Morgunblaðið - 28.03.1982, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1982
35
Raul Flores sendifulltrúi FMLN og FDR á Norðurlöndunum:
Erlend íhlutun í E1 Salvador
gæti leitt til heimsstyrjaldar
„ÞAÐ ER ekki hægt að halda
kosningar í El Salvador þar sem
leiðtogar FMLN og FDR eru yf-
irlýstir glæpamenn af stjórnvöld-
um. Einu samtökin, sem fá að
taka þátt í þessum kosningum
eru borgaraflokkar, sem eru
lengst til hægri,“ sagði Raul
Flores Ayala á blaðamannafundi
á Hótel Borg á miðvikudag, en
hann er sendifulltrúi samtak-
anna tveggja, sem getið var hér
að framan. Raul Flores er stadd-
ur hér á landi í boði El Salva-
dor-nefndarinnar á íslandi og
fleiri samtaka eins og Fram-
sóknarflokksins og Alþýðu-
bandalagsins. Lét hann þessi orð
falla er hann var inntur eftir áliti
sínu á þeim kosningum sem í
nánd eru í El Salvador.
„Ég held,“ sagði Raul Flores
ennfremur, „að flestar þjóðir
telji það augljóst að þessar
kosningar í E1 Salvador eru
hreinn skrípaleikur og hafa
engin áhrif á stöðu mála í
landinu."
Um byltinguna í Guatemala,
sagði Raul Flores. „Sú bylting
kemur ekki til með að hafa
bein áhrif á þróun mála í E1
Salvador. í Guatemala er að-
eins um að raeða valdabaráttu
hinna drottnandi afla, sem
fólkið í landinu kemur hvergi
nálægt. Slíkt er líka fyrir
hendi í E1 Salvador og sýnir
það betur en margt annað
hversu ófær þessi valdastétt er
til að stjórna landinu. Ef koma
skyldi til bein íhlutun erlendra
ríkja í E1 Salvador myndu átök
aukast þar verulega og það
gæti jafnvel leitt til alheims-
styrjaldar. Við höfum sagt að
vegna þessa þurfi að leita póli-
tískrar, friðsamrar lausnar á
stríði því sem háð er í landinu
og þessi skoðun nýtur fylgis
meðal evrópskra ríkisstjórna.
Þær pólitísku lausnir sem ég
er að tala um er að boðað verði
til fundar milli herforingja-
stjórnarinnar og okkar sam-
taka án nokkurra fyrirfram-
krafna. Með þessum umræðum
myndu fylgjast fulltrúar ríkis-
stjórna erlendra ríkja og séð
yrði um að fólkinu í landinu
yrði gefnar upplýsingar um
umræðurnar og hvað sé rætt. I
þessum viðræðum myndum við
sennilega leggja fram kröfur
um að grundvöllur fyrir sam-
komulagi yrði róttæk breyting
á stjórnkerfi landsins. Við höf-
um boðið til slíkra viðræðna en
því boði hefur ætíð verið hafn-
að, því markmið herforingja-
stjórnarinnar er að brjóta á
bak aftur þessi samtök okkar.
Það hefur komið í ljós,“
sagði Raul Flores, „að herinn í
E1 Salvador er þess ekki um-
kominn að sigra skæruliða.
Honum fer sífellt hrakandi í
baráttunni og ef hann nýtur
ekki stuðnings Bandaríkja-
stjórnar ætti herforingjastjór-
in enga von um að halda völd-
um. Það eina sem bjargar
stjórninni er bein eða óbein
íhlutun Bandaríkjastjórnar í
E1 Salvador.
