Morgunblaðið - 18.05.1982, Blaðsíða 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ1982
Ingibjörg Rafnar á framboðsfundi KRFÍ á Hótel Borg:
Engin leiguíbúð byggð á kjörtímabilinu
Þrjár keyptar - 20 á teikniborðinu
„REYKJAVÍK hefur verið stjórnað
af þremur vinstri flokkum á síðasta
kjörtímabili og allir hafa þeir lýst
áhuga á áframhaldandi vinstra
samstarfi. Fram á sjónarsviðið hef-
ur komið fjórði vinstri framboðs-
listinn, Kvennaframboðið, sem að
sögn Alþýðubandalagsins vinnur
eftir sömu stefnu og það, og því
þarf ekki að fjölyrða frekar um
pólitískan hug þess framboðs,"
sagði Katrin Fjeldsted, 11. maður á
framboðslista Sjálfstæðisflokksins
í Rcykjavík, á fundi sem Kven-
réttindafélag íslands gekkst fyrir
sl. laugardag. Á funinum voru tveir
fulltrúar frá hverjum framboðslista
og héldu þeir framsöguerindi og
svöruðu fyrirspurnum.
„I kvennapólitík höfum við
gjarnan haft þetta slagorð: Mann-
eskja, ekki markaðsvara," sagði
Katrín, „og konur í kvennafram-
boði segjast ætla að láta málefnin
ráða hverju sinni í atkvæðagreiðsl-
um i borgarstjórn. Þá verða þær að
semja, þar verða hrossakaup, mál-
efnin ganga kaupum og sölum, eins
og verið hefur á þessu kjörtímabili.
Hugsjónir mega aldrei vera til
sölu. Við megum ekki gera mann-
eskjuna að markaðsvöru," sagði
Katrín.
Ingibjörg Rafnar, sem skipar 5.
sæti á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins, fjallaði í ræðu sinni um
þann mun sem hefur verið á
Reykjavík undir vinstri stjórn og
undir stjórn Sjálfstæðisflokksins.
Benti hún á að nú flyttu vinstri
flokkarnir sömu tillögurnar og
þeir fluttu fyrir fjórum árum. Hún
sagði að vinstri meirihlutinn hefði
stórhækkað skattaálögur á borg-
arbúa, en sjálfstæðismönnum
hefði tekist að stjórna borginni
með mun minni skattatekjum.
Þrátt fyrir auknar tekjur borg-
arsjóðs, hefðu framkvæmdir í
Reykjavík dregist saman. Sagði
Ingibjörg að lóðaúthlutanir fyrir
íbúðarhúsnæði hefðu dregist sam-
an um helming á síðustu fjórum
árum, miðað við tímabilið
1970—1978. Hins vegar hefði
stöðnunin orþið nær alger á sviði
atvinnulóða, þremur nýjum lóðum
hefði verið úthlutað, einni til SÍS,
einni til KRON og einni undir
gróðurhús á Ártúnsholti. Ingibjörg
gat þess að þrátt fyrir kosningalof-
orð vinstri flokkanna, hefði engin
leiguíbúð verið byggð á kjörtíma-
bilinu. Þrjár íbúðir hefðu verið
keyptar, en 20 væru á teikniborð-
inu. Þetta væru afrekin á þessu
sviði.
Þá sagði Ingibjörg að ekkert
nýtt svæði hefði verið skipulagt
undir atvinnuhúsnæði á kjörtíma-
bilinu.
Nokkrum spurningum var beint
til frambjóðenda á fundinum. Guð-
rún Jónsdóttir, efsti maður á lista
Kvennaframboðsins, var spurð um
hvort hún hefði tekið þátt í stefnu-
mótun í borgarmálaráði Alþýðu-
bandalagsins á kjörtímabilinu, en
hún var varamaður þess í félags-
málaráði á þessu kjörtímabili.
Kvað Guðrún svo ekki hafa verið,
Frá fundi Kvenréttindafélags íslands á Hótel Borg. Katrín Fjeldsted í ræðustól.
Ljósm. Mbl. Krislján
hún hefði ekki verið boðuð þar á
fundi.
Sjálfstæðismenn voru spurðir
hvernig þeir ætluðu að fara að því
að lækka skatta eftir kosningar,
eins og þeir lofuðu. Ingibjörg
Rafnar varð fyrir svörum og sagði
m.a. að með því að hætta við
Rauðavatnsskipulagið, væri þegar
hægt að spara 50—60 milljónir í
framkvæmdum við skolpræsi. Þá
vildu sjálfstæðismenn leggja niður
framkvæmdaráð borgarinnar, það
kvað hún ónauðsynlegt innan
borgarkerfisins. Einnig sagði Ingi-
björg að sjálfstæðismenn vildu
fækka borgarfulltrúum í 15. Þá
væri hægt að færa máiaflokka frá
borg og til einstaklinga og það
mætti athuga, t.d. á sviði heil-
brigðismála.
