Morgunblaðið - 08.05.1982, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MAÍ1982
Kúluvarparinn sterki Hreinn
Halldórsson, sem dvalið hefur í vet-
ur í Bandaríkjunum er nú kominn
heim. Hreinn hefur átt við mjög
þrálát bakmeiðsli að stríða í allan
vetur og hefur lítið sem ekkert getað
æft eða keppt. Svo slæm eru meiðsli
Hreins að hann er nú kominn á
Landspítalann og verður skorinn
upp við brjósklosi í næstu viku. I»að
er því alveg Ijóst að Hreinn veröur
lengi frá íþróttaiðkun og kemur ekki
til með að keppa næsta keppnistíma-
bil. —I»R.
Næstu viðkomustaðir Kristjáns Tryggvasonar og félaga hans í þjónustu-
ferðinni á Lappanum glæsilega eru:
10. maí: Akureyri, viö Þórshamar frá kl. 14—17.
11. maí: Sauöárkrókur, viö Bifreiöaverkstæöi Kaupfélaqs Skaafirö-
inga frá kl. 14—17.
12. maí: Blönduós, frá kl. 10—12 og Staöarskáli frá kl. 14—15.
Notið tækifæríð til þess að spyrja V E XX IR H F.
Hreinn skorinn upp
• Grasvellirnir í Laugardal. Þeir eru ekki gróskumiklir um þessar mundir.
Baldur Jónsson vallarstjóri:
„Ekki útséð um hvort íslands-
mótið getur byrjað á grasiM
„Yfirbreiðslur hefðu gerbreytt útlitinu“
„l'að er nokkuð raunhæft að telja
jafnar líkur á þvi að hægt verði að
leika fyrstu leiki íslandsmótsins í
knattspyrnu á grasvöllunum, eða
kannski þó ívið meiri líkur á þvi að
flytja verði fyrstu leikina á mölina,
það er erfitt að segja á þessu stigi
málsins," sagði Baldur Jónsson,
vallarstjóri, i samtali við Morgun-
blaðið í gær, en hann var þá inntur
eftir ástandi grasvallanna í Laugar-
dalnum nú, er hretið virðist vera í
„Það var næturfrost aftur síð-
ustu nótt,“ sagði Baldur í gær og
hélt áfram: „Og frostið fór niður í
13—14 stig niður við jörð í Laug-
ardalnum þegar mest var. Áður en
kuldakastið hófst leit þetta alveg
ofsalega vel út, allir vellirnir orðn-
ir iðjagrænir, en nú eru þeir allir
brúnir og kaldir. Við höfum aldrei
verið jafn bjartsýnir eins og fyrir
kuldakastið, en nú er þetta allt
saman í biðstöðu. Ef við getum
fengið smá hlýindi og vætu, þá eru
allir möguleikar á því að bjarga
málunum, við höfum jú enn viku
til stefnu og gróðurmáttur ís-
lensku moldarinnar er hreint
ótrúlegur, þeir vita það best sem
við hana fást.“
„Ábreiður hefðu ger-
breytt málinu“
„Ef við hefðum yfirbreiðslur
hefði þetta vandamál aldrei komið
upp, grasið hefði ekki fölnað. Við
þurfum ekki hitalagnir undir völl-
inn eða neitt slíkt, yfirbreiðslur
hefðu gerbreytt myndinni og við
þyftum ekki að hafa áhyggjur af
því að leika fyrstu leiki Islands-
mótsins á möl ef við hefðum slíkar
yfirbreiðslur til taks. Þær eru til,
en við höfum ekki afnot af þeim,
þær kosta mikla peninga og fjár-
hagur borgarinnar hefur til þessa
ekki leyft kaup á þeim. En væru
þær fyrir hendi værum við á
grænu grasi ef svo mætti að orði
komast," sagði Baldur að lokum.
Það væri sannarlega súrt, ef
rétt einu sinni þyrfti að leika
fyrstu leiki íslandsmótsins á möl,
þvi knattspyrnuaðdáendur vita
sem er, að knattspyrna á grasi og
knattspyrna á möl eru næstum
tvær ólíkar íþróttir. Þetta er ekki
bara spurning um knattspyrnu-
gæði sem hljóta að vera meiri á
grasinu, heldur einnig tekjur fé-
laga af leikjunum. Jafnan sækja
miklu færri áhorfendur leiki sem
fram fara á mölinni, einfaldlega
vegna þess að yfirleitt er ekki boð-
ið upp á sömu knattspyrnugæði.
