Morgunblaðið - 18.05.1982, Page 28

Morgunblaðið - 18.05.1982, Page 28
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ1982 frambjóðenda NU LÍÐUR aö sveitarstjórnarkosningum og kosningabaráttan er að komast í algleyming. Flokkar og fylkingar reyna meÖ ýmsu móti aö ná til kjósenda. Morgunblaösmenn fylgdust meö einum degi í kosningabaráttu frambjóðenda Sjálfstæöisflokksins viö borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík í vikunni, og kom [>á í Ijós að í mörgu er að snúast. Frambjóðendurnir tóku daginn snemma, mættu klukkan átta að morgni í. Sjálfstæðishúsinu til skrafs og ráðagerða, áður en rokið væri af stað út í fyrirtæki í borg- inni. Þeir báru saman bækur sín- ar, gáfu skýrslur um fyrri fyrir- tækjafundi og skeggræddu um sjónvarpsþátt á sunnudag. Þeir vörpuðu fram hugmyndum um baráttuaðferðir og reyndu að vega stöðuna og meta. Þeir voru á því að flokkurinn hefði meðbyr, en samt væri margt óunnið fram að kjördegi. Fundi var slitið á slaginu níu. Tóku menn að tygja sig til brott- ferðar, enda skyldu nokkrir vinnu- staðir heimsóttir og spjallað við starfsfólk í morgunkaffinu. Við slógumst í för með Hilmari Guð- laugssyni, Páli Gíslasyni og Önnu K. Jónsdóttur, sem fóru í lysta- dúnverksmiðjuna Vogafell í Dugguvogi. Þeim Páli og Önnu seinkaði og fundur dróst örlítið þar sem sprakk á bifreið Páls á miðri Miklubraut, en með góðri samvinnu þeirra beggja skiptu þau um dekk á nokkrum mínútum. Hilmar hafði orð fyrir þeim, þar sem setzt var niður í þröngri kaff- istofu, sem ekki rúmaði alla fund- armenn. Hann sagði að þrjú mál væru efst á baugi í sambandi við þessar kosningar, fjármál, hús- næðismál og skipulagsmál borgar- innar. Vinstri meirihlutinn hefði reynst skattaglaður, en samt þurft að taka 40 milljóna króna lán til að endar næðu saman. Sjálfstæð- ismenn langaði að breyta til og lækka fasteignaskatta um 20%, eða koma þeim niður í það sem þeir voru áður en vinstri meiri- hlutinn komst að fyrir fjórum ár- um. Varaði Hilmar í þessu sam- bandi við kosningaloforði fram- sóknarmanna, sem segðust nú vilja lækka fasteignaskatta. Þeir hefðu lofað því sama fyrir síðustu kosningar, en síðan hækkað fast- eignaskatta, og raunar aðrar álög- ur líka, fjórum sinnum. Hilmar gerði grein fyrir and- stöðu Sjálfstæðisflokksins við að byggt yrði á Rauðavatnssvæðinu, fyrst bæri að byggja á Grafar- vogslandinu og á Keldnalandinu, eins og samþykkt hefði verið í borgarstjórn 1977, þá með sam- þykki allra flokka nema Alþýðu- bandalagsins. „Það kostar jafn mikið að leggja holræsi frá Rauðavatnssvæðinu og tveir þriðju hlutar allrar gatnagerðar og holræsagerðar annarrar á þessu ári,“ sagði Hilmar. „Nú er eðlilegt að spurt sé, hvort ekki fylgi samdráttur því að lækka fasteignaskattana," sagði Hilmar. „Það gæti verið að ein- hvers staðar yrðum við að temja okkur sparnað, en við ætlum að hafa það í þessum efnum eins og á heimilunum. Við ætlum fyrst að sjá hversu miklum tekjum við höf- um úr að spila, og síðan ákveða hvernig við notum peningana. Við getum ekki eytt meiru en við öfl- um.“ Heilmiklar umræður spunnust í kaffistofunni í Vogafelli, þar sem einn starfsmaður gekk þó hvað harðast fram og spurði m.a. hvort ekki væri nóg land til að byggja á, hvort lóðum hefði ekki verið út- hlutað eftir einhverjum klíkuskap í tíð sjálfstæðismanna, og þar fram eftir götunum. „Ég hef þrisv- ar sótt um lóð og aldrei fengið," sagði hann. „Ég hef heldur aldrei fengið lóð,“ sagði Hilmar, „bý í blokk. Þetta er ekki svona einfalt. Að okkar dómi er punktakerfið eins óréttlátt og helzt getur verið. Samkvæmt því fær unga fólkið minnsta kosti. Þannig var meðal- aldur þeirra sem lóð fengu árið 1979 40,7 ár, en 33,5 ár hjá þeim sem ekki fengu. Og á árunum 1970—1978 var að jafnaði úthlutað lóðum fyrir 715 íbúðir á ári, en fyrir aðeins 352 á ári meðan vinstri menn hafa farið með völd. Þá má minna á, að vinstri menn sögðu okkur hafa stuðlað að fyrir- tækjaflótta yfir í nágrannabyggð- ir með því að úthluta ekki nógu mörgum lóðum undir atvinnust- arfsemi. I þessu sambandi er að- Frá fundi frambjóðendanna i Sjálfslæði.shúsinu í upphafi dagsins. Björn Bjarnason hjá Dúk kynnir frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins starf- semi verksmiðjunnar. Stund milli stríða. