Morgunblaðið - 18.05.1982, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ1982
5
Birgir ísl. Gunnarsson Albert Guðmundsson Ingibjörg Rafnar Katrín Fjeldsted Davíð Oddsson Hulda Valtýsdóttir Markús Örn Antonsson
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavlk:
Útifundur á Lækjartorgi á morgun
20 manna jasshljómsveit leikur í 30 mín. áður en fundur hefst
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í
Reykjavík standa fyrir útifundi
á Lækjartorgi á morgun, mið-
vikudag, og hefst fundurinn
klukkan 17.15.
„Undirbúningur er í full-
um gangi, 20 manna Big
band-jasshljómsveit, Tón-
listarskóla FÍH leikur í hálfa
klukkustund áður en fundur
hefst, frá klukkan 16.45, en
Reynir Sigurðsson stjórnar
hljómsveitinni," sagði Björg
Einarsdóttir, formaður und-
irbúningsnefndar, í samtali
við Morgunblaðið. „Þá munu
Magnús Kjartansson og fé-
lagar hans leika nokkur vel
þekkt Reykjavíkurlög sem
þeir hafa sérstaklega æft
fyrir þennan fund. Það verða
leikin lög eftir Sigfús Hall-
dórsson og lög við ljóð eftir
Tómas Guðmundsson," sagði
Björg. Björg sagði ennfrem-
ur að sviðsvagn yrði á Lækj-
artorgi og sæi Kristinn
Ragnarsson arkitekt um
skreytingu hans.
Fundinn setur Birgir ísl.
Gunnarsson, fyrrverandi
borgarstjóri í Reykjavík, en
stutt ávörp munu flytja Al-
bert Guðmundsson, Ingi-
björg Rafnar, Katrín Fjeld-
sted og Davíð Oddsson.
Hulda Valtýsdóttir og Mark-
ús Örn Antonsson verða
kynnar á fundinum.
„I lok fundarins verður
leikið lagið „Vorkvöld í
Reykjavík" og við vonumst
til þess að þá verði eitt þess-
ara fallegu vorkvölda í
Reykjavík. Það er vorhugur
innra með sjálfstæðis-
mönnum í Reykjavík og við
höfum hugsað okkur að enda
fundinn á því að syngja
„Vorkvöld í Reykjavík,"
sagði Björg Einarsdóttir að
lokum.
Islendingur hlýtur við-
urkenningu í Cambridge
ÞORSTEINN I. Sigfússon eðlisfreó-
ingur, sem er að Ijúka doktorsverk-
efni við háskólann í Cambridge í
Englandi, var nýlega kjörinn félagi,
„Fellow", við Darwin College í Cam-
bridge fyrir rannsóknir á sambandi
rafeindabyggingar og segulmögnun-
ar fastra efna.
Rannsóknir hans hafa m.a. falið
í sér þróun nýrra aðferða til mæl-
inga á umræddum eiginleikum
málma nærri alkuli. Þorsteinn
hefur verið styrktur af Vísinda-
sjóði íslands og British Council og
hlaut Clerk Maxwell-styrk Cam-
bridge-háskóla 1980. Hann er son-
ur hjónanna Sigfúsar J. Johnsen
og Kristínar Þorsteinsdóttur og er
kvæntur Bergþóru Ketilsdóttur
kerfisfræðingi.
Þorsteinn I. Sigfússon
Siglufjörður:
Siglufirði, 17. maí.
Eigendaaskipti urðu á Nýja
bíói hér í Siglufirði fyrir
skömmu, en hinn nýi eigandi er
Steingrímur Kristinsson, sem
i á Nýja bíói
jafnframt verður sýningar-
stjóri.
Hann keypti bíóið af Oddi
Thorarensen, en salur bíósins
tekur um 350 í sæti.
21 rithöfundur fær viður-
kenningu úr Rithöfundasjóði
STJORN Rithöfundasjóðs fslands
ákvað á fundi sínum 11. maí sl. að
úthluta 21 rithöfundi í viðurkenn-
ingarskyni úr Rithöfundasjóði árið
1982, hverjum um sig 20 þús.
króna, segir í frétt frá stjórn sjóðs-
ins.
Rithöfundarnir eru: Agnar
Þórðarson, Andrés Indriðason,
Ása Sólveig, Bragi Sigurjóns-
son, Fríða Á. Sigurðardóttir,
Guðmundur Daníelsson, Guð-
mundur Frímann, Guðmundur
Halldórsson frá Bergsstöðum,
Gunnar M. Magnúss, Gylfi
Gröndal, Indriði G. Þorsteins-
son, Jón Björnsson, Kristján
Röðuls, Matthías Johannessen,
Oddur Björnsson, Ólafur Jó-
hann Sigurðsson, Stefán Júlí-
usson, Steinar Sigurjónsson,
Svava Jakobsdóttir, Úlfur
Hjörvar og Þórir S. Guðbergs-
son.
Stjórn Rithöfundasjóðs ís-
lands skipa nú þessir menn:
Þorvarður Helgason, Njörður P.
Njarðvík og Árni Gunnarsson.
Reykjavík:
Frambjóðend-
ur á fundi um
„gamla bæinn“
ÍBÚASAMTÖK Vesturbæjar og
íbúasamtök Þingholtanna gangast
fyrir almennum fundi með full-
trúum frá öllum framboðslistun-
um í Reykjavík um málefni gamla
bæjarins. Fundurinn verður hald-
inn í kvöld, þriðjudagskvöld 18.
maí, á Hótel Borg og hefst kl.
20.30.
1000- tou/i á l
Nú er tækifærið til að festa kaup á eldavél frá Philips, -
það er að segja ef þú gerir það strax. Tilboð okkar er að-
eins bundið við ákveðna sendingu. Philips eldavélarnar
eru afbragðsgóðar og nú bjóðast þær á góðu verði með
hlægilega lítilli útborgun.
Einfalda eldavélin, ACH 047, hefur fjórar hellur, þar af
eina með stiglausri hitastillingu; sjálfhreinsandi grillofn
með tímastilli og hitahólf svo eitthvað sé nefnt.
Hin fullkomna ACH 023 hefur einnig fjórar hellur, þar af
tvær með stiglausri hitastillingu, sjálfhreinsandi
blástursofn, hitahólf og elektróniskan hita- og tímastilli,
sem m.a. getur lækkað undir kartöflunum og stjórnað
affrystingu á kjöti!
Kannaðu málið - og hafðu þúsund kallinn með!
heimilistæki hf.
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚNI 8 -15655