Morgunblaðið - 29.06.1982, Qupperneq 45
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1982
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ1982
25
Skagamenn óheppnir
að vinna ekki stærra
SKAGAMENN nældu sér í tvö stig,
i hinni jöfnu og hörðu baráttu 1.
deildarinnar í knattspyrnu, er þeir
sigruðu ísfirðinga á Akranesi á laug-
ardaginn með tveimur mörkum gegn
engu. Akurnesingar voru betri aðil-
inn í leiknum og hefði sigur þeirra
hæglega getað orðið mun stærri ef
ekki hefði komið til fádæma klaufa-
skapur þeirra upp við mark andstæð-
ingsins. Heimamenn höfðu forystu,
1—0, í hálfleik.
ÍA byrjaði með miklum látum
og strax í fyrstu sókninni fékk
Guðbjörn Tryggvason dauðafæri
og átti hann eftir að fá þau nokkur
áður en yfir lauk. Guðbjörn fékk
knöttinn rétt utan markteigs frá
Júlíusi P. Ingólfssyni, en skot
hans lenti í Hreiðari markverði
sem kom út á móti. Stuttu seinna
fékk Guðbjörn annað gullið tæki-
færi. Guðjón Þórðarson tók langt
innkast inn á vítateig ÍBÍ, Sigurð-
ur Lárusson skallaði aftur fyrir
sig á Guðbjörn en kollspyrna hans
lenti öfugu megin við þverslána.
Skagamenn voru mun sterkari
þessar fyrstu mínútur. Þeir spil-
uðu ágætlega úti á vellinum, sóttu
mun meira og sköpuðu mjög góð
færi. Guðbjörn fékk enn eitt dauð-
afærið er leiknar höfðu verið 15
mín. af leiknum. Sennilega má
telja það besta færi leiksins en af
nógu er að taka í því efni. Hann
var með boltann á markteig,
renndi honum laflaust á markið
og einn varnarmanna ísfirðinga
náði að bjarga á síöustu stundu.
Á 22. mín. má enn einu sinni sjá
„dauðafæri" skráð í möppu blaða-
manns með skýrum stöfum, og að
sjálfsögðu var Guðbjörn þar á
ferðinni. Guðjón Þórðarson reyndi
þá skot af löngu færi sem Hreiðar
varði en missti frá sér. Guðbjörn
kom aðvífandi og sópaði knettin-
um hátt yfir markið af á að giska
eins metra færi. „Svona er þetta í
hverjum leik,“ sagði Kirby, þjálf-
ari ÍA, og var alveg miður sín yfir
lélegri nýtingu færanna hjá sínum
mönnum.
Þremur mín. síðar var Júlíus P.
Ingólfsson í góðu færi. Boltinn
Sigurður Lárusson:
„Veróum annað hvort í
1. eða 2. sæti í 1. deild“
„Ég man ekki eftir jafn lélegum
fótbolta í byrjun íslandsmóts og
verið hefur í vor,“ sagði Sigurður
Lárusson, leikmaður IA, er blm.
spjallaði við hann eftir leikinn við
ÍBÍ. „Ég bjóst ekki við okkur
svona slökum í vor. Við höfum átt
mjög misjafna leiki, toppleik gegn
Breiðablik og siðan hræðilegan
gegn ÍBK, en ég vona að við séum
búnir að finna stöðugleikann í lið-
ið núna. Leikurinn í dag var alveg
sæmiiegur, okkur gengur bara
ekki nógu vel að skora rnörk."
Hvað með framhaldið?
„Ég er sannfærður um að við
verðum í 1. eða 2. sæti í deildinni
en ég vil ekki fullyrða hvort það
verður. Það verður bara að koma í
ljós.“ SH.
Knattspyrna)
Sigurður Lárusson ÍA
barst óvænt til hans inn í teiginn
eftir að varnarmanni hafði mis-
tekist að hreinsa frá, skot hans fór
undir Hreiðar og var á leiðinni t
markið er einn ísfirðinganna kom
og spyrnti frá.
