Morgunblaðið - 27.03.1982, Side 22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MARZ 1982
Næsti leið-
togi sósíal-
demókrata?
KOY JENKINS er sósíaldemókrati,
sem hefur ekki notaó orðið „sósíal-
isti" árum saman. Klæðnaður hans
og Oxfordframburður gætu bent til
þess að hann væri íhaldsmaður og í
skoðunum er hann lítið eitt til vinstri
við miðju, þótt líf hans hafi verið
helgað Verkamannaflokknum.
Plokkakerfið í Bretlandi getur
riðlazt vegna tilkomu Sósíaldemó-
krataflokksins (SDP), sem hann
stofnaði í fyrra ásamt Shirley
Williams og David Owen, þar eð
þeim fannst Verkamannaflokkur-
inn hafa sveigt of langt til vinstri.
Og Jenkins er líklegasti leiðtogi
Kosningabandalags SDP og
Frjálslynda flokksins eftir sigur-
inn í aukakosningunni í Hillhead í
Glasgow.
Jenkins hefur leitað sér frægðar
og frama síðan hann kom heim frá
Brussel fyrir fimmtán mánuðum.
Hann var í fjögur ár forseti Efna-
hagsbandalagsins og sagði þegar
hann fór til Briissel eftir 28 ára
setu í Neöri málstofunni að hann
kveddi brezk stjórnmál án „illvilja
og beiskju".
Sósíalisti er ekki rétta órðið til
að lýsa Jenkins, sem er unnandi
rauðvíns og vindla, skarpur og
rólegur á hverju sem gengur. Hann
er einkasonur velska námumanna-
leiötogans Arthur Jenkins, þing-
manns, sem var náinn samstarfs-
maður Clement Attlees.
Hann er fæddur 11. nóvember
1920 í þorpinu Abersychan í Wales
og lauk námi í stjórnmálum og
hagfræði í Oxford með frábærum
vitnisburði. Þar fékk hann smekk
fyrir góðum mat og víni, óperum
og félagsskap menntamanna.
Jenkins og kona hans í 36 ár,
Jennifer, búa í íburðarmikilli íbúð
í Kensington-hverfi í London og
eiga sveitasetur í Oxfordshire. Þau
eiga þrjú born.
Richard Crossman, félagi Jenk-
ins í ríkisstjórn, skrifaði um hann
í dagbókum sínum: „Getur þessi
glæsilegi stórbokki, þessi makráði
tennisleikari, sem stendur afsíðis
og skoðar málin af óhlutdrægni,
getur þessi viðvaningur orðið for-
sætisráðherra Verkamannaflokks-
ins og endurvakið traust almenn-
ings? Ég efa það.“
Þó munaði minnstu að Jenkins,
sem var foringi í stórskotaliðinu og
seinna í leyniþjónustunni í stríð-
inu, fengið æðstu metorð í Verka-
mannaflokknum. Hann var fjórum
sinnum ráöherra (flugmála-
ráðherra, fjármálaráðherra og
innanríkisráðherra í tveimur ríkis-
stjórnum) og stýrði frjálslyndum
lögum gegnum þingið.
Jenkins sagði af sér sem vara-
leiðtogi flokksins þegar hann lagð-
ist gegn aðild að EBE 1970. Hann
sat áfram á þingi og gaf kost á sér
sem eftirmaður Harold Wilsons
1976, en tapaði fyrir James Call-
aghan.
„Sósíalismi? Ég hef ekki notað
það orð árum saman," sagði Jenk-
ins nýlega í viðtali. „Ef þú átt við
að þjóðnýta eigi framleiðslu, dreif-
ingu og peningaviðskipti, þá hefði
það hörmungar í för með sér. Ég
vil leiða mannúðarstefnu í öndvegi
og koma á umbótum, í þágu þeirra
sem eiga erfitt uppdráttar í hörð-
um heimi.“
Aðdáendur Jenkins telja hann
bezta fjármálaráðherrann eftir
stríð, en gagnrýnendur hans segja
hann hafa fælt marga kjósendur
frá Verkamannaflokknum með
ströngum hömlum, sem hann
beitti til að rétta við gífurlegan
greiðsluhalla.