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins, Katrín Fjeldsted, Guðmundur Hallvarðsson og Davíð Öddsson fá sér kaffisopa með ísleifi Jónssyni yfirþjóni áöur en fundur með starfsfólki Hótels Loftleiða hefst. Ljósm. Mbl. Kristján Kinarsson. eins hægt að segja það, að á árun- um 1978—1982 hefur engri nýrri lóð verið úthlutað undir atvinnu- rekstur, ef undan eru skildar tvær lóðir, önnur fyrir SIS og hin fyrir KRON. Og ef hringt var og spurzt fyrir um lóðir var svarið á einn veg, engar lóðir til fyrir atvinnu- rekstur." Páll Gíslason sagði að oddamað- ur Sjálfstæðismanna væri þeirra borgarstjóraefni. „Við viljum reyna að hafa samráð við borgar- ana. Oddviti okkar fyrir vinstra tímabilið hélt reglulega fundi með borgurunum til að fá fram ábend- ingar þeirra um hin ýmsu mál,“ sagði Páll. Hann var spurður um Borgarspítalann. „Ég er mótfall- inn því að ríkið verði látið taka hann yfir og ekki er hægt að ætl- ast til að þar fái aðeins Reykvík- ingar aðhlynningu. Ég held að engum sem rekur spítala dytti í hug að hafa dyravörð og hleypa inn einum en ekki öðrum, allt eftir því hvar viðkomandi byggi, en þess má þó geta, að B-álman svo- kallaða verður eingöngu fyrir aldraða Reykvíkinga. „Erfiðleikar sjúkrahússins eru í því fólgnir að ríkið og sjúkrasam- lögin greiða ekki jöfnum höndum fyrir meðferð sjúklinganna, held- ur löngu eftir á. Það liggur í aug- um uppi að þetta hefur í för með sér ýmsa örðugleika. Og ég held að það fylgdi enginn sparnaður miðstýringu, þótt það sé tilhneig- ing hjá ríkinu að taka allt til sín. Reynslan hefur einmitt orðið önn- ur, t.d. í Svíþjóð,“ sagði Páll. Klukkan var langt gengin í ell- efu þegar fundinum í Vogafelli lauk. Hilmar, Páll og Anna héldu til sinna starfa, þar sem aðrir frambjóðendur yrðu á næsta fundi, en reynt er að skipta fund- unum sem jafnast niður á fram- bjóðendurna, enda í mörgu að snú- ast síðustu dagana fyrir kosn- ingar. Við héldum næst að Hótel Loftleiðum, þar sem þau Davíð Oddsson, Guðmundur Hallvarðs- son og Katrín Fjeldsted ætluðu að ræða við starfsfólk í tveimur mötuneytum, annars vegar starfs- fólk hótelsins og hins vegar skrif- stofufólk Flugleiða. „Þessar kosningar eru mikil- vægar á marga lund,“ sagði Davíð Oddsson í inngangsorðum sínum. „Annars vegar eiga borgarbúar kost á heilsteyptri stjórn sjálf- stæðismanna, eða fjögurra flokka vinstri stjórn." Sagði Davíð kvennaframboðið til vinstri við Alþýðubandalagið, og að það mundi eflaust ganga til liðs við hina vinstri flokkana þrjá að kosningum loknum, ef sjálfstæð- ismenn næðu ekki meirihluta. Davíð sagði nokkur mál myndu ráðast af úrslitum þessara kosn- inga. Það væri síðasti möguleiki nú að koma í veg fyrir að byggðin yrði færð upp til heiða, á snjó- þungt og gegnumsprungið land í 130 metra hæð yfir sjávarmáli, Rauðavatnssváeðið. Ef vinstri meirihlutinn yrði ekki felldur nú, yrði aldrei komið í veg fyrir byggð þar efra, og sagði Davíð að aðal- holræsið yrði 50—60 milljónum dýrara en ef byggt yrði meðfram ströndinni. Hann ræddi einnig um fasteign- agjöld og leigu- og lóðamál, og sagði í því sambandi, að fram- sóknarmenn, sem nú lofuðu skattalækkunum, hefðu látið það verða sitt fyrsta verk á valdastóli að hækka fasteignagjöld á borg- arbúa, og ýmsar aðrar álögur. Þeir hefðu jafnan verið fremstir í flokki gegn lækkunartillögum sjálfstæðismanna. Frambjóðendurnir voru spurðir um ýms mál á fundinum með hót- elstarfsfólkinu, m.a. hvort ekki væri hægt að láta strætisvagna ganga að hótelinu, um lóðamál, fjármál o.þ.h. Davíð Oddsson sagði að Reykjavíkurborg bæri skylda til að hefja strætisvagna- þjónustu að hótelinu, fyrir starfs- fólk Flugleiða og hótelgesti. Hann sagði að þessi vinnustaður væri svolítið út úr og væri því meiri nauðsyn á strætisvagnaþjónustu þangað. Spurt var um hvort borgin fengi eðlilegar greiðslur fyrir þá þjón- ustu sem Seltirningar fengju frá Reykjavíkurborg. Davíð sagði að almennt séð nytu íbúar nágranna- byggðanna mikils af Reykjavík- urborg, og högnuðust þessir aðilar því af sambýlinu við borgina, þótt ekki væru þeir baggi á borginni. Þannig væru sundstaðirnir greiddir niður um 50—60%, fjórar milljónir króna af útsvarspening- um Reykvíkinga hefðu verið grei- ddar til Leikfélags Reykjavíkur á síðasta ári, einnig bæri borgin hluta af kostnaði Sinfóníu- hljómsveitarinnar. Davíð sagði Dagur í lífi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.