Guðbjorn skorar loksins
Eins og á þessari upptalningu
sést lá mark Skagamanna í loftinu
og kom það loksins eftir 35 mín.
leik. Guðbjörn skallaði þá í netið
ef stuttu færi eftir aukaspyrnu
Guðjóns Þórðarsonar frá hægri.
Guðbjörn gnæfði yfir Hreiðar
markvörð og skoraði fallega. ís-
firðingar áttu ekkert hættulegt
tækifæri í fyrri hálfleik og eins og
af þessu má sjá voru þeir heppnir
að vera ekki nema einu marki
undir.
í síðari hálfleik jafnaðist leikur-
inn nokkuð en þrátt fyrir það
höfðu heimamenn undirtökin. ís-
firðingar fengu sæmilegt færi
snemma í hálfleiknum er Harald-
ur Stefánsson vippaði knettinum
aftur fyrir sig og yfir markið eftir
hornspyrnu. En það voru ÍA-menn
sem réðu ferðinni og eftir nokk-
urra mín. leik bættu þeir öðru
marki við.
Kom það eftir hornspyrnu. Kom
hún á kollinn á Júlíusi á mark-
teigshorninu og nikkaði hann
boltanum aftur fyrir sig þar sem
Sigurður Lárusson kom á fullri
ferð og spyrnti boltanum í markið
af stuttu færi. Þarna var vörn ÍBÍ
stöð og illa á verði.
Aðeins tveimur mín. síðar
minnkuðu Isfirðingar muninn. Jón
Oddsson óð þá upp hægri kantinn
og sendi inn í teiginn á Jóhann
Torfason. Hann fékk knöttinn yst
í teignum og skoraði örugglega frá
vítapunkti framhjá Davíð Krist-
jánssyni, sem lék í markinu í stað
Bjarna Sigurðssonar sem meiddist
í leiknum við ÍBK á dögunum.
Skagamenn fengu enn einu
sinni dauðafæri á 40. mín. er
Kristján Olgeirsson átti skot utan
úr teig í varnarmann sem stóð á
línunni og þaðan í stöng. Lítið
markvert gerðist eftir þetta og var
öruggur sigur Akurnesinga í höfn.
í stuttu máli: Akranesvöllur 1.
deild. Laugardagur 26. júní. í A —
ÍBÍ 2-1 (1-0). Mörk ÍA: Guð-
björn Tryggvason á 35. mín. og
Sigurður Lárusson á 53. mín.
Mark ÍBÍ: Jóhann Torfason á 55.
mín. Spjöld: engin. Dómari var
Rafn Hjaltalín. Áhorfendur voru
600. SH.
ÍA:
Davíð Kristjánsson
Guðjón Þórðarson
Sveinbjörn Hákonarson
Sigurður Lárusson
Jón Gunnlaugsson
Jón Áskelsson
Kristján Olgeirsson
Jón Alfreðsson
Júlíus P. Ingólfsson
Guöbjörn Tryggvason
Árni Sveinsson
ÍBÍ:
Hreiðar Sigtryggsson
Rúnar Vífilsson
Halldór Ólafsson
Ámundi Sigmundsson
Örnólfur Oddsson
Gunnar Guðmundsson
Haraldur Stefánsson
Kristinn Kristjánsson
Jóhann Torfason
Gústaf Baldvinsson
Jón Odsson
Gunnar P. Pétursson (vm)
Einar Jónsson (vm) lék of stutt.