„Ég vona að ég verði fulltrúi
þessa kjördæmis til æviloka,"
sagði hann Glasgow-búum eftir
sigurinn og það sem hann bætti við
var dæmigert fyrir hann: „Með
hliðsjón af því hvað ég er orðinn
gamall getur verið að þið þurfið
ekki að sitja uppi með mig alltof
lengi.“
Roy Jenkins fagnar sigri i aukakosningunum í Hillhead hverfi í Glasgow.
Yosef Burg, innanríkisráðherra ísraels kom til Yamit að ræða við íbúana
vegna ágreinings um flutning þeirra. Til hægri er Benny Katzover, formaður
samtaka sem stofnuð hafa verið í Yamit til að berjast gegn því að borgin
verði afhent Egyptum.
Undirbúningur fólksflutning-
anna frá Yamit í fullum gangi
Finnland:
Lands-
höfðingja
vikið frá
lleLsinki, 26. marz. Frá llarry Cranberg,
fréttaritara MorgunblaAsins.
KOIVISTO forseti Finnlands
hefur vikið Kaarlo Pitsinki,
landshöfðingja í Nylands-léni, úr
embætti. Landshöfðinginn hefur
átt bágt með að láta sér lynda við
samstarfsmenn sína, auk þess
sem hann hefur farið óvarlega
með risnufé sitt.
Forsetinn segir þessa ráðstöfun
sína vera í almannaþágu, en þetta
orðalag þýðir að landshöfðinginn
hverfur úr embætti tafarlaust.
Rannsóknin á fjármálavafstri
hans stendur enn yfir og þar sem
niðurstaða er ekki fengin heldur
landshöfðinginn því fram að hér
sé um að ræða „dómsmorð".
Vamit, 26. marz. Al\
ÍSRAKLSKI herinn flutti í dag drátt-
arvélar, jarðýtur og aörar þungavinnu-
vélar til Yamit, stærsta israelska bæj-
arins á Sinaiskaga sem verður afhent-
ur Egyptum í lok apríl.
Allmargir íbúar hafa verið fluttir
á brott með búslóð sína síðustu dag-
ana, en um tvö hundruð manns, sem
eru mjög andsnúnir að fara frá
bænum, hafa hótað að grípa til
vopna. Stjórnin hefur mælt svo
fyrir að allir skuli farnir úr bænum
fyrir 31. marz.
Skæruliðar gera áhlaup á
kjörstaði í E1 Salvador
San Salvador. 26. marz. AP.
SK/EKI IJDAK gerðu áhlaup á kjör-
staði í San Salvador og nágrenni í dag
og i nótt. Við aðalstöðvar yfirkjör-
stjórnar í höfuðborginni kom til mik-
illa átaka sem stóðu i sex stundir og
lauk með því að stjórnarhermenn
skutu að skæruliðunum og stökktu
þeim á flótta.
kosningunum.
í þingkosningunum takast fimm
hægri flokkar á við flokk Duartes
forseta, sem kennir sig við miðju-
stefnu og kristilegt lýðræði. Hægri
flokkarnir leggjast gegn hvers konar
breytingum á skiptingu lands og öðr-
um málum, sem flokkur Duartes
beitir sér fyrir. Vinstri öflin í land-
inu taka ekki þátt í kosningunum en
halda því fram að þær séu skrípa-
leikur. Vinstrisinnar segjast vilja
leita samninga til að binda enda á
borgarastyrjöldina, en síðan hún
hófst fyrir hálfu þriðja ári hafa 32
þúsundir manna látið lífið.
Kínverjar fordæma
árásir Brezhnevs
IVking, 26. marz. AP.
KÍNVERJAR fordæmdu Leonid Brezhnev forseta Sovétríkjanna, og sökuðu
hann um „árásir" á Kínverja er hann lýsti Sovétmenn fúsa til viðræðna við
Kínverja um landamæraágreining ríkjanna.
Kínverjar hafa enn ekki svarað tilboði Brezhnevs um nýjar landamæravið-
ræður, sem legið hafa í láginni frá því 1978, en Kínverjar slitu viðræðunum
eftir innrás Sovétmanna i Afganistan 1979.
I yfirlýsingu kínverska utanrík-
isráðuneytisins kom fram, að Kín-
verjar vildu áþreifanleg dæmi um
aukinn áhuga Rússa á að samskipti
landanna bötnuðu, áður en þeir
féllust á viðræður um landamæra-
deilurnar.
