Morgunblaðið - 18.05.1982, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ1982
Kappræðufundur í Kaupmannahöfn:
Hart deilt um
Falklandseyjar
Kaupmannahöfn, 17. maí. AP.
WINSTON Churchill jr. og Enrique Vieyra, sendiherra
Argentínu í Danmörku, tókust á um Falklandseyjadeiluna
á fundi, sem efnt var til hér sl. föstudagskvöld. Stóð
orrahríðin í tvær klukkustundir alls og flugu margar hnút-
ur um borð. Var það mál manna, að Churchill hefði farið
með sigur af hólmi í þessu einvígi enda er hann enginn
meðalmaður í mælskuiistinni.
Fyrir fundinum stóð Cam-
bridge-stofnunin, einkastofnun,
sem uppfræðir Dani um enska
tungu og menningarlíf, en yfir-
maður hennar, Richard Philip,
hafði það hlutverk að stjórna
umræðunni og gæta þess, að allt
færi fram eftir settum reglum.
Churchill hóf umræðuna með
mikilli breiðsíðu, kallaði argent-
ínsku ríkisstjórnina „fasíska
herforingjaklíku af verstu gerð“,
en við þau orð var sem fundar-
stjóri væri sleginn herfjðtri og
kom hann lítið við sögu upp frá
því.
Vieyra mótmælti ummælum
Churchills mjög ákaflega og hót-
aði því að ganga af fundi. Hann
kvaðst hafa komið til að ræða
um Falklandseyjadeiluna en
ekki um innanlandsmál Argent-
ínumanna. Churchill hélt hins
vegar sinu striki og kallaði Vi-
eyra „fulltrúa skálka og þrjóta",
sem bæru ábyrgð á „hvarfi
meira en 12.000 eigin þegna".
Hann lýsti því yfir, að ef Arg-
entínumenn hypjuðu sig ekki frá
Falklandseyjum myndu Bretar
„sjá um það sjálfir".
Á fundinum voru um 300
manns auk 25 fréttamanna og
var Churchill vel fagnað þegar
hann sagðist vorkenna Vieyra
fyrir það „vanþakkláta verk að
reyna að verja þá, sem ættu sér
engar málsbætur“. Þá var komið
Winston Churchill jr.
að Vieyra að skemmta áheyrend-
um en hann sagði, að „fyrir fáum
mánuðum voru Bretar mjög
ánægðir með að geta selt okkur
vopn en nú hafa þeir uppgötvað,
að við erum fasistar".
Að umræðunum loknum svör-
uðu Churchill og Argentínumað-
urinn spurningum áheyrenda og
sátu síðan báðir boð, sem þeim
var haldið. Þar héldu þeir sig þó
í öruggri fjarlægð hvor frá öðr-
um. Um þetta leyti birti yfir
andliti Philips, fundarstjórans,
sem allt í eir.j brosti sínu breið-
asta og lýsti því yfir, að umræð-
urnar hefðu verið mjög
„skemmtilegar og fjörugar".
Klofningurinn eykst hjá
finnskum kommúnistum
Aarne Saarinen réðst harkalega á sovéska kommúnistaflokkinn
Helsinki, 17. m*i. AP.
SÍÐUSTU tilraun finnskra kommún-
ista til að sameina sundraða fylking-
una lauk sl. laugardagskvöld með
því að stalínistarnir, sem eru í
minnihluta innan kommúnista-
flokksins, þvertóku fyrir að vinna
með nýkjörinni miðstjórn flokksins
og er nú klofningurinn meiri en
nokkru sinni fyrr.
SUNDRAÐAR fylkingar vinstri
sinnaðra múhameðstrúarmanna
háðu götubardaga í hafnarborginni
Sidon á sunnudag. Fjórir féllu í bar-
dögunum og ellefu særðust. Kveikt
var í mörgum byggingum og verzlun-
Minnihlutinn, sem fylgir
Moskvumönnum að málum í
flestu, gekk út af miðstjórnar-
fundinum þegar Jouko Kajanoja,
atvinnumálaráðherra, hafði verið
kjörinn formaður flokksins í stað
Aarne Saarinen, sem verið hefur
formaður frá því flokkurinn klofn-
aði 1966. Seppo Toiviainen, þing-
maður og stalínisti, var kosinn
ani í dag i mótmælaskyni við átök-
in í Sidon í gær. Auk þess sem allt
atvinnulíf stöðvaðist, var skólum
lokað. Talið er að tjónið í átökun-
um nemi jafnvirði rúmlega 20
milljóna dollara.
varaformaður en hann þakkaði
fyrir gott boð og sagði, að eins og
málum væri komið væri samstarf
útilokað.
