Morgunblaðið - 27.06.1982, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 27.06.1982, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ1982 39 ýmsum tækjum sem smíðuð hafa verið af þessum mönnum, sem hugsanlegt væri að raðframleiða jafnvel í tiltölulega stórum stíl. Sum þessara tækja hafa verið smíðuð við mjög erfiðar aðstæður og uppfyndingamaðurinn orðið að bera allan kostnað sjálfur. Ég hef aldrei vitað til að nokkur maður hafi fengið styrk til að vinna að því að framkvæma hugmyndir sem hann hefur fengið, nema þá fyrir milligöngu stofnunar sem hann er starfsmaður hjá. Og í slíkum tilfellum er það þá gjarnan stofnunin sem á eða eignar sér uppfyndinguna. Mér finnst að hugvitsmenn, sem einbeita sér ár- um saman að því að leysa vanda- mál atvinnuveganna, ættu að minnsta kosti að njóta einhverrar viðurkenningar fyrir störf sín. Að- Viðtal: Bragi Oskarsson Myndir: Guðjón rándýran hugbúnað og tæki sem henta ekki meira en svo til þeirra hluta sem þeim er ætlað, þar sem þau eru oft framleidd með hlið- sjón af öðruvísi framleiðslusniði viðkomandi atvinnuvegs. Við get- um að sjálfsögðu fengið útlend- inga til að hanna og smíða allan flóknari rafeindabúnað fyrir okkur, en það held ég að væri ekki skynsamlegt." Sameind hf. Nú lítur þú á Sameind hf. sem þjónustufyrirtæki fyrir önnur framleiðslufyrirtæki í rafeinda- iðnaði fyrst og fremst. Hversu vel er fyrirtækið í stakk búið til að gegna því hlutverki? „Hvað varðar pöntunarþjónustu erlendis frá á tækjum og hlutum Viðvörunarkerfi fyrir hænsnabú sem Sameind hf. er að hefja framleiðslu á. Til hægri á myndinni eru hitaskynjarar sem tengjast viðvörunarkerfinu sem er til vinstri. eins ein verðlaun eru veitt fyrir uppfyndingar og hönnun hér á ís- landi, en þau eru veitt úr sjóði sem Félag íslenskra iðnrekenda hefur haft veg og vanda af. Ef íslenskur rafeindaiðnaður á að ná sér á strik er ekki vafi á að við verðum að leggja meiri rækt við vaxtarbrodd hans, sem eru hugvitsmennirnir. Við getum varla haldið áfram að flytja inn til rafeindaiðnaðar held ég að okkur hafi tekist að standa okkur sem þjónustufyrirtæki, þótt auð- vitað verði viðskiptavinir okkar að dæma um það. Okkur hefur tekist að ná samningum um efnisútveg- un við fyrirtæki sem eru leiðandi á sviði rafeindaiðnaðar og treystum okkur til að útvega vörur frá þess- um fyrirtækjum með tiltölulega stuttum fyrirvara. Þá höfum við Ólafur Sigurðsson lóðar einingar á prentrás eftir teikningu. komið upp allstórum lager af al- gengustu hlutum og hefur sá lager farið sífellt stækkandi með árun- um.“ Silkiprentrásir „Hvað framleiðslu prentrása, sem eru uppistaðan í öllum raf- eindatækjum, varðar getum við hins vegar ekki veitt jafn góða þjónustu og þyrfti. Við getum að vísu látið gera silkiprentaðar prentrásir erlendis fyrir við- skiptavini okkar, en eins og ég sagði getum við ekki framleitt þær sjálfir. Þær prentrásir, sem við framleiðum, eru auðvitað vel nothæfar í flest rafeindatæki, en hér er um gamla tækni að ræða sem hvað úr hverju fer að teljast úrelt. Sérstaklega kemur þetta til álita þegar um er að ræða prent- rásir í tæki sem ætlunin er að framleiða í miklu magni og til sölu erlendis — í slíkum tilfellum eru silkiprentrásir verulega hag- kvæmari auk þess sem auðveldara verður að lóða tækið. Ég tel að við setjum okkur í hættu með því að verða alveg háðir útlendingum um gerð prentrása og tel alveg nauð- synlegt að fullkominn tækjakost- ur