Morgunblaðið - 18.05.1982, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ1982
17
traustur grundvöllur til að byggja á
varðandi framtíðina fyrir það unga
fólk, sem nú er að bætast við á
vinnumarkaðinn.
Að kaupa gamalt álver,
— eða reisa nýtt?
Auðvitað eru takmörk fyrir því,
hvað við Islendingar höfum ráð á að
leggja í mikla áhættu við rekstur
stóriðju. Við kaupum hráefnið er-
lendis frá og erum upp á útlendinga
komnir varðandi söluna. Verðsveifl-
ur eru miklar og sölutregða oft lang-
varandi. Ef við tökum dæmi af þeim
kveinstöfum stjórnvalda, sem heyrzt
hafa vegna lokunar skreiðarmarkað-
arins í Nígeríu nú um stuttan tíma,
getum við rétt ímyndað okkur,
hversu lengi við gætum risið undir
rekstri álvers, sem ekki losnaði við
framleiðsluna svo og svo lengi. Eða
hvað höfum við ekki þurft að leggja
fram vegna Járnblendiverksmiðj-
unnar? Fjármagn, sem hrökkva
myndi til að leggja bundið slitlag á
hringveginn eins og hann leggur sig.
Hins vegar eru fá ár í, að tekjurnar
af álverinu við Straumsvík hafi
borgað byggingu Búrfellsvirkjunar
og allan rekstrarkostnaðinn að auki.
Liggur þó fyrir, að veruleg hækkun
orkuverðsins til álversins hefur ekki
náðst fram vegna óþjóðholls mála-
tilbúnaðar iðnaðarráöherra, sem
raunar er menntaður í Austur-
Þýzkalandi.
Hver er svo málflutningur iðnað-
arráðherrans nú, þegar fyrir liggur
að sjávarafli er stopulli en nokkru
sinni? Fyrst stakk hann upp á, að
rekstri álversins yrði hætt af því að
þá fengjum við svo ódýra raforku!
Nú þykir honum þjóðráð, að við not-
um það sem eftir er að lánstrausti
okkar erlendis til að kaupa álverið.
Liggur þó fyrir, að slík kaup myndu
ekki skapa einum einasta manni at-
vinnu. —
Að sjálfsögðu er vitið meira, ef
menn á annað borð vilja leggja ís-
lenzkt áhættufé í álverksmiðju, að
reisa nýja. Slíkum framkvæmdum
fylgja margvísleg umsvif og myndu
verka sem vítamínssprauta á at-
vinnulífið. En skynsamlegast er
vitaskuld að semja við erlenda aðila
um að þeir reisi slíka verksmiðju og
reki. Af því höfum við góða reynslu.
Þá myndum við líka taka hagnaðinn
á þurru í gegnum orkusöluna og veit-
ir sannarlega ekki af, að eitthvað
standi undir sér hér á landi.
Eins og dæmið er sett upp af iðn-
aðarráðherra sé ég ekki betur en að
hann ætli að fórna stóriðjufyrirtæki
við Eyjafjörð fyrir gamalt álver við
Straumsvík. Eins og Slippstöðinni er
verið að fórna fyrir Einar Bene-
diktsson eða aðra þá ryðkláfa, sem
keyptir hafa verið til landsins.
Að troða fyrirtæki
upp á Eyfirðinga!!!
I þingræðu gekk ég á iðnaðarráð-
herra með það, hvers vegna ríkis-
stjórnin hefði horfið frá öllum ný-
iðnaðar- eða stóriðjuhugmyndum við
Eyjafjörð. Honum þótti ekki undar-
legt, þótt ég skyldi hafa orð á „þeirri
miklu eyðu“ sem Eyjafjarðarsvæðið
er í áætlunum, sem uppi eru um
stórrekstur. Á hinn bóginn fullviss-
aði hann mig um, að þetta væri ekki
sinn vilji. Viðhorf sitt varðandi stað-
setningu meiriháttar iðnaðar sé það,
að það „eigi ekki að vera að troða
slíkum fyrirtækjum upp á heima-
menn af hálfu utanaðkomandi aðila,
af ríkisvaldinu eða öðrum, heldur
þurfi menn að ná saman heima fyrir
um áform í þessu efni“. í framhaldi
af þessum ummælum vísaði iðnað-
arráðherra til þeirrar samstöðu, sem
náðst hefði á Austurlandi um
kísilmálmverksmiðju við Reyðar-
fjörð.
