Morgunblaðið - 18.05.1982, Blaðsíða 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ1982
13. titill Liverpool kominn íhöfn
eftir sigur gegn Tottenham
— enn ekki útséð hvaða lið fylgja Wolves niður
Skoski landslið.sraaðurinn Kenny Dalglish. Mark hans i laugardaginn færði
Liverpool forystuna gegn Tottenham og titilinn í höfn í leiðinni.
Mick Buckley skoraði á 14. mínútu
og reyndist það eina mark leiks-
ins. Liðið gæti svo sem enn fallið,
en staða annarra félaga á þessum
slóðum er mun verri.
Til dæmis staða Middlesbrough,
sem þó sigraði Swansea óvænt á
útivelli. Ekki var sá sigur sann-
gjarn þó svo að heimaliðið hafi
verið frámunalega lélegt. Sjálfs-
mark Garry Stanley á 89. mínútu
leiksins færði Boro öll stigin. Bob
Latchford hafði náð forystunni
fyrir Swansea á 76. mínútu, en
Heine Otto jafnaði sex mínútum
síðar. Þó Boro vermi botnsætið er
ekki endanlega útséð um hvort lið-
ið fellur eður ei. Með því að leggja
Liverpool að velli í síðasta leikn-
um gæti liðið bjargað sér, en það
færi þá eftir því hvernig öðrum
botnliðum riði af eins og sjá má ef
staðan er skoðuð.
Leeds, WBA og Birmingham
unnu öll leiki sína og er næsta víst
að Birmingham hafi bjargað sér,
en ekki er útséð um örlög hinna
liðanna tveggja. Birmingham sótti
Coventry heim og vann nauman
sigur í miklum baráttuleik. Mick
Harford skoraði sigurmarkið með
skalla fimm mínútum fyrir leiks-
lok, níunda mark hans í 12 leikj-
um.
Meira gekk á í viðureign Notts
County og WBA, en þar var Garry
Owen vikið af leikvelli rétt fyrir
leikslok eftir stympingar. WBA
leiddi í hálfleik með marki Steve
McKenzie, en Trevor Christie
jafnaði um miðjan síðari hálfleik.
Ekki stóð það lengi, Cirylle Regis
skoraði sigurmarkið aðeins fimm
mínútum síðar, 24. mark hans á
keppnistímabilinu.
Og Leeds hafði það loksins af að
vinna á heimavelli , en síðasti
heimasigur vannst fyrir um fjór-
um mánuðum síðan. Afrekið var
svo sem ekki mikið, það vinna allir
Síðasta umferð ensku knattspyrnunnar fór fram á laugardaginn og fóru
leikar þannig að Liverpool sigraði í 1. deild, vann sinn 13. titil. Liðið fékk
Tottenham í heimsókn og eftir lakan fyrri hálfleik fóru hjólin að snúast og
liðið sigraði örugglega. Glenn Hoddle skoraði glæsilegt mark fyrir Totten-
ham í fyrri hálfleik og gekk leikmönnum Liverpool þá brösulega. En í síðari
hálfleik mættu þeir tvíefldir til leiks og eftir að Mark Lawrenson hafði
jafnað með góðu marki á 52. mínútu, stóð ekki steinn yfir steini hjá Totten-
ham. Kenny Daiglish bætti öðru marki við aðeins tveimur mínútum síðar og
tveimur mínútum fyrir leikslok innsiglaði Ronnie Whelan sigurinn enn
frekar með því að skora þriðja mark Liverpool. Rúmlega 48.000 manns,
mesti áhorfendafjöldi á Anfield á þessu keppnistímabili, fylgdust með viður-
eigninni og ómaði söngurinn um alla Liverpool-borg langt fram á nótt. Sigur
Liverpool gerði það að verkum að engu skipti hver úrslit yrðu í leik Ipswich
gegn Forest og þrátt fyrir allt hafa leikmenn Ipswich sótt smá gleði í þá
staðreynd þar sem þeir töpuðu stórt og léku vægast sagt afar illa. Ungur
piltur að nafni Peter Davenport skoraði öll mörk Forest í leiknura, Alan
Brazil svaraði fyrir heimaliðið. En litum á úrslit leikja áður en lengra er
haldið.
