Morgunblaðið - 18.05.1982, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ1982
41
Páll Gíslason á fundi með starfsmönnum Pósts og síma.
Katrín Fjeldsted spjallar við fólkið í Sjálfsbjargarhúsinu í Hátúni 12.
Ragnar Júliusson og Guðmundur Ilallvarðsson rcða við starfsfólk Vita- og hafnarmálaskrifstof-
unnar á Seljavegi.
Vegagerðm gerir
tillögur um úrbæt-
ur á Ó-vegunum
SAMHEITIÐ Ó-vegur hefur verið
notað um vegakaflana um Olafsvík-
urenni, Óshlíð og Ólafsfjarðarmúla.
I>essir staðir eiga það sameiginlegt,
að vegur fer þar um skriður og
kletta og liggur mjög undir áföllum
vegna snjóflóða, skriðufalla og
grjóthruns.
Þó að þessir vegir hafi verið
settir undir einn hatt á þennan
hátt eru aðstæður þó nokkuð
breytilegar, segir í fréttabréfi
Vegagerðarinnar.
Vegir um Enni og Óshlíð liggja
lágt og snjóþyngsli á þeim ýkja
mikil. Er þeim haldið opnum
flesta daga ársins, og þá einnig
þegar hætta frá umhverfi er mest.
Umferð um þessa vegi er tiltölu-
lega mikil, um 300 bílar á dag yfir
allt árið, og slys^tíðni mikil eða
3—4-föld meðalslysatíðni á þjóð-
vegakerfinu. Eru þessir vegarkafl-
'ar þar með komnir í hóp með
hættulegustu vegum landsins.
Vegur um Múla liggur hins vegar
nokkuð hátt og snjóþyngsli á hon-
um mikil. Er vegurinn að jafnaði
lokaður rúmlega einn mánuð á ári
af völdum snjóa, og eru þá einung-
is taldir með heilir dagar. Við
þetta bætist álíka langur tími með
lokun hluta úr degi vegna snjóa,
snjóflóða eða ofanhruns. Slysa-
tíðni er nálægt meðallagi, en í því
sambandi ber að hafa í huga, að
vegurinn er oft lokaður af snjó
þegar hætta er mest. Vegna að-
stæðna verður snjóbílum ekki
komið við í Múla og liggja því
samgöngur á landi alveg niðri þeg-
ar vegurinn er lokaður.
Þeir sem háðastir eru samgöng-
um um þessa vegi hafa lengi bent
á þær hættur, sem blasa við veg-
farendum, og knúið á um endur-
bætur. Samgönguráðuneytið
óskaði eftir því við Vegagerð ríkis-
ins, að hún léti gera áætlun um
framkvæmdir til að draga sem
mest úr hættu fyrir vegfarendur.
Hófst Vegagerðin þegar handa um
rannsóknir og athuganir. Naut
hún til þeirra ráðgjafar ýmissa
sérfræðinga, innan lands og utan,
auk síns eigin starfsliðs.
Þessi undirbúningur er mis-
jafnlega langt kominn fyrir ein-
staka vegarkafla, en þó það langt í
heild að fyrir liggja tillögur Vega-
gerðarinnar um lausnir, sem hún
mælir með til að draga úr hættu
fyrir vegfarendur á umræddum
vegum. Þær tillögur eru sem hér
segir:
Ólafsvíkurenni:
Byggður verði nýr vegur í fjöru
neðan Ennis á um 3 km kafla, þar
af um 1,7 km, sem verja þarf
ágangi sjávaröldu. Núverandi vegi
verði haldið til að taka á móti
grjóthruni og draga úr snjóflóð-
um. Kostnaður áætlaður 46 m. kr.
á verðlagi í ágúst 1981.
Óshlið:
Núverandi vegur verði endur-
byggður með sérstöku tilliti til
snjóflóða og ofanhruns. í kostnaði
er m.a. innifalin bygging vegþekja
á fjórum helstu snjóflóðastöðun-
um, en þeir hafa um helming allra
skráðra snjóflóða í Óshlíð undan-
farin sex ár. Kostnaður er áætlað-
ur 60 m.kr.
Ólafsfjarðarmúli:
Byggð verði jarðgöng 2,5 km
löng undir Múlann, og vegur
endurbyggður beggja megin ganga
með tilliti til aukins öryggis gegn
snjóflóðum og ofanhruni. Kostn-
aður er áætlaður 80 m.kr. Þess
skal getið, að þörf fyrir rannsókn-
ir er hér mest og því undirbúning-
ur skemmst á veg komin.
likamsrhtin
f i TjS LAUGAVEGI59. SÍM116400
[ 1 * * 11 | Kjallari Kjorgarðs
Við þurfum ekki að fara langt til að óska
íslandameiaturunum í vaxtarrækt til ham-
ingju. Þau eru bæði leiðbeinendur
hjá UKAMSRÆKTINNI.
Ef þú átt þér leynda drauma eða óskir gagn-
vart því aö bæta eigin líkama, þá snúðu þér
til okkar. Hjá okkur ert þú í öruggum hönd-
um.
íslandsmeistararnir í vaxtarrækt, þau Hrafn-
hildur Valbjörnsdóttir og Guðmundur Sigurðs-
son, leiðbeina og veita persónulegar ráðlegg-
ingar í vaxtar- og líkamsrækt.
Hinir reyndu leiöbeinendur, Gústaf Agnarsson
og Finnur Karlsson, eru einnig til staöar og
gefa alla þá ráögjöf sem þeim er unnt í sam-
bandi viö líkamsþjálfun, megrun, mataræöi
o.fl.
Ef þú hefur áhuga á:
Að þjálfa þig í vaxtarrækt,
að stunda líkamsrækt eða losa þig við offitu,
að búa þig undir aðrar íþróttir,
aö styrkja þig,
að losna við cellulite (staöbundin fita),
þá snúöu þér hiklaust til okkar.
Læknir staöarins er reiðubúinn meö ráölegg-
ingar þegar þörf er á. Sérhannaöir matseölar
fylgja megrunar- og cellulite-kúrnum.
Sérprentaðar uppl. varöandi meöferð á cellu-
lite og offitu.
Æfingaaðstaða eins og hún gerist best.
Vatnsnudd — Gufuböð — Solarium-samlokur
Allt þetta er innifalið í mánaöargjaldinu.
Opið fyrir bæði kynin mánud. til föstud. frá kl.
07.00 til kl. 21.30.
Laugardaga og sunnudaga frá kl. 10.00 til
14.30.