Morgunblaðið - 18.05.1982, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ1982
35
Dansinn er vinsæll eins og nærri mi geta.
Sjálfboðaliðar
á kjördag
D-listann vantar fólk til margvíslegra sjálfsboöa-
starfa á kjördag. Sérstaklega vantar fólk til starfa
sem fulltrúa listans í kjördeildum auk margvís-
legra annarra starfa.
Þeir, sem vilja leggja D-listanum liö, meö starfs-
kröftum sínum á kjördag 22. maí. Hringi vinsam-
legast í síma 82900. Skráning sjálfboðaliöa fer
einnig fram á skrifstofum hverfafélaganna.
V____________________________J
11 i-listinn
Rauði krossinn á Fáskrúðsfirði:
Opið hús fyrir eldri bæjarbúa
Fáskrúðsfirði, 11. maí.
í VETUR og síðastliðinn vetur
hefur Rauða kross-deild Fá-
skrúðsfjarðar verið með opið hús
fyrir 60 ára bæjarbúa og eldri.
Þátttaka hefur verið mjög góð. Á
dagskrá hefur verið félagsvist,
bingó, kórsöngur, upplestur og
stiginn hefur verið dans. Almenn
ánægja hefur verið meðal eldri
borgara með þetta framtak og
þátttaka alltaf verið að aukast.
Formaður öldrunarnefndar Rauða
krossins er Agnar Jónsson, en
formaður Rauða kross-deildarinn-
ar er séra Þorleifur K. Krist-
mundsson.
— Albert
BLRGPÓHUGOTU 3 SÍMAR. 19032-36870
Honda Accord árg. ’81 m/ vökvastýri 4ra dyra.
Toyota Carina árg. 79, ekinn 17 þús.
Mazda 929 st. árg. ’81
Scout árg. 79, ekinn 10 þús.
Mazda 929 árg. 77, ekinn 34 þús.
Citroen FSA Pallas árg. ’81, ekinn 15 þús.
Honda Akkord 4ra dyra árg. 78.
Fíat 131 árg. 79, sjálfsk. m/ vökvastýri.
Lada 1600 árg. ’81, ekinn 2 þús.
Audi 100 LS árg. 78, fallegur bíll.
Snæfellsness- og Hnappadalssýsla:
Víða komið við á síð-
asta fundi sýslunefhdar
StykkÍNhólmi, 12. maí.
Aðalfundur sýslunefndar Snæ-
fellsness- og Hnappadalssýslu var
haldinn í Stykkishólmi dagana 10.
og 11. þ.m. Oddviti nefndarinnar,
Andrés Valdimarsson, sýslumaður,
bauð fulltrúa velkomna til starfa og
lagði fram þau málefni sem nefnd-
inni höfðu borist.
Á fundinum voru rædd vegamál
sýslunnar og ýmis önnur mál sem
gætu orðið byggðinni til gagns. Þá
var ályktað um brýna nauðsyn
þess að koma upp skjalasafni fyrir
sýsluna í tengslum við Amtbóka-
safnið. Einnig var rætt um mögu-
leika á að gefa út árbók fyrir
sýsluna eins og gert er i ýmsum
öðrum héruðum og var kosin
nefnd til að athuga það mál betur
og koma því í framkvæmd. Fjár-
hagsáætlun sýslunnar var sam-
þykkt með niðurstöðum kr.
513.355,- og af tekjuliðum er sýslu-
sjóðsgjald hæst, kr. 390.000,-, en af
gjöldum til atvinnumála 150 þús-
und kr. Áætlun um tekjur og gjöld
sýsluvegasjóðs er að niðurstöðu-
tölum kr. 1.288.903,- og fer nærri
öll sú fjárhæð til viðhalds og hefl-
unar veganna.
Eftirfarandi tillaga var einróma
samþykkt: „Sýslufundur Snæ-
fellsness- og Hnappadalssýlu
haldinn í Stykkishólmi 10. og 11.
maí 1982, telur alvarlega hættu á
að gin- og klaufaveiki geti borist
til landsins með ferðamönnum og
varningi jæirra, og þá sérstaklega
með ýmsum matvælum. Fundur-
inn telur sérstaka hættu á að veik-
in geti borist með farþegum á
ferjuskipinu Smyrli. Fundurinn
skorar því á ríkisstjórnina að gera
sérstakar ráðstafanir til eftirlits
með því að ekki séu flutt matvæli
sem geta borið veikina til landsins
og láta herða á öllu eftirliti við
tollafgreiðslu farmanna og ferða-
mannafarangurs svo fyllstu
varúðar sé gætt.
Með því að þetta er seinasti
fundur sýslunefndar sem núver-
andi sýslumaður stjórnar kvaddi
hann meðnefndarmenn sína með
þökkum og árnaðaróskum og eins
þeir hann.
Andrés Valdemarsson tekur nú
senn við sýslumannsembættinu í
Árnessýslu. Hér hefir hann getið
sér góðan orstír, verið vinsæll í
starfi, og eignast góð ítök í íbúum
þessa byggðarlags. Er okkur hér
eftirsjá að honum og hefðum kosið
að njóta hans lengur. Við vitum
líka að hann vinnur sér traust í
nýju umhverfi og héðan fylgja
honum góðar óskir um farsæla
framtíð, honum og fjölskyldu hans
til handa. „
Frettaritan
Skólaslit
Flensborgar-
skólans
Kosningadagskrá-
in á stuttbylgju
ÁKVEÐIÐ hefur verið að kosninga-
dagskrá Rikisútvarpsins þann 22.
mai nk. verði send út á þremur tíðn-
um á stuttbylgju.
Áður hefur verið tilkynnt að
sent verði út á 13.797 kHz (eða
21,74m) að kvöldi 22. maí frá kl.
18.30 GMT og þar til talningu lýkur
og sunnudaginn 23. maí frá kl. 12.00
til 14.00 GMT.
Einnig verður þann 22. maí frá kl.
22.00 GMT sent út á 9118 kHz (eða
32,90m) og 7666Jkllz (eða 39,13m).
Flensborgarskóla, sem er 100 ára
á þessu ári, verður slitið í íþróttahús-
inu við Strandgötu á fimmtudaginn.
Að lokinni skólaslitaathöfn
verður afmælissýning og kaffi-
samsæti í skólanum. Á sunnudag-
inn verður hátíðarmessa í Garða-
kirkju, þar sem heiðruð verður
minning stofnenda skólans, Þór-
arins Böðvarssonar og Þórunnar
Jónsdóttur.
í tilefni af afmæli skólans hefur
verið stofnaður „Afmælissjóður
Flensborgarskóla" og skal honum
varið til kaupa á tækjum sem
varða nýjungar í kennsluháttum.
LAWN-BOY
GAROSLATTUVELIN
Þaö er leikur einn aö Rafeindakveikja. sem
slá meö LAWN-BOY tryggir örugga gang-
garösláttuvélinni, setningu.
enda hefur allt veriö Grassafnari, svo ekki
gert til aö auðvelda þarf aö^raka.
þér verkiö. 3,5 hö, sjálfsmurð tvi-
gengisvél, tryggir lág-
marks viöhald.
Hljóðlát.
Slær út fyrir kanta og
alveg upp aö veggjum.
Auðveld hæðarstillmg.
Ryöfri.
Fyrirferðalitii, létt og
meöfærileg.
VELDU GAROSLATTUVÉL. SEM GERIR MEIR
EN AÐ DUGA.
SÍMI B1500-ÁRMÚLA11
v ■ L,'**'
fí-ý