Morgunblaðið - 28.03.1982, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1982
47
Lægst launaða fólkið fer verst út
úr taxtaskerðingu ríkisvaldsins
Vinnuveitendur ákveða einhliða stóran hluta af útborguðum launum
Niðurstöður könnunar kjara-
rannsóknanefndar um launa-
Kreiðslur, sem nýlega voru kynnt-
ar, eru að mörgu leyti mjög at-
hyglisverðar.
Könnunin sýnir m.a., að yfir-
borganir eru orðnar mjög almenn-
ar og í mörgum tilfellum verulega
háar og vinnuveitendur eru þann-
ig farnir að ákveða einhliða stóran
hluta af útborguðum launum.
Allar fullyrðingar vinnuveit-
endasamtakanna um að atvinnu-
vegirnir þoli ekki hærri launa-
taxta, eru því hrein markleysa.
Vinnuveitendur taka
ekki mark á samtök-
um sínum og greiða
Iangt yfír taxta
Vinnuveitendur hafa sjálfir
neitað að taka mark á þessum
futlyrðingum sinna eigin samtaka,
„Krafan í dag snýst því aðal-
lega um það að færa launa-
taxtana nær því, sem stór
hluti vinnuveitenda greiðir
nú þegar og að bæta lægst
launaða fólkinu upp þá taxta-
skerðingu, sem stjórnvöld
hafa framið að undanfíirnu."
með því að greiða í raun miklu
hærri laun en gildandi launataxt-
ar segja til um og vinnuveitenda-
samtökin þreytast ekki á að segja,
að ekki sé hægt að hækka neitt.
Það hlýtur að vera mikið um-
hugsunarefni fyrir verkalýðs-
hreyfinguna, að vegna þess að um-
samdir launataxtar eru sífellt
skertir af ríkisvaldinu, eru vinnu-
veitendur í síauknum mæli farnir
að ákveða einhliða æ stærri hluta
af launum fólks.
Fólk í lægri
launaflokkum er
ekki yfirborgað
Könnunin sýnir einnig, að fólk,
sem flokkað er í hærri launa-
flokka, er mun meira yfirborgað
en fólk, sem flokkað er í lægri
launaflokka. Reyndar er það mjög
áberandi, að fólkið, sem flokkað er
í lægri launaflokkana, fær enga'
yfirborgun og tekur því laun sam-
kvæmt gildandi launatöxtum.
Þetta er sérstaklega tilfinnan-
legt fyrir t.d. verzlunarfólk, en það
fær ekki laun samkvæmt bónus-
eða ákvæðisvinnutöxtum, sem
eykur verulega tekjumöguleika
þeirra, sem við það búa.
Lægst launaða fólkið
hefur farið verst
út úr taxtaskerð-
ingu ríkisvaldsins
Þetta sýnir okkur, að tólkið, sem
í raun býr við lægstu launin, hefur
farið langverst út úr þeirri skerð-
ingu, sem stjórnvöld hafa framið á
launatöxtum, sem verkalýðshreyf-
ingin hefur samið um. Sú skerðing
nemur hvorki meira né minna en
30% frá 1. júní 1979.
Þessi mikla skerðing stjórn-
valda á launatöxtum, hefur sem
sagt bitnað fyrst og fremst á lægst
launaða fólkinu, gagnstætt því,
sem stjórnvöld héldu fram, að
stefnt væri að, þegar þau ítrekað
hafa ógilt kjarasamninga með
löggjöf.
Fólkið, sem er í hærri launa-
flokkum, hefur margt fengið
taxtaskerðinguna bætta með yfir-
borgunum.
Yfírborganirnar
eru áfellisdómur
á ríkisvaldið
Yfirborganirnar, svo miklar og
almennar sem þær eru orðnar,
samkvæmt könnuninni, eru því
mjög alvarlegur áfellisdómur á
ríkisvaldið, sem svo gróflega hefur
skert launataxtana.
Þetta er einnig áfellisdómur á
samtök vinnuveitenda, sem virð-
ast ekki kunna nema eitt orð í ís-
lenzku, þ.e. nei, nei, nei.
Yfirborganirnar staðfesta
nefnilega, að fjöldi vinnuveitenda
greiðir nú þegar þau laun og
margir mun meira, en verka-
IvAshfPvfÍnrrin rrorir nú lrrðfu nm
að fá viðurkennd í kjarasamning-
um.
Krafan í dag
Krafan í dag snýst því aðallega
um það, að færa launataxtana nær
því, sem stór hluti vinnuveitenda
greiðir nú þegar, og að bæta lægst
íaunaða fólkinu upp þá taxta-
skerðingu, sem stjórnvöld hafa
framið að undanförnu, þ.e. fólk-
inu, sem tekur laun samkvæmt
hinum skertu launatöxtum og fær
engin álög í neinu formi. Þar er
þörfin langbrýnust.
Þessar staðreyndir hljóta að
hafa áhrif á samningagerðina,
sem nú er rétt hafin.
Beo Center 7002
Fjarstýrð hágæðasamstæða
Með því að ýta á einn takka á fjarstýringunni úr
sæti þínu getur þú fengið hljómlist frá hljómplötu/
segulbandstækinu eða útvarpstækinu. Stórir
ljósastafir í stjórnborðinu sýna þér stöðugt hvað
er í gangi. Hægt er að stýra tækinu með tölvunni
á tækinu sjálfu eða með fjarstýringu sem fylgir.
Komdu og skoðaðu — Þú munt sannfærast.
Verð kr. 20.170.— Greiöslukjör.
Tölvuminni og tímatæki gera yður kleift að stilla
tölvuna innan 24 klst. þannig að tækið fari í gang
samkvæmt yðar óskum þ.e. t.d. kveikja á útvarp-
inu og taka upp á segulbandið.
Við álítum að viðskiptavinir okkar kunni heldur
betur að meta þetta.
•55?
/,zL\
Bang&Olufsen
VERSLIO i
SÉRVERSLUN
MEÐ
LITASJÓNVÖRP
DG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800