Morgunblaðið - 29.06.1982, Síða 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ1982
íslandsmet Oddnýjar báru
hæst á afmælismóti ÍR
• Frá keppni í 800 metra hlaupinu á afmælismóti ÍR. Oddur Sigurðsson í
forystu. Á hæla honum koma þeir Gunnar Páll Jóakimsson og Jón Diðriks-
son sem sigraði í hlaupinu. Fyrir aftan Jón má sjá hinn bráðefnilega Guð-
mund Skúlason UÍA.
Ljósm. KÖE.
Lilja setti
met í mflu
STÓRGÓÐUR árangur Oddnýjar
Árnadóttur ÍR á afmælismóti IR í
Laugarrdalnum á laugardaginn yljaði
viðstöddum í nepjunni sem þar var.
Oddný setti íslandsmet í 100 og 400
metra hlaupum og er árangur henn-
ar í 100 metra hlaupi að verða sæmi-
legur á alþjóðlegan mælikvarða,
einkum þó norrænan. Þá er ekki að
i að Oddný getur hlaupið 400
. 'trana allt að sekúndu betur, því
veðráttan var óhagstæð fyrir hring-
hlaupara. En Ijóst er að Oddný er að
komast í ágætt form, og verður fróð-
legt að fyígjast með frammistöðu
hennar í Norðuriandabikarkeppn-
inni, sem fram fer í Reykjavík eftir
tæpar þrjár vikur. Afrek hennar
báru hæst á ÍR-mótinu, en annars
náðist góður árangur í vel flestum
greinum mótsins.
Oddný bætti metið í 100 metr-
um um átta hundruðustu og í 400
metrum um fimmtán hundruð-
ustu, en þar bætti hún sig um
tæpa sekúndu. Hljóp Oddný eink-
um 100 metrana vel, náði góðu
viðbragði, hraðaði sér vel út úr
blokkunum, og spretti síðan rösk-
lega úr spori alla leið í mark.
Oddný átti sjálf metið í 100, en
Sigríður Kjartansdóttir KA í 400.
I 400 metrunum stórbætti Hrönn
Guðmundsdóttir UBK sinn fyrri
árangur, en þar er á ferðinni ung
frjálsíþróttakona í mikiili fram-
för.
Þá var um skemmtilega og
spennandi keppni að ræða í 800
metra hlaupi, þar sem sérstakur
gestur ÍR-inga, Jón Diðriksson
UMSB, sem verið hefur í miklu
stuði í vor, var mættur til leiks.
Oddur Sigurðsson KR leiddi
hlaupið framan af, en fór sér of
hægt til þess að íslandsmetið yrði
í hættu. Enginn var þá svikinn,
því spenna var í hlaupinu allt þar
til á beinu brautinni í lokin.
Hlaupararnir fylgdust þétt að,
voru í einum hnapp þegar 200
metrar voru í mark, en þá tók Jón
forystu, sem hann jók síðan á síð-
ustu metrunum. Gunnar Páll náði
sínu bezta í ár, og Guðmundur
Skúlason UÍA fylgdi vel eftir og
bætti sig um rúma sekúndu.
Jafnframt var hörð barátta í
kringlukastinu, hálfgert senti-
metrastríð milli þeirra Óskars
Jakobssonar ÍR, Erlendar Valdi-
marssonar ÍR og Vésteins Haf-
steinssonar HSK. Óskar sigraði
með 58,78 metra kasti, Erlendur
varð annar með 57,96 metra og
Vésteinn þriðji með 57,88 metra.
Allt er þetta hinn frambærilegasti
árangur. Fjórði maður kastaði yf-
ir 50 metra, Þráinn Hafsteinsson
HSK, sem náði 51,54 metra kasti.
Þá urðu þau tímamót á afmæl-
ismóti ÍR að tveir íslendingar
stukku yfir 5,00 metra í stangar-
stökki. Sigurður T. Sigurðsson KR
sigraði með 5,15 metra stökki og
Kristján Gissurarson KR stökk
5,00 metra slétta, fyrsta skipti
sem hann rýfur þann múr. Sigurð-
ur var himinhátt yfir 5,15, og því
Ijóst að íslandsmetið, sem er 5,20
m, er í bráðri hættu. Eitt ís-
landsmet var sett í keppninni, Sig-
urður Magnússon ÍR setti ungl-
ingamet er hann stökk 4,05 metra.
