Morgunblaðið - 27.06.1982, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1982
33
BLAÐBURÐARFOLK
ÓSKAST
Vesturbær
Skerjafjöröur
sunnan flugvallar II.
Úthverfii
Frá aðalfundi Hins íslenzka kennarafélags, fráfarandi formaður Jón Hnefill Aðalsteinsson fremst á myndinni.
Vinnudeilusjóður stofnað-
ur innan kennarafélagsins
Fulltrúaþing og aðalfundur
Hins íslenska kennarafélags
var haldinn að Hótel Esju
dagana 11. og 12. júní síðast-
liðinn. Þingið sóttu um 60
fulltrúar víðs vegar að af
landinu auk gesta innlendra
og erlendra.
Helstu verkefni þingsins auk
venjulegra aðalfundarstarfa
voru kjaramál, réttinda- og
menntunarmál kennara svo og
samstarf við önnur kennarafé-
lög innlend og erlend. Þá var
einnig fjallað um stöðu félagsins
innan Bandalags háskólamanna.
Kjaramál
Mikill urgur var í þingfulltrú-
um og töldu þeir launakjör
kennara algjörlega óviðunandi.
Samþykkt var að stofna vinnu-
deilusjóð innan Hins íslenska
kennarafélags. Ræddar voru
ýmsar aðgerðir sem til greina
gætu komið til að knýja á um
bætt launakjör.
Samstarf við
kennarafélög
Þingið fagnaði þeim ályktun-
um um aukið samstarf, sem
samþykktar voru á þingi Kenn-
arasambands Islands fyrir
skömmu og tók heils hugar und-
ir þær. Stjórninni var falið að
stuðla að samstarfi félaganna á
sem flestum sviðum. Þingið
samþykkti að HÍK skyldi taka
þátt í útgáfu tímarits um upp-
eldis- og menntamál í samvinnu
við Kennarasamband íslands.
Menntunarmál kennara
Fjallað var um skipan kenn-
aramenntunarinnar við Háskóla
íslan.ds. Talið var brýnt að ráð-
inn verði endurmenntunarstjóri
við háskólann hið fyrsta og að
skipaðir verði námsstjórar fyrir
framhaldsskólastigið. Þingið
undirstrikaði mikilvægi Náms-
gagnastofnunar og lagði áherslu
á að henni yrði gert kleift að
taka upp þjónustu við fram-
haldsskólana. Þingið fól stjórn
félagsins meðal annars að sækja
um lögverndun á starfsheitinu
kennari.
Formaður Hins íslenska ára er Kristján Thorlacius, Fjöl-
kennarafélags til næstu tveggja brautaskólanum við Ármúla.
Gnoöarvogur
44—88
/ Upplýsingar
í síma
35408