Morgunblaðið - 18.05.1982, Síða 40
Síminn á afgreiðslunni er
83033
Jflor£unblaí>ií>
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
ÞRIÐJUDAGUR 18. MAl 1982
Vaxandi órói
á vinnumarkaði:
„Ráðherra skilur
ekki neyðarástandið“
- segir talsmaður hjúkrunarfræðinga - Samning-
ar flestra launþega runnir út - Byggingarmenn í
verkfall í dag - Frekari aðgerðir í næstu viku -
Verkföll á veitingahúsum og hótelum um helgina
IVflKIL óvissa er nú framundan á
vinnumarkaðnum, og greinilegt er
að aukin harka er að færast i baráttu
hinna ýmsu starfshópa fyrir grunn-
kaupshækkunum. Hjúkrunarfræð-
ingar hafa sagt upp störfum á helstu
sjúkrahúsum landsins, bygginga-
menn eru í verkfalli í dag, og hafa
boðað frekari verkfallsaðgerðir í
næstu viku. Þá hafa tæknimenn hjá
Kíkisútvarpinu ákveðið að virða að
vettugi boð fjármálaráðherra, um
þriggja mánaða frest á uppsögnum.
Munu þeir þvi leggja niður störf í
næsta mánuði eins og þeir hafa boð-
að. Einnig hafa framreiðslumenn og
starfsfólk á veitingahúsum boðað
verkfallsaðgerðir nú um helgina.
Fjármálaráðherra og vinnuveit-
endur hafa lýst því yfir að ekki sé
svigrúm til grunnkaupshækkana nú,
en á sama tíma hefur verið samið
við hjúkrunarfræðinga á Selfossi og
í Neskaupstað um fjögurra til sjö
launaflokka hækkanir. Allir samn-
ingar Alþýðusambands íslands og
Viimuveitendasambands íslands
eru runnir út, og samningar ríkisins
og BSRB eru lausir frá og með 1.
ágúst næstkomandi. Þar eru samn-
ingaviðræður ekki hafnar, og ekkert
hefur miðað í samkomulagsátt á
fundum VSÍ og ASÍ. Enn er þess að
geta, að svo virðist, sem „samflot"
innan verkalýðshreyfingarinnar í
komandi kjarasamningum verði
minna en verið hefur, og gerir það
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Sóknar:
„Samningurinn fel-
ur í sér um 10%
meðaltalshækkun
„ÞAÐ URÐU miklar og heitar
umræður á fundinum, en samn-
ingurinn var síðan samþykktur
með 300 atkvæðum gegn 154,
en hann gerir ráð fyrir um 10%
meðaltalslaunahækkun félags-
manna. Sumir fá minna og aðrir
meira,“ sagði Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir, formaður
Starfsmannafélagsins Sóknar, í
samtali við Mbl. um nýgerðan
kjarasamning Sóknar við ríki
og Reykjavíkurborg.
Sóknarfélagar höfðu boðað
vinnustöðvun frá 19. maí nk. hefðu
samningar ekki tekizt, en sl. föstu-
dag var undirritað samkomulag
með venjulegum fyrirvara um
samþykki félagsfundar, eftir sól-
arhringssamningafund.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
sagði aðspurð, að gjörbreyting
hefði verið gerð á flokkaskipan
Sóknarfélaga. „Þá fáum við sam-
kvæmt samningum nú sama álag
og annað starfsfólk á sjúkrahús-
um, eða nánar tiltekið fáum við
19% hækkun á álagi fyrir vinnu,
sem unnin er eftir klukkan 16 á
daginn," sagði Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir ennfremur.
Þá kom það fram hjá Aðalheiði,
að konur, sem starfa í býtibúrum,
eldhúsum, við ræstingu og á
saumastofum, fái samkvæmt hin-
um nýja samningi 7% grunn-
kaupshækkun. „Þessar konur fá
sams konar hækkun og ef þær
hefðu sótt svokallað kjarnanám-
skeið, en þetta hefur verið bar-
áttumál félagsins lengi," sagði Að-
alheiður.
Aðalheiður nefndi ennfremur,
að kjör þeirra sem starfa við
hjúkrun aldraðra, geðsjúkra og
vangefinna, hefðu verið verulega
leiðrétt með þessum samningi og
þá í formi beinna launahækkana.
samningsgerð flóknari og erfiðari.
Ekkert miðaði í samkomulagsátt
á fundi Ragnars Arnalds fjármála-
ráðherra og manna hans með hjúkr-
unarfræðingum í gær, og nýr sátta-
fundur hefur ekki verið boðaður.