Sömu hæð stökk Elías Sveinsson
KR.
Loks ber að geta 200 metra
hlaups karla, en þar var einkar
hörð keppni um annað sætið.
Oddur Sigurðsson KR sigraði
nokkuð örugglega, en þrír menn
vildu verða í öðru sæti. Þorvaldur
Þórsson ÍR vann þá viðureign, var
örlítið á undan Vilmundi Vil-
hjálmssyni KR og Sigurði Sig-
urðssyni Á. Vilmundur hljóp
þarna sitt fyrsta keppnishlaup frá
í fyrra og stóð sig því vel, því Þor-
valdur er í miklu keppnisformi og
Sigurður nýkominn úr keppnis-
ferð til V-Þýzkalands.
Af öðrum árangri má nefna
langstökkk Bryndísar Hólm ÍR,
sem óðfluga nálgast sex metra
múrinn. Meðvindur var aðeins yfir
mörkum, og árangurinn því ekki
staðfestur sem Islandsmet. Vé-
steinn Hafsteinsson HSK setti
persónulegt met í kúluvarpinu og
Kristján Harðarson Á er á réttri
leið í langstökkinu. Hann varð þó
fyrir smávægilegum meiðslum í
hástökkinu, sem sett gætu strik í
reikninginn.
ÍR-ingar minntust 75 ára af-
mælis félagsins með þessu móti.
Keppendum og starfsmönnum
voru veittar glæsilegar veifur til
minningar um mótið, og auk þess
sem veittir voru verðlaunapen-
ingar þremur fyrstu í hverri grein,
voru íþróttamenn, sem náðu beztu
afrekum í hlaupum, köstum og
stökkum, verðlaunaðir sérstaklega
með glæsilegum skjöldum. Mótið
tókst í alla staði vel, þótt endilega
þyrfti að byrja að rigna þegar það
hófst. Urslitin á mótinu urðu ann-
ars sem hér segir:
100 m kvenna:
1. Oddný Árnadóttir ÍR 11,92
2. Kristín Halldórsd. KA 12,65
3. Aðalheiður Hjálmarsd. Á 12,93
4. Unnur Stefánsd. HSK 12,94
5. Kolbrún Sævarsd. ÍR 12,98
400 m kvenna:
1. Oddný Árnadóttir ÍR 54,97
2. Hrönn Guðmundsd. UBK 56,64
3. Unnur Stefánsd. HSK 57,36
4. Helga Halldórsd. KR 58,30
5 Berglind Erlendsd. UB 59,8
800 m karla:
1. Jón Diðriksson UMSS 1:51,9
2. Gunnar P. Jóakimsson ÍR 1:52,3
3. Guðmundur Skúlas. UÍA 1:54,0
5000 m hlaup:
1. Ágúst Ásgeirsson ÍR 15:47,6
2. Sighv. D. Guðm.ss. HVÍ 16:33,7
3. Steinar Friðgeirsson ÍR 16:49,6
4. Garðar Sigurðsson ÍR 16:54,8
5. Þórh. Ásmunds. UMSS 17:27,0
6. Ingvar Garðarsson HSK 17:37,9
200 m karla:
1. Oddur Sigurðsson KR 21,98
2. Þorvaldur Þórsson ÍR 22,32
3. Vilmundur Vilhj.ss. KR 22,40
4. Sigurður Sigurðsson Á 22,40
5. Egill Eiðsson UÍA 22,55
6. Jóhann Jóhannsson ÍR 23,65
110 m grind:
1. Þorvaldur Þórsson ÍR 14,85
2. Stefán Þ. Stefánss. ÍR 15,05
3. Þráinn Hafsteinss. HSK 15,67
