Morgunblaðið - 29.06.1982, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ1982 2 1
Valsmenn tapa kærunni
Boniek meö þrennu:
Góð byrjun hjá
Pólverjum í A-riðli
— ÞAÐ VAR samdóma álit okkar í
dómstólnum að Albert Guðmunds-
son væri ólöglegur í liði Vals, og því
ekkert annað að gera en að dæma
stigin af liðinu og leikinn tapaðan,
sem Albert lék með liðinu. Þau gögn
sem liggja fyrir í málinu sýna glöggt
að Albert er ekki laus allra mála hjá
sínu fyrra félagi, sagði Guðmundur
l’étursoon lögfræðingur er Mbl.
spjallaði við hann í gær. En hann er
formaður dómstóls KRR, sem fjall-
„VALSMENN léku mjög vel fyrstu
30 mínútur síðari hálfleiks, eitt það
besta sem við höfum sýnt í sumar.
Við fengum að minnsta kosti fjögur
góð marktækifæri en við höfðum
ekki menn til þess að nýta þau til
marka. Ég er óánægður með að hafa
tapað leiknum, óánægður með að
tækifærin skuli ekki hafa verið nýtt
en tiltölulega ánægður með hvernig
Valsliðið spilaði þessar 30 mínútur,**
sagði Claus Peter, þjálfari Vals-
manna eftir ósigurinn gegn Víkingi.
„Allir biðu marksins en það kom
ekki — og gæfan gekk í lið Vík-
Youri Sedov:
„Valsmenn
„VAI-SMENN voru óheppnir að tapa
leiknum. Þeir höfðu tækifæri til þess
að skora en við nýttum eitt tækifæra
okkar. Ef gæfan verður okkur hlið-
holl eins og nú, þá verðum við með i
toppbaráttunni. Víkingar munu gera
allt til þess að verja titilinn," sagði
Vouri Sedov, þjálfari Víkings eftir
leik Vals og Víkings í Laugardal.
„Deildin í ár er mjög jöfn og
ógerningur að spá hverjir standa
uppi sem meistarar í haust; auk
Víkings hafa Akranes, Breiðablik
og Eyjamenn sterkum liðum á að
skipa og líklegum til afreka en lít-
ið skiiur á milli. Þá er Valsliðið í
mikilli sókn.“
„Það er nú lítið hægt að segja
um þennan leik. Þetta var mjög
sanngjarn sigur Akurnesinga.
Þeir áttu mörg góð marktækifæri
en við skoruðum úr eina færinu
okkar,“ sagði Magnús Jónatans-
son, þjálfari ísfirðinga, eftir leik-
inn á Akranesi á laugardaginn.
„Það hefur verið einhver deyfð í
okkur í þremur síðustu leikjum, en
FRAKKAR unnu mjög sannfærandi
sigur gegn Austurríki í fyrsta leik
milliriðlanna á HM í knattspyrnu i
gærdag. Úrslit leiksins urðu 1—0
fyrir Frakka og skoraði Genghini
sigurmarkið í fyrri hálfleik. Var
markið óvenjulcga glæsilegt, boga-
skot beint úr aukaspyrnu af rúmlega
30 metra færi. Þurfa Frakkar nú að-
cins að sigra Norður-íra til þess að
komast í undanúrslitin.
Michel Platini var fjarri góðu
aði um kæru ÍBÍ á hendur Val. Leik-
ur sá er ÍBÍ kærði fór fram á Laug-
ardalsvellinum í 5. umferð 12. júní
og sigraði Valur 1—0, en taj>ar nú
báðum stigum sínum til ÍBI. Vals-
menn munu mjög liklega áfrýja
þcssum dómi áfram til KSI. KA hef-
ur líka kært Val vegna leiks liðanna
á Akureyri 16. júní, en það mál hefur
ekki enn verið tekið fyrir. En reikna
má þó með þvi að þar tapi Valsmenn
tveimur stigum til viðbótar.
inga. Leikurinn var ekki góður í
fyrri hálfleik en það lifnaði yfir
honum í síðari hálfleik," sagði
Claus Peter.
— Nú er dómur fallinn í kæru-
málum á hendur Val og 4 stig tek-
in af liðinu.
„Já, en þetta er ekki endanlegur
dómur, á það minni ég. Staða Vals
er vissulega alvarleg en við mun-
um ekkert gefa eftir í baráttunni.