Svo mörg voru þau orð. Auðvitað
hlýtur okkur Norölendinga að svíða
undan þeim, þegar við sjáum
Blönduvirkjun rísa. Sannleikurinn
er náttúrlega sá, að bæjarstjórnar-
kosningarnar hér fyrir norðan snú-
ast um þetta umfram allt, hvort við
viljum vera með í þeirri iðnþróun,
sem nú er verið að undirbyggja í
okkar landi. eða ekki. Framsókn-
armenn og kommúnistar — Kvenna-
listinn raunar líka — boða stöðnun í
atvinnumálum. Við sjálfstæðismenn
megum ekki til þess hugsa, að Akur-
eyri og Eyjafjörður verði af tæki-
færinu nú. Atvinnulífið hér fyrir
norðan þarf á því að halda að fá
vítamínssprautu og við erum ekki
reiðubúnir til að gefa hana eftir
fyrir kaup á gömlu og að sumu leyti
úreltu álveri við Straumsvík.
Schram, hinn góðkunni höfundur
Stundarinnar okkar í Sjónvarp-
inu, ennfremur fulltrúar öflugra
liðssveita sem leggjast hér á eitt:
Baldvin Ottósson, lögregluvarð-
stjóri, Ásgeir Heiðar, formaður
Hjólreiðafélags Reykjavíkur, og
Jóhannes Pálmason, formaður
Lionsklúbbsins Njarðar. Auk
þessara eru Vésteinn Þórsson
menntaskólanemi og Þór Jakobs-
son. Bryndís fer nú á milli skóla
og kynnir Hjólreiðadaginn. Á
sjálfan Hjólreiðadaginn mun hún
m.a. vera kynnir atriða á vellin-
um.
Fleiri mætti nefna sem hjálpa
til með ráðum og dáð. Um 40 kon-
ur úr kvennadeild Styrktarfélags-
ins og frá „Svölunum', félagi
fyrrv. og núv. flugfreyja, munu
t.d. taka á móti söfnunarkortum
og söfnunarfénu, þegar hjólreiða-
menn koma á Laugardalsvöllinn.
Það er býsna mikið verk að taka á
rúmum klukkutíma á móti
mannfjölda á borð við vænan bæ á
íslandi. Það þarf snarar hendur og
skjót svör, en skilningsrík við
ýmsum óvenjulegum fyrirspurn-
um hinna yngstu, þegar þeir koma
í mark, stoltir og furðu sprækir.
Þess skal að lokum getið, að all-
ir, 10 ára eða eldri, eru velkomnir
til þátttöku. Yngri börn verða að
eiga vísa samfylgd fullorðinna.
Unglingar, ungt fólk, og allir sem
treysta sér, eru hvattir til að
bregða sér með. Hjólin í lag og
munið, að ekkert liggur á! Bíl-
stjórar á ferð eru hvattir til að
aka mjög varlega þennan dag.
Það var glæsileg sjón að sjá
hjólreiðafólkið streyma inn á völl-
inn í fyrra í stríðum straumum,
fleira en hægt var að kasta tölu á,
en þátttakendur skiptu þúsundum.
Þetta var fólk á öllum aldri og
ýmsir sem mikið hafa hjólað um
dagana, svo sem dr. Björn Sigfús-
son, fyrrv. háskólabókavörður. Og
á margan hátt má taka þátt í hin-
um fjölþætta Hjólreiðadegi. Síð-
asta framlag til hins góða málefn-
is í fyrra kom úr hendi Snorra
litla Beck í fangi móður sinnar, en
fullungur til að hjóla langa leið, en
tók þó á sinn þátt í deginum.
Ráðið í starf skrifstofustjóra Borgarneshrepps:
Mjög mikil óánægja
með þessa afgreiðslu
- segir Gísli Kjartansson
HREPPSNEFND Borgarneshrepps
samþykkti á fundi sínum mánudag-
inn 10 maí sl. að ráða Svein Árnason
í stöðu skrifstofustjóra Borgar-
neshrepps, en fimm aðilar sóttu um
þetta starf, samkvæmt upplýsingum
sem Morgunblaðið fékk hjá Gísla
Kjartanssyni, fulltrúa á sýsluskrif-
stofunni í Borgarnesi, en Gísli er
efsti maður á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í Borgarneshreppi.