Stangarstökk:
1. Sigurður T. Sigurðs. KR 5,15
2. Kristján Gissurarson KR 5,00
3. -4. Sigurður Magnússon ÍR 4,05
3.-4. Elías Sveinsson KR 4,05
Kringlukast:
1. Óskar Jakobsson ÍR 58,78
2. Erlendur Valdimarsson ÍR57.96
3. Vésteinn Hafsteinss. HSK 57,88
4. Þráinn Hafsteinsson HSK 51,54
5. Eggert Bogason FH 41,06
Kúluvarp:
1. Vésteinn Hafsteinss. HSK 16,49
2. Þráinn Hafsteinss. HSK 14,95
3. Pétur Guðmundsson HSK 14,86
4. Helgi Þ. Helgason USAH 14,61
Langstökk:
1. Kristján Harðarson Á 7,20
2. Stefán Þ. Stefánss. ÍR 6,85
3. Kári Jónasson HSK 6,84
Hástökk:
1. Unnar Vilhjálmss. UÍA 2,00
2. Stefán Friðleifss. UÍA 1,95
3. Kristján Harðarson Á 1,95
4. Stefán Þ. Stefánss. ÍR 1,90
Hástökk kvenna:
1. Þórdís Gísladóttir ÍR 1,75
2. María Guðnadóttir HSH 1,67
3. -4. Sigríður Valgeirsd. ÍR 1,62
3.-4. Guðrún Sveinsd UMFA 1,62
Langstökk kvenna:
1. Bryndís Hólm ÍR 5,97
2. Kolbrún Rut Stephens KR 5,48
3. Jóna B. Grétarsd. Á 5,27
Kúluvarp kvenna:
1. Guðrún Ingólfsd. KR 13,55
2. íris Grönfeldt UMSB 11,22
3. Margrét Óskarsd. ÍR 9,75
Kringlukast kvenna:
1. Guðrún Ingólfsd. KR 46,54
2. Margrét Óskarsd. ÍR 41,50
3. íris Grönfeldt UMSB 32,40
FJÖRUTÍU manns á öllum aldri
lögðu af stað í Álafosshlaupinu á
sunnudag, og stóðu flestir sig með
ágætum, því það er enginn hægðar-
leikur aö hlaupa rúmlega 13 kíló-
metra á malbiki. Allir virtust hafa
gaman af þátttökunni og lögðu þátt-
takendur sig fram eftir beztu getu,
enda geta menn sigrað þótt ekki
komi þeir fyrstir í mark, því hlaup-
inu er skipt upp í 12 aldursflokka.
Skemmtilegt var að sjá heilu fjöl-
skyldurnar mæta til leiks.
Fyrstur að marki kom Ágúst Ás-
geirsson ÍR og hlaut hann til varð-
veizlu hinn stóra og veglega bikar,
sem Álafoss hf. gaf til hlaupsins.
Einar Sigurðsson UBK veitti Ágústi
harða keppni í rúma 10 kilómetra.
Fyrsta konan að marki var Rannveig
Helgadóttir, 18 ára skíðakona.
Álafosshlaupið fór fram i miklu
blíðskaparveðri. Hófst hlaupið við
hús kaupfélagsins og síðan lá leiðin
um Vesturlandsveg niður í Elliða-
árdalinn, um Suðurlandsbraut,
Múlaveg, Engjaveg og siðan var
endað á frjálsíþróttavellinum í Laug-
ardal.
LILJA Guðmundsdóttir ÍR setti ís-
landsmet í enskri mílu á miklu
frjálsíþróttamóti i Osló um helgina.
Lilja hljóp vegalengdina á 4:50,24
mínútum, sem svarar til um 4:30 í
1500 metra hlaupi.
