Morgunblaðið - 18.05.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.05.1982, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR 106. tbl. 69. árg. ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ydrnienn argentínska heraflans við messu i kapellu Stellu Mariu í Buenos Aires á degi sjóhersins (talið frá vinstri): Leopoldo Galtieri forseti, Jorge Anaya, yfirmaður sjóhersins, og Basilio Lami Dozo, yfirmaður flughersins. skilyrði Khomeinis Beirút, 17. maí. AP. FOR8ÆTISRÁÐHERRA írans, Hossein Musavi, sagði í dag, mánudag, að fall Saddam Husseins íraksforseta væri skilyrði fyrir friðsamlegri lausn stríðs þjóðanna. Stríðsaðilar skýrðu jafnframt frá bardögum á láði, legi og í lofti á vígstöðvunum og Khomeini trúarleiðtogi varaði Persaflóaríki á ný við því að koma tii liðs við íraka. „Þið lendið í sömu gildrunni og írakar,“ sagði hann i ræðu sem var útvarpað. Khomeini sagði að Arabaþjóðir hefðu enga ástæðu til að óttast ír- ana ef þær veittu írökum ekki að- ■ stoð. Hann ítrekaði að íranski her- inn mundi ekki ráðast inn á íraskt yfirráðasvæði þegar hann hefði náð aftur Khuzistan. Utanríkisráðherrar Persaflóa- ríkjanna héldu skyndifund í Ku- wait á laugardaginn vegna þróun- arinnar í stríðinu og koma aftur saman í lok mánaðarins. Á meðan reyna Samtök múhameðstrúar- ríkja að miðla málum. Persaflóa- ríkin óttast að ef íranir vinna end- Thatcher tekur ákvörðun um stríð eða frið í vikunni l.ondon, 17. maí. AP. ÞOLINMÆÐI Margaret Thatchers forsætisráðherra var á þrotum í dag, mánudag, og hún sagði að líklega yrði tekin ákvörðun um stríð og frið við Argcntínu út af Falklandseyjum í þessari viku. Hún sagði að sendimaður Breta hjá SÞ ætti í lokaviðræðum um frið og lýsti því yfír að ef Galtieri forseti kallaði ekki her sinn frá eyjunum mundu Bretar neyða hann til að hörfa. í Luxemborg tókst Francis Pym utanríkisráðherra i kvöld að fá bandamenn Breta í Efnahagsbandalaginu til að framlengja refsiaðgerðirnar gegn Argentínu, en aðeins í eina viku. ósveigjanlegri. Samkvæmt skoð- anakönnun BBC fengi íhaldsflokk- urinn 48% atkvæða ef kosið væri nú, 15% meira en Verkamanna- flokkurinn og 28% meira en sósíal- demókratar. Francois Mitterrand Frakklands- forseti ítrekaði stuðning sinn við Breta í deilunni og samstöðu með þeim þegar hann ræddi við frú Thatcher í Downing-stræti 10. Á fundinum í Luxemborg lögðust írar og ítalir gegn framlengingu viðskiptabannsins og Danir vildu að hvert aðildarríki um sig ákvæði slíkt. anlegan sigur í stríðinu muni ír- anska byltingin breiðast út. íranir segjast hafa náð enn ein- um hluta Khuzistans á sitt vald. Irakar sögðu að hersveitir þeirra, þotur og þyrlur, hefðu ráðizt á nýjar stöðvar Irana umhverfis hafnarborgina Khorramshahr. ír- akar segja að 45 íranskir hermenn hafi beðið bana í þessum árásum. írakar segja að tveimur stórum skipum íranska sjóhersins hafi verið sökkt í sjóorrustu í Khor Mousa-flóa. Þeir viðurkenndu að 13 íraskir hermenn hefðu fallið í síðustu átökunum. Iranir sögðu að hreinsunarað- gerðir