Morgunblaðið - 27.06.1982, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ1982
RÆTT VIÐ
JÓN I. BJARNASON
RITSTJÓRA
„Þaö var haustið 1936 að
Landmenn voru í leitum á há-
lendinu fyrir austan Snjóöldu
og smöluöu fé inn með Snjó-
öldufjallagarðinum, að tveir
bændanna koma auga á eitt-
hvað hvítt er reis upp við ham-
ar í klettabeltinu á móts við
Grænavatn. Annar þeirra tek-
ur á sig nokkurn krók til að
huga að þessu. Reyndist þetta
þá vera blásin og veðruð
lendabein úr hrossi og þykir
honum undarlegt að rekast á
þau þarna, svo fjarri manna-
byggð. Hann fer að svipast
betur um þarna og kemur þá
auga á útilegumannakofa und-
ir móbergskletti. Kofarnir
höfðu verið hlaðnir upp við
klettinn sem slútir framyfir
sig á þessum stað og sáust því
alls ekki fyrr en komið var fast
að þeim.
Þetta þótti ákaflega merki-
legur fundur á sínum tíma.
Útilegumannatrúin var búin að
lifa sitt fegursta og fengu því
hreysin að standa óáreitt.
Hefðu þau fundist um þetta
fyrir síðustu aldamót hefðu
þau örugglega verið jöfnuð við
jörðu því, þá var útilegu-
mannatrúin svo sterk að
sjálfsagt þótti að jafna útilegu-
mannahreysi við jörðu og eyði-
leggja þau til þess að gera úti-
legumönnum erfiðara fyrir um
að hafast við í óbyggðum.“
inu. Dyraumbúnaður er enn uppi-
standandi, rammlega hlaðinn úr
grjóti og mikil steinhella lögð yfir
— hún var heil þegar ég kom
þarna fyrst fyrir tveimur áratug-
um, en síðan hefur hún sprungið í
tvennt en hangir þó ennþá uppi.
Inni í rústinni eru rúmbálkar
hlaðnir úr grjóti. í vestra horni
hreysisins er eldstæði undir
steinboga, og haganlega gert.
Greinilegt er að fyrir ofan eld-
stæðið hefur verið gat upp með
berginu og þaðan hefur reykinn
lagt út og upp með klettinum.
Þarna hefur verið sæmileg að-
staða til að steikja kjöt við eld og
þokkaleg eldunaraðstaða, eftir því
sem þá gerðist.
Eg gæti trúað að í þessu hreysi
hafi fjórir menn getað hafst við
með góðu móti. Það verður að hafa
í huga, að menn byggðu yfirleitt
smátt á þessum tímum — hvað þá
útilegumenn. Þeim veitti ekki af
að nota hitann af hver öðrum enda
brenni af skornum skammti á
þessu landsvæði. Þau útilegu-
mannahreysi sem fundist hafa
voru öll lítil og þröng. Til dæmis
eru til nokkuð góðar lýsingar á
hreysi Fjalla-Eyvindar og Höllu í
Eyvindarkofaveri, sem þau höfð-
ust við í um tíma. Þar voru þau
handtekin, hreysið eyðilagt og þau
færð til byggða. Þau struku svo
aftur til fjalla, en það er önnur
saga.
Móbergskeraldið sem er inni í „skemmunni" hefur verið notað til að
safna vatni er sífelt drýpur niður úr berginu. Ljótnn. iiaiiur óiafæon.
Steinkerald höggvið
úr móbergi
Hitt hreysið, sem er aðeins
norðar við klettinn, er stærra. Það
tel ég víst að hafi verið notað sem
geymsla eða skemma. Þar inni er
mikið steinkerald höggvið úr mó-
bergi. Hefur móbergs steinn all-
mikill verið höggvin til og síðan
holaður að innan. Þetta steinker-
ald hefur greinilega verið notað
sem lekabytta undir ferskvatn
sem stöðugt drýpur þarna úr berg-
inu. Það hafa þeir haft til drykkj-
ar, því vatnið í Túngná sem rennur
þarna skammt frá er kolmórautt
og trúlega ódrekkandi.
En hvaða rök hníga að því að
þarna hafi útilegumenn haft bú-
setu?