HAFNFIRÐINGAR
Kosningafundur
Sjálfstæðisflokksins
verður miðvikudaginn 19. maí
í Hafnarfjarðarbíói kl. 20.30.
Fundinn setur Einar Þ. Mathiesen.
Fundarstjóri: Guðmundur Guðmundsson.
Stutt ávörp flytja: Árni Grétar Finnsson
Magnús Kristjánsson Ása María Valdimarsdóttir
Ellert Borgar Þorvaldsson Jakob Bjarnar Grétarsson
og Margrét Flygenring
Tónlistarflutningur verður í höndum Þorvalds
Steingrímssonar og Carl Billich og félagarnir
Magnús Ólafsson og Þorgeir Ástvaldsson munu sjá
um skemmtiatriði af sinni alkunnu snilld.
Gerum góöan bæ betri
Gerður Steinþórsdóttir á fundi KRFÍ:
Borgarverkfræð-
ingur lét rannsaka
Rauðavatnssvæðið
GERÐUR Steinþórsdóttir, varaborg-
arfulltrúi Framsóknarflokksins, sem
skipar 2. sæti á framboðslista þess
flokks við borgarstjórnarkosn-
ingarnar þann 22. maí nk., sagði á
fundi sem Kvenréttindafélag ís-
lands stóð fyrir sl. laugardag, að
fróðlegt hefði verið að kynnast því
valdakerfi sem Sjálfstæðisflokkur-
inn hefði byggt upp á 50 ára valda-
ferli í Reykjavík.
Sagði hún að þetta kérfi væri
byggt upp á pólitískum borgar-
stjóra og embættismönnum sem
hefðu pólitísk völd. Nefndi hún
sérstaklega borgarverkfræðing í
því sambandi, sagði borgarverk-
fræðing mikinn sjálfstæðismann
og hafa tekið það upp hjá sjálfum
sér að fá mann til að rannsaka
Rauðavatnssvæðið með tilliti til
sprungna. Slíkt og þvílíkt kvað
Gerður aldrei hafa gerst áður, —
að embættismaður tæki slíkt upp
hjá sjálfum sér.
Þá sagði Gerður einnig, þegar
hún reyndi að skýra af hverju ekki
hefði verið staðið við kosningalof-
orð, að peningar yxu ekki á trján-
um og pólitískir fulltrúar réðu
ekki alltaf ferðinni í borgarmál-
um. Sagði hún að oft virtist sem
svo að „einhver önnur öfl“ í þjóð-
félaginu réðu.
Utankjörstaðarkosning í Reykjavlk:
106 kusu á spítöl-
unum um helgina
Utankjörstaðakosning fór fram
á stóru sjúkrahúsunum í Reykja-
vík um helgina. Kosið var á Landa-
koti á laugardag, en þar kusu 20 af
70 sjúkiingum spítalans. Á Borg-
arspítalanum og Landspítala var
kosið á sunnudag og neyttu at-
kvæðisréttar síns 51 á Borgarspít-
ala en 35 á Landspitala. Samtals
kusu á spítölunum 106, en þar var
óvenju fámennt um helgina, eins
og kunnugt er af fréttum.
Að sögn borgarfógeta höfðu
um miðjan dag í gær samtals
kosið utankjörstaðar í Reykjavík
2.072, og eru það mun fleiri en
kosið höfðu á sama tíma í síð-
ustu kosningum. Kjörstaðir
verða ekki opnir á kjördag á
stóru sjúkrahúsunum, en aftur á
móti verður þá opinn kjörstaður
á Hrafnistu og Elliheimilinu
Grund.
Jónas á Kletti:
„Betra að bræða
grásleppuna en
að henda henni
„VIÐ HÖFUM alltaf tekið á móti
grásleppu til bræðslu, ef hún hefur
verið boðin fram, en nú auglýstum
við að tekið verði á móti grásleppu,
til að undirstrika að menn geta losn-
að við þetta hráefni til bræðslu, í
stað þess að þurfa að grafa það á
haugunum," sagði Jónas Jónsson
framkvæmdastjóri Síldar- og fiski-
mjölsverksmiðjunnar hf. þegar
Morgunblaðið ræddi við hann.
Fram til þessa hefur gráslepp-
unni yfirleitt verið hent, þegar bú-
4 » 1 * I U4< ,
»f Hll
ið er að hirða hrognin innan úr
henni.
„Það hefur verið fundið að því
að grásleppunni hefur verið hent,
en menn hafa sett það fyrir sig oft
á tíðum að koma með hana til
bræðslu. Mér finnst hins vegar
allt eins gott að menn komi með
þetta hráefni til okkar í bræðslu.
Að vísu er það ekki mikið magn
sem fellur til af grásleppu, en við
borgum 60 krónur fyrir tonnið,
sem er sama verð og fyrir slor,“
sagði Jónas.
Vh ^tlll I 1'J‘C .1 « 61M Ojt i l #