Taisto Sinisalo, leiðtogi stalín-
istanna, lét hafa eftir sér, að hann
teldi ekki, að flokkurinn væri end-
anlega klofinn þrátt fyrir það sem
gerst hefði og Kajanoja, nýkjörinn
formaður, sagðist trúa því, að
sættir tækjust fljótlega.
í lokaræðu sinni sem formaður
kommúnistaflokksins réðst Saar-
inen harkalega á sovéska komm-
únistaflokkinn og sagði, að hann
hefði ýtt undir óeininguna í
flokknum í stað þess að stuðla að
sáttum. Það hefði hann gert með
þvi að saka suma flokksmenn um
andsovéskar skoðanir. „Hinn
mikli bræðraflokkur hefur fært
minnihlutanum vopn í hendur,
sem hann hefur óspart notað á
þessum fundi,“ sagði Saarinen.
Vinstri menn í
Líbanon kljást
Júgóslavar fá
sína „járnfrú“
BelgraA, 17. maí. AP.
NÝ STJÓRN tók við embætti í Júgó-
slavíu í dag og er forsætisráðherr-
ann kona, Milka Planinc að nafni.
Hún hefur það orð á sér, að hún sé
hörð i horn að taka og segir raunar
sjálf, að það sé ekki orðum aukið.
Milka Planinc, sem 57 ára að
aldri, hefur verið leiðtogi komm-
únistaflokksins í Króatíu, öðru
stærsta lýðveldi Júgóslavíu, síð-
ustu tíu árin og var skipuð í það
embætti af Tito heitnum eftir
hreinsanir gegn þjóðernissinnum í
forystuliði flokksins. Þegar frú
Planinc var tilnefnd til forsætis-
ráðherraembættisins í janúar sl.
var henni lýst í blöðum sem
„Járnfrúnni í Júgóslavíu“ og
manna á meðal er sagt, að hún
hafi aldrei sést brosa.
„Okkur er ekki til setunnar boð-
ið,“ sagði Planinc eftir embættis-
tökuna, „því að efnahagsástandið í
landinu er mjög alvarlegt." í Júgó-
slavíu er nú vaxandi atvinnuleysi,
verðbólga og skuldabyrðin orðin
þjóðinni þung í skauti.
Planinc barðist með skærulið-
um Titos gegn nasistum í síðari
heimsstyrjöldinni. Hún gekk í
kommúnistaflokkinn 1944 og sneri
sér að stjórnmálum 1949. Mjög
fátt er vitað um einkalíf hennar.
Zitu var levft
að koma heim
Vín, 17. m»í. AP.
ZITA fyrrverandi keisaradrottn-
ing, sem varð níræð 9. maí, kom
til Austurríkis á sunnudaginn í
fyrsta skipti í 63 ár, þótt hún lýsti
ekki opinberlega yfir hollustu við
austurríska lýðveldið.
Zita, sem er ekkja síðasta
keisara Austurríkis, Karls I,
ferðaðist með spönsku vega-
bréfi og kom frá Zizers í Sviss,
þar sem hún hefur dvalizt í út-
legð í fyrrum klaustri um ára-
bil. Hún steig fæti á austur-
rískri grund í Feldkirch í hér-
aðinu Voralberg.
Farið var með Zitu að graf-
hýsi elztu dóttur hennar, dr.
Adelheid Habsburg, sem lézt 57
ára að aldri 2. okt. 1971 í Pöck-
ing, Bæjaralandi, þar sem
fyrrverandi kröfuhafi austur-
rísku krúnunnar, dr. Otto
Habsburg, býr. Hún var jarð-
sett í Tulfes nálægt Innsbruck,
Tyrol.
„Enginn getur gert sér í hug-
arlund hversu mikils virði það
er mér að koma aftur til Aust-
urríkis eftir svona langan
tíma,“ sagði keisaraekkjan í
stuttri yfirlýsingu.
Zita keisaradrottning hefur
ekki viljað afneita rétti sínum
til krúnunnar. Fyrir einni viku
sagði Bruno Kreisky kanzlari í
viðtali að hann reyndi að finna
„mannlega lausn“ á vandanum.
Meðal þeirra sem fóru fram á
að Zita fengi að fara aftur til
Austurríkis voru Juan Carlos
Spánarkonungur, sem nýlega
ræddi við Kreisky í sumarbú-
stað kanzlarans á Mallorca.
Lengsta mann-
ráni í V-Þýzka-
landi lokið
Bornheim, 17. mni. AP.
LENGSTA mannráni f sögu
V-I>ýzkalands lauk árla á sunnudag
þegar mannræningjar létu lausa
átta ára stúlku, Ninu von Gallwitz,
sem rænt var 18. desember sl.
Fjölskylda stúlkunnar borgaði
1,5 milljónir þýzkra marka í
lausnargjald, og var fénu hent út
um glugga i járnbrautarlestinni
frá Dortmund til Basel, þegar
lestin var skammt frá þorpinu
Andernach við Rín á miðvikudag.