í ræðu sinni í Tashkent á mið-
vikudag sagði Brezhnev Sovétmenn
aldrei hafa reynt að gera lítið úr
kommúnísku þjóðskipulagi í Kína,
þó svo undirgefni Kínverja við
stefnu heimsvaldasinna gengi
þvert á hagsmuni kommúnismans.
Þessi ummæli Brezhnevs, og yfir-
Iýsingar hans um að Rússar hafi
jafnan og muni enn um sinn gagn-
rýna kínverska utanríkisstefnu,
munu hafa reitt Kínverja til reiði.
Formælandi kínverska utanrík-
isráðuneytisins vék sér undan
spurningum varðandi skilyrði fyrir
viðræðum, en Kínverjar hafa
margítrekað að þeir muni ekki
setjast niður til viðræðna við Sov-
étmenn meðan sovézkir hermenn
eru í Afganistan.
Þrátt fyrir þetta eiga sér nú stað
viðræður Kínverja og Rússa um
viðskiptamál, og nýlokið er viðræð-
um um stjórn siglinga um fljót á
landamærum ríkjanna.
Skoðanakönnun! Sviss:
25% telja líkur á
árás Sovétmanna
Ziirirh, 26. marz. AP.
NIÐURSTÖÐUR skoðanakönnunar
í Sviss gefa til kynna að einn af
hverjum fjórum Svisslendingum trúi
þvi að Sovétmenn muni iíkast til
ráðast á Vestur-Evrópu innan næstu
fimm ára.
Skoðanakönnunin var gerð í
febrúar á vegum einkafyrirtækis
sem hefur að markmiði að tryggja
traustari og skjótari varnir lands-
ins. Af þeim 585 sem voru spurðir
sagði 21% að hættan á árás af
hálfu Sovétmanna væri „töluvert
mikil“ 71% sagði líkurnar minni
háttar og fjögur prósent telja
hættuna „mjög mikla“. í niður-
stöðunum sést einnig að aðeins
31% hefur „mjög mikið traust á
getu Atlantshafsbandalagsins til
að verja Vestur-Evrópu" ef til
slíkrar árásar kæmi. 46% sögðust
ekki hafa minnstu trú á því. Sjötíu
og sjö prósent kváðust þess albúin
að grípa til vopna gegn sovézkum
innrásarmönnum og aðeins átta
prósent sögðust mundu sætta sig
við sovézkt hernám í Sviss án mót-
spyrnu.
Líklegt er að skæruliðar séu með
þessu að reyna að rýra tiltrú fólks á
kosningunum sem fara fram á
sunnudaginn.
í þessum átökum er ekki vitað til
þess að manntjón hafi orðið, en er-
lendir fréttamenn segja að greini-
lega sé mjög róstusamt víða í land-
inu og fari ólgan vaxandi.
í Santa Ana, sem er næstfjöl-
mennasta borg landsins, ruddust
skæruliðar inn í opinbera útvarps-
stöð og hófu að þylja áskoranir til
landslýðsins um að taka ekki þátt í
Dropinn sem fyllti bikarinn
Nollingham, 26. marz. AP.
í ÞKJATÍU ár tók hann skömmum
og nöldri með þögn og þolinmæði
og það taldi dómarinn nægar
málsbætur til að kveða upp þriggja
ára skilorðsbundinn dóm í máli
hans þegar hann hafði skyndilega
fengið nóg og sleppt sér og kyrkt i
þar með konu sína.
Málavextir eru þeir að Violet
og Walter Hinton höfðu verið í
hjónabandi í þrjátíu ár og allan
þann tíma hafði fúkyrðaflaumur-
inn dunið á manninum stanz-
laust, enda lýsir dómarinn hon-
um sem feimnum og hæglátum
manni. Það var svo 1. september
að þau fóru í bíltúr. Konan
skammaðist látlaust alla leiðina
og þegar þau sneru heimleiðis
varð manninum á að taka ekki
rétta beygju, með þeim afleiðing-
um að konan umturnaðist og
færðist enn í aukana. Þegar heim
kom skrúfaði Hinton frá hljóm-
flutningstæki sínu og setti á sig
eyrnaskjól til að geta hlustað, en
þá kom eiginkonan aðvífandi og
kippti úr sambandi svo ekki færi
framhjá manninum hvað hún
hefði að segja. Walter Hinton er
ekki til frásagnar um það sem
síðan átti sér stað, en þegar hann
náði aftur sönsum stóð hann yfir
konu sinni örendri.