Við munum berjast til að rétta
okkar hlut og ég er bjartsýnn á að
það takist," sagði Claus Peter.
óheppnir“
— Víkingar hafa átt erfitt upp-
dráttar með að skapa sér tækifæri
og athygli hefur vakið að Stefán
Halldórsson, sem er sókndjarfur
miðherji, leikur stöðu miðvarðar.
„Við sköpuðum okkur ekki mörg
færi gegn Val en nógu mörg til
þess að vinna leikinn. Stundum
sköpum við okkur mörg færi,
stundum ganga hlutirnir ekki svo
vel. Það er rétt, að Stefán leikur
stöðu miðvarðar. Stefán er góður
„sweeper"; sterkur leikmaður sem
styrkir vörnina mjög. Ég tel þetta
vænlegast til árangurs og strák-
arnir eru mér sammála," sagði
Youri Sedov.
við rífum það úr okkur á næst-
unni. Við höfum tapað þessum
þremur leikjum og þurfum nú að
fara að sækja á brattann. Deildin
í ár er mjög erfið og við verðum
örugglega í ströggli, en það er eng-
in örvænting í okkar herbúðum,
langt frá því. Ég er ekkert svart-
sýnni nú en í byrjun mótsins,"
sagði Magnús. SH.
gamni í leiknum, sat á vara-
mannabekknum meiddur á fæti.
Stöðu hans tók Alain Giresse og
breytti fjarvera stjörnunnar litlu,
yfirburðir Frakka voru umtals-
verðir og kannski meiri en reiknað
hafði verið með. Friedl Koncilia í
marki Austurríkis hafði nóg að
gera í markinu og í fyrri hálfleik
þurfti hann að verja skot frá þeim
Soler, Genghini, Lacombe og Batt-
ZBIGNIEW Boniek var stjarna
pólska landsliðsins i knattspyrnu í
gærkvöldi er liðið vann sannfærandi
og öruggan sigur á liði Belgíu 3—0, í
milliriðlakeppninni á HM. Boniek
26 ára gamall, sem leikið hefur með
Widzew Lodz í Póllandi skoraði
fyrsta mark leiksins á 4. mínútu.
Lato gaf vel út í vítateiginn og
þrumuskot Boniek small undir
þverslánni og í netið. Stórglæsilegt
mark. Annað mark sitt skoraöi Boni-
ek með skalla á 27. minútu og loks
innsiglaði hann sigurinn á 53. mín-
útu leiksins með marki af stuttu
færi. Þess má geta að þessi knatt-
spyrnustjarna hefur verið keypt af
ítalska knattspyrnufélaginu Juvent-
us á Ítalíu og leikur með þeim á
næsta keppnistímabili.
En Boniek fékk góða aðstoö við
mörkin. Og það var enginn annar en
Grzegorz Lato sem átti stærstan þátt
í undirbúningum. Lato sem í gær var
að leika sinn 100. landsleik fyrir
Pólland átti stórgóðan leik á kantin-
iston, auk þess sem Dominic
Rouchetou brenndi af úr góðu færi
og Genghini átti hörkugott lang-
skot sem fór í stöngina. Didier Six
fékk einnig gott færi en spyrnti
knettinum í hliðarnetið. Soler
hafði misst fyrirgjöfina klaufa-
lega frá sér, en hann var í mun
opnara færi en Six. Austurríkis-
menn áttu vissulega sín augnablik
og hættulegastir voru þeir á 18.
mínútu, er Ettori varði meistara-
iBmmmmmmmmmmmmmm
um og ollu fyrirgjafir hans miklum
usla við belgíska markið. Lato sem
er orðinn 32 ára gamall var ein
skærasta stjarnan í liði Póllands í
HM-keppninni sem fram fór í
V-Þýskalandi árið 1974. Lið Pól-
lands lék mjög vel og jafnframt
skynsamlega gegn Belgiu. Varnar-
leikurinn var sterkur en svo var
beitt skyndisóknum. Samleikur
Pólverja var oft mjög góður og sókn
þeirra beitt. Belgíumenn reyndu
hins vegar um of að brjótast i gegn-
um vörn Pólverja á miðjunni en það
gekk ekki. Rúmlega 30 þúsund
áhorfendur sáu leikinn sem fram fór
á Nou Camp í Barcelona.