til framleiðslu á þeim sé til í landinu. Fyrir utan þessi verkefni er Sameind hf. umboðsaðili fyrir Jostykit í Danmörku, en þetta fyrirtæki framleiðir fjölmörg raf- eindatæki sem seld eru ósamsett. Þessi tæki (kit) eru svo mörg að of langt mál væri upp að telja — allt frá mjög einföldum upp í mjög flókin rafeindatæki — og svo eru alltaf að bætast við fleiri. Skólar um allt land hafa keypt mikið af þessum tækjum hjá okkur fyrir unglinga sem valið hafa sér raf- eindafræði sem valgrein og einnig til tómstundastarfa. Einnig setj- um við þessi tæki saman fyrir viðskiptavini sé þess óskað og var nýlega ráðinn starfsmaður til fyrirtækisins sem annast slíka samsetningarvinnu. Þá erum við einnig umboðsaðilar fyrir tölvur, jaðartæki og fjartengibúnað en eftirspurn eftir þessum tækjum er mjög mikil. Hér er um bandarísk tæki frá Zenith Data System og Micom að ræða. Við höfum líka í verslun okkar blöð og bækur um rafeindatækni og er það orðið töluvert safn.“ Rafeindastýringar Svo eru einnig framleidd nokkur rafeindatæki hér hjá Sameind hf. „Já, við raðframleiðum í tiltölu- lega litlu magni nokkur tæki sem við höfum sjálfir hannað. Við hönnuðum t.d. og smíðuðum ljósa- stýringu á sínum tíma fyrir Leik- félag Kópavogs og þótti hún reyn- ast það vel að fleiri leikfélög vildu fá hana, og höfum við nú afgreitt sjö ljósastýringar af þessari teg- und. Þessar ljósastýringar fást af nokkrum gerðum með sex til tólf rásum. Þá hönnuðum við og smíðuðum nýlega sérstaka þvottastýringu fyrir Þvottahús ríkisspítalanna og hefur hún reynst vel. Þá höfum við hannað og smíðað ýmsar teg- undir af viðvörunarkerfum, t.d. viðvörunarkerfi fyrir hænsnabú — slík kerfi hafa t.d. verið sett upp í Holtabúi, Ásmundarstöðum og einnig hjá Nesbúi á Vatns- leysuströnd. Viðvörunarkerfið fylgist stöð- ugt með rafkerfi búsins og hita- stigi á mörgum stöðum samtímis. Þó ekki sé komin veruleg reynsla á þessi viðvörunarkerfi ennþá, telj- um við að okkur hafi í þessu til- felli heppnast að hanna kerfi sem kemur að verulegum notum og eigi framtíð fyrir sér. Þá væri hægt að hugsa sér að svipað viðvörunar- kerfi gæti komið að gagni í fleiri búgreinum. T.d. mætti smíða til- tölulega einfalda tölvustýringu sem fylgdist með heyverkun í hlöðum og varaði við ef stefndi í heybruna. Þá höfum við einnig hannað og smíðað viðvörunar- og stýrikerfi fyrir loftræstingar sem sett hafa verið upp víða um land. Einnig höfum við hannað og fram- leitt þjófavarnarkerfi — bæði fyrir fyrirtæki og heimahús." Hefur fiskiðnaðurinn orðið útundan? „Eins og þú sérð á þessari upp- talningu eru tækifærin allt að því ótæmandi í rafeindatækni. Það hlýtur því að teljast undarlegt hversu lítil rækt hefur verið lögð við þennan atvinnuveg í heild, sér- staklega þegar litið er á hversu mikill árangur hefur náðst á ein- stökum sviðum þrátt fyrir erfið skilyrði. T.d. hefur fiskiðnaðurinn, sem er einn aðalatvinnuvegur þjóðarinnar, næstum alveg farið á mis við vinnuhagræðingu sem unnt væri að ná með rafeindabún- aði. Ég tel hiklaust að á því sviði séu miklir möguleikar fyrir raf- eindavæðingu sem við ættum að kanna nánar." — bó. Er hængur á ráðí pínu C Eða eru fiármálin í góðu lagi? Þjónusta ráðgjafans í Útvegsbankanum stendur öllum viðskiptamönnum hans til boða, og hún veitist þeim ókeypis. Nánari upplýsingar á öllum afgreiðslustöðum bankans. ÚTVEGSBANKINN Einmitt bankinn fyrir þig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.