Einn talsmanna hjúkrunarfræðinga
segir í samtali við Morgunblaðið í
dag, að fjármálaráðherra og menn
hans „skilji ekki það neyðarástand,
sem ríkir á sjúkrahúsunum í
Reykjavík og þetta snertir þá ekki
mikið". Þröstur Ólafsson aðstoðar-
maður fjármálaráðherra segist á
hinn bóginn „reikna með því að
reynt verði að boða til fundar ein-
hvern tíma, þegar menn telja sig
geta og hafa aðstæður til“ og síðar,
„aðgerðirnar hafa ekki auðveldað
þessa lausn neitt, þessar ólöglegu
aðgerðir".
Fjölmörg félög byggingarmanna
eru í verkfalli í dag og hafa boðað
enn frekari vinnustöðvanir í næstu
viku, fyrst 25. maí og síðan 27. maí
hafi samningar ekki tekist.
Framreiðslumenn, sem eru um
125 talsins á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu, hafa boðað verkfall 22. maí nk.
og síðan aftur 28.-29. maí og Félag
starfsfólks í veitingahúsum, sem
hefur um 700 félaga innan sinna
vébanda, hefur boðað verkfall
21.—23. maí og 28.-29. maí nk. Ef
til þessara verkfalla kemur munu
þau lama alla starfsemi hótela og
veitingahúsa, en í Reykjavík eru öll
hótelherbergi fullbókuð á þessum
tíma.
l.jósmvml Mbl.: Kristján
Það er víðar veðurblíða en á suðrænum sólarströndum þessa
dagana. Þessi unga stúlka á Neskaupstað fækkaði fótum í góða
veðrinu þar eystra og brá sér út í garð með leikföngin sín.
Albert Guðmundsson á Reykjalundi í gær:
Vinstri menn skilja eft-
ir slóð svikinna loforða
Erum reiðubúin að taka upp þráðinn frá 1978, segir Katrín Fjeldsted
„VINSTRI meirihlutinn í Reykjavík
hafði úr 300 milljónum króna meira
fé að spila umfram verðbólgu við
gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 1982
en Sjálfstæðisflokkurinn hafði árið
1978. Þetta eru auknir skattar,
auknar álögur á borgarbúa. Þrátt
fyrir þetta tók meirihlutinn 40 millj-
ón króna lán til að koma fjárhags-
áætlun fyrir þetta ár saman," sagði
Albert (iuðmundsson borgarfulltrúi
á fundi með vistmönnum á Reykja-
lundi í gær. Auk Alberts á fundinum
voru Katrín Fjeldsted og Anna K.
Jónsdóttir.
Albert benti á að í meirihlutatíð
Sjálfstæðisflokksins hefðu um
70% af tekjum borgarinnar farið í
rekstur en 30% í framkvæmdir.
Nú færu hins vegar rúmlega 80%
af tekjum í rekstur, en innan við
20% í framkvæmdir. „Ég tel að í
óefni sé komið í rekstri borgarinn-
ar, það er ekki hægt að rengja
þessar tölur, enda hefur það ekki
verið gert,“ sagði Albert.
Albert gat þess að vinstri meiri-
hlutinn hefði skilið eftir sig slóð
svikinna kosningaloforða á þessu
kjörtímabili, enda endurflyttu
flokkarnir nú loforðin frá 1978.
„Við sjálfstæðismenn bjóðum
fram sterka forystu og það er vel
menntuð og hæf kona í baráttu-
sætinu hjá okkur, Katrín
Fjeldsted. Eg hvet til þess að það
traust sem Sjálfstæðisflokkurinn
naut hjá Revkvíkingum í 50 ár
verði endurnýjað í kosningunum,“
sagði Albert.
Katrín Fjeldsted sagði að
sjálfstæðismenn gengju einhuga
og bjartsýnir til þessara kosninga,
tilbúnir til þess að taka upp þráð-
inn við stjórn borgarinnar þar
sem frá var horfið 1978.
Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins voru spurðir margra
spurninga á fundinum. Meðal
spurninga sem fram komu, var
álit frambjóðenda á kosningaslag-
orðum Framsóknarflokksins um
Albert
Katrin
sölu á Borgarspítalanum og
skattalækkun. Katrín Fjeldsted
sagði að Borgarspítalinn væri
stolt Reykvíkinga og sinnti brýnni
þörf í borginni. Það væri einkamál
framsóknarmanna að vilja selja
eða gefa spítalann. Sjálfstæðis-
menn væru ekki þeirrar skoðunar.
Varðandi skattalækkunarslagorð-
in sagði Albert að sjálfstæðis-
menn hefðu á hverju ári gert til-
lögur um lækkun skatta, en þær
hefðu alltaf verið felldar af meiri-
hlutanum, með Framsóknarflokk-
inn innanborðs. Nú kæmu fram-
sóknarmenn og tækju upp tillögur
sjálfstæðismanna, en engum dytti
í hug að trúa þessum loforðum, því
framsóknarmenn hefðu staðið að
skattahækkunum síðustu fjögur
ár.