögðu það póli- Þrír framsögumannanna. Taliö fri vinstri: Svavar Jónatansson, forstjóri Almennu verkfræðistofunnar, Tryggvi Sigurbjarnarson, verkfræðingur, og Baldur Jóhannesson, verkfræðingur. Þetta er landsvæðið í landi Sómastaðagerðis sem fyrirhugað er að kísilmálmverksmiðjan rísi á. Hafskipahöfnin sem taka á í mót skipum allt að 20 þúsund tonnum að stærð verður við eyrina, sem gengur lengra út í fjörðinn, Mjóeyri, en verksmiðj- an sjálf og byggingar tilheyrandi henni upp af eyrinni. í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.