Morgunblaðið - 27.03.1982, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 27.03.1982, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MARZ 1982 45 Valtýr Guðmundsson skrifar: „Einhverntíma hlýtur mann- skepnan að sjá lífið i réttu ljósi“ Agæli Velvakandi! Fyrir skömmu las ég grein hér í þættinum eftir Guðbjörgu Guð- mundsdóttur, sem ég má til að þakka — þessi grein var sem töluð frá mínu eigin hjarta. Og því ekki að taka undir það sem vel er mælt, hvort heldur er í ræðu eða riti. Að sönnu hefur fóstureyðingalöggjöf- in oft verið til umræðu, en það er rétt sem Guðbjörg segir, að það sé þörf á að halda þessu máli vak- andi. Einhverntíma hlýtur mann- skepnan, grimmasta villidýr jarð- arinnar, að sjá lífið í réttu ljósi, og haga breytni sinni eftir því. í mínum augum eru fóstureyð- ingar hreinn glæpur nema því að- eins að fullgildar heilsufarslegar ástæður séu þar fyrir hendi — þá fyrst er þessi verknaður afsakan- legur, en slíku er fráleitt til að dreifa í öllum tilfellum. Þá er mér mjög til efs að þessi aðgerð sé heilsusamleg fyrir þær konur sem undir hana gangast og mér er til efs að gott muni af henni hljótast — því miður. En hvað um löggjafarvaldið, sem leggur blessun sína yfir þetta með fáheyrðri lagasmíð er bezt væri komin í glötunarhirslunni. Er það virkilega svo að löggjafinn þekki ekki boðorðin og ýti guði al- máttugum til hliðar þegar um það er að ræða að taka svari þeirra sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér. Þessi löggjöf finnst mér vera stórt skref afturábak og síst af öllu til þess fallin að þjóðin beri tilhlýðilega virðingu fyrir stjórn- völdum — sem ætti þó að vera númer eitt, svo framarlega sem réttir menn eru á réttum stað. Fyrr í vetur las ég í dálkum Velvakanda deilur nokkrar um það, hverju hjónanna það væri fremur að kenna er snurða hlypi á þráðinn í hjónabandinu vegna áfengisneyzlu. Vitaskuld er áfeng- ið hinn mesti skaðvaldur — það verður ekki dregið í efa þótt mis- jafnlega sé á þeim málum haldið, því það er svo margt sinnið sem skinnið. En við lestur þessara greina datt mér þó í hug gamall máls- háttur er hljóðar svo: „Sjaldan veldur einn þegar tveir deila." Þetta held ég að sé bæði satt og rétt. Og fyrir dómstóli drottins verða allir að svara til saka þegar þar að kemur burtséð frá því hvernig við erum úr garði gerð hið ytra. Annars er það mál sannast að víndrykkja er næsta óþörf. Við ís- lendingar eigum besta drykkjar- vatn í heimi — ólíkt heilnæmari vökva en bruggið úr Afengisverzl- un ríkisins, sem margir þamba með slíkri áfergju að engu tali tekur. Öðru máli gegnir með ör- litla slettu út í kaffið til hress- ingar við og við — enda veldur slíkt varla miklum heimiliserjum né heldur djúpstæðum ágreiningi milli kynjanna. Valtýr Guömundsson Fiskbúdin Sæver —til fyrirmyndar R.A.N., (7176—2092) hringdi og hafði eftirfarandi að segja: „Þess bera að geta sem vel er gert. Ein er sú starfsgrein sem oft hefur verið hnjóðað í en sjaldan hrósað og ekki að ástæðulausu — það er fisksala. Fisksalar á íslandi hafa öðrum kaupmönnum fremur verið seinþroska í að kynna sér og færa í nyt þá þróun sem orðið hef- ur í þessari verzlunargrein í öðr- um löndum. Það er því vissulega ástæða á það að minnast, þegar einhver úr stéttinni hefur tekið heljarstökk framávið og sett upp verzlun með viðskiptaháttum sem ekkert gefa eftir því bezta sem sést erlendis. Fiskkaupmaður í fiskbúðinni Sæver í Miðbæ við Háaleitisbraut sýnir kollegum sínum, svo ekki verður á móti mælt, hvernig nútímafiskbúð á að vera til þess að viðskiptavinum líði virkilega vel við innkaup sín. Allt afgreiðslufyrirkomulag, hreinlæti, ásamt frábæru úrvali af alls konar fiskréttum, sem maður á ekki að venjast að sjá í fiskbúð- um, er með slíkum glæsibrag að frábært verður að teljast. Það er mér því óblandin gleði að benda fólki á að kynna sér þetta af eigin raun.