Lið KA: Valur:
5 Aöalsteinn Jóhannason 4 Brynjar Guðmundsson 6
5 Eyjólfur Ágústsson 6 Sigurður Sveinbjörnsson 6
6 Guðjón Guójónsson 5 Grímur Sæmundsen 7
7 Haraldur Haraldsson 6 Þorgrímur Þráinsson 6
6 Erlingur Kristjánsson 6 Dýri Guðmundsson 6
5 Jóhann Jakobsson 5 Guðmundur Þorbjörnsson 8
6 Gunnar Gíslason 4 Magni Pétursson 6
6 Ormar Örlygsson 4 Hilmar Síghvatsson 7
5 Hinrik Þórhallsson 6 Ingi Björn Albertsson 7
6 Ásbjðrn Björnsson 5 Þorsteinn Sigurðsson 6
7 Elmar Geirsson 5 Valur Valsson 6
Jón Marinósson (vm) Vilhelm Frederiksen vm. 5
Úlfar Másson 5
Lið ÍBV:
5 Páll Pálmaaon 6 Víkingur:
5 Ágúst Einarsson 4 Ögmundur Kristinsson 7
5 Örn Óskarsson 5 Þórður Marelsson 8
6 Þórður Hallgrímsson 4 Magnús Þorvaldsson 6
6 Valþór Sigþórsson 6 Stefán Halldórsson 7
5 Snorri Rútsson 5 Jóhannes Bárðarson 6
5 Sveinn Sveinsson 5 Gunnar Gunnarsson 6
4 Jóhann Georgsson S Ómar Torfason 6
4 Sigurlás Þorleifsson S Jóhann Þorvarðarson 6
5 Ómar Jóhannsson 6 Aöalsteinn Aðalsteinsson 7
5 Viðar ELíasson 5 Heimir Karlsson 6
4 ; Kári Þorleifsson (vm) Sverrir Herbertsson 6
Dómari: Þorvarður Björnsson. Helgi Helgason vm. 6
Mynd Mbl. íij.
• Þórður Marelsson og Heimir Karlsson fagna sigurmarkinu innilega.
• Valsmenn nýttu ekki tækifærin og
Víkingar fóru með sigur af hólmi
íslandsmeistarar Víkings sigruðu
Val 1—0 í 1. deild íslandsmótsins i
knattspyrnu í Laugardal á sunnu-
dag. Víkingar fóru með sigur af
hólmi en leikurinn hefði allt eins
getað endað með jafntefli, eöa sigri
Vals; bæði lið sköpuðu sér góð
marktækifæri, en Valsmönnum
tókst ekki aö nýta sín til marka.
Víkingar skoruðu sigurmark leiks-
ins á 78. mínútu leiksins og var vel
aö verki staðið. Víkingar höfðu átt
mikla pressu að marki Valsmanna
um nokkurt skeið og fengu horn-
spyrnu. Valsmenn náðu að hreinsa
frá og hlupu fram til þess að freista
þess að gripa Víkingana rangstæða.
Það tókst þó ekki, Stefán Halldórs-
son, miðvörður Víkings, átti snilldar-
sendingu inn fyrir vörn Vals út til
hægri á bakvörðinn Þórð Marelsson,
sem geystist einn að marki Valsm-
anna og skoraði laglega framhjá
Brynjari Guðmundssyni; fast skot
hans hafnaði neðst í markhorninu.
Víkingar höfðu undirtökin í
fyrri hálfleik. Þeir beittu stuttum
Lið UBK:
Guömundur Ásgeirsaon 6
Ómar Rafnsson 7
Valdemar Valdemarsson 6
Björn Þór Egilsson 5
Helgi Helgason 5
Jóhann Grétarsson 4
Trausti Ómarsson 4
Vignir Baldursson 5
Hákon Gunnarsson 4
Sigurður Grétarsson 5
Sigurjón Kristjánsson 5
Helgi Bentsson vm. 5
Birgir Teitsson vm. 3
Lið KR:
Stefán Jóhannsson 6
Guðjón Hilmarsson 8
Sigurður Pétursson 6
Ottó Guðmundsson e
Jósteinn Einarsson 6
Jakob Pétursson 5
Ágúst Jónsson 7
Willum Þórsson 7
Hálfdán Örlygsson 6
Jón Bjarnason 5
Erling Aðalsteinsson 5
Siguröur Indriöason vm. 5
Valur — a.
