Morgunblaðið - 29.06.1982, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ1982
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1982
29
JMtfgttiiIilafrtíÞ
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunnl 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 120 kr. á mánuöi innanlands. i lausasöiu 8 kr. eintakiö.
Þrýstingur á fram-
sóknarráðherra
Eins og fram hefur komið í fréttum voru þeir
framsóknarráðherrarnir Tómas Árnason í viðskipta-
ráðuneytinu og Olafur Jóhannesson í utanríkisráðuneytinu
háðir upphaflefía andvígir því, að gengið yrði til samnings
við Sovétmenn um almenna efnahagssamvinnu. Fylgdu
ráðherrarnir í andstöðu sinni þeirri afstöðu, sem íslenskar
ríkisstjórnir hafa tekið undanfarin ár til óska Sovétmanna
um slíkan samning. Svo fór þó, að framsóknarráðherrarnir
skiptu um skoðun og hafa nú samþykkt samninginn um
efnahagssamvinnu fyrir sitt leyti. Ríkisstjórnin hefur farið
að tillögu framsóknarráðherranna. Ekkert bendir til, að
Olafur Jóhannesson ætli að verða við eðlilegri ósk sjálf-
stæðismanna í utanríkismálanefnd Alþingis um það, að
rætt verði um þennan efnahagssamning og aðdraganda
hans á Alþingi og undirritun hans látin bíða, þar til eftir
slíkar umræður. Samningurinn verður að öllu óbreyttu
undirritaður síðar í þessari viku, en nú fara fram við-
skiptaviðræður við Sovétmenn í Reykjavík og hingað er
væntanlegur einn af aðstoðarráðherrunum í sovéska utan-
ríkisviðskiptaráðuneytinu.
Framsóknarráðherrarnir tveir hafa ekki skýrt opinber-
lega frá því, hvað valdið hafi stefnubreytingunni hjá þeim.
Þeim er að sjálfsögðu ljóst eins og öllum öðrum, að versl-
unarviðskipti Sovétmanna og íslendinga geta ekki verið
hér í húfi, nema Sovétmenn séu teknir til við að beita
íslenska samninganefndarmenn óeðlilegum þrýstingi,
farnir að rugla saman reitum, og fulltrúar íslands láti
undan ásókninni.
Furðulegt skjal var kynnt í utanríkismálanefnd í gær-
morgun, sem sýnir í hverju þessi þrýstingur á framsóknar-
ráðherrana er fólginn. Undir yfirlýsingu um að samningur-
inn um efnahagssamvinnu muni „auðvelda og treysta
viðskipti okkar við Sovétríkin" og þess vegna skuli hann
„samþykktur eins og hann nú liggur fyrir“ standa þessi
nöfn og titlar: Árni Finnbjörnsson, framkvæmdastjóri hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Gunnar Flóvenz, fram-
kvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar, Sigurður Markússon,
framkvæmdastjóri sjávarafurðadeildar SÍS, Rafn A. Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Norðurstjörnunnar hf., Hjört-
ur Eiríksson, framkvæmdastjóri iðnaðardeildar SÍS, Jón
Júlíusson, deildarstjóri í viðskiptaráðuneytinu, Pétur Ei-
ríksson, forstjóri Álafoss hf., Sig. Orn Einarsson,
skrifstofustjóri Seðlabanka Islands, Þórhallur Ásgeirsson,
ráðuneytisstjóri, og Haraldur Kröyer, sendiherra. Það
kemur ekki fram hvort þessi þrýstihópur sendir bænar-
skjalið með samþykki þeirra samtaka og stofnana, sem við
nöfnin standa. Hins vegar mun það einsdæmi, að þannig sé
staðið að samningsgerð Islands við önnur ríki, sem hér
hefur verið lýst. Er ekki að undra þótt Sovétmönnum detti
ýmsar kröfur í hug í viðskiptaviðræðum, þegar jafn áhrifa-
miklir menn eru reiðubúnir að ganga fram fyrir skjöldu og
vferja hinar sovésku óskir, enda voru framsóknarráð-
herrarnir ekki lengi að gugna.
Flugstöðvarmálið
Ekki færri en þrír utanríkisráðherrar, tveir framsókn-
armenn og einn krati, hafa sagst ætla að byggja nýja
flugstöð á Keflavíkurflugvelli og hefur verið samið við
B;.ndaríkjamenn um, að þeir leggi fram fé í bygginguna.
Oftar en einu sinni hefur komið fram, að á Alþingi er
meirihluti fyrir því, að í framkvæmdirnar verði ráðist.