Næsti leikur í A-riðlinum fer fram
1. júlí þá leika Sovétmenn gegn
Belgiumönnum. Þann 4. júlí leika
svo Sovétmcnn og Pólverjar. Staða
Pólverja í riðlinum er orðin mjög
sterk. Því að vel er hugsanlegt að
þeir komist áfram í 4. liða úrslitin á
hagstæðari markatölu en Rússar,
skilji lið þeirra jöfn 4. júlí.
lega skot frá Schachner. Sigur-
markið sem áður er getið um skor-
aði Genghini fimm mínútum fyrir
leikhlé.
Síðari hálfleikur var mjög
keimlímur þeim fyrri og ein-
kenndist af yfirburðum Frakka og
Koncilia svífandi hornanna á
milli. Tigana, Giresse og Genghini
höfðu öll völd á vallarmiðjunni og
Austurríkismenn áttu ekkert svar.
Tveir
leikir
á HM
ídag
TVEIR leikir fara fram í milli-
riðlum HM-keppninnar í dag, Ít-
alía og Argentína mætast, einnig
Vestur-I»ýskaland og England.
Flestir veðja á sigur Argentínu
gegn Ítalíu, en hörðustu spá-
menn munu lenda í erfiðleikum
viö að spá um leik Englands og
Vcstur-l»ýskalands.
„Þjódverjar
ekki lakari
en áöur“
„VIÐ BERIJM mikla virðingu
fyrir þýsku leikmönnunum og
þýskri knattspyrnu. Þeir eru að-
eins með einn lcikmann úr lið-
inu sera vann HM-keppnina
1974, Paul Breitner, en það
breytir engu, þeir eru síst lakari
nú en þá. Kerfiö hjá þeim er svo
rótgróið og vel smurt, að nýir
leikmenn smella inn i liðið cins
og raðað sé rétt í púsluspil alltaf
þegar á þarf aö halda,“ sagði
Ron Greenwood, þjálfari enska
landsliðsins, um helgina, en lið
hans mætir Vestur-Þýskalandi í
fyrsta leik liðanna beggja í milli-
riðlakeppni IIM í dag. Leikurinn
fer fram i Madrid.
Enska liðið verður rétt einu
sinni án þeirra Kevin Keegans
og Trevor Brookings, en þeir
eru enn meiddir. Bryan Rob-
son tekur hins vegar stöðu sína
á ný á kostnað GÍenn Hoddles.
Um tíma var talið að Robson
yrði ekki meira með á HM
vegna meiðsla í nára, en hann
virðist 'nafa náð sér. Ken Sans-
om og Terry Butcher taka
einnig stöður sínar í liðinu á
ný, en þeir hvíldu meðan þeir
Phil Neal og Steve Foster
fengu að spreyta sig gegn
Kuwait. Að öðru leyti verður
enska liðið óbreytt.
Þrír þýskir
lykilmenn
eru meiddir
JUPP Derwall, þjálfari Vestur-
Þýskalands, hefur ekki tjáð sig
mikið um leikinn gegn Englandi
í Madrid í dag. Hann hefur hins
vegar staðfest að þrír af lykil-
mönnum hans eigi við meiðsli að
stríða. Það eru þeir Karl Ileinz
Rummenigge, Horst Hrubesch
og Uli Stielike. Hrubesch er
nokkuð öruggur í leikinn, en
hinir tveir eru verr á sig komnir,
báðir með slæma tognun í læri. f
gær var ekki útséö hvort þeir
gætu leikið, Derwall frestaöi
ákvörðun þar um þar til á hádegi
ídag.
Síðast er þjóðirnar mættust
í HM-leik var i Mexíkó 1970.
Þá sigruðu Þjóðverjar 3—2
eftir framlengingu í frægum
leik. Hins vegar hafa Englend-
ingar unnuð 11 af 18 lands-
leikjum þjóðanna frá upphafi,
þrisvar hafa liðin skilið jöfn og
fjórum sinnum hafa Þjóöverj-
ar sigrað. Frægasta viðureign
þjóðanna var hins vegar auð-
vitað árið 1966, er þær léku til
úrslita um HM-titilinn á
Wembley. England sigraði sem
kunnugt er 4—2.
ÞR.
Claus Peter:
Nýttum ekki tækifærin“
„Er ekki svartsýnn“
Frakkar höfðu yfirburði á öllum sviðum
og stigu stórt skref að undanúrslitunum