Arsenal — Southampton 4—1
Aston Villa — Everton 1-2
Coventry — Birmingham 0—1
Ipswich — N. Forest 1—3
Leeds — Brighton 2—1
Liverpool — Tottenham 3—1
Man. Utd. — Stoke 2—0
N. County — WBA 1—2
Sunderland — Man. City 1—0
Swansea — Middlesbrough 1—2
Wolves — West Ham 2—1
Sigursæl botnlid
Eins og sjá má þegar litið er á
úrslitin, unnu öll neðstu lið deild-
arinnar að Stoke undanskildu leiki
sína á laugardaginn. Möguleikar
Stoke eru ekki miklir eftir tapið á
Old Trafford í Manchester, þar
sem heppni og snilldarmarkvarsla
bjargaði liðinu frá miklu stærra
tapi. Bryan Robson skoraði fyrra
mark United á 43. mínútu og að-
eins mínútu síðar bætti hinn 17
ára gamli Norman Whiteside öðru
marki við. Fyrsta mark hans fyrir
aðallið United, einnig fyrsta skipt-
ið sem írinn ungi er í byrjunarliði
félagsins.
Sunderland bjargaði sér senni-
lega frá falli með sigrinum gegn
Manchester City á Roker Park, og
þetta er annað árið í röð sem
leikmenn Sunderland standa
frammi fyrir því að verða að vinna
Fyririiðinn Graeme Souness átti
góðan leik gegn Tottenham.
síðasta leik sinn til að tolla í deild-
inni. í fyrra þurfti hvorki meira
né minna en að sigra Liverpool á
Anfield. Stór biti það, en munnur
Sunderland var nógu stór. Mikil
taugaspenna einkenndi leik Sund-
erland, en kæruleysi hins vegar
leik gestanna. En það hafðist,
rt DEILD
ÍÍT«rpo0Í 41 26 8 7 80:32 86
IpKwkh Town 41 25 5 H 73:52 80
MínrheNter Utd. 42 22 12 8 59:29 78
1 oUkoham 41 20 11 10 66:46 71
Arecnal 42 20 11 11 48:37 71
Swaa»ea 41 21 6 14 58:48 69
SouthamptoB 42 19 9 14 72:67 66
Kverton 42 17 13 12 56:50 64
Wfit H»m 42 14 16 12 66:57 58
MnncheNter 42 15 13 14 49:50 58
NoUingham For. 42 15 12 15 42:48 57
\Hton V»IU 41 14 12 15 5253 54
Hriehton 42 »3 13 16 43:52 52
roventry 42 13 11 18 5&62 50
Notte ('ountjr 42 13 8 21 61:69 47
Kirmingham 42 10 14 18 53.-61 44
SunderUnd 42 11 11 20 38:58 44
Leedn 41 10 12 19 39:59 42
Wem Bromwich 40 10 11 19 44:54 41
Stolce 41 11 8 22 41:63 41
Wolverhampton 42 10 10 22 32:63 40
VliddleMhrough 41 8 14 19 34:52 38
2.DEILD
Luton 41 24 13 4 63:44 65
Wat/ord 42 23 11 6 76:42 6«
Norwich 42 22 5 15 64:50 71
Sbeffield Wed. 42 20 10 12 55:51 70
qpr 42 21 6 15 65:43 69
Barmdey 42 19 10 13 59:41 67
Rotberham 42 20 7 15 66:54 67
Leicenter 41 18 12 11 56:45 66
Newcaatle 42 18 8 16 52US0 62
Blackburn 42 16 11 15 47:43 59
Oidham 42 15 14 13 50-.51 59
('hefatea 42 15 12 15 60:60 57
(harlton 42 13 12 17 50:65 51
( ambridgc 42 13 9 20 48:53 48
( ryxUl Palace 42 13 9 20 34:45 48
Derby 42 12 12 18 53:68 48
(irNubj 42 11 13 18 53:65 46
Shrewahury 42 II 13 18 37:57 46
Koiton 42 13 7 22 39«! 46
(ardiff 41 12 8 21 43:56 44
Wrexham 42 11 11 20 40:5« 44
Orient 41 9 9 23 33.61 36
Phil Thompson hampar Eng-
landsmeistarabikarnum árið 1980,
en þá vann Liverpool einnig.
Brighton þessa daganna, en litlu
munaði að það tækist ekki hjá
Leeds. Brighton hafði forystu með
marki Mick Robinson allt þar til
að tíu mínútur lifðu leiksins, en þá
skoruðu bakverðirnir Garry Ham-
son og Kevin Hird, á 80. og 81.
mínútum leiksins og Leeds hirti
stigin dýrmætu.