Gísli sagði að einn umsækjenda,
Helgi Bjarnason, væri almennt
talinn hæfastur til starfsins, hann
hefði rekið bókhaldsskrifstofu í
Borgarnesi í mörg ár, en hann er
Verslunarskólagenginn. Ennfrem-
ur sagði Gísli að Helgi hefði starf-
að mikið að félagsmálum i
hreppnum. „Við áttum flestir von
á því að Helgi yrði ráðinn,“ sagði
Gísli. „Sjálfstæðismenn eru í
meirihlutasamstarfi með fram-
sóknarmönnum og hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn tvo fulltrúa í
hreppsnefnd en Framsóknarflokk-
urinn þrjá. En framsóknarmenn
fengust ekki til að ræða við okkur
fyrir fundinn um það hvern skyldi
ráða, og síðan var samþykkt að
ráða Svein til starfsins. Hann er
titlaður húsgagnasmiður í síma-
skránni, en mun hafa starfað á
skrifstofu Egilsstaðahrepps síð-
ustu árin. Auk þess er hann í heið-
urssæti Alþýðubandalagsins þar.
Á fundinum fékk Sveinn fjögur
atkvæði, framsóknarmanna og
fulltrúa Alþýðubandalagsins, en
Helgi fékk þrjú, atkvæði sjálf-
stæðismanna og alþýðuflokks-
mannsins í nefndinni," sagði Gísli.
„Okkur hér kemur það spánskt
fyrir sjónir að formaður verka-
lýðsfélagsins hér, Jón Eggertsson,
lagðist gegn Helga, sem er heima-
maður. Jón þessi skrifaði bréf ekki
alls fyrir löngu til verkstjóra hér
og fleiri aðila, þar sem hann benti
á að ráða ekki aðra en heimamenn
til starfa. Það kom mönnum á
óvart að Jón skyldi framkvæma
þessa stefnu sína á þennan hátt í
hreppsnefnd. Þetta kemur eins og
köld vatnsgusa framan í okkur
sjálfstæðismenn. Kjörtímabilið
hefur verið gott að mörgu leyti,
samstarfið við framsóknarmenn
hefur gengið ágætlega og menn
áttu ekki von á þessum vinnu-
brögðum síðustu vikur kjörtíma-^
bilsins. Það er mjög mikil óánægja
hjá hinum almenna Borgnesingi
með þessa afgreiðslu, enda teljum
við að Helgi hafi bæði starfs-
reynslu og menntun umfram þann
mann sem ráðinn var. Þetta mál
mun að sjálfsögðu blandast inn í
kosningarnar hér,“ sagði Gísli
Kjartansson að lokum.
„Fríleyfi“ 1
Elliðavatn
ÞEIR unglingar og ellilífeyrisþegar,
sem ætla að notfæra sér samþykkt
borgarráðs um ókeypis veiðileyfi í
Elliðavatni, verða að ná í „fríleyfi"
til Æskulýðsráðs, Fríkirkjuvegi 11,
og á borgarskrifstofurnar í Austur-
stræti.
Einnig eru fríleyfi afhent á
Vatnsenda og við Elliðavatn.
Lamaðir og fatlaðir geta sem fyrr
fengið „fríleyfi" á skrifstofu
Sjálfsbjargar.
”Hver
reiknaði
þad út?”
Spurði Jón Spæjó þegar hann komst að því hvað
verðið á nýja Skodanum var hlægilega lágt.
Og ekki varð hann minna hissa þegar það kom í
ljós að ekki þyrfti að borga nema 40.000 kr. út og
afganginn á 6 mánuðum.
Þetta fannst Jóni Spæjó greiðsluskilmálar í
betra lagi.
JÖFUR
■ |æ— * iiniiuitýi iitoiiOyi JS9vl
Mt".. iwwaMtta - kóp4o» --^Ýd*flVWianuuluid go kuíísi lúja i
---------------------------------------------------urii'l slli
Kop#«9, ■