Víkingur
samleik úti á vellinum, en gekk
erfiðlega að skapa sér hættuleg
tækifæri. Þó jókst pressa þeirra
eftir því sem á fyrri hálfleik leið.
Á 30. mínútu lék Aðalsteinn Aðal-
steinsson laglega á Grím Sæ-
mundsen og sendi fyrir markið á
Gunnar Gunnarsson, sem hitti
knöttinn illa við markteig. Á 37.
mínútu sendi Magnús Þorvaldsson
knöttinn fyrir mark Valsmanna á
Heimi Karlsson, sem skallaði að
marki Valsmanna frá markteig,
en beint í fang Brynjars mark-
varðar. Á 42. mínútu komu Vík-
ingar knettinum í mark Vals-
manna, Ómar Torfason skallaði
knöttinn í netið eftir misheppnað
úthlaup Brynjars en Eysteinn
dómari Guðmundsson dæmdi
markið af.
Víkingar hófu síðari hálfleik af
sama krafti. Heimir Karlsson
skaut yfir eftir fyrirgjöf Aðal-
steins þegar á 1. mínútu en síðan
tóku Valsmenn öll völd á vellinum
næstu 20 mínúturnar og hefðu átt
að gera út um leikinn. Guðmundur'
Þorbjörnsson átti skot á 2. mínútu
af 20 metra færi sem Ögmundur
markvörður sló yfir. Ingi Björn
Albertsson lék laglega á varnar-
mann Víkings og komst inn í víta-
teiginn frá hægri og sendi snilld-
arsendingu á Guðmund Þor-
björnsson, en þrumuskot hans
hafnaði í stöng, knötturinn féll
fyrir fætur Vals Valssonar, en
skot hans lenti í varnarmanni
Víkings. Valsmenn tóku horn-
spyrnu og knötturinn féll fyrir
fætur Vais Valssonar á markteig
en skot hans fór yfir.
Og áfram héldu Valsmenn. Á 15.
mínútu komst Þorsteinn Sigurðs-
son einn inn fyrir vörn Víkings en
Ögmundur varði með góðu út-
hlaupi, en Þorsteinn hefði átt að
nýta tækifærið til marks. Á 16.
mínútu sendi Hilmar Sighvatsson
knöttinn á Guðmund og þrumu-
skot hans af 20 metra færi stefndi
undir þverslá en Ögmundur náði
að koma annarri hendi fyrir
knöttinn og slá í horn.
En pressa Valsmanna fjaraði út
og Víkingar komu aftur inn í leik-
inn. Helgi Helgason kom inn fyrir
Jóhann Þorvarðarson og á 78.
mínútu kom sigurmark leiksins
eftir mikla pressu Víkinga. Eftir
markið settu Valsmenn tvo leik-
menn inná, Úlfar Másson og Vil-
helm Fredriksen og hann fékk
gott tækifæri á 40. mínútu til þess
að jafna. Ingi Björn lék upp að
endamörkum, sendi út á Vilhelm,
en fast skot hans fór yfir.
Staöa Vals slæm
Um helgina var dæmt í kærum
ísfirðinga og Akureyringa. Albert
Guðmundsson var úrskurðaður
ólöglegur og 4 stig voru dæmd af
Val. Hann lék því ekki með Val
gegn Víkingum. Valsmenn munu
áfrýja en hætt er við, að Vals-
menn vermi nú botnsæti 1. deildar
og hafi aðeins 3 stig í stað 7. í stað
þess að blanda sér í toppbaráttu á
fyrir þeim að liggja að berjast
fyrir lífi sínu í 1. deild.
En Valsliðið er á uppleið og
staðan engan veginn vonlaus.
