Morgunblaðið - 28.03.1982, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1982
21
*
Friörik Asmundsson skólastjóri
Stýrimannaskólans 1 Vestmannaeyjum:
Stjórn og sigling skipa
(safoldarprentsmiðja hf. hefur
nýlega gefið út bókina „Stjórn og
sigling skipa“, eftir Guðjón Armann
Eyjólfsson, skólastjóra Stýrimanna-
skólans í Reykjavík.
Óhætt er að segja, að hér sé
komin bók, sem skipstjórnarmenn
hafa beðið eftir og sömuleiðis
nemendur og kennarar stýri-
mannaskólanna. Ég tel nauðsyn-
legt að þessi bók verði til í hverju
skipi sem handbók fyrir sæfarend-
ur. I þessari bók eru siglingaregl-
urnar myndskreyttar, sem er nýj-
ung hér í kennslubók um þetta
nauðsynlega fag og er það kær-
komið. Þótt siglingareglurnar séu
alþjóðlegar, hefur myndskreyting
bókarinnar verið færð í íslenskan
búning hvað varðar sérstakar ís-
lenskar aðstæður, einkum í sam-
bandi við ljós- og bendingarmynd-
Guðjón Ármann
Eyjólfsson
ir á fiskiskipum. Þann þátt bókar-
innar vann Rafn Sveinbjörnsson,
listfengur vestfirskur sjómaður,
en hann lést 6. mars 1978. Höfund-
ur tileinkar minningu hans og ís-
lenskum sjómönnum þessa bók.
I bókinni eru yfir 300 myndir og
eru margar þeirra í litum. Leið-
beiningar eru um vaktir og varð-
stöðu skipstjóra, stýrimanna og
annarra skipverja, en þær eru
teknar saman af alþjóðasiglinga-
málastofnuninni 1974 og 1978. Það
er álit margra, að þær séu ekki
síður nauðsynlegar en siglinga-
reglurnar sjálfar.
Meðal annarra kafla bókarinnar
má nefna neyðarstöðvun og stöðv-
unarvegalengd skipa, ratsjárút-
sendingar (plott), afmarkaðar að-
skildar siglingaleiðir, siglingu
með ratsjá og merkjagjafir í sjáv-
arháska. Hið nýja alþjóðlega sjó-
merkjakerfi, IALA, kerfi A og B,
hliðar- og höfuðáttarmerki er
kynnt rækilega í máli og myndum,
en áformað er, að á sumri kom-
anda verði sett út hér við strendur
íslands 61 bauja eftir kerfi A.
Lýsingar eru í máli og myndum
af nokkrum dæmigerðum árekstr-
um, m.a. einum, sem varð fyrir
innan Vestmannaeyjar milli fiski-
báts og flutningaskips. Margt
fleira er í bókinni til upplýsingar
og fróðleiks fyrir skipstjórnar-
menn.
Höfundur tiltekur í formála
nokkra sérfræðinga, sem veittu
honum lið við samningu bókarinn-
ar, t.d. Björgvin Þór Jóhannsson
tæknifræðing, kennara við Vél-
skóla Islands, og samkennara
hans í Stýrimannaskólanum, þá
Asmund Hallgrímsson, Þorvald
Ingibergsson, Ingólf Þórðarson og
Jónas Sigurðsson, fyrrverandi
skólastjóra Stýrimannaskólans í
Reykjavík. Ýmsir fleiri, bæði inn-
lendir og erlendir menn, hafa veitt
lið við gerð bókarinnar.
Það var ánægjulegt, að Guðjón
Ármann tók að sér samningu
þessarar bókar. Hann er vel kunn-
ur efninu og vinnur það af kost-
gæfni og alúð, eins og hann er
þekktur að úr öllum sínum störf-
um. Þetta er bók, sem á að vera til
í hverju skipi og allir skipstjórn-
armenn þurfa að eignast.
Ég óska íslenskum sjómönnum
til hamingju með þessa vönduðu
bók og þakka höfundi frábært
starf.
Friðrik Ásmundsson
Ódýrar skíðaferöir til Siglufjarðar.
Gisting í skíðamiðstöðinni á Hóli.
Mjög góð aðstaða til skíðaiðkana.
Skíðalyftur — Göngubrautir
Stökkpallur
A F erðashrifstofan
Ifarandi
Lækjargötu 6A — Reykjavík — Sími 17445
*BIIASYMKiG*
EHH
í BÁS að
Gagnheiði 11
AMERICAN EAGLE
„ameriski örninn" er fjórhjóladrifsbill meó
Quatra Track I algjörum sérflokki, bill sem á
engan sinn llka. Vélin er 6 strokka, 258 cid.,
sjálfskiptur, aflhemlar, vökvastýri og Select
Drive benslnsparnaöar-rofi sem skiptir milli
2ja eóa 4ra drifa eftir þvi sem vió á.
CONCORD
er ameriskur lúxus-bill meó öllu. Vélin er 6
strokka, 258 cid., sjálfskiptur, vökvastýri, afl-
hemlar, vióarklætt mælaborö, quartz-klukka,
plussáklæói, vinyltoppur, teppalögð farang-
ursgeymsla, listar á hlióum og krómlistar á
brettaköntum, silsum og kringum glugga. D-
78 x 14 hjólbaróar meö hvitum hringjum,
gúmmllistum á höggvörum og hljóöeinangr-
un er mjög góó.
FIAT PANDA
blllinn sem er öóruvisi meó sérstaklega
frumlega innréttingu til fjölbreyttra nota t.d.
sæti fyrir 5 fulloröna, eóa svefnpláss fyrir 2
og má llka breyta I sendiferðabil eða aftur-
sætinu I barnarúm. Ungt fólk ætti aó athuga
PANDA bllinn.
FIAT 131 SUPER
er gjörbreyttur utan sem innan, meó mjög
sparneytna endurhannaóa vél, 1400 cc. auk
2000 cc. vélarinnar. Þessi vinsæli bíll hefur
mörg önnur þægindi, aflstýri, rafmagns
rúóuupphalara, rafmagns huróalæsingar,
litaó gler og plussklæóningu.
FIAT RITMO
Fiat Ritmo eini innflutti bíllinn á Bandarikja-
markaöi sem stóöst öryggisprófun neytenda-
samtakanna. Fiat Ritmo hefur hlotiö viöur-
kennmgu gagnrýnenda um heim allan.
Aksturseiginleikar og hönnun hans er talin
ein sú fullkomnasta sem fram hefur komió
i mörg ár. Sumir hafa gengió svo langt aó
telja Ritmo bil þessa áratugar.
Sunnudag 28.mars kl. 11-18,
EGILL / / FIAT ,
/ VILHJÁLMSSON HF. / / UMBOÐIÐ /