Morgunblaðið - 27.03.1982, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.03.1982, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MARZ 1982 Ljósmyndari blaðsins rakst fyrir nokkru á þennan geysistóra krana á hafnarbakkanum. Að því er innflytjandi hans, Heildverslun Alberts Guðmundssonar, tjáði Mbl., vegur krani þessi, sem er af Grove-gerð, tæplega 35 tonn og er lyftigeta hans hin sama. Krani þessi er í eigu Bílkranans sf. og mun vera sá fyrsti þessarar tegundar hérlendis, sem er með tvöfoldu húsi. Morgunblaðið Emilía. Bæjarstjórn Akureyrar: Næsta átak í stóriðju- málum verði við Eyjafjörð MIKIL ÓÁNÆGJA er meðal margra Akureyringa með það tómlæti sem þeim finnst stjórnvöld hafa sýnt ýmsum tillögum og ályktunum bæjarstjórnarinnar um atvinnuuppbyggingu við Eyjafjörð. Að sögn Sigurðar J. Sigurðssonar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, hefðu menn í raun enga vitneskju um hvort fyrirhugað sé að koma upp stóriðju á þessu svæði. Það væri ljóst að kæmu ekki til ný atvinnutækifæri mundi at- vinnuleysi vaxa stórlega á Eyja- fjarðarsvæðinu á næstu árum. Þetta hefði öldungis komið í ljós í könnun sem bæjarstjórn Akureyr- ar efndi til um atvinnuhorfur á þessum slóðum. Að dómi sjálf- stæðismanna hefðu nýir mögu- leikar á stóriðju á Eyjafjarðar- svæðinu komið til sögunnar eftir að tillögur um Blönduvirkjun voru settar fram, en hún mun sjá þessu svæði fyrir raforku. Leiðrétting: Lögreglumál í * Arnessýslu í frétt blaðsins af lögregiumálum frá lögreglunni á Selfossi sl. fimmtudag, sagði, að yfirlit það sem sagt var frá ætti við Selfossbæ, en hin rétta er, að yfirlitið er úr Árnes- sýslu allri, sem lögreglan á Selfossi sinnir. Er beðið velvirðingar á þess- um mistökum. Sigurður sagði ennfremur að nú væru sveitarfélög, launþegasam- tök og atvinnurekendur á Eyja- NK. SUNNUDAG heldur Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar sína árlegu vortónleika í Sal Menntaskól- ans vió Hamrahlíö. Á þessum tónleikum koma aðal- lega fram yngri nemendur Tón- skólans bæði sem einleikarar og í hópum, m.a. koma fram allir for- skólanemendur Tónskólans um 70 fjarðarsvæðinu að huga að stofn- setningu iðnþróunarfélags sem hefði að markmiði að gera athug- anir á hugsanlegum tækifærum til nýiðnaðar á þessu svæði. Enn- fremur kvað Sigurður það eðlilegt að Akureyringar fengju upplýs- ingar um fyrirætlanir stjórnvalda í iðnaðarmálum við Eyjafjörð meðan verið væri að taka ákvörð- un um staðsetningu kísilmálm- verksmiðju á Reyðarfirði, en kom- ið hefði vel til greina að reisa hana á Eyjafjarðarsvæðinu. Að lokum sagði Sigurður að í tillögum bæjarstjórnar Akureyrar væri mælst til þess að stjórnvöld beittu sér fyrir því að næsta átak í stóriðjumálum yrði á svæðinu við Eyjafjörð. börn og mynda stóran blokk- flautukór sem flytur nýtt tónverk eftir Sigursvein D. Kristinsson undir stjórn höfundar. Tónleikarnir verða eins og áður sagði í sal Menntaskólans við Hamrahlíð og hefjast kl. 14.00. Allir eru velkomnir á þessa tón- leika. Vortónleikar Tónskólans 42 konur eru á lista k vennaframboðsins LISTI kvennaframboðsins