Það er einlægur vilji okkar
að finna leiðir svo friður megi
verða saminn. Sé þess nokkur
kostur að leysa vandamálið án
vopnaðra átaka erum við fylgj-
andi því.“
Raul Flores var að því
spurður hvernig hann teldi að
Norðurlöndin gætu hjálpað í
baráttunni fyrir friði í E1
Salvador. „Danmörk, Noregur
og Svíþjóð," sagði Raul Flores,
„eða ríkisstjórnir þessara
landa hafa sýnt fullan stuðn-
ing við hugmyndina um frið-
sama lausn á vandamálinu í E1
Salvador. Alþjóðasamband
jafnaðarmanna með Willy
Brandt í fararbroddi hafa boð-
ist til að gerast milligöngu-
menn í friðsamlegum samn-
ingum milli aðila í E1 Salva-
dor. Einnig eru starfandi á
Norðurlöndunum til dæmis
stuðningssamtök okkar og
augljóst er að ef ekki hefðu
komið til yfirlýsingar frá rík-
isstjórnum þessara landa og
fleiri, og þessum stuðnings-
samtökum, væri þegar banda-
rískur her í E1 Salvador. Þessi
stuðningur við fólkið í E1
Salvador gerir það erfiðara
fyrir Bandaríkin að eiga beina
íhlutun í landinu. Það hefur
myndast almenningsálit um
allan heim sem er andvigt
stefnu Bandaríkjanna varð-
andi E1 Salvador."
Þá rakti Raul Flores upphaf
og stofnun FMLN og FDR og
sagði að ýmis mismunandi
samtök í landinu hefðu stofnað
þessar hreyfingar. Það sem
skjldi þau lengi að var hvernig
baráttunni skyldi háttað og
ekkert var rætt um að hverju
skyldi stefna, en seinna var
gerð stefnuskrá, sem aðilar
samþykktu. Það er pólitísk
stefnuskrá, sem gerir grein
fyrir því hvernig haga skuli
málum ef sigur vinnst.
„Mikilvægast," sagði Raul
Flores, „er að halda þjóðlegu
sjálfstæði og sjálfstæði ríkis-
ins og sjálfsákvörðunarréttur
hvers og eins skal verða virtur.
I stefnuskránni stendur og að
trúfrelsi verði tryggt, að unnið
verði að endurbótum í land-
búnaði, að eignir fjölþjóðlegra
auðhringa í landinu verði þjóð-
nýttar, og að þrjú eignarform
verði við lýði. í fyrsta lagi
einkaeign, ríkiseign og loks
blönduð eign ríkis og einkaað-
ila. Herinn yrði skipaður úr
sveitum FMLN og þeim úr nú-
verandi her sem ekki verða
sakaðir um glæpaverk," sagði
Raul Flores í lokin.
Erindi um
svartolíu-
brennslu
DANIEL Parro, yfirmaöur hönnun-
ardeildar Wártsila dieselframleið-
anda í Finnlandi, heldur erindi á
vegum Verkfræðistofnunar Háskóla
íslands mánudaginn 29. mars kl.
17.15, í stofu 158, í húsi Verkfræði-
og raunvisindadeildar við Hjarðar-
haga 6.
Erindið fjallar um svartolíu-
brennslu dieselvéla við breytilegt
álag og nýjustu þróun í gerð dies-
elvéla fyrir brennslu mismunandi
svartolíu.
Ógiftur 32 ára ástralskur málari,
sem aldrei hefur séð snjó, óskar
eftir bréfasambandi við Islend-
inga:
Dale Evans,
61 Weewondilla Road,
Glennie Heights,
Warwick,
Queensland 4370,
Australia.
Norsk mæðgin, sem hafa frí-
merkja- og myntsöfnun að helzta
áhugamáli, biðja Morgunblaðið
um aðstoð við að komast í sam-
band við íslendinga. Konan er 43
ára húsmóðir, en sonurinn 16 ára
nemi á landbúnaðarskóla. Þau
gefa upp sama áhugamál:
Elsa Opsahlseter eða
Jan Opsahlseter:
N—2270 Flisa,
Norge.
COCONUT 9
CREAMS I
kókosbragð,
03 svo hnetubragðió
sem sumum finnst
lang best..