Flugstöðin er hins vegar strand í ríkisstjórninni. Ólafur
Jóhannesson treystir sér ekki til að fylgja fram vilja Al-
þingis og fá neitunarvaldi kommúnista í málinu aflétt.
Hvernig væri, að áhrifamennirnir, sem mæla „eindregið
með því“ að efnahagssamvinnusamningurinn sé gerður við
Sovétmenn, rituðu næst undir bænarskjal til framsóknar
ráðherranna um flugstöðvarmálið?
PresUstefnan stendur nú yfir að Hólum í Hjaltadal og er aðalumræðuefni hennar Friður á jörð. Biskup fiutti í gær
yfirlitserindi um störf kirkjunnar. Ljósm. Pétur Porsteiiuwon.
Prestastefnan sett aö Hólum í gær:
Skýrsla biskups og erindi
um frið á jörð aðalefnið
llólum, lljaltadal, 28. júní. Frá Pélri ÞorstciiMHyni.
PRESTASTEFNAN HÓFST í dag meö athöfn í Hóladóm-
kirkju kl. 13:30. Flutti þar herra Pétur Sigurgeirsson biskup
yfirlitserindi um hag og störf kirkjunnar frá síðustu presta-
stefnu.
Ræddi hr. Pétur Sigurgeirs-
son biskup hvað hafi helst á
daga kirkjunnar drifið og
greindi frá hvaða prestar hefðu
látið af störfum, hverjir hefðu
látist á árinu, hverjir vígst og
hverjir flust á milli prestakalla.
Sagði hann fyrrihluta síðasta
árs hafa einkennst af kristni-
boðshátíðum sem haldnar voru
heima í héraði í hverju pró-
fastsdæmi fyrir sig og með þátt-
töku kirkjukóra á hverjum stað.
Þá minntist biskup einnig á
hina nýju helgisiðabók sem kom
út kringum síðustu presta-
stefnu. Hefur hún verið í notkun
í eitt ár í mörgum söfnuðum
landsins og bætt úr brýnni þörf
og margt gott hefur komið fram
í reynslu safnaðanna í notkun
hennar.
Eftir kaffidrykkju í Hólaskóla
var gengið í íþróttasal skólans
þar sem skólastjóri bændaskól-
ans á Hólum, Jón Bjarnason,
ávarpaði prestastefnuna og
minnti á að um næstu helgi
verður minnst 100 ára afmælis
skólans. Minnti hann jafnframt
á að Hóladómkirkja ætti ekki að
vera ekkja í túni, minnismerki
eða dauð kirkja, heldur kirkja
sem hugaði að öldnum og mun-
aðarlausum og væri kraftur
hverjum er þangað leitaði og
Hólar væru ævinlega heimili
kirkjunnar hér í Skagafirði.
Þakkaði hann gott samstarf við
kirkjunnar menn þann stutta
tíma sem hann hefði verið að
Hólum.
Síðan var á dagskrá aðalvið-
fangsefni prestastefnunnar:
Friður á jörðu. Fluttu þá inn-
gangserindi þeir dr. Þórir Kr.
Þórðarson prófessor úr Reykja-
vík, sr. Sváfnir Sveinbjarnarson
á Breiðabólstað og dr. Gunnar
Kristjánsson á Reynivöllum. Að
þeim loknum voru almennar
umræður um efnið.
Prestastefnu verður fram-
haldið í dag. Þá verður skipt í
umræðuhópa um efnið Friður á
jörðu, síðan greina hóparnir frá
áliti sínu. Umræður fara fram
yfir hádegi, en eftir hádegi er
aðalfundur Prestafélags íslands
og jafnframt aðalfundur Prests-
kvennafélagsins sem fram fer á
Sauðárkróki. Um kvöldið er síð-
an kvöldvaka í Varmahlíð.
Sr. Sigurður Guð-
mundsson vígður
vígslubiskup
llólum, lljaltadal, 28. júní.
Krá Pélri l»orstt*ins.syni.
í GÆR var sr. Sigurður
Guðmundsson á Grenjað-
arstað vígður sem biskup
hins forna Hólastiftis af
biskup íslands, hr. Pétri
Sigurgeirssyni. Hófst at-
höfnin kl. 14 í Hólakirkju í
aðgerðarlitlu veðri og sól-
skini. Þar sem þessi sunnu-
dagur var trimmdagurinn,
trimmuðu prestar og pró-
fastar frá Hólaskóla til
kirkju ásamt biskupum, ný-
vígðir prestar fyrst og síðan
eftir aldri vigsluþega, þá
vígsluvottar og loks biskup-
ar.