Margir góðir leikmenn eru með,
menn með mikla reynslu á borð
við Inga Björn, Dýra Guðmunds-
son, Grím Sæmundsen og Guð-
mund Þorbjörnsson og hvur veit,
Albert Guðmundsson. Leikmenn
frá velgengnisárunum. Og með
íslandsmðtlð 1. delld
þeim eru athyglisverðir leikmenn
á borð við Hilmar Sighvatsson og
Þorgrím Þráinsson. En Valsmenn
eiga á brattann að sækja; — þeir
tóku áhættu að láta Albert leika
og súpa nú seyðið af því.
Víkingar blanda sér í toppbar-
áttu 1. deildar í sumar. Þeir eru
með sterkt lið, en vantar brodd í
sóknina. Vörnin er sterk, Ög-
mundur var góður í markinu og
Stefán Halldórsson, Jóhannes
Bárðarson, Magnús Þorvaldsson
og Þórður Marelsson fastir fyrir
auk þess að Þórður tók virkan þátt
í sókninni; snjall leikmaður en
mætti hemja skap sitt betur.
Gunnar Gunnarsson er sterkur
tengiliður og Aðalsteinn Aðal-
steinsson vex með hverjum leik,
skilar knettinum vel frá sér.
Heimir Karlsson er markheppinn
miðherji en hann skapar sér fá
færi; þarf meiri stuðning. Því hef-
ur það vakið nokkra furðu að Stef-
án Halldórsson, sem ávallt lék
stöðu miðherja og var mjög
markheppinn, skuli vera miðvörð-
ur.
Reykvíkingar annars
flokks í eigin borg
Það hefur vakið athygli að eng-
inn leikur í 1. deild hefur farið
fram á aðalleikvangi Laugardals-
vallar, en til að mynda léku lands-
lið Dana og íslendinga undir 21
árs á aðalleikvangi og sárafáir
fylgdust með. Leikur Vals og Vík-
ings fór fram á Fögruvöllum, sem
er slæmur, mishæðóttur. Mikil
óápægja er meðal Reykjavíkurlið-
anna og virðist sem Reykvíkingar
séu annars flokks í eigin borg.
Leikinn á sunnudag dæmdi
Eysteinn Guðmundsson.
í stuttu máli: Laugardalur: 1.
deild.
Valur — Víkingur 0—1.
Mark Víkings: Þórður Marels-
son á 78. mínútu.
Áhorfendur 808.
• H.Halls.
IVlarkvaróarmistök
kostuðu KA 2 stig
lleimavöllurinn hefur eigi reynst
KA happadrjúgur það sem af er
keppnistimabilinu og um helgina
beið KA lægri hlut gegn ÍBV, 1:0, og
því verður trauðlega andmælt að
KA-menn geta sjálfum sér um
kennt. Þeir léku lengst af ákaflega
illa og barátta leikmanna var sáralit-
il ef nokkur. Áhugaleysið er illskilj-
anlegt þegar þess er gætt að liðið var
i efsta sæti 1. deildar og mun það
vera í fyrsta sinn i skammri sögu
félagsins í 1. deild. Annars má segja
að 0:0 jafntefli hefði e.t.v. gefið
sanngjarnari mynd af leik þessum
og hefði markaleysið undirstrikað
rýr gæði hans.
Aðstæður til knattleiks voru
hinar ákjósanlegustu, ónotaður
Akureyrarvöllur var góður og
veðrið var gott þó smá golu gætti.
Um leikinn sem slikan þarf ekki
að fara ýkja mörgum orðum en
hitt er svo annað mál að ef þessi
tvö lið eru í hópi álitlegri liða 1.
deildar þá er það áhyggjuefni
hversu slök íslenzk 1. deild er orð-
in. Eyjamenn voru öllu skárri i
leik sínum þó þeim blessuðum
verði hreint ekki hrósað fyrir
burðuga knattspyrnu. Þvert á
móti leiddu þeir keppnina um
lengri spörk og hærri og voru yfir-
leitt fljótari á knöttinn, a.m.k. í
fyrri hálfleik. Fyrir vikið sóttu
Eyjapeyjar all mikið gegn óör-
uggri vörn KA en um veruleg
marktækifæri var ekki að ræða.