Eina liðið sem er örugglega fall-
ið í 2. deild, Wolverhampton, vann
West Ham örugglega með mörk-
um Mel Eaves á 3. mínútu og John
Richards á 6. mínútu. Drauma-
byrjun það hjá Úlfunum. Dave
Cross svaraði fljótlega fyrir West
Ham, en fleiri urðu mörkin ekki í
leiknum.
Á hinum enda deildarinnar átt-
ust við Arsenal og Southampton á
Highbury og var þar UEFA-sæti í
veði. Arsenal vann stórsigur og
virðist liö Southampton ekki ætla
að uppskera nokkurn hlut fyrir
skemmtilega knattspyrnu sína á
tímabtinu sem er að ljúka. Paul
Davis skoraði tvívegis fyrir Ars-
enal og þeir Stewart Robson og
John Hawley sitt markið hvor, en
Dave Armstrong svaraði fyrir
Southampton. Staðan í hálfleik
var 3-0.
Loks í 1. deild, Everton sigraði
Aston Villa 2-1 á Villa Park og var
sigur sá sanngjarn í meira lagi.
Graeme Sharpe náði forystunni
fyrir Villa í fyrri hálfleik, Gordon
Cowans jafnaði fyrir leikhlé, en
Sharpe var aftur á ferðinni með
sigurmark Everton í seinni hálf-
leik. Margir spá hinu unga liði Ev-
erton miklum frama á næsta
keppnistímabili.
2. deild:
Blackburn 1 (Garner) — Chelsea
1 (Pates)
Cr. Palace 1 (Murphy) — New-
castle 2 (Mills, Waddle)
Derby 3 (Buckley, Wilson, Hect-
or) — Watford 2 (Blissett, Bol-
ton)
Grimsby 0 — Cardiff 1 (Micall-
ef)
Leicester 0 — Shrewsbury 0
Luton 1 (Stein) — Barnsley 1
(Birch)
Orient 0 — Oldham 3 (Wylde,
Palmer, Bowden)
QPR 2 (Allen, Fenwick) — Cam-
bridge 1 (Fallon)
Sheffield W. 2 (McCuIloch,
Bannister) — Norwich 1
(Bertchin)
Wrexham 3 (Vinter 3) — Roth-
erham 2 (Stancliff, Moore).
Knatt-
spyrnu
úrslit
England, 3. deild:
Brentford — Reading 1-2
Bristol C. — Chester 1-0
Carlisle — Bristol R. 1-2
Chesterf. — Gillingham 1-3
Fulham — Preston 3-0
Lincoln — Exeter 2-0
Newport — Huddersfield 1-0
Oxford — Wimbledon 0-3
Plymouth — Millwall 2-1
Portsmouth — Swindon 3-0
Walsall — Doncaster 0-0
England, 4. deild:
Aldershot — Wigan 2-0
Blackpool — Hartlepool 2-2
Bornemouth — Hereford 1-1
Bury — York 3-1
Crewe — Colchester 1-3
Darlingt. — Sheff. Utd. 0-2
Peterbr. — Tranmere 1-2
Port Vale — Torquay 2-0
Rochdale — Northampton5-3
Skotland:
Aberdeen — Rangers 4-0
Celtic — St. Mirren 3-0
Dundee — Airdrie 1-0
Morton — Hibs 0-0
Partick — Dundee Utd. 1-2
Og lokastaðan var sem hér
segir:
<*ltk 36 24 7 5 79:33 55
rtberdM-D 36 23 7 6 71:29 53
KangcrN 36 16 II 9 57:45 43
l)unde« Utd. 36 15 10 II 61:36 40
St. Mlrren 36 14 9 13 49:52 37
Hiberninn 36 II 14 11 36:40 36
Morton 36 9 12 15 31:54 30
Ihtndce 36 II 4 21 46:72 26
l'nrtifk 36 6 10 20 35:59 22
Airdrie 36 5 6 23 31:76 16
Markhæstir:
Þeir Kevin Keegan hjá
Southampton og Ian Rush
hjá Liverpool urðu efstir og
jafnir í markakóngssæti 1.
deildarinnar eða þessu sinni,
báðir skoruðu 30 mörk. Alan
Brazil hjá Ipswich skoraði 27
mörk og Cirylle Regis hjá
WBA var í fjórða sætinu með
24 mörk. .
Í 2. deild skoruðu þeir
Ronnie Moore hjá Rother-
ham og Simon Stainrod hjá
QPR 24 mörk hvor.