Morgunblaðið - 29.06.1982, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1982
Skipalyftan hf. í
Vestmannaeyjum vígð:
Skuttogar-
anum Sindra
snarað á land
SKIPALYFTAN hf. í Vestmannaeyj-
um var vígð við hátíðlega athöfn sl.
sunnudag að viðstöddu fjölmenni, en
það var skuttogarinn Sindri sem var
fyrsta skipið sem Skipalyftan tók á
þurrt. Skipalyftan i Eyjum er sú
stærsta á landinu og öll mannvirkja-
gerð í kringum lyftuna á Eiðinu hefur
verið vandlega skipulögð með við-
gerðir og nýsmíði skipa í huga. Skipa-
lyftan í Eyjum lyftir 950 tonnum og
það var ævintýralegt að sjá skuttogar-
ann vera kominn upp á bryggju i lyft-
unni á skammri stund. Jón I. Sigurðs-
son, hafnsögumaður og fyrrverandi
formaður Hafnarstjórnar, flutti
vígsluræðuna, en hann lét fyrir
skömmu af störfum i Hafnarstjórn
eftir áratugastarf. Afhenti hann Njáli
Andersen, vélsmíðameistara og
stjórnarmanni Skipalyftunnar, lykla-
völdin að mannvirkinu.
Bæjarsjóður Vestmannaeyja
festi kaup á Skipalyftunni haustið
1972, eftir að bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar ákvað að hætta við kaup á
skipalyftu frá Bandaríkjunum og
Póllandi. Gekk bæjarsjóður Vest-
mannaeyja inn í kaupin, en eldgos-
ið 1973 setti strik í reikninginn og
var lyftan þá flutt frá Eyjum vegna
goshættunnar, en viðræður um
uppsetningu og rekstur voru þá á
byrjunarstigi.
Bæjarsjóður Vestmannaeyja er
eigandi Skipalyftunnar, en vél-
smiðjurnar Magni og Völundur
sameinuðust um stofnun Skipalyft-
unnar hf. ásamt rafiðnaðarfyrir-
tækinu Geisla og er rekstur nýja
fyrirtækisins hafinn í nýjum húsa-
kynnum Skipalyftunnar. Þá er
Fjöldi manns var viðstaddur vígslu Skipalyftunnar í Eyjum. Þarna er Sindri korainn í lyftuna og hífíng hafín.
LjÓHmyndir Mbl. GuðUugur Sigurgeirason
frágengið að Skipaviðgerðir hf.
munu annast trésmíðaþáttinn í
starfi Skipalyftunnar hf. Fram-
kvæmdastjórar Skipalyftunnar hf.
eru Gunnlaugur Axelsson og
Kristján Ólafsson. Verkstjórn við
uppsetningu lyftunnar var í hönd-
um Sölva Friðrikssonar, en Viðar
Aðalsteinsson tæknifræðingur hef-
ur haft umsjón með verkinu af
hálfu Hafnarsjóðs.
Skipalyftan mun taka að sér all-
ar skipaviðgerðir, viðhald, breyt-
ingar og nýsmíði og eitt af fyrstu
verkefnunum verður að fram-
kvæma breytingar á öllum jap-
önsku skuttogurunum í landinu.
Við vígsluathöfnina blessaði séra
Ingólfur Guðmundsson mannvirkið
og meðal ræðumanna var Hjálmar
R. Bárðarson siglingamálastjóri,
sem lýsti ánægju sinni yfir því að
vera viðstaddur þennan stórmerka
atburð í Vestmannaeyjum. Kvað
Hjálmar hagleiksmenn í skipa-
smíðum löngum hafa verið í Eyjum
og minntist hann á skipasmíða-
stöðina Skipaviðgerðir sem fram-
leiðir m.a. margar gerðir af plast-
bátum.
Unnið er að frágangi svæðisins í
kringum Skipalyftuna og innan
skamms verða tilbúnar dráttar-
kerrur sem draga skipin á stæði
meðan unnið er við þau.
— á.j.
Það er kraftur í KR
IBK
Lím og kítti frá
xXo
Van Heusen
Dömu- og herraskyrtur.
Heimsþekkt gæðavara.
Laugardalsvelli
í kvöld kl. 8.
S0
Heiöursgestur okkar er hinn
frægi KR-ingur og forseti
KSI:
Ellert B. Schram.
, »<■ SS-,
0«” 0KKff
TRYGGINGAMIÐSTOÐIN"
AÐALSTR
Ofurkraftur
Afram KR
HÓTEL
ÞJÓNUSTA
SKÚLAGÖTU 30.
simar 23 88 » 2 3388
ótrúleg ending kr