Morgunblaðið - 28.03.1982, Page 23

Morgunblaðið - 28.03.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1982 23 Litið púður er í patrónunum f GRÆNA VÍTINU Stríðsskussar Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson REGNBOGINN: GRÆNA VÍTIÐ (The Last Hunter) Leikstjóri: Anthony M. Dawson. Aðalhlutverk: David Warbeck, Tisa Farrow, Tony King. Hér er okkur boðið uppá enn eina útgáfuna af fáránleik Viet Nam-stríðsins. Bandaríkjamenn voru, sem kunnugt er, lítt hrifnir af að gera það að yrkisefni í kvikmyndum eftir hrakfarir The Green Berets. Það var ekki fyrr en eftir lok þessa ógeðslega stríðs að fram komu myndir þar sem kunnáttumenn tíunduðu hörmungar þess, hver frá sínu sjónarhorni. Þar báru hæst myndirnar Coming Home, e. Hal Ashby, Apocalypse Now, e. Copp- ola, og The Deer Hunter, e. Cim- inos. Höfundur Græna vítisins fer auðsjáanlega í smiðju þeirra Coppola og Ciminos í leit að hugmyndum og nokkrum atrið- um klæmist hann á úr hinum ágætu myndum þeirra. Græna vítið á að gerast undir stríðslok. Harðjaxl einn, kafteinn í her Bandaríkjamanna, er gerður út- af örkinni til að þagga niður í útvarpsstöð sem falin er ein- hversstaðar inní frumskóginum. Þaðan berst í sífellu stúlkurödd sem hvetur stríðsþjáða kanana að gerast liðhlaupar. Og eftir ólýsanlegar mann- raunir tekst kafteininum, ásamt einvalaliði, að sprengja kven- skratta þennan í loft upp ásamt tækjabúnaði og svona rétt til að benda á andagift og frumlegheit kvikmyndagerðarmanna má geta þess að þulan var náttúru- lega perluvinur og kærasta besta vinar kafteinsins. Nóg um það. Græna vítið er einfaldlega í hópi þeirra mynda sem áhorfendur eiga að varast. Hér er hvergi glæta, hæfileika- skortur hrjáir greinilega mannskapinn. Nöfn þessara höfðingja tekur ekki að nefna, það þekkir þau enginn, hvort sem er. En vonandi hvíla þeir sig á kvikmyndagerð um ókomna framtíð. Ódýr brögð en ágæt BÍÓHÖLLIN: HALLOWEEN Handrit, tónlist og leikstjórn: John Carpenter. Aðalhlutverk: Jamie Lee Curtis, Donald Pleasence, Nancy Loomis og P J. Soles. Bandarísk frá 1978. Maðurinn hefur löngum haft unun af því að láta hræða sig, einkum þá hann er þess fullkom- lega meðvitandi að skelfingin á sér rætur að rekja til atburða á tjaldinu, sviði, bók, blöðum. Hún er ósköp þægileg tilfinningin sem fylgir því að vita, að maður er bara að skemmta sér, lofthræðsl- an, myrkfælnin, eða hvað það nú var sem maður var að láta kitla, er frá þegar bókinni er lokið eða ljósin kveikt. Hryllingsmyndir komu því fljótlega til sögunnar, eða strax upp úr aldamótum, og hafa notið almennra vinsælda æ síðan. Einn af yngri spámönnum í gerð hrollvekja er Bandaríkja- maðurinn John Carpenter, leik- stjóri HALLOWEEN. Hann vakti fyrst athygli á sér fyrir ódýra, en vel gerða geimmynd, Dark Star, fyrir fáeinum árum. Síðan hefur hann gert nokkrar myndir sem allar hafa hlotið jákvæða dóma gagnrýnenda sem almennings: ELVIS - THE MOVIE, THE FOG, ASSAULT ON PRECINCT 13. Hrollvekjan sem hann vinnur að þessa dagana nefnist THE THING og gerist á snæviþöktum auðnum Alaska. HALLOWEEN gerist að kvöldi Allra heilagra messu, en þá fer ungviðið þar vestra um götur og torg með ærslum og óhljóðum. Þetta er því kjörinn bakgrunnur fyrir geðsjúka morðingja að at- hafna sig — og hrollvekju. Margslunginn söguþráður og íburður er ekki aðall Carpenters. Atburðarásin er einföld og ramminn utanum hana fremur fátæklegur. En hins vegar kemur hann áhorfandanum sífellt í opna skjöldu með lunknum brögðum sem, þegar best lætur, slá hann út af laginu augnablik. Honum hefur sem sagt tekist að ná því markmiði í sparlega gerðum myndum sínum sem margir þekktari meistarar hafa verið að reyna án árangurs í mun íburð- armeiri myndum og dýrari — að hrella áhorfandann ærlega. Þá geta gamalreyndir kvik- myndaunnendur spreytt sig til gamans á að rifja upp fræg atriði úr hryllingsmyndum sem Carp- enter skemmtir sér við að skír- skota ærið oft til í þessari litlu, en hressilegu mynd. Jamie Lee Curtis (dóttir Tony Curtis og Janet Leigh) í hrollvekju Carpenters, HALLOWEEN. Eigendum Sharp örbylgjuofna gefst nú tækifæri til aö sækja námskeiö þar sem kennd veröur matreiösla í örbylgjuofnum og meöferö þeirra. Námskeiðin veröa haldin í verzlunum okkar aö Hverfisgötu 103, miövikudaginn 31. marz og fimmtudaginn 1. apríl kl. 20—22. Stjórnandi námskeiöanna veröur Ólöf Guönadóttir, hússtjórn- arkennari. Þátttaka tilkynnist í síma 17244, frá kl. 10—12 á morgun, mánudag. áCS^ HLJÓMTÆKJADEILD l|jp KARNABÆR W HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999 mmmMm Horlem Olobetrotters til Islands i Hiö heimsfræga stórkostlega snjalla körfuknattleikslið HÁR- LEM CLOBETROTTERS leikur gegn WASHINGTON GENER- ALS í Laugardalshöll 19. og 20. apríl nk. Leikur tveggja banda- rískra superliöa, sem allir VERÐA að sjá. I hálfleik sýna bandarískír rúlluskauta-snillingar tistir stnar, töframenn og sprellikarlar koma fram. Stórkostleg skemmtun fyrir alla fjölskylduna. F0RSALA aögöngumiöa er í dag kl. 13—17 að Hótel Esju og íþróttarvallarhús- inu, Keflavík. Miöapantanir utan af landi teknir í símum 85949 — 82448 — 82465 á sama tíma Ath. Aðeins þessir 2 leikir. f-LUGLEIDIR Trade-msrk® . —

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.