hefðu farið fram á svæðinu Kushk norðvestur af Khorram- shahr, síðasta vígi íraka í Khuz- istan. Margir írakar hefðu verið felldir og teknir til fanga. Kushk er nálægt bænum Jofeir sem íran- ir náðu nýlega aftur á sitt vald, 35 km austan við landamærin og 60 km frá Ahvaz. Teheran-útvarpið sagði að 40 ír- akar hefðu fallið á vestur- og suð- vesturvígstöðvunum og 50 írakar í viðbót í aðgerðum skæruliða á ír- aska yfirráðasvæðinu Chenaran á laugardaginn. Tvær íraskar flug- vélar hefðu verið skotnar niður, eða 39 alls. Fall íraksstjórnar „Við höfum átt í samningavið- ræðum í sex vikur," sagði frú Thatcher í útvarpsviðtali. Ég hef kynnt mér sex ólíkar tillögur. Þær hafa ekkert þokað okkur áleiðis. Ef Argentínumenn hefðu raunveru- lega viljað frið værum við farin að sjá þess merki núna." Hún sagði að Sir Anthony Par- sons, sendiherra hjá SÞ, sem er far- inn til New York eftir viðræður sín- ar í Ivondon um helgina, mundi gera „eina tilraun enn“ til að finna lausn. Áður en Parsons fór kvaðst Haig hittir Gromyko Luxemborg, 17. maí. AP. ALEXANDER HAIG utanríkis- ráóherra mun hitta Andrei Grom- yko starfsbróóur sinn að máli á afvopnunarráðstefnu SÞ í New York í næsta mánuöi samkvæmt áreióanlegum heimildum i dag, mánudag. Þetta spurðist þegar utanrík- isráðherrar NATO komu til ár- legs fundar í Luxemborg, m.a. til að undirbúa leiðtogafund bandalagsins í Vestur-Þýzka- landi 10. júní. Haig ræddi við Gromyko í fyrrahaust og aftur í janúar, skömmu eftir setningu herlag- anna í Póllandi. Eitt helzta um- ræðuefnið á júnífundinum verð- ur áætlun Reagans forseta um niðurskurð á kjarnorkuvopnum risaveldanna og viðræðpr um þær. Rússar hafa enn ekki svarað tillögum Reagans, en búizt er við að Brezhnev forseti geri það í ræðu síðar í mánuðinum. Fundurinn fer fram í skugga umræöna EBE-landanna um framlengingu refsiaðgerða gegn Argentínu vegna Falklandseyja- deilunnar. hann búast við árangri „innan nokkurra daga, ekki vikna" og frú Thatcher sagði: „Ég gizka á að við fáum úr því skorið í þessari viku hvort við finnum friðsamlega lausn eða ekki.“ Deilt er um þrjú atriði að sögn BBC: • Bretar vilja ekki kalla flota sinn út fyrir jaðar 200 mílnanna fyrr en Argentínumenn hafa lokið brott- flutningi sínum. Argentínumenn vilja að flotinn fari lengra í burtu. • Bretar vilja að heimastjórn Falklendinga taki þátt í störfum bráðabirgðastjórnar meðan samið er um yfirráð. Argentína vísar þessu á bug sem leifum nýlendu- stefnu. • Bretar vilja að bráðabirgða- stjórnin haldi áfram störfum, ef ekkert samkomulag næst um yfir- ráð fyrir árslok. Argentína vill að viðræðunum ljúki 1. janúar. Fréttaritarar segja að brezkt herskip hafi skotið á hernaðar- skotmörk við Port Stanley í nótt, en annars var tíðindalaust á stríðs- svæðinu. Viðbúnaður var í tvo tíma í flugvélamóðurskipinu Hermes, þar sem sex argentínskar herflug- vélar birtust á ratsjárskermum þess, en þoturnar hurfu án þess að nokkuð gerðist. Bollalagt er að allsherjar innrás verði gerð ef friðarviðræður Perez de Cuellar, framkvæmdastjóra SÞ, bera ekki skjótan árangur. Press Association sagði að frú Thatcher mundi taka ákvörðun um innrás innan tveggja sólarhringa. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar báðu um meiri frest og sögðu að Argentína hefði sýnt aukinn sveigj- anleika, en frú Thatcher benti á að Galtieri hefði sagt um helgina að hann mundi fórna 40.000 mannslíf- um ef nauðsynlegt reyndist til að halda eyjunum. Búizt er við að innrás herði al- menningsálitið gegn frú Thatcher og geri framtíðarafstöðu Breta Margaret Thatcher forsætisráöherra veifar til mannfjölda viö Downing- stræti 10 er hún fagnar Francois Mitterrand Frakklandsforseta og Pierre Mauroy, forsætisráðherra Frakka. Skothríð í Kóreu Seoul, 17. maí. AP. HERSTJÓRN SÞ mótmælti í dag, mánudag, skothrió noróur-kóreskra hermanna á suöur-kóreskar stöóvar á.vopnlausa svæóinu milli Noröur- og Suóur-Kóreu. Skothríðin, sem var hörð að sögn SÞ, hófst þegar flokkur suður-kóreskra lögreglumanna sprengdi jarðsprengju á miðju vopnlausa svæðinu nálægt Chorw- on. Talið er að sprengjan hafi ver- ið frá dögum Kóreustríðsins 1950-53. Kremlverji kannar ástandið í Póllandi Varsjá, 17. maí. AP. KONSTANTÍN V. Rusakov, helzti tengiliður Kremlverja og kommún- istafíokka í bandalagsríkjum Rússa, kom til Varsjár í dag, mánudag, til viðræóna vió pólska leiðtoga. Þetta er önnur Póllandsferð Rusakovs á sex vikum. Heimsóknin fylgir í kjölfar götumótmæla gegn herlögum og vestrænn fulltrúi í Moskvu telur að hann vilji kynna sér ástandið af eigin raun. Pravda endurtók jafnframt ásakanir um að útvarpsstöðin Rad- io Free Europe styddi „andsósíal- istisk öfl“ í Póllandi og stjórnaði þeim. Blaðið kallaði þetta „hug- sjónafræöilega árás“ og sagði að starfsemi útvarpsstöðvarinnar vekti þá spurningu hvort eitthvert vestrænt ríki bæri beina ábyrgð á slíkri árás. I París sagði starfsmaður Sam- stöðu í útvarpsviðtali að hreyfing- in óttaðist að hópar vopnaðra hryðjuverkamanna væru að skjóta upp kollinum í Varsjá. Hann sagði að nokkrum hópum hefði tekizt að komast yfir hergögn og talið væri að hryðjuverkamenn- irnir væru 50—300 talsins. Hann sagði aö Samstaða vildi ekki láta bendla sig við þessa hópa, þar sem hreyfingin teldi að ekkert mundi ávinnast með hryðjuverkastarf- semi. Yfirvöld mundu færa sér það í nyt ef vopnaðir menn færu út á göturnar og ekki væri óhugsandi að leyniþjónustan hefði laumað sínum mönnum í þessa hópa. Fyrirhuguð útsending „Útvarps Samstöðu“, hin fimmta í röðinni, fór út um þúfur á sunnudagskvöld. Yfirvöld virðast ekki hafa fundið senditækið. Yfirvöld tilkynntu á sunnudag- inn að rannsókn færi fram á frétt- um um tengsl milli Samstöðu og mannsins, sem reyndi að ráða Jóhannes Pál páfa II af dögum í Portúgal, Fernandez Krohn. Hann sótti þing hreyfingarinnar í Gdansk í fyrra og ræddi við Lech Walesa og fleiri leiðtoga. Pólskir fjölmiðlar gera mikið úr þessu máli og yfirvöld útvörpuðu áskorun im upplýsingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.