“ Hættu’ aö gráta hringaná Þórunn Kristinsdóttir hringdi og óskaði eftir að sjá þjóðkvæðið „Hættu’ að gráta hringaná" á prenti, en hún kunni aðeins hrafl úr því. Kvæðið er svona: Hættu’ art gráta hringaná heyrðu ræðu mina: Eg skal gefa þér gull í tá, þó Grímur taki þína. Hættu’ art gráta hringaná, huggun er það meiri: Eg skal gefa þér gull í tá, þó Grímur taki fleiri. Hættu’ að gráta hringaná, huggun má það kalla: Eg skal gefa þér gull í tá, þó Grimur taki þær allar. Pálína Magnúsdóttir skrifar: Ekkert fyrir peninga Kæri Velvakandi. Símasjálfsalar eru á flest- um sjúkrahúsum og heilsu- hælum, og er sjúklingunum frjálst að nota þá ef þeir eiga krónu eða fimmtíu aura. Ég var að koma frá Borg- arspítalanum til Grensás- deildar, en á báðum stöðunum kom fyrir að krónan datt úr slíðrinu en ég fékk ekkert samband. Ég prufaði líka fimmtíuaurapeninga án ár- angurs. I haust var ég á Reykja- lundi og það sama kom hvað eftir annað fyrir þar. Ég sagði símastúlkunni frá þessu og bað hana að gefa mér sam- band vegna þess að ég vildi ekki halda áfram að henda peningum í ekki neitt. Þá sagði hún: „Þú ættir að vera á Vífilsstöðum, þar er þetta mikið verra.“ Þá kemur það iðulega fyrir að ef sá sem maður ætlar að tala við er ekki við í augna- blikinu og maður ætlar að bíða í símanum vegna þess hve erfitt er að ná sambandi, þá slitnar oftast eftir augna- blik og maður verður að byrja aftur. Mér dettur annað í hug í þessu sambandi. Einu sinni keypti ég smávegis í matinn, þar a meðal mjólk og niður- soðna síld. Síldin, eða öllu heldur það sem átti að vera síld, var ekki annað en þunnt gums, það sást ekki einn ein- asti biti og henti ég dósinni. Mjólkin, sem var í 2ja lítra fernu, var súr og hellti ég henni niður. Þetta og þessu líkt væri auðvelt að laga ef vilji væri fyrir hendi. En varðandi sím- ann, þá er það spurning sem við þyrftum að fá svar við og endilega lagfæringu á. Hvar eru nú sérfræðingarnir? Virðingarfyllst, Pálína Magnúsdóttir. / Velvakanda fyrir 30 árum Mikil er skriffinnskan ftirfarandi bréf er ritað norð- ur á Siglufirði 31. marz síð- astliðinn. „Vér lifum á tímum nefndafarg- ans og skriffinnsku. Lítið er gert til að draga úr þessu, frekar virð- ist haldið áfram á þeirri braut, að fyrirskipa aukna skýrslugerð og auknar skriftir. Skal hér minnzt á lítið dæmi. Frá síðustu áramótum hefur þess verið krafizt hér á Siglufirði, að innkaupareikningar frá útlönd- um væru undirritaðir og hafa vör- ur alls ekki fengizt tollafgreiddar nema því aðeins að eitthvert nafn stæði á fæti innkaupareiknings- ins. Hefir þetta orðið til þess, að allir innflytjendur hér í þæ hafa orði að endursenda sölufirmum eitt eintak af innkaupareikningi og fá hann endursendan póstleiðis. — Skapar þetta aukna fyrirhöfn, auk þess sem dráttur hefir orðið á, að menn næðu vörum sínum út af afgreiðslu, þótt fé og gjaldeyris- leyfi væru fyrir hendi. Sumarleyfi á Costa del Sol og Mallorca Feröakynning og kvikmyndasýning frá Costa del Sol og litskyggnur frá Mallorca og öörum áfangastöðum Útsýnar í Ráöstefnusal Loft- leiöa-hótelsins laugardag.27. marz kl. 14.00. Aögangur ókeypis og öllum heimill. Eftir sýningu mun starfsfólk Útsýnar veita upplýsingar um sumarleyfisferð- ir fyrir hópa og einstaklinga. Feröaskrifstofan ÚTSÝN Atvinnulífið og höfuðborgin — Lifandi miðbær Verzlunarráð íslands gengst fyrir ráðstefnu undir heitinu: Atvinnulífið og höfuðborgin — Lifandi miðbær — á Hótel Borg þriðjudaginn 30. mars kl. 16.15—18.30. Ragnar Halldóraton Jón Baldvin Hannibalaaon Þórarinn Hialtason Dagskra: 16.15—16.20 Setning: Ragnar S. Halldórsson form. Vi. 16.20—16.30: Ávarp borgarstjór- ans í Reykjavík, Eglll Skúll Ingibergsson. 16.30—16.50: Gildi miöbæjar fyrlr höfuöborgina — samleiö samskipta og viöskipta. — Jón Baldvin Hannibals- 16.50— 17.10: Atvinnurekstur og miöbærinn — Skil- yröi til atvinnu- og fastelgnarekstrar i míöbænum. Guö- mundur Arnaldsson hagfræöingur Vl. 17.10—17.30: Bifreiöin og miöbær- inn. — Umferö, bila- stæöi, bílageymslur, almenningsvagn. — Þórarinn Hjaltason verkfræöingur. 17.30—17.50: Framkvæmd miö- bæjarskipulags — hér og erjendis. — Kristinrv* Ragnarsson arkitekt. 17.50— 18.30: Almennar umræöur. Alyktanir. Ráöstefnustjóri: Albert Guömunds- son alþingismaöur. Kriitinn Ragnarsson Albert Guðmundsson Ráðstefnan er öllum opin en hagsmuna- aðilum, eigendum húaa og tyrirtækja, starfstólki stofnana og fyrirtækja i miðbænum, borgarstjórnarmönnum og skipulagsyfirvöldum ( Reykjavík og nágrenni, er sérstaklega boöiö. VERZLUNARRÁÐ ÍSLANDS EF ÞAÐER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.