Þannig mætti halda áfram um
hríð, en skal þó ekki gert.
— gg-
Þrjú af átta 1. deildarliðum
enn þjálfaralaus
AÐEINS þrjú af 1. deildar félögun-
um átta eiga eftir að ráða þjálfara
fyrir næsta keppnistimabil í hand-
knattleik: Þróttur, ÍR og FH. Ólík-
legt þykir, að Olafur H. Jónsson
þjálfi Þrótt áfram og öruggt er, að
hann leikur ekki meö liðinu. Þrótt-
arar hafa verið að svipast um hvaða
möguleikar eru fyrir hendi og hafa
þeir m.a. gert fyrirspurn til sovéska
sendiráösins um að fá hugsanlega
þarlendan þjálfara. Allt er á athug-
unarstigi hjá Þrótti enn sem komið
er. ÍR-ingarnir hafa sömuleiðis verið
að kanna úrvalið og um tíma var
Geir Hallsteinsson sterklega orðað-
ur við félagið. Nú mun hins vegar
Sigurbergur Sigsteinsson vera hvað
volgastur hjá IR, hvaö svo sem úr
verður. Þá hefur Morgunblaðið það
fyrir satt, að FH-ingarnir séu enn að
Handknattlelkur
bera víurnar í Geir, sem náði stór-
góðum árangri með liðið á síöasta
keppnistímabili. Mál þessi skýrast
örugglega fljótlega.
llin I. deildar liðin fimm hafa ráð-
ið þjálfara, Bogdan Kowalzie þjálfar
Víking sem fyrr, Gunnar Einarsson
verður áfram með Stjörnuna, And-
ers I)ahl Nielsen verður með KR,
landi hans og vinur, Bent Nygaard,
með Fram og þeir Stefán Gunnars-
son og Boris Akbashow með Val.
___________( t t ~ KS-
Nýtt
íþróttablað
í N/ESTA mánuði mun nýtt íþrótta-
blað hefja göngu sína. Þaö eru
íþróttafréttamennirnir Ragnar Pét-
ursson og Stefán Kristjánsson sem
munu ritstýra blaðinu. Blaðið á að
heita Tímaritið Sport.
Volvovinimir
á leið um landið
Jafntefli og tap
hjá lögreglunni
ÍSLENSKA lögreglulandsliðið í
handknattleik lék tvo leiki á NM
lögregluþjóna í Laugardalshöllinni í
gærmorgun og gærdag. Fyrst mætti
liðið norsku löggunni og tapaði
24—26. Gætti nokkurrar tauga-
streitu hjá íslenska liðinu. Síðdegis
mætti liðið síðan sænska liöinu og
gekk þá betur, jafntefli náðist,
19—19, eftir að Svíar höfðu leitt
meö allt að 4 mörkum. íslenska liðið
náði knettinum síðustu sekúndurn-
ar, en hraðaupphlaup liðsins rann út
í sandinn.
Missir Bettega
af HM á Spáni?
ILLA horfir nú fyrir Roberto Bett-
ega, ítalska landsliðsmanninum t
knattspyrnu, sem slasaöist illa á hné
í nóvcmher siðastliðnum. Bendir allt
til þcss aö hann verði illa fjarri góðu
gamni er lokakeppni HM fer fram á
Spáni í sumar. Bettega hefur verið
lykilmaður í ítalska liðinu um árabil.
Þannig fór, að Bettega gekkst
undir uppskurð á veika hnénu
strax í nóvember. Batavegurinn
var hins vegar þyrnum stráður og
löngu eftir að hann var farinn að
æfa á ný ætlaði hann t.d. aldrei að
geta rétt fyllilega úr fæti sínum,
a.m.k. ekki án umtalsverðra
eymsla. Var hann skorinn á nýjan
leik fyrir skömmu og töldu sér-
fræðingar að hann myndi ná sér
að fullu fyrir næsta keppnistíma-
bil. Um HM vildu þeir hins vegar
ekki ræða, en landsliðsþjálfarinn
Beerzot hefur látið hafa eftir sér
að hann haldi enn í vonina að
Bettega geti leikið á Spáni. „Fjar-
vera hans myndi veikja lið okkar
gífurlega," höfðu fréttaskeyti eftir
Beerzot.
Sovéskur þjálfari
til Þróttar?