Það hjálpaði upp á sakirnar að
Sigurlás var venju fremur ódug-
legur og hætti oft, þyrfti hann e-ð
fyrir hlutunum að hafa.
KA-menn voru öllu frískari í
síðari hálfleik eða Eyjamenn voru
kannski daufari! Altént sótti KA
meira en áður og verður það að
segjast framherjum KA til hróss,
að þeir unnu ótrúlega vel úr þeim
fáu og lélegu boltum sem þeir
fengu. T.d. lék Elmar Geirsson
nokkrum sinnum snilldarlega á
Örn Óskarsson en datt niður þess
á milli. Þvert á gang síðari hálf-
leiks voru það Eyjamenn sem
skoruðu, ekki svo að skilja að KA
hafi haft e-a yfirburði, heldur lá
öllu meira á aðkomumönnum.
7—8 mín. fyrir leikslok fékk ÍBV
hornspyrnu sem Ómar Jóhanns-
son tók. Spyrnan var ekki hærri
Ómar Jóhannsson skoraði mark
ÍBV.
en svo að Aðalsteinn virtist örugg-
ur með að handsama knöttinn án
verulegra vandræða. En margt er
í heiminum hverfult og lánlaus -
markvörðurinn missti knöttinn í
eigið mark og reyndist þetta
klaufamark vera það mark er
greiddi KA rothöggið.
Miðvallarspilarar liðanna voru
slökustu mennirnir og kann það
að e-u leyti að skýra hversu slakur
leikur þessi var. Oft á tíðum var
þessum tengiliðum milli varnar og
sóknar algjörlega sleppt með öm-
urlegum langspyrnum. Vörn ÍBV
var þokkaleg með góðan markvörð
fyrir aftan sig en framlínan hefur
oft verið beittari, en það er ÍBV til
afsökunar að þeir léku án Kára
Þorleifssonar. Vörn KA hefur
oftast verið betri eða a.m.k. örugg-
ari í leik sínum og Aðalsteinn er
hrein ráðgáta, bestur í dag, slak-
astur á morgun. Hvað veldur?
Maðurinn er of góður fyrir svona
hræðileg klaufamörk. Það er göm-
ul saga og ný að markverðir geti
unnið og tapað leik. Síðast vann
Aðalsteinn leik gegn ÍBÍ en nú
tapar hann. Hinrik Þórhallsson
var góður og skilaði knettinum
ætíð vel frá sér og Eyjólfur lék
einnig lengst af vel en sem heild
voru bæði liðin mjög léleg og ollu
miklum vonbrigðum öllum er á
horfðu.
f stuttu máli:
Akureyrarvöllur, laugardaginn
26. júní 1. deild, KA:ÍBV 1-0.
Mark ÍBV: Ómar Jóhannsson á 83.
mínútu.
Gult spjald: Snorri Rútsson ÍBV og
Gunnar Gíslason KA.
Dómari: Þorvarður Björnsson;
línuverðir: Kjartan Tómasson og
Friðgeir Hallgrímsson.
Áhorfendur: 1000 manns.
Tvö mörk KR-inga í síð-
ari hálfleik afgreiddu UBK
KR GERÐI sér lítið fyrir og sigraði
Breiðablik 2—0 á Kópavogsvellinum
í 1. deildarkeppninni á laugardag-
inn, staðan i hálfleik var 0—0. Hér
var um sanngjarnan sigur að ræða,
KR-ingarnir voru ákveðnari og
sprækari gegn daufum Blikum, sem
léku langt frá því sem þeir best geta:
KR gekk á lagið og sigurinn var í
höfn.
Fyrri hálfleikur var afar
bragðdaufur, marktækifæri sáust
varla og samspil aðeins öðru
hvoru úti á vellinum. Bæði lið
náðu nokkrum samleiksköflum, en
ávallt runnu þeir út áður en hætta
skapaðist. Liðin áttu hvort sína
atlöguna í fyrri hálfleik, UBK
strax á fyrstu mínútu leiksins, er
Vignir Baldursson átti hörkuskot
rétt yfir markið. Jón Bjarnason
átti síðan skalla naumlega fram
hjá á 21. mínútu, en þá eru mark-
tækifærin líka upptalin.
