Morgunblaðið - 28.03.1982, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1982
Þolplast
nýtt byggingaplast-
varanleg vöm gegn raka
Plastprent hefur nú hafið framleiðslu á
nýju byggingarplasti, POLPLASTI, í sam-
ráði við Rannsóknarstofnun byggingar-
iðnaðarins. Framleiðsla á ÞOLPLASTI er
árangur af auknum kröfum sem stöðugt
eru gerðartil byggingarefna.
ÞOLPLAST hefur aukið endingarþol gegn
langtímaáhrifum Ijóss, lofts og hita.
ÞOLPLAST ersérstaklegaætlað sem raka-
vörn í byggingar, bæði í loft og veggi.
ÞOLPLAST er varið gegn sólarljósi og því
einnig hentugt í gróðurhús, vermireiti
og í glugga fokheldra húsa.
ÞOLPLAST er framleitt fyrst um sinn
280 sm breitt og 0,20 mm þykkt.
9
Plastprent hf.
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 85600
nýtt byggingaplast sem
slær öðrum við
IPPUPPP> »'IIW
Hér eru þeir Snorri Sveinn og Hjtfrleifur að hengja upp myndir Hjörleifs og
þeim til adstodar er myndlistarmaöur frá Japan, Kazuya Tachibana.
Tilganginum er náð ef
tekst að ljúka einhverju
upp fyrir áhorfendum
segir Snorri Sveinn Friðriksson sem nú sýnir
í Norræna húsinu ásamt Hjörleifi Sigurðssyni
þvottavélin:
Stálvélin sem stenst
tímanstömi
Nýju Candy þvottavélarnar eru með pott úr ryðfríu
stáli og utan um hann er sterk grind, sem tekur
átakið af pottinum.
CANDY þvottavélar fyrir kalt vatn
CANDY þvottavélar fyrir heitt og kalt vatn
CANDY þvottavélar með 400,500 eða 800 snúninga
vinduhraða.
Einnig bjóðum við Candy þurrkara, svo nú getið
þér þurrkað allan þvottinn í einu á meðan þvotta-
vélin er að þvo. Þannig sparast mikill tími.
CANDY GÆÐI CANDY ÞJÓNUSTA
PFAFF
Bor'gartúni 20 Sími 26788
SNORRI Sveinn Kriðriksson og
Hjörleifur Sigurðsson myndlistar-
menn sýna um þessar mundir verk
sin í Norraena hússinu. Báðir sýna
þeir olíumálverk, Hjörleifur vatns-
Íitamyndir að auki og Snorri Sveinn
kolteikningar. Þeir hafa áður sýnt
saman, árið 1976 í Norræna húsinu,
þá einnig með Ragnheiði Jónsdóttur
Ream, en sýning stendur einnig yfir
um þessar mundir á verkum hennar
að Kjarvalsstöðum.
Hjörleifur Sigurðsson er fæddur
1925, stundaði myndlistar- og
listasögunám í Stokkhólmi, París
og Osló, ritaði um myndlist á árum
áður og kynnti list í skólum, var
forstöðumaður Listasafns ASÍ
1969 til 1979, hefur haldið allmarg-
ar einkasýningar í Reykjavík og
tekið þátt í samsýningum erlendis.
Hann býr nú í Noregi og hefur ein-
vörðungu stundað myndlistarstörf
frá árinu 1979.
Snorri Sveinn Friðriksson er
fæddur á Sauðárkróki 1934, stund-
aði myndlistarnám í Reykjavík og
síðar Stokkhólmi, hefur haldið 3
einkasýningar i höfuðborginni og
tekið þátt í samsýningum á vegum
FÍM hérlendis og erlendis. Frá ár-
inu 1969 hefur hann starfað sem
leikmyndateiknari við sjónvarpið
og er nú forstöðumaður leik-
myndadeildarinnar, hann hefur
einnig gert leikmyndir fyrir Þjóð-
leikhúsið og skreytt veggi opin-
berra bygginga.
Morgunblaðið ræddi við Snorra
Svein í vikunni og var hann fyrst
spurður um ástæðu þess að þeir
félagar sýna nú saman í Norræna
húsinu:
— Við höfum nú lengi þekkst
Hjörleifur og ég, störfuðum lengi
saman í stjórn FÍM þegar félagið
átti í stríði og einnig á friðartím-
um í félaginu. Þá kynnast menn
vel hver öðrum. Við höfum sýnt
saman áður og fannst okkur þvi
athugandi að gera það aftur. Við
reynum að blanda verkum okkar
hér í sýningarsölunum, en þau eru
það ólík að ég held að menn rugli
okkur ekkert saman og geti notið
sýningarinnar þrátt fyrir það.
Ráða hagkvæmnisástæður einn-
•g?
— Víst er það mun hagstæðara
að deila tveir kostnaðinum við sýn-
ingu, því hann er orðinn æði mik-
ill. En við reynum að vera hér báð-
ir til staðar, Hjörleifur opnar að
jafnaði á daginn þar sem ég er enn
bundinn við vinnu mína, en síðan
erum við oftast báðir hér á kvöld-
in, því oft er það sem menn vilja
rabba við okkur um verkin.
Hvernig er að samræma vinn-
una við sjónvarpið myndlistar-
sköpun?
— Ég tók mér launalaust leyfi
þegar ég fór að undirbúa þessa
sýningu af krafti og það hef ég
áður gert fyrir sýningar. Það
krefst mikils tíma og næðis að
mála. Þó má segja að ég sé alltaf
að mála eða teikna þótt ég sitji
ekki við, ég lifi og hugsa sem
myndlistarmaður mitt í erilsamri
vinnu. Þetta lærist, að umgangast
sjálfan sig undir ýmsum kringum-
stæðum. Þá tapar maður ekki
þræðinum sem myndlistarmaður.
Ég hef líka lengi starfað við fjöl-
miðla, byrjaði feril minn sem út-
litsteiknari á Vikunni og vann þar
í 7 ár, síðan fór ég í sjónvarpið. í
sjónvarpinu erum við alltaf að
Þessar stöllur, Andrea Sigurðardóttir, Snjólaug Birgis-
dóttir og Sigurpála Birgisdóttir, efndu til hlutaveltu til
ágóða fyrir „íbúðir aldraðra" að Lönguhlíð 3.