hefur verið birtur í blaði samtakanna, en alls eru 42 konur á honum. í fyrsta sæti er Guðrún Jónsdóttir, félagsráðgjafi, í öðru sæti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, BA, í þriðja sæti Magdalena Schram, blaðamaður, í fjórða sæti Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri, i fimmta sæti Sigrún Sigurðardóttir, fulltrúi, í sjötta sæti Kristín Ástgeirsdóttir, blaðamað- ur, í sjöunda sæti Sigríður Kristinsdóttir, sjúkraliði, í áttunda sæti Lára V. Júlíusdóttir, lögfræðingur, í níunda sæti Hjördís Hjartardóttir, félagsráðgjafi og í tíunda sæti er Guðrún Ólafsdóttir, lektor. Aðrar á listanum eru: Kristin Jónsdóttir, kennari, Helga Jóns- dóttir, húsmóðir, Helga Thorberg, leikkona, Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir, manneldisfræðing- ur, Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, útvarpsþulur, María Jóhanna Lár- usdóttir, kennari, Sigurbjörg Að- alsteinsdóttir, fulltrúi, Helga Har- aldsdóttir, kennari, Guðný Guð- björnsdóttir, prófessor, Ingibjörg Hafstað, kennari, Guðrún Hall- dórsdóttir, skólastjóri, Áslaug Jó- hannesdóttir, verkakona, Þórunn Benjamínsdóttir, kennari, Elín Guðmundsdóttir, húsmóðir, Mar- grét Hermannsdóttir, fornleifa- fræðingur, Ingibjörg Ýr Pálma- dóttir, kennari, Þórkatla Aðal- steinsdóttir, kennari, Kristín Ein- arsdóttir, lífeðlisfræðingur, Eygló Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðing- ur, Vilborg Sigurðardóttir, kenn- ari, Ásta Ragnarsdóttir, námsráð- gjafi, Hólmfríður Árnadóttir, framkvæmdastjóri, Guðrún Erla Geirsdóttir, myndlistarmaður, Guðlaug Magnúsdóttir, félags- ráðgjafi, Guðbjörg Linda Rafns- dóttir, þjóðfélagsfræðinemi, Edda Björgvinsdóttir, leikari, Sigurrós Erlingsdóttir, íslenzkunemi, Guð- rún Kristinsdóttir, félagsráðgjafi, Sólveig Aðalsteinsdóttir, mynd- listarmaður, Snjólaug Stefáns- dóttir, starfsmaður unglingaat- hvarfs, Ásgerður Jónsdóttir, kennari, og Laufey Jakobsdóttir, húsmóðir. Málinu lauk með dómssátt MÁL skipsljórans á belgíska togarun- um Belgian Sailor var tekið fyrir hjá bæjarfógetaembættinu i Vestmanna- eyjum í gærdag. Lauk málinu með dómssátt og greiðir skipstjórinn 10.231 krónur í sekt til Landhelgissjóðs. Belgian Sailor var staðinn að því að vera með óhúlkuð veiðarfæri á veiðisvæði, þar sem skipið mátti ekki vera og enn- fremur voru skipverjar að vinna að frágangi fisks þegar flugvél Land- helgisgæzlunnar kom að skipinu. Auk sektarinnar, sem skipstjórinn greiðir til Landhelgissjóðs, þarf hann að greiöa sakarkostnað. Hreyfilsprengingin: Forþjappan rann- sökuð nánar ytra Morgunblaðinu barst á fimmtu- dag eftirfarandi frá kynningar- deild Flugleiða: „Kannsókn á orsök hrcyfilbilun- ar á Fokker-flugvélinni TF-FLM á ísafirði si. laugardag heldur áfram. í gær og dag hafa tveir sérfræð- ingar frá Kolls Royce-verksmiðjun- um og fjórir frá Fokker-verksmiðj- unum í Amsterdam ásamt manni frá breska loftferðaeftirlitinu og ís- lenskum sérfræðingum unnið að rannsókn málsins. En nú er full- víst að forþjappa i hreyfiinum bil- aði og orsakaði frekari skemmdir. Sá hlutur hennar sem