Stúlkan, sem er dóttir banka-
stjóra í Köln, fannst á hvíldar-
reit meðfram hraðbrautinni
skammt frá Solingen, og var hún
tiltölulega vel haldin, að sögn
embættismanna.
Lögreglan hefur enn ekki kom-
izt á spor ræningjanna, en heitið
hafði verið 50 þúsund mörkum
fyrir upplýsingar er leiddu til
töku þeirra. Stúlkunni var rænt
er hún var á leið í skóla í útborg-
inni Hahnwald.
Næturárásin
á Pebble-eyju
ÁRÁS brezkra víkingahermanna á flugbrautina á Pebble-eyju undan
norðurodda Vestur-Falklands á föstudagskvöld tókst vel í alla staði að
sögn brezka landvarnaráðuneytisins. Ellefu kyrrstæðar flugvélar Arg-
entínumanna og skotfærageymsla voru sprengd í loft upp, samtímis því
sem brezkur tundurspillir skaut á hernaðarskotmörk á eynni.
Santa Fe, argentínski kafbáturinn, sem Bretar eyðilögðu við Suður-Georgiu,
er hér að sökkva sundurskotinn i sæ. Myndina tóku tvær breskar stúlkur,
sem voru að taka sjónvarpsmyndir á Suður-Georgíu þegar Argentínumenn
lögðu eyna undir sig.
um.
í bardögunum var beitt fall-
byssum, handsprengjum og vél-
byssum, og að sögn lögreglunnar
grúfðu þykkir og svartir reykj-
armekkir yfir borginni, þar sem
slökkviliði tókst ekki að komast á
vettvang vegna bardaganna.
Að sögn útvarpsstöðvarinnar
„Rödd Líbanon" áttu öfgasinnaðar
sveitir palestínuskæruliða aðild að
bardögunum.
Efnt var til allsherjarverkfalls í
Sidon og nágrannabænum Zahr-
Ljón bitu
konu til bana
Briúwel, 17. maí. AP.
EIN KONA dó og önnur var illa út-
leikin er Ijón í dýragarði skammt frá
Liege í Belgíu réðust á þær í gær.
Konurnar tvær, 29 ára geðsjúkl-
ingur og 48 ára gömul hjúkrun-
arkona, voru að ganga á brú yfir
bæli ljónanna þegar brúin brast.
Konurnar hrundu niður í gryfju
Ijónanna, sem réðust strax á þær.
Það var ekki fyrr en verðir tóku að
skjóta af byssum í loft upp að
ljónin hættu að bíta og rífa kon-
urnar. Lézt yngri konan á leiðinni
í sjúkrahús og hjúkrunarkonan ér
illafarin. .—-------------------
Með árásinni tókst að loka lítilli
glufu, sem var á hafnbanni Breta
á Falklandseyjar og Argentínu-
menn höfðu reynt að nota til að
koma birgðum til einangraðs setu-
liðs síns á eyjunum. Þetta var
fyrsta landgangan, sem Bretar
hafa viðurkennt að þeir hafi reynt
á Falklandseyjum. Fimmtíu menn
voru í árásarflokknum og tveir
þeirra særðust lítillega.
Árásarflokkurinn fór í þyrlum
frá herskipunum skömmu eftir
myrkur til fyrirfram valins lend-
ingarstaðar í nokkurra kílómetra
fjarlægð frá grasflugbraut Arg-
entínumanna. Menn úr sérsveit-
unum, SBS (Special Boat
Squadron), sem fréttir herma að
hafi verið á Falklandseyjum í
margar vikur, hafa að öllum lík-
indum stjórnað landgöngunni.
Brian Hanrahan, fréttaritari
BBC, segir að víkingahermennirn-
ir hafi sótt yfir hrjóstruga eyna í
sjö klukkustundir og komið að
skotmörkunum skömmu fyrir dög-
un. í sama mund og þeir komu sér
fyrir hóf herskipið skothríð og
eyjan lýstist upp. Víkingahermað-
ur, sennilega úr konunglegu verk-
fræðisveitunum, stjórnaði skothr-
íðinni gegnum talstöð.
Skothríðin dreifðist yfir stórt
svæði, hæðardrag fyrir ofan
flugbrautina, þar sem talið var að
argentínsku hermennirnir hefðu
hreiðrað um sig. Meðan skothríðin
færðist nær og nær argentínsku
hermönnunum klifruðu brezku
víkingahermennirnir yfir ásinn að
skotmörkunum. Þeir komu
sprengjum sínum fyrir og hver
flugvélin á fætur annarri sprakk í
loft upp.
Skothríðin stóð í um hálftíma
og að svo búnu laumaðist tund-
urspillirinn á braut, hálftíma
fyrir birtingu. í dagsbirtu hefði
herskipið orðið auðvelt skotmark