„Ég hef grandskoðað þennan
stað og tel mig hafa fundið þau
ummerki að óyggjandi sé að þarna
hafi verið útilegumenn en ekki
veiðimenn eins og sumir hafa
haldið fram. Þjóðminjasafnið
gerði ásamt nokkrum áhuga-
mönnum umfangsmikla rannsókn
þarna árið 1937 og voru hreysin þá
mynduð og teiknuð upp. Þá fund-
ust þarna slitur af ýmsum veiðar-
færum og hafa ýmsir slegið því
föstu að þarna hafi verið veiði-
menn, er stunduðu silungsveiðar í
Veiðivötnum eða jafnvel Stórasjó.
Þegar þessi rannsókn Þjóð-
minjasafnsins fór fram tel ég að
þeim hafi sést yfir þýðingarmikil
atriði varðandi berghöldin. Og nú
komum við að athyglisverðum
hlutum sem ég held að öllum hafi
sést yfir til þessa.
Berghöldin
Skammt norðan við skemmuna,
sem ég talaði um, er dálítill slétt-
UTILEGUMANNA-
HREYSIN VIÐ SNJÓÖLDU
Jón I. Bjarnason sá hreysin við
Snjóöldu fyrst fyrir tveimur ára-
tugum og hefur komið þar oft síð-
an. Hann hefur myndað sér
ákveðnar skoðanir varðandi þau
og telur að útilegumenn hafi hafst
þarna við fyrr á tímum. Blaða-
maður Morgunblaðsins fór fram á
viðtal við Jón um þetta efni en hér
er um merkilegar fornminjar að
ræða og engar sagnir fara af því
hverjir höfðust þarna við eða
hvenær.
Rúmbálkar hlaðnir
úr grjóti
„Það er rétt að ég lýsi hreysun-
um og staðháttum þarna áður en
lengra er haldið", sagði Jón.
„Hreysin eru bæði hlaðin úr grjóti
þannig að einn langveggur þeirra
er bergið sjálft. Með þessu hafa
þeir, er þarna voru að verki, spar-
að sér hleðslu. Greinilegt er að
menn hafa hafst við í öðru hreys-
Jón I. Bjarnason sýnir fólki í Útivistarferð útilegumannabústaðinn við Snjóöldu. Ljósm. iiaiiur óursson.
Séð upp eftir Tungnaá — hreysin eru undir klettinum til vinstri.
Uppdráttur er sýnir afstöðu útilegumannahreysanna í Snjóöldufiall-
garði.
ur völlur þétt upp við bergið, trú-
lega sléttaður af manna höndum.
Þennan völl kalla ég blóðvöllinn,
því ég er alveg handviss um að þar
hefur verið slátrað stórgrípum. Og
ég get fært gild rök fyrir því. Til
hliðar við blóðvöllinn, í svo sem
eins meters hæð er geisiöflugt
berghald, sem mikil vinna hefur
verið lögð í að gera. Þetta berg-
hald er í alltof lítilli hæð til að
skynsamlegt hefði verið að hengja
í það matvæli, því þar kæmist tófa
auðveldlega að þeim. Það er hins
vegar í alveg hæfilegri hæð til að
binda við það stórgripi — og þann-
ig held ég að það hafði verið notað.
í rúmlega seilingarhæð, u.þ.b.
þriggja metra hæð uppi í berginu
yfir blóðvellinum, eru tvö berg-
höld í sömu hæð með um 70 senti-
metra millibili. Þeir sem hafa gert
þessi berghöld hafa orðið að
standa á einhverju við vinnu sína
og hefur það verið margra daga
verk að gera þau. Þessi berghöld
hafa verið notuð til að heisa stór-
gripi upp við slátrun. Reipi hafa
verið þrædd í þessi berghöld, end-
unum brugðið um afturfætur
skepnunnar eftir að hún hefur
verið svæfð og gripirnir síðan
hífðir upp eftir því sem þurfti
meðan þeir voru flegnir og gerðir
til eins og venja er við slátrun.
Haugur vaxinn grósku-
miklum túngróðri
Það er fleira sem sannar að
þarna hefur verið slátrað í nokkuð
stórum stíl. Skammt frá blóðvell-
inum er sérkennilegur hóli eða
haugur u.þ.b. fjórir fermetrar að
stærð. Þessi haugur sker sig al-
gerlega úr umhverfinu þarna sem
er vikur- og sandauðn svo langt
sem augað eygir, því haugurinn er
vaxinn gróskumiklum túngróðri
að sumrinu. Og hvernig stendur á
því að svona vel gróinn hóll skuli