Morgunblaðið - 28.03.1982, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 28.03.1982, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1982 19 I taka afstöðu til þeirra tillagna. Og hún er nú að vinna að steindum glugga á afmælissýningu Oidtmanns í Þýzkalandi síðar á árinu. Verkstæði Oidtmanns er gam- algróið og mjög virt listaverka- verkstæði í Þýzkalandi, sem bæði framleiðir ný mosaikverk og kirkjuglugga, og er einnig með sérfræðikunnáttu í viðgerð á gömlum kirkjugluggum. Fyrir- tækið verður 125 ára á þessu ári, og efnir af því tilefni til mikillar sýningar, þar sem verða m.a. lista- verk eftir íslenzkar listakonur, Gerði Helgadóttur, Nínu Tryggva- dóttur, Svövu Björnsdóttur og Höllu Haraldsdóttur. Einnig verð- ur gefin út af sama tilefni lista- verkabók með verkum eftir lista- menn, sem Oidtmanns hafa fram- Hin nýja kirkja og safnaðarheimili í Gríndavík. Ragnar EmOsson aridtekt teiknaði hana. IJnnið við stóru mosaikmyndina , Jcsús lægir ökhimar" eftir oKu- mátverki Asgríms, sem verið er að setja upp í Grindavíkurkirkju. Tveir Þjóðverjanna eru að ganga frá benni á gólfinu og er þetta spegibnynd, þar sem bakhliðin snýr upp. Þessi steindi ghiggi er eftir Höllu Haraldsdóttur. leitt, og verða einnig í henni myndir af listaverkum eftir þess- ar listakonur, að því er Fritz Oidtmann tjáði blaðinu. Verkstæði Oidtmanns vinnur listaverk úr steindu gleri og mosa- ik um allan heim. Um þessar mundir eru Oidtmannsbræður að gera 60 fermtera mynd eftir þýzka listamanninn Schaffrath í Denver í Bandarikjunum. Einnig tvo 10 fermetra glugga í Háskólann í Seattle. Nálægt Tokyo í Japan eru þeir að setja upp á nýrri járn- brautarstöð fyrir OMYA stóran steindan glugga í vegg milli bygg- inga. Eru það í raun 50 gluggar, að yfirborði 60 fermetrar. Þá eru þeir með verk sín á sýningu í Ástralíu. En afmælissýningin verður í des- ember í vetur. — E.Pá. iR AÐ FERÐAST í SUMAR AÐ ÚRVAL BÝÐUR AÐEINS ÞAÐ BEZTA ÞAÐ ER STAÐURINN! Kamdu med ti!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.