I kirkju leiddi kirkjukór
Grenjaðarstaðarkirkju safnað-
arsöng við undirleik Friðriks
Jónssonar, Haukur Guðlaugs-
son söngmálastjóri lék inn- og
útgönguspil og stjórnaði jafn-
framt kór Grenjaðarstaðar-
kirkju. Pétur biskup vígði sr.
Sigurð að viðstöddum þeim
biskupum tveimur, Sigurbirni
Einarssyni og Sigurði Pálssyni,
vígslubiskupi Skálholtsstiftis.
Vígsluvottar voru prófastar í
Hólastifti, sr. Róbert Jack á
Tjörn, sr. Gunnar Gíslason í
Glaumbæ, sr. Stefán Snævarr á
Dalvík ásamt sr. Pétri Ingj-
aldssyni fyrrum prófasti á
Skagaströnd. Eftir vígslu pred-
ikaði sr. Sigurður Guðmunds-
son og síðan var altarisganga og
loks þjóðsöngurinn sunginn. Þá
héldu menn aftur til skólahúss
Hólastaðar, biskupar í brjósti
fylkingar, þá vígsluvottar og
loks prestar, þeir elstu fyrst og
yngstu síðast. Voru það því þrír
biskupar sem komu til kirkju í
öndverðri athöfninni en fjórir
gengu þeir út úr Hólakirkju að
lokinni athöfn.
Eftir vígsluathöfnina var öll-
um boðið til kaffisamsætis í
skólahúsnæði Bændaskólans að
Hólum. Þar sem um 600 manns
mættu á Hólastað, en Hóla-
kirkja rúmar aðeins um 300
manns, var myndvarpað úr
kirkju yfir í íþróttasal Hóla-
skóla og skólastofur, jafnframt
var hátalarkerfi leitt út úr
kirkju. Gátu menn setið úti í
garði umhverfis kirkju og heyrt
hvað fram fór inni fyrir. Og kl.
17 voru tónleikar í Hólakirkju
þar sem Svava Stefánsdóttir
söng við undirleik Stefáns Yat-
es. Um kvöldið bauð kirkju-
málaráðherra prestum í Hóla-
stifti til málsverðar á Sauð-
árkróki ásamt konum og fáein-
um gestum.
Sr. Sigurður Guömundsson og hr. Pétur Sigurgeirsson í Hóladómkirkju.
Að vígsluathöfninni lokinni söfnuðust biskupar og prestar saman utan við skólann. Fyrir miðri mynd er hinn nývígði vígslubiskup, sr. Sigurður
Guðmundsson og kona hans, Aðalbjörg Halldórsdóttir. Þeim tii hægri handar er sr. Sigurður Pálsson, vígslubiskup og frú Stefanía Gissurardóttir, og
til vinstri handar er dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup og frú Magnea Þorkelsdóttir og biskupshjónin, frú Sólveig Ásgeirsdóttir og hr. Pétur
Sigurgeirsson. Ljósm. Pétur ÞonleiaMa.
Hljómleikar Pólýfónkórsins
í Háskólabíói í kvöld:
Flytur verk ís-
lenskra og er-
lendra tónskálda
í KVÖLD KL. 21:30 verða í Háskólabíói tónlcikar Pólýfónkórsins
ásamt einsöngvurum, einleikurum og hljómsveit undir stjórn Ing-
ólfs Guöbrandssonar. Á tónleikunum verður flutt efnisskrá sú
sem tónlistarfólkið er að leggja upp með í ferð um Spán, en hún
er farin í tilefni 25 ára afmælis Pólýfónkórsins.
Efnisskráin hefur að geyma tón-
list fyrri alda sem og verk tónskálda
þessarar aldar. Byrjað er á Vatna-
músík eftir Hándel og síðan er flutt
kantatan „Befiel dem Engel dass Er
Komm“ fyrir kór eftir Buxtehude.
Þá eru tveir fiðlukonsertar á
dagskrá, sá fyrri eftir Bach og þar
leikur Unnur María Ingólfsdóttir
einleik og sá síðari er eftir Tartini
og er þar Þórhallur Birgisson ein-
leikari. Síðast fyrir hlé eru aríur úr
Messíasi eftir Hándel, „The trumpet
shall sound" og „Halleluja" og syng-
ur þar Kristinn Sigmundsson bassi
einsöng.
Á síðari hluta efnisskrárinnar
eru yngri tónverk. Hið fyrra eru
kaflar úr verki Jóns Leifs, Eddu
oratorium, Ár var alda, Sær og Jörð
og syngja þar einsöng Jón Þor-
steinsson tenór, sem nú starfar í
Amsterdam og var sérstaklega
fenginn til að taka þátt í þessari
söngför, og Kristinn Sigmundsson.
