Morgunblaðið - 18.05.1982, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ1982
3
„MÍN skoðun er sú, að margir í
trúnaðarstörfum fyrir Alþýðu-
bandalagið séu raunverulegir jafn-
aðarmenn," sagði Sigurður E. Guð-
mundsson, efsti maður á lista Al-
þýðuflokksins í Reykjavík, í viðtali
við Alþýðublaðið á laugardaginn,
þegar hann var að mæla fyrir því
að Alþýðuflokkurinn starfaði
áfram í samstarfi við Alþýðu-
bandalagið í borgarstjórn Reykja-
víkur. Og hann bætti við: „Sömu-
leiðis veit ég að fjölmargir kjós-
Sigurður E. Guðmundsson um framhald vinstra samstarfsins:
Sigurður E. Sjöfn Bjarni P.
Trúnaðarmenn komma eru
raunverulegir jafnaðarmenn
endur Alþýðubandalagsins eru
hreinræktaðir sósialdemókrat-
ar...“
Þess ummæli Sigurðar E.
Guðmundssonar falla saman við
þau orð, sem Sjöfn Sigur-
björnsdóttir lét falla í sjón-
varpsumræðunum á dögunum,
þegar hún sagði, að samstarfið
við Alþýðubandalagið í borgar-
stjórn Reykjavíkur hefði „gengið
nokkuð vel og miklu betur en
þegar þeir hafa starfað saman í
ríkisstjórn". Og í sömu umræð-
um sagði Bjarni P. Magnússon,
þriðji maður á lista Alþýðu-
flokksins í Reykjavík, að „við
(alþýðuflokksmenn innsk. Mbl.)
höfum ekki ástæðu til að ætla að
ef til slíks samstarfs kæmi (þ.e.
vinstra samstarfs við Alþýðu-
bandalagið eftir kosningar
innsk. Mbl.), að það gæti ekki
orðið okkur til góðs.“
Bragi Jósepsson er í 5. sæti á
lista Alþýðuflokksins í Reykja-
vík. I sjónvarpsumræðunum
sagði hann um samstarfið við
Alþýðubandalagið í borgarstjórn
síðan 1978: „Þetta meirihluta-
samstarf tókst vonum framar og
mun betur en margir höfðu
spáð.“ Þá kallaði Bragi síðustu 4
ár „þetta fyrsta kjörtímabil
vinstra samstarfs í Reykjavík".
Jarðirnar Hvítárvell-
ir II og Grund II seldar
Helmingur Stíflisdals I í Þingvallasveit til sölu
JARÐIRNAR Hvítárvellir II í Borg-
arfirói og Grund II í Eyjafirði hafa
verið seldar. Búskapur verður áfram
stundaður á Grund II, en Hvítárvell-
ir II er nytjuð til laxveiða og verður
svo áfram. Þá hefur helmingur jarð-
arinnar Stíflisdalur I í Þingvallasveit
verið auglýst til sölu.
Að sögn Sverris Kristinssonar
hjá Eignamiðluninni, sem hefur
áðurnefndar jarðir í sölu, hafa
Hvítárvellir og Grund verið seldar
með fyrirvara um forkaupsrétt-
arhöfnun viðkomandi hrepps-
nefnda og samþykki jarðanefnda.
Sverrir sagði jörðina Stíflisdal I
vera samtals 800 hektara að
stærð. Jörðin væri óskipt sameign,
Bílar á nagladekkj-
um teknir úr umferd
LÖGREGLAN hefur hafið aðgerð-
ir vegna bifreiða sem enn eru á
nagladekkjum og hafa bílar verið
teknir úr umferð. Á tímabilinu 1.
maí til 15. október er bannað að
aka á nagladekkjum.
en helmingur hennar er til sölu.
Meðfylgjandi er sumarbústaður á
afgirtu svæði við Stíflisdalsvatn,
en í sameign eru nýleg fjárhús
fyrr 400 fjár og hlaða fyrir 2000
hesta, einnig tvílyft ibúðarhús.