Síðari hálfleikurinn var frís-
klegri og strax á 10. mínútu hans,
eða 55. mínútu leiksins, skoraði
Jósteinn Einarsson fyrra mark
KR. Hann fékk knöttinn í dauða-
færi rétt utan markteigsins eftir
hornspyrnu Hálfdáns Örlygsson-
ar, og skoraði með þrumuskoti.
Um hríð eftir markið fjölguðu
Blikarnir mönnum í sókninni og
Jóhann Grétarsson átti kost á að
senda á að minnsta kosti tvo fé-
laga sína er hann slapp inn fyrir
vörn KR hægra meginn. Fyrirgjöf
var mun betri kostur en Jóhann
0:2
valdi, hann reyndi markskot, en
færið var vita vonlaust og knött-
urinn fór víðs fjarri markinu. En
sókn UBK fjaraði fljótlega út og á
69. mínútu gerðu KR-ingar út um
leikinn. Vörn UBK steinrann og
KR-ingar tættu í gegn með fal-
legri sóknarlotu, Agúst sendi
knöttinn inn fyrir til Willum,
hann komst að endamörkum og
sendi fyrir markið þar sem Erling
Aðalsteinsson var fyrir og skoraði
með föstu skoti, 2—0.
Eftir síðara mark KR fór áhorf-
endur að syfja, engar horfur voru
á því að Blikarnir myndu rífa sig
upp og KR-ingar voru hæst
ánægðir með uppskeruna eins og
vænta mátti. Þó átti Sigurður
Indriðason gott skot rétt fram hjá
og Birgir Teitsson brenndi af
besta tækifæri UBK áður en yfir
lauk.
Þetta var nokkuð góður dagur
hjá KR og sigurinn mjög sann-
gjarn. Barátta liðsins bar UBK
ofurliði, leikmenn KR voru fljót-
ari í knöttinn og höfðu nær alltaf
betur í návígi. Þá náði liðið þokka-
lega saman í samleik all oft þó svo
að talsverðan brodd vanti enn í
sóknarleikinn. A móti kom að þau
fáu færi sem herjuð voru út á ann-
að borð voru nýtt vel. Ef farið er
að taka menn út og hrósa má geta
Willums og Ágústs, sem eru mikil
efni. Hálfdán átti mjög góða
spretti, einkum í síðari hálfleik, og
aftasta vörnin stóð vel fyrir sínu,
afgreiddi hina hættulegu fram-
herja UBK mjög kirfilega.
Þetta var afar slakur leikur hjá
UBK, liðið lék langt undir getu,
varla er hægt að segja annað.
Ólafur Björnsson lék ekki með
vegna meiðsla og vörnin var ekki
eins heilsteypt fyrir vikið. Þó var
þar að finna besta mann UBK,
Ómar Rafnsson, leikmaður með
mikla yfirferð og auga fyrir mögu-
leikum. Eins og oft áður týndust
miðjumenn UBK innan um stóra
og sterka KR-inga. Þó batnaði lið-
ið til muna við að setja Helga
Bentsson inn fyrir hinn annars
bráðefnilega Trausta Ómarsson,
og færa Sigurjón aftar á völlinn.
Frammistaða UBK lagaðist mjög
við þessa breytingu, en það dugði
þó alls ekki til.
í stuttu máli:
Islandsmótið 1. deild, Kópavogs-
völlur: UBK—KR 0-2 (0—0).
Mörk KR: Jósteinn Einarsson á 55.
mínútu og Erling Aðalsteinsson á
69. mínútu.
Spjöld til sýnis: Guðjón Hilmars-
son fékk að kanna gula spjaldið.
Áhorfendur: 650.
Dómari: Óli Ólsen. — gg.