Morgunblaðið - 18.05.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ1982
45
Reidar G. Alberts-
son — Minning
Kveðja frá bekkjarsystkinum
Vorið 1947, rétt um sama leyti
og Hekla byrjaði að gjósa, hafði
samband við mig ungur maður,
jafnaldri minn, og sagði að dr.
Broddi Jóhannesson hefði bent sér
á að tala við mig. Maðurinn var
heldur lægri en í meðallagi, frekar
þrekinn, dökkhærður og fríður
sýnum. Hann virtist vera svolítið
feiminn, alvörugefinn og áhyggju-
fullur. Hér var kominn Reidar G.
Albertsson. Og áhyggjurnar stöf-
uðu af því að hann ætlaði að
þreyta inntökupróf í 2. bekk
Kennaraskólans þá um vorið og
taldi sig vera mjög fákunnandi til
þess. Erindið á minn fund var að
biðja mig að kenna sér reikning og
íslensku.
Ég var undrandi á því að nokkur
maður skyldi benda á mig sem ís-
lenskukennara, á hinu var ég
kannski ekki eins hissa þó á mig
væri bent sem líklegan stærð-
fræðikennara. Við Reidar áttum
að gangast undir sama próf og
hann kom til mín í kjallaraher-
bergið á Egilsgötu 20, þar sem ég
bjó þá. Ég reyndi að kenna honum
allt um íslensku, eða það sem ég
þóttist hafa lært um veturinn, og
sama var að segja um stærðfræð-
ina. Ég hef kennt nokkuð mörgum
um ævina, en betri nemanda en
Reidar hef ég ekki haft. Og þetta
vor tengdust á milli okkar vin-
áttubönd, sem hafa haldist allt til
þessa, en nú hefur dauðinn sett
strik í reikninginn. Reidar stóðst
prófið og um haustið settist hann
á skólabekk með okkur, sem áttum
svo eftir að verða módel 1950 frá
Kennaraskóla Islands.
Nú var Reidar ekki sami alvöru-
gefni maðurinn og um vorið. Hann
var brosmildur og skemmtilegur,
kunni vel að segja frá og var lag-
inn að finna upp á ýmsum
skemmtilegheitum til þess að
auðga og bæta tilveruna. Það er
margs að minnast þegar litið er til
baka og kveðjustundin er runnin
upp. Það var oft kátt í horninu þar
sem hann Reidar sat og á bóka-
safninu, sem var í litlu kjallara-
herbergi í gamla Kennaraskóla-
húsinu. Ég minnist skólaferða-
lagsins norður í land 1950 sem
einna skemmtilegustu daga ævi
minnar. Þá höfðum við nýlokið
prófi frá Kennaraskólanum og
áttum lífið framundan. Reidar lá
ekki á liði sínu við að gera ferðina
ógleymanlega. Minningarnar
streyma upp í hugann, skógræktin
í Haukadal og afmælisferðirnar,
sem við bekkjarsystkinin höfum
farið í á fimm ára fresti. Alls stað-
ar hefur Reidar verið hrókur alls
fagnaðar. 1975 þegar við fórum
inn á Þórsmörk, þá var heilsa
hans mjög tekin að bila, en samt
kom hann með og hann hafði
sannarlega ekki gleymt því að
vera skemmtilegur.
Þegar Reidar varð fimmtugur 1.
júlí 1978, átti ég leið til Reykjavík-
ur. Ég ætlaði að líta inn hjá hon-
um og óska honum til hamingju
með daginn. Ég greip í tómt, þau
hjónin höfðu farið eitthvað út
fyrir bæinn. Síðdegis þegar ég
kom heim voru þau stödd heima
hjá mér. Þau dvöldu hjá okkur
hjónum fram eftir kvöldi og við
rifjuðum upp gömul kynni. Það
fylgdi því einhver sérstök hlýja, að
hann skyldi einmitt heimsækja
mig á fimmtugasta afmælisdag-
inn sinn.
1980 fórum við skólasystkin í
ferðalag um Sléttuhrepp nyrst og
vestast á Vestfjarðakjálkanum, en
þar voru heimaslóðir og æsku-
stöðvar Reidars. Sléttuhreppur
fór í eyði rétt eftir 1950, en Reidar
og hans fjölskylda héldu tryggð
við gömlu heimaslóðirnar og héldu
við íbúðarhúsi og verslunarhúsi á
Hesteyri og dvöldu þar flest sum-
ur í fríum. En nú var Reidar orð-
inn svo farinn að heilsu, að hann
gat ekki komið með. Að því var
mikill söknuður. Við komum heim
að húsinu þar sem fjöiskylda hans
bjó í og fengum okkur sæti í hlað-
varpanum og snæddum nestið
okkar. Það vantaði bara hann
Reidar. Við komum líka í gömiu
búðina og að minnisvarðanum þar
sem gamla kirkjan stóð. Þangað
hefur Reidar sótt kirkju á helgum
dögum þegar hann var lítill. Reid-
ar var alla tíð mjög trúhneigður
og starfaði mikið í KFUM.
