Morgunblaðið - 21.04.1982, Page 11

Morgunblaðið - 21.04.1982, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1982 11 „Stefnum að því að leggja niður stofnanir fyrir þroskaheftau Rætt við Karl Griinewald sérfræðing í málefnum þroskaheftra Félagsmálaráðuneytið og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hafa boðið hingað til lands í nokk- urra daga heimsókn Karli Griinewald frá félags- og heilbrigðismálastofnun Svíþjóðar, og hefur hann undanfarið heimsótt stofnanir hér á Reykjavíkursvæðinu og úti á landi og haldið þar fyrirlestra og rætt við starfsfólk og stjórnendur um málefni þroskaheftra. Karl Grúnewald er forstöðumaður þeirrar deildar, sem fer með yfírstjórn a málefnum þroskaheftra í Svíþjóð, en hann hefur starfað að uppbyggingu þeirra mála um áratugi. Hann hefur skrifað bækur um málefni þroskaheftra og ritað fjölda greina í blöð og tímarit. Blm. Morgunblaðsins hitti Griinewald að máli og innti hann eftir því hvernig honum litist á málefni þroskaheftra hér á íslandi þar sem hann hefur verið að kynna sér þau mál undanfarin dægur. „Eg tel það mjög gott að landinu skuli vera skipt í átta svæði þar sem hvert svæði hefur eigin stjórn á málefnum þroskaheftra. Það er svipað og við höfum á Norðurlönd- unum, nema hvað þar eru svæðin mun stærri og fleiri sem búa á þeim, þannig að ekki er hægt að sinna þroskaheftum og fötluðum eins vel kannski en ella." vera í venjulegum skóla. Stefnan ætti að vera sú að öll fötluð börn ættu að vera blönduð í venjulegum skóla í nágrenni síns heimilis. íslendingar eru aðeins á eftir hvað það snertir að blanda í al- menna skóla í landinu þroskaheft- um og fötluðum börnum. Hér eru enn byggðir sérskólar fyrir þau börn en því hefur verið hætt á Norðurlöndunum. Ég hef tekið eftir að fólk, sem vinnur með þroskaheftum og fötluðum börn- um hefur ekki enn myndað sér stefnu eða hugmyndafræði í þess- um málum og það er eins og það viti ekki að hverju það eigi að stefna. Fólk hér er ekki á eitt sátt hvað snertir blöndun í skólum en á Norðurlöndunum hefur verið al- ger eining um að þroskaheftir og fatlaðir eigi að vera með fólki úti í þjóðfélaginu." og Grúnewald held- ur áfram: „Unglingar 16 til 21 árs, sem eru þroskaheftir eða fatlaðir, eiga að Karl Gríinevald fá framhaldsmenntun eða þjálfun í framhaldsskólum, iðnskólum eða fjölbrautaskólum eins og aðrir unglingar. Fullorðnir þroskaheft- ir, sem ekki geta unnið á almenn- um vinnumarkaði þurfa á vernd- uðum vinnustöðum að halda eða dagvistun. Á slíku heimili þarf að veita alhliða þjálfun með daglegar athafnir, s.s. hreinlæti, klæðnað, matartilbúning o.s.frv. Engir fullorðnir þroskaheftir eða fatlaðir ættu að vistast á sól- arhringsstofnunum heldur ætti að koma upp sambýlum í heima- hyggðinni. Stefna ætti að því, að leggja niður sólarhringsstofnanir og vista þroskahefta einungis á sambýlum. Það ætti að forðast að slíta tengslin við fjölskyldu og umhverfi, og fólkið ætti vissulega að búa úti í þjóðfélaginu með öðru fólki. Til að koma þessu í framkvæmd þarf að byrja á börnunum. Hætta að setja þau inn á stofnanir eða sérheimili heldur láta þau vera sem mest hjá foreldrum sínum. Ef það er ekki mögulegt er æskilegast að koma upp fósturheimilum fyrir tvö til þrjú börn á heimili. Það er stefnan á Norðurlöndunum að leggja niður stofnanir fyrir þroskaheft börn innan 20 ára.“ Það sem Grúnewald leggur mikla áherslu á eftir að hafa skoð- að sig um í Reykjavík er að í borg- inni verði sett á laggirnar grein- ingar- og ráðgjafarmiðstöð, þar sem fari fram athugun, greining og gerð meðferðaráætlana fyrir fötluð börn. Slík stofnun er hlið- stæð svonefndum „habiliterings- center", sem er í hverju amti í Sví- þjóð. Segir Grúnewald að grein- ingar- og ráðgjafarstöð þurfi að veita svæðisstjórnum faglegar leiðbeiningar við uppbyggingu á leikfangasöfnum, dagvistarstofn- unum og öðrum þjónustuþáttum fyrir þroskahefta. Grúnewald seg- ir: „Engin börn ættu að vistast á sólarhringsstofnunum. Þroskaheft og fötluð börn eiga að alast upp hjá foreldrum eða fósturforeldr- um. Til þess að svo megi verða þarf að leggja mikla áherslu á að veita heimilum og foreldrum margþætta aðstoð og stuðning s.s. heimilishjálp til að annast barnið á heimilinu, eða skammtíma fóst- urheimili til að létta undir með foreldrum. Möguleikar verða að vera fyrir hendi með leikskóla, dagheimili og aðra þjónustu m.a. á greiningar- og ráðgjafarstöð. Sérkennsla og þjálfun ætti allt- af að byggjast upp á því svæði þar sem barnið á heima, eða eins ná- lægt heimili þess og nokkur kostur er. Um er að ræða hæfingar- kennslu og þjálfun, sem ættu að Sumar- dagurinn 1. Matseðill: Barnapylsur og Pepsí Cola Kiwanismenn og gestir munið barna og fjölskyldu- hátíðina í Kíwanishúsinu, Brautarholti 26 á sumardag- inn fyrsta kl. 12 til 15. Kiwanisklúbburinn Katla. Þaö úrval sem viö höfum í verzlun okkar eru ekki einu möguleikarnir frá Lúbke. Vekjum athygli á sérpöntunar- þjónustu á völdum hágæöahúsgögnum. Komiö og skoðið og fáiö nánari upplýsingar á húsgagna- sýningunni í Bláskógum, sem stendur út þessa viku í tilefni 10 ára afmælis verzlunarinnar. TT' ILJI Bláskógar ARMULI 8 SÍMi: 86080 SÉRPÖNTUNAR- u 1fl 'tf ÞJÓNUSTA SSMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.