Morgunblaðið - 27.03.1982, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MARZ 1982
01981 Universol Pfest Syndieote
i# -a o
Parku oýflnncLu naestu borg SÍ'ingdM
peesu i samband.''
ást er.
... tvöföld Guðsbless-
un.
TM Reg U.S. Pat. Ott -a« rlflfits raswvwt
•1M2 Loa Angelas TlmOT Syndlcat*
Og hversvegna var þér sagt upp
þar sem þú varst í vinnu ártur?
Sölumaðurinn sagdi art það gilti
einu hve mörg sjónvörp við hefð-
um, því afnotagjald greiðist aðeins
af einu.
HÖGNI HREKKVISI
„(?AP FSR. HEuPUieuTiÐ FyglR. FeiPHELGI SENPI-
Alþingisvísur eftir Eirík Eiríksson:
„Órjúfandi eru þar
endalausir vítahringar44
Heiðraði Velvakandi!
Þegar Alþingi kom saman
að loknu jólaleyfi á öndverð-
um þorra, biðu mörg athyglis-
verð málefni umfjöllunar. M.a.
deila um fiskverð, 2 þings-
ályktunartillögur um iðnað-
arstefnu, önnur frá ríkisstjórn
en hin frá stjórnarandstöðu.
Tillögur þessar voru efnislega
svipaðar, og iðnaðarráðherra
sagði í þingræðu að um þær
gæti myndast „víðtækur sam-
komulagsgrundvöllur". Þá
kom önnur þáltill. um land-
nýtingu og sú þriðja sem
gagnrýndi með gildum rökum
stjórnarfar í Tyrklandi. Mikl-
ar umræður urðu um þessi
málefni bæði á Alþ. og svo rit-
aði hæstv. 3. þ.m. Vestf. Sighv.
Bj. athyglisverða grein um
landnýtingu í Mbl. Menn eru
fljótir að gleyma og ekkert
hefur heyrst opinberlega um
þessi mál nú um sinn. Eg hef
því tekið saman helstu efnis-
atriði til upprifjunar. Tilvitn-
anir á stofnanaísl. eru úr
þingræðum og blaðagreinum.
Kiríkur Kiríksson
Efnahags nú elnar vandi,
óðum verð á þorskum hækkar.
— Fyrnist viska, flónska vex, —
freðýsunnar gildi stækkar.
Sjómenn gramir sitja í landi
syfjaðir með launapex.
Utvegsmanna rama rex
ríkisstjórum veldur grandi.
Iðjuspár og orkuneyslu
endurskoða þarf að nýju.
Stjarfir meta straumasvið
starfshóparnir 40.
Vega á bogna valdareislu
virðisauka falskan lið.
Lánsfjár róa á lukkumið
lausaskulda auka veislu.
Elur hagvöxt eftirþreyðan
iðnvæðingin sér í lagi.
Færir þróun fram á við,
„Fjárkönnun af ýmsu tagi“
„Samkomulagsgrundvöll" greiðan
getur víkkað stjórnarlið,
Ihalds komist inn á svið
auðnuveginn fetað breiðan.
Umhverfi má yrkja og hirða
Auðkúlu í heiðaveldi.
Reifuð standa rökin sönn,
rafstrauma í heitum eldi.
„Tilhögunarvalkost" virða
vitringar í dagsins önn
Húnvetninga bresta bönn.
Blönduafl skal fjötrum girða.
Héraðsbúa heill er flúin
haugar blaða drauma kæfa.
Fær þar ekki fólk um stund
framleiðsluna endurhæfa.
Orkuþráður öfugsnúinn
eystra þjáir margra lund,
harmar þar um hæð og sund
hnípin þjóð og vonum rúin.
Islands bænda bregðast dyggðir,
„búin víða ganga úr skorðum".
Rýrnar búfjárræktargjald
rányrkjan er söm og forðum.
Glöggt um vitna Grænlandsbyggðir
gróðurríkis stærra tjald
sjást þar fyrir sauðfjárhald
sæludalir yfirskyggðir.
Landnýtingar línur gefur
leitar raka í viskubrunni.
Ákvarðana tefur tök
„tímarammi á kortagrunni"
„Beitarofnot“ búfjár hefur,
bændum unnið meginsök
þeirra bíða þungbær rök
þjóðskörungur svara krefur.
Aldarfarsins innast bætur,
Ólafs ræður friðinn styrkja!!
Flytur viska Vilmundar
velferð út í ríki Tyrkja.
Samstöðu ei sjatna þrætur,
sovéskt herðist stjórnarfar.
Kommúnistaklíka þar
krókódílatárum grætur.
Ragnars heyrast ræður slyngar
raunatölur kýs að flytja.
Gæslumanna grimmt var svar.
Gamlir draugar kappans vitja.
Illa settir íslendingar.
Aumt er vinstra stjórnarfar.
Órjúfandi eru þar
endalausir vítahringar.
Kiríkur Eiríksson