Sameigninni fylgja veiðiréttindi í
Stíflisdalsvatni, en úr því rennur
Laxá í Kjós. Jörðin er í ábúð í dag.
Að sögn Sverris er æskt tilboða í
Stíflisdalseignina.
Líðan pilts-
ins óbreytt
LIÐAN piltsins er slasaðist í
hörðum árekstri á Reykjanes-
brautinni í síðustu viku er
óbreytt. Liggur hann lífshættu-
lega slasaður á gjörgæsludeild
Borgarspítalans. Var hann
ásamt konu í bíl sínum á leið til
Reykjavíkur er bíll hans og ann-
ar, sem á móti kom og var að
aka framúr, rákust harkalega
saman.
„Fjölin"
Nýtt félag um dans- og
söngleikahús í Reykjavík
STOFNAÐ hefur verið félag í
Reykjavík, til að koma á fót dans- og
söngleikahúsi í höfuðborginni, eins
konar „musical theater" eins og
þekkjast víða um lönd. Félaginu hef-
ur verið valið nafnið „Fjölin" og
þarfnast það ekki nánari skýringa.
Höfundur nafnsins er Magnús Ei-
ríksson frá Eskifirði, sem sendi inn
á þriðja tug hugmynda, en alls bár-
ust hundruð tillagna að nafngift.
Rósa Ingólfsdóttir auglýsinga-
teiknari, einn hvatamanna að
stofnun Fjalarinnar, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
ekki hefði verið kjörin stjórn fé-
lagsins, en það yrði gert á fram-
haldsaðalfundi nk. mánudag.
Formaður undirbúningsnefndar
er á hinn bóginn Árni Scheving
hljóðfæraleikari, eins og áður hef-
ur verið skýrt frá í Morgunblað-
inu.
Þormóður rammi
vill taka Hafþór
á leigu
STJÓRN Hafrannsóknastofnunar
hefur borizt með milligöngu sjáv-
arútvegsráðherra ósk Þormóðs
ramma í Siglufirði um að taka
hafrannsóknaskipið Hafþór á
leigu til tveggja mánaða.
Að sögn Más Elíssonar hjá
Hafrannsóknastofnun hefur
ekki verið tekin afstaða til
beiðni útgerðarfyrirtækisins
innan stofnunarinnar, en Már
sagði að sökum fjárskorts hefði
stofnunin ekki getað haldið
Hafþóri úti allt árið'.
Utanríkisráð-
herra á vor-
fundi NATO
ÓLAFIIR Jóhannesson utanríkis-
ráðherra situr nú vorfund utanríkis-
ráðherra NATO-ríkjanna, sem hófst
í Luxemborg í gær.
Fundurinn stendur í tvo daga,
en vorfundir eru alla jafna haldnir
utan Brússel. Á fundinum er að
venju rætt ástand og horfur í
utanríkismálum.
Glæný sending af Daihatsu Charade
Á GLÆNÝJU VERÐI
FRÁKR. 99.640
o
með ryðvörn og fullum benzíntanki
Viö getum nú loks annaö eftirspurn eftir hinum frá-
bæra og vinsæla Daihatsu Charade, sem þjónar á 2.
þúsund ánægöum eigendum, gerir þeim lífsbaráttuna
léttari vegna sparneytni og lítils viöhalds og lifiö
ánægjulegra vegna einstakra ökueiginleika og snerpu.
Daihatsu Charade er lúxusbíll af minni gerö sem þjón-
ar öllum þörfum fjölskyldunnar hvort sem er í þéttbýl-
is- eöa þjóðvegaakstri.
Framhjóladrif, fimm huröir, fjórir gírar, fimm gírar eða
sjálfskipting. Þriggja strokka fjórgengisvél, 55 hö við
993 cc. Skráöur fimm manna meö aftursæti sem hægt
er aö leggja fram allt,0eöa skipt, og því með einu
handtaki hægt aö breyta í skutbíl.
Daihatsu Charade — Viðurkennd gæði — Viður-
kennd þjónusta — Auðvelt og öruggt val.
DAIHATSUUMBOÐIÐ, ÁRMÚLA 23, sími 85870 — 39179.