Síðara verkið er eftir franska tón-
skáldið Poulenc, Gloria. Syngur þar
einsöng Nancy Argenta sópran-
söngkona frá Kanada, en nú búsett í
Englandi og var fengin til að taka
þátt í þessum flutningi. Konsert-
meistari er Rut Ingólfsdóttir.
Ljóam. RAX.
Vfir 150 manns taka þátt í hljómleikaferð Pólýfónkórsins til Spánar sem Ingólfur Guðbrandsson stjórnar, en með í för eru einleikarar, einsöngvarar og hljómsveit.
Myndin er tekin á æfingu í Háskólabíói um helgina en í kvöld er efnisskrá Spánarferðarinnar fiutt í Háskólabíói.
Pólýfónkórinn og tónlistarfólkið
allt heldur af stað nk. fimmtudag og
verður sungið í 5 borgum á Spáni,
en þessi hópur tónlistarfólks frá ís-
landi er einn af fleiri atriðum sem
Spánverjar hafa lagt áherslu á að fá
í heimsókn nú meðan heimsmeist-
arakeppnin í knattspyrnu stendur
þar yfir og mikið er um ferðamenn.
I hljómleikaskrá, sem prentuð var
sérstaklega fyrir tónleikaferðina og
hefur að geyma efnisskrá og kynn-
ingu á tónlistarfólkinu, litmyndir
frá íslandi og svipmyndir af starfi
Pólýfónkórsins, ritar forseti ís-
lands, Vigdís Finnbogadóttir, nokk-
ur orð og segir m.a.: „Það er mikil
ánægja að fá að endurgjalda þá fá-
gætu gestrisni og hlýju sem við ís-
lendingar verðum aðnjótandi á
Spáni með því að senda svo virðu-
lega boðbera íslenzkrar menningar
sem Pólýfónkórinn er með vináttu
og þakklætiskveðjur." Tónleikarnir
í kvöld verða sem fyrr segir í Há-
skólabíói og hefjast þeir kl. 21:30.
Gengur vel að hjóla
kringum landið
HJÓLREIÐAFERÐ sú sem Ungmennafélag íslands og Félag islenskra Iðn-
rekenda standa fyrir til kynningar á íslenskum iðnaði undir kjörorðinu
„Eflum íslenskt" hefur að sögn Finns Ingólfssonar hjá UMFÍ gengið mjög
vel.
Síðdegis í gær er Finnur hafði
samband við blaðið var búið að
hjóla til Hafnar í Hornafirði. Átti
að hjóla þaðan áfram til Djúpa-
vogs, og var áætlað að þangað yrði
komið um kl. 04.00. Þegar lagt
verður af stað frá Djúpavogi hafa
verið lagðir að baki tæpir 730 km
af þeim 3.200 sem áætlað er að
hjóla umhverfis landið. Finnur
sagði að milli 700 og 800 manns
hefðu hjólað á þessum þremur
hjólum. Nefndi Finnur að á Vog-
um á Vatnsleysuströnd, Vík í
Mýrdal og Kirkjubæjarklaustri
hefði þátttakan verið mjög góð.
Ennfremur sagði hann að for-
ráðamenn fyrirtækja á þeim
þéttbýlisstöðum, sem hjólað hefði
verið í gegnum, hefðu opnað fyrir-
tæki sín til sýnis almenningi og
áróður hefði verið rekinn með
auglýsingaspjöldum.
Að lokum sagði Finnur að hjólin
hefðu reynst mjög vel; aðeins
tvisvar hefði sprungið og menn
væru bjartsýnir með framhald
ferðarinnar, þar sem nú hefði ver-
ið lögð að baki lengsta dagleiðin.
I dag verður hjólaður 5. hluti
ferðarinnar; frá Djúpavogi til
Norðfjarðar og er það 210 km leið.
Þióðverjinn fékk
30 þús. Kr. sekt
V-ÞÝZKI lífræðingurinn Norman Bretz, sem handtekinn var á Seyðisfirði um
miðjan mánuðinn með 126 fuglaegg, sem hann hugðist smygla úr landi, var í
gær dæmdur í 30 þúsund króna sekt í Sakadómi Reykjavíkur. Níutíu og sex
egg, sem maðurinn hafði tekið, voru gerð upptæk og honum gert að greiða
málskostnað.
Eggin fundust í bifreið líffræð- regla ríkisins tók við rannsókn
ingsins við leit á Seyðisfirði eftir málsinsog Þjóðverjinn var sendur
ábendingu. Hann var úrskurðaður til Reykjavíkur.
í gæzluvarðhald. Rannsóknarlög-