Ég vil svo fyrir hönd okkar
hjóna og allra bekkjarsystkinanna
þakka Reidari fyrir samfylgdina
og óska honum alls hins besta á
nýjum vegum. Þá viljum við votta
konu hans, móður, systkinum og
frændum samúð okkar. Guð blessi
ykkur öll.
F.h. bekkjarsystkina úr Kenn-
araskólanum,
Markús Runólfsson.
Amerisk
gróóurhús
Florada-húsin hafa
ýmislegt fram yfir
venjuleg gróöurhús
t.d.
1. Þau eru boga-
dregin og taka
þess vegna betur
vind og snjó.
2. Álprófílar eru í
heilu lagi frá mæni
og ofan í jörð.
3. Sterkari hús
30—35% meira
magn af áli í prófíl-
um.
4. Hærri en venjulegt
er, sem gefur meiri
birtu og þægilegra
að vinna í.
5. Gagnsætt acryl-
gler í bogum, ann-
ars gler.
6. Mjög auðveld í
samsetningu.
Fyrirliggjandi í stærðunum 8x10 fet
— 8x12 fet og 10x12 fet.
Sólstofa
eða btómaskáli
Þessi hús eru fyrir-
liggjandi í stærðun-
um 8x8 fet — 8x12
fet 10x12 fet og
12x12 fet. Tvær
stærri stærðirnar eru
fáanlegar með tvö-
földu gleri.
Gísli Jónsson & Co hf.,
Sundaborg 41, sími 86644.
Frá kjörstjórn
Bessastaðahrepps
Vegna framkominnar óskar um hlufallskosningu í
sveitarstjórnarkosningum í Bessastaðahreppi 26.
júní nk. skal bent á, aö frestur til aö skila framboðs-
listum er til 25. maí nk. Kjörstjórn veröur viö í Bjarna-
staðaskóla, þriöjudaginn 25. maí kl. 22.00 til 24.00.
Kjörstjórn Bessastaðahrepps, 16. maí 1982
Valgeir Gestsson,
Gunnar Stefánsson,
Gunnar Halldórsson.
Sameiginleg verk-
fallsstjórn f dag
á vegum:
Málarafélags Reykjavíkur,
Múrarafélags Reykjavíkur,
Sveinafélags bólstrara,
Sveinafélags húsgagnasmiöa,
Sveinafélags pípulagningamanna og
Trésmiðafélags Reykjavíkur
hefur aðsetur sitt aö Suðurlandsbraut 30, 2. hæð.
Síminn er 39180.
FÉLAGSMENN FJÖLMENNIÐ Á VERKFALLSVAKTINA
Verkfallsstjórnin.
_____'■JF): :
Bifreiðarákjördag
D-listann vantar fjölda bifreiða til aksturs frá hin-
um ýmsum bifreiðastöðum D-listans á kjördag.
Frambjóöendur heita á stuðningsmenn listans að
bregðast vel við og leggja listanum liö m.a. með
því að skrá sig til aksturs á kjördag 22. maí.
Vinsamlegast hringiö í síma 82900. Skráning bif-
reiða fer einnig fram á skrifstofum hverfafélag-
^ anna._______________^
11-listinn
Tölvuskólinn
Skipholti 1
sími 25400
Tölvunámskeið
Notendanámskeið
Ný 10 daga námskeiö I meöferö tölva eru aö
hefjast.
Námskeiðin eru ætluð fyrir starfsmenn og stjórn-
endur fyrirtækja, svo og einstaklinga, sem hafa
áhuga á því að afla sér starfsmenntunar á þessu
sviði.
Kennt verður eftirfarandi m.a.:
Að færa bókhald og reikna laun, skrifa út reikn-
inga og halda utan um lager með tölvu, einnig aö
gera áætlanir, geyma og finna upplýsingar og
skrifa skýrslur og bróf.
Viö kennsluna eru notuö 8 Commodore-tölvukerfi,
sams konar og eru í notkun hjá fjölda fyrirtækja út
um land allt.
Kennsla fer fram kl. 9—12 fyrir hádegi.
Æfingatímar á kvöldin eftir þörfum undir stjórn
leiðbeinenda. Reyndir leiðbeinendur.
Innritun í síma 25400