Sigurvegari í hlaupinu varð
bandaríska stúlkan Mary Decker-
Tabb, sem á heimsmetið i mílu og 5
km hlaupi. Hljóp hún á 4:21,46. í
samtali við Mbl. sagöi Lilja and-
Úrslit flokkakeppninnar urðu þau,
að í flokki 16 ára og yngri urðu
hluLskörpust þau Garðar Sigurðsson
og Sara Jóna Haraldsdóttir, í flokki
17—20 ára Einar Sigurðsson og
Rannveig Helgadóttir, í flokki
21—30 sigraði Ágúst Ásgeirsson í
karlaflokki en engin kona var í
flokknum, í flokki 31—40 ára urðu
Leiknir Jónsson og Björg Krist-
jánsdóttir fyrst i mark, í flokki
41—50 ára Guðmundur Gíslason og
Lilja Jóhannsdóttir, og í flokki 51
árs og eldri kom Páll Guðhjörnsson
fyrstur í mark. Röð þátttakenda í
mark varð annars þessi, en 5 heltust
úr lestinni:
1. ÁgÚKl Áseeirsson (21—30) 43:29
2. Einar SijjurósNon (17—20) 44:00
3. Sighvatur D. (.uAmundsson (21—30) 45:21
4. (iaróar Sijrurrtssoní 16 ára o.y.) 45:58
5. Ixóknir Jónsson (31— 40) 46:32
6. (.uAmundur (aíslason (41—50) 47:05
7. (>unnar BirgLsson (17—20) 48:11
8. Árni Kristjánsson (41—50) 48:35
9. Ársæll Benediktsson (21—30) 49:54
10. Sigurjón Andrésson (41—50) 50:12
11. Ilögni Oskarsson (31— 40) 51:22
12. Ás|jeir 1». Kiríkss. (21—30) 51:47
13. Jóhann (iardarsson (21—30) 53:35
14. Ásgeir Theodórsson (31—40) 54:33
stæöingana hafa verið sér miklu
sterkari, allar af heimsklassa.
„Byrjunarhraðinn var mikill, 61 á
fyrsta hring, og sprakk ég verr en
hinar. Ég miða við að vera á toppi
seint í júlí og í ágúst, og því var þetta
alltof sterkt mót fyrir mig,“ sagði
Lilja. Út af fyrir sig er það viður-
kenning að fá að vera með á svona
móti, inn á það komast aðeins úrvals
íþróttamenn.
15. I*órólfur l*órlindss. (31—40) 55:06
16. /Egir (ieirdal (31—40) 55:09
17. Jakob Ásmundsson (17—20) 55:23
18. Kristján S. Ásgeirss. (16 á.o.y.) 55:28
19. Jón S. Björnsson (16 á.o.y.) 56:04
20. Alfreó Böóvarsson (21—30) 56:11
21. Tómas l»onzi (21—30) 56:27
22. Ólafur Kaj'narsson (41—40) 58:03
23. Páll (■uóbjörnsson (51 o.e.) 58:38
24. Ilreinn llrafnkelsson (16 á.o.y.) 60:12
25. Siguróur Björnsson (41—50) 60:57
26. (iudmundur Sveinsson (41—50) 61:03
27. Rannveig llelgadóttir (17—20) 61:14
28. Kóbert llaraldsson (16 á.o.y.) 62:19
29. Ilaukur llergeirsson (51 o.e.) 62:28
30. (;ísli Pálsson (31—40) 63:17
31. Björn Sigurússon (16 á.o.y.) 64:44
32. Björg Kristjánsd. (31—40) 65:40
33. Lilja Jóhannsdóttir (41—50) 65:46
34. Sigurbjörg llelgad. (31—40) 68:47
35. Sara Jóna llaraldsd. (16 á.o.y.) 69:36
Golfkeppni
heilbrigðisstétta
Golfkeppni heilbrigðisstétta fer
fram miðvikudaginn 30. júní kl.
17.00 á Grafarholtsvelli, Reykjavík.
Keppni með og án forgjafar. Verð-
laun frá Austurbakka. Skipuleggj-
andi mótsins er Knútur Björnsson.
Sænskur fimleikaflokkur
sýnir hér á landi
í GÆR kom hingað til land 35 manna hópur fimleikafólks frá Eskilstuna í
Svíþjóð.
Hópurinn heldur sýningu í íþróttahúsinu á Selfossi í dag, 29. júní kl. 21.00,
siðan i Kennaraháskóla Islands 30. júní kl. 21.00 ásamt íslenska hópnum
sem er að fara á alþjóölega fimleikahátíð í Sviss.
Sænski hópurinn samanstendur af sýningar- og keppnisfólki á aldrin-
um 13—14 ára og einnig sýningarhóp í nútima fimleikum.
Áfram heldur hópurinn um landið og sýnir á Akureyri og Neskaup-
stað.
Hjá Fimleikasambandi íslands var stofnaður námssjóður með minn-
ingargjöf frá Lovísu Einarsdóttur um Áslaugu Einarsdóttur frá ívars-
seli.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja íþróttamenn til náms í fimleika-
kennslu og þjálfun.
Fréttatilkynning frá Fimleikasambandi íslands.
40 keppendur í Álafosshlaupinu