var eftir i hreyfiinum verður nú sendur utan til rannsóknar og fullyrða Mr. Dow og Mr. Gilchrist frá Rolls Royce að orsökin muni finnast. Forþjappa sú sem hér um ræð- ir hefur verið framleidd eins í sl. 15 ár en örlitlar breytingar gerð- ar á umbúnaði forþjöppunnar á sjálfum öxlinum. Sú breyting var fyrst gerð fyrir fimm árum, og síðan hafa allir Rolls Royce Dart-hreyflar sem komið hafa til verksmiðjanna í endurbygg- ingu sem og nýir hreyflar hlotið þá meðferð. Rolls Royce-hreyfl- ar eru nú notaðir í tíu gerðum flugvéla og alls munu 4.300 hreyflar vera í gangi um þessar mundir. Dart-hreyfillinn var fyrst notaður í farþegaflug árið 1953 en hafði áður verið reyndur í flugi í tvö ár. Um þessar mundir nálgast Dart-hreyflar 100 millj- ón flugtíma-markið svo sjá má að hér er þrátt fyrir einstaka óhöpp mjög traustur og end- ingargóður hreyfill á ferðinni. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum er endingartími hvers hreyfils fimm til sex þús- und klukkustundir milli algjörr- ar endurbyggingar. Hins vegar fara reglulegar skoðanir fram á hreyflunum á nokkur hundruð klukkustunda fresti. Myndin sýnir teikningu af húsi aldraðra sem nú er byrjað að reisa í nýja miðbænum. Á myndinni má sjá hvernig húsið á að líta að innan. Aldraðir byggja í nýja miðbænum FRAMKVÆMDIR við fjölbýlishús eldra fólks í nýja miðbænum á veg- um Gimlis hf. hófust í síðustu viku. Gert er ráð fyrir að bygging hússins taki rúmlega tvö ár. Hér er um að ræða ca. 40 eignaribúðir sem koma til með að vera 85 og 115 ferm. að stærð. Undir húsinu verða bílastæði fyrir íbúa og á jarðhæð er áætluð íbúð fyrir húsvörð, matsalur o.fl. sem heyrir til þjónustu í þágu eldra fólks. Á fundi hluthafa Gimlis hf. var dregið um þessar íbúðir. Sam- þykktir félagsins kveða svo á að einvörðungu fimmtugum og eldri er gert kleift að verða hluthafar í Gimli, en hverjum hlut fylgir eignarréttur í íbúð. Húsbygging þessi á sér tals- verðan aðdraganda, eða til ársins 1974. Þá efndu nokkrir áhuga- menn um málefni aldraðra til fundar á Hótel Sögu. Þar urðu fundarmenn sammála um nauð- syn þess að koma upp íbúðum sem hentuðu eldra fólki. I fram- haldi af þessu var undirrituð um- sókn til borgaryfirvalda um lóð í nýjum miðbæ. Á árinu 1977 fengu þessir um- sækjendur fyrirheit um lóð í öðr- um byggingaráfanga nýs mið- bæjar er rúmaði allt að 50 íbúð- um. Þetta var staðfest í bréfi undirrituðu af þáverandi borgar- stjóra Birgi ísleifi Gunnarssyni. Og á síðastliðnu ári var félaginu loks úthlutað lóð undir þessa hús- byggingu. í stjórn Gimlis hf. eiga nú sæti Þórður Kristjánsson, bygg- ingarmeistari sem er formaður, Daníel Bergmann, bankafulltrúi, Hannes Þorsteinsson, aðalféhirð- ir Landsbankans, Guðmundur Ófeigsson, skrifstofustjóri og Guðmundur Jónsson, póstútibús- stjóri. Arkitektar hússins eru Gylfi Guðjónsson og Ingimundur Sveinsson. Verkfræðiteikn. ann- ast Ferill hf. Það fer vel á því að ráðist er í þessa húsbyggingu á ári aldraðra þar sem þörfin er án efa brýn fyrir íbúðir af þessu tagi til handa eldra fólki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.