Morgunblaðið - 29.06.1982, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ1982
Akranes:
Heitur vatnsnuddspottur og
sólarlampar við Bjarnalaug
Akranesi, 25. júní.
KFTIR að hitaveiturramkvæmdum
lauk hefur Akurnesingum bætzt við
enn ný heil.sulind, en það er heitur
pottur við Bjarnalaug. I’otturinn er bú-
inn vatnsnuddi, en hiti vatnsins er um
40°. l>á er búið að setja upp sólarlampa
og sólarbekki og komast færri að en
vilja; fvrir eru saunaböð.
38 ár eru nú liðin síðan Bjarnaiaug
var afhent Akranesbae til eignar, en
vinir og frændur Bjarna heitins
Olafssonar fratLitlateig beittu sér
fyrir byggingu sundlaugar á Akra-
i eftir hið hörmulega slys árið
.' 19 er Bjarni drukknaði ásamt
noskrum skipverjum af bát sínum
við lendingu í Teigavör, en skipverj-
ar voru flestir ósyndir. í þá daga var
ekki síður litið á byggingu sundlaug-
ar sem slysavörn en heilsulind.
Sundlaugin, sem ber nafn Bjarna og
var helguð minningu drukknaðra
sjómanna, var formlega opnuð á sjó-
mannadaginn 4. júní 1944.
Það er óhætt að segja að Bjarna-
laug hafi uppfyllt stærstu vonir gef-
enda sinna; bæjarbúar ungir sem
aldnir hafa notið sundkennslu, og
það sem meira er, margir mestu
sundkappar landsins hafa tekið sín
fyrstu sundtök í Bjannalaug, en
laugin hentar einkar vel sem
kennslulaug fyrir yngra sundfólkið.
Eftir að potturinn var tekinn í
notkun hefur sundlaugargestum
stórfjölgað. Fyrsta mánuðinn komu
u.þ.b. 7.500 manns. Nú í dag má
segja að Bjarnalaug sé orðin of lítil
til að þjóna bæjarbúum, en stærð
laugarinnar er 12 'k x 6,75 m.
Á 40 ára afmælisfundi bæjar-
stjórnar Akraness þann 26. jan. sl.
var samþykkt að hefja byggingu út-
isundlaugar á íþróttasvæðinu við
Langasand. Hönnun þeirrar sund-
laugar er á frumstigi og enn margt
óráðið, en stærð og staðsetning
hennar er ákveðin. Hér verður um að
ræða 25m x 12,5 m laug, ásamt bún-
ingsherbergjum, heitum pottum,
gufuböðum, veitingasölu svo og
rúmgóðum og skjólsælum sólbaðs-
pöllum. Einnig er fyrirhugað að
reisa í tenglsum við sundlaugina
iþróttasal, sem einnig myndi þjóna
Grundarskóla. Þegar þessi salur
verður risinn mun koma samskonar
yfirbygging yfir sundlaugina. Þessi
mannvirki koma á og í bakkann fyrir
ofan áhorfendastæði grasvallarins á
íþróttasvæðinu og munu stórbæta
alla aðstöðu til almenningsíþrótta
svo og keppnisíþrótta.
Framkvæmdir munu hefjast, ef að
líkum lætur, nú í haust, en mjög erf-
itt er að sjá fyrir hvenær þeim verð-
ur lokið. Hönnun þessara mann-
virkja verður gerð hjá Verkfræði og
teiknistofunni s.f., Ákranesi, undir
stjórn Magnúsar H. Ólafssonar arki-
tekts. Júlíus
Á myndinni eru María Ellingsen og Benedikt Árnason í hlutverkum sínum.
Okkar á milli frumsýnd í ágúst
Slappað af í heita pottinum
Kvikmyndin „Okkar á milli í hita
og þunga dagsins" verður frumsýnd
í Háskólabíni og Laugarásbíói sam-
tímis þann 14. ágúst næstkomandi.
„Segir myndin frá sæmilega vel
stæðri íslenskri fjölskyldu, sem er á
vegamótum. Krakkarnir eru að fara
að hciman og hjónin því að verða
ein eftir. Lýsir myndin viðbrögðum
bæði eldri og yngri kynslóðarinnar
við þessum tímamótum." sagði
Hrafn Gunnlaugsson er við spurð-
um hann um hvað þessi nýjasta
mynd fjailaði.
Er myndin að einhverju leyti
frabrugðin fyrri myndum þínum?
„Hún er að því leyti nýstárleg
frá minni hálfu, að þessi mynd
gerist mjög víða eins og í hita-
veitulæknum, ráðherrabústaðn-
um, veitingahúsinu Óðali, við
Ljósafossvirkjun og um borð í
þyrlu Landhelgisgæslunnar, svo
dæmi séu tekin. Fyrri myndir
mínar hafa aftur á móti átt sér
stað á einangruðum stöðum,
Blóðrautt sólarlag í Djúpuvík og
Óðal feðranna í Borgarfirði."
Það er líka meiri húmor í þess-
ari mynd. Báðar fyrri myndir
mínar enda í uppgjöf og vonleysi
en þessi mynd gefur pínulitla von
í lokin."
Þú hefur ávalt samið handritið
að myndum þínum sjálfur, auk
þess sem þú leikstýrir, finnst þér
þetta form henta þér vel?
„Mér hefur látið betur að yrkja
út frá kvikmyndaefninu sjálfu en
að breyta bók í kvikmynd."
Nú er verið að leggja síðustu
hönd á „Okkar á milli í hita og
þunga dagsins," ertu kominn með
hugmynd að nýrri kvikmynd?
„Það má segja að það sé margt
sem mig langar til að gera og
hugmyndirnar margar, sem ég
berst við í svefnrofunum kvölds
og morgna. Meðal þeirra er
kvikmynd um áströlsku stelpurn-
ar, sem koma hingað til lands, til
að vinna í fiski."
„Þessa stundina er ég að vinna
að heimildarkvikmyndinni
Reykjavík, Reykjavík, sem fjallar
um daglegt líf borgara í Reykja-
vík og er ég að vinna að þessari
mynd fyrir Reykjavíkurborg.
Þetta verkefni tekur hug minn
þessa stundina, en hvað síðar
verður er ekki gott að segja."
í kvikmyndinni „Okkar á milli í
hita og þunga dagsins" koma
fram lærðir og ólærðir leikarar,
meðal þeirra eru Benedikt Árna-
son, sem fer með aðalhlutverkið,
Andrea Oddsteinsdóttir, Þorvald-
ur S. Þorvaldsson, Sirrý Geirs,
María Ellingsen, Margrét Gunn-
laugsdóttir og Valgarður Guð-
jónsson. Tónlistin er eftir Magn-
ús Eiríksson, Jóhann Helgason,
Egil Ólafsson, Guðmund Ing-
ólfsson, Fræbbblana og Bodies.
útsölu-
markaðurinn
KJÖRGARÐI, LAUGAVEGI 59, KJALLARA,
SÍMI 28640.
Nýjar vörur bætast
við daglega
t.d. peysur — buxur — pils — skyrtur —
kjólar — þykkir bolir — jakkar — úlpur —
ij handklæði og margt margt fleira.
Komið og gerið góð kaup á
úrvals vörum á lágu verði
Stórútsölumarkaðurinn
KJÖRGARÐI