Morgunblaðið - 29.06.1982, Side 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ1982
_______________k____________________
llla staðið að góðri breytingu
Breiddin er að aukast í ís-
lenskri knattspyrnu, þótt
toppurinn sé líklega lakari
Nú þcgar nokkrum umferðum er
lokið í öllum deildum íslandsmóts-
ins í knattspyrnu ættu línurnar að
vera farnar að skýrast töluvert á
toppi og botni deildanna, svo auð-
veldara ætti að vera að spá um það
hvaða félög færast á milli deilda að
loknu þessu keppnistímahili. Sú er
ekki raunin á í 1. deildinni þar sem
úrslit í mörgum leikjum hafa komið
ákaflega á óvart og allt er í einum
hrærigraut að loknum 6 umferðum
og tveimur leikjum betur. En ég ætla
að geyma mér 1. deildina þar til síð-
ar í þættinum og líta örlítið á stöð-
una í neðri deildunum.
2. deildín: Skýrar línur
I dag eru nokkuð skðrp skil milli
þeirra liða sem eru í efri helmingi
2. deildar og hinna sem berjast á
botninum. Flest liðin hafa leikið 6
leiki og hefur Þróttur Reykjavík
verið mest sannfærandi til þessa
og hefur aðeins tapað einu stigi,
gegn FH (0—0). Þróttarar hafa
því 11 stig og athyglisverða
markatölu, 12—2. FH sem er í 2.
sæti með 8 stig (en á einn leik til
góða) hefur einnig eftirtektar-
verða markatölu, 4—1.
Það er óvenju góð nýting á
mörkum að fá 8 stig fyrir að gera
4 mörk Nú, í næstu sætum eru
Þór Akureyri, Völsungur og Fylkir
og þá cru upp talin þau félög, em
virðast ætla að blanda sér í bar-
áttuna um 1. deildarsætin tvö. Ég
myndi þó ekki afskrifa Reyni frá
Sandgerði, þó að byrjunin hafi
ekki verið góð. Þeir eru baráttu-
menn miklir, Suðurnesjamenn, og
gefast ekki upp fyrr en í fulla
hnefana.
Fjögur félög eru enn ónefnd, en
þau koma væntanlega til ineð að
berjast fyrir veru sinni í deildinni,
UMFN, Einherji, Skallagrímur og
Þróttur Neskaupstað, og er
ómögulegt að sjá fyrir hvernig
þeirri baráttu lyktar.
Af liðunum í efstu sætum 2.
deildar er mest freistandi að spá
Reykjavíkur-Þrótti velgengni í
sumar, en undir stjórn miðvall-
arspilarans stóvsnjalla, Ásgeirs
Elíassonar fyrrv. landsliðsmanns
úr Fram, er Þróttur að ná upp
mjög frambærilegu liði sem
greinilega ætlar sér stóra hluti í
sumar. Völsungur frá Húsavík
hefur komið á óvart það sem af er,
en ég á ekki von á að liðið verði í
allra fremstu röð þegar upp verð-
ur staðið í haust. Fylkir, Þór og
FH eru líklegri til að verða í aðal-
baráttunni um hin mjög svo eftir-
sóknarverðu 1. deildarsæti
Ég hef að vísu ekki séð Akureyr-
ingana ennþá, en þeir hafa ágætan
þjálfara, Douglas Reynolds, sem
náði góðum árangri þegar hann
var með liðið fyrir u.þ.b. 5 árum.
Fylkir hefur lengi verið fyrir ofan
miðju í 2. deild án þess að ná í
annað af efstu sætunum og finnst
sjálfsagt að sinn tími sé kominn
Svo eru það FH-ingar, sem með
sambland af reyndum „jöxlum'
s.s. Viðari Halldórssyni og Ólafi
Danivalssyni og ungum mjög efni-
legum leikmönnum, ætla að
endurheimta 1. deildarsæti „sitt“ í
1. tilraun. Hvort það tekst eður ei
verður tíminn að skera úr um, en
snúum okkur að „nýju“ 3. deild-
inni.
Nú er 3. deildin
orðin alvörudeild
Eins og þeim sem fylgjast vel
með íslenskum knattspyrnumál-
um mun kunnugt eru í ár nokkur
nýmæli á ferðinni í hinni annars
hefðbundnu íslensku knattspyrnu.
Þar á ég við fjölgun deilda í fjórar,
nýstofnaða 2. deild kvenna og ís-
landsmót i eldra flokki (30 ára og
þar yfir). Tvennt það síðasttalda
verður að bíða næsta pistils, en 4.
deildin verður tekin til umfjöllun-
ar, svo og sú þriðja. Um leið og
samþykkt var á síðasta ársþingi
KSÍ að hefja keppni í 4. deild var
ákveðið að breyta fyrirkomulag-
inu í 3. deildinni. Henni er nú
skipt í tvo riðla, Suðvesturlands-
(A) og Norðausturlands- (B) og
eru 8 félög í hvorum. Tvö lið úr
hvorum riðli komast áfram í
úrslitakeppni um tvö sæti í 2.
deild 1983, oga taka þau með sér
innbyrðis úrslit úr riðlakeppninni.
Á liðnum árum hefur oft mátt
iesa stórar tölur, þegar blöðin
hafa birt úrslit úr leikjum í 3.
deild, en það heyrir sögunni til,
því þau lið, sem stóra skelli hlutu,
leika nú í 4. deild. Sú 3. er nú orðin
„alvörudeild" með 16 félögum sem
taka íþróttina alvarlega og er ég
viss um að flest liðin æfa meira
heldur en 1. deildarlið gerðu fyrir
áratug eða svo, þ.e. fyrir „innrás"
erlendu þjálfaranna. I deildinni
leika nokkur lið með reynslu úr 2.
deild t.d. Selfoss, Haukar, Víking-
ur Ólafsvík, Austri frá Eskifirði
og Magni frá Grenivík. Ekkert
þessara félaga nema Selfoss er
sem stendur meðal efstu liða, og
segir það sína sögu um styrkleika
deildarinnar.
í A-riðli eru Víðir úr Garði og
Selfoss efst, en HV frá Akranes-
svæðinu og UMFG (Grindavík)
eru í næstu sætum. Víðismenn eru
líklega með jafnbesta liðið og er
óhætt að spá þeim sæti í úrslita-
keppninni, en erfitt er að segja
fyrir um hvaða lið fylgir þeim.
B-riðillinn verður tvísýnn, en
þrjú félög eru líklegust til að berj-
ast á toppnum, KS (Siglufirði),
Huginn Seyðisfirði og Tindastóll
frá Sauðárkróki. Siglfirðingarnir
komu skemmtilega á óvart á ís-
landsmótinu í innanhússknatt-
spyrnu nú í vetur, voru óneitan-
lega „lið mótsins" eftir að hafa
slegið KR og Val út mjög sannfær-
andi, unnið FH í margframlengd-
um undanúrslitaleik (sjálfsagt
mest spennandi innanhúss-
knattspyrnuleik sem hér hefur
farið fram) og tapað naumlega
fyrir Breiðabliki í úrslitaleik. Hin
verðandi toppliðin eru með þekkta
menn bæði við stjórnvölinn og
sem „óbreytta" leikmenn. Árni
Stefánsson fyrrv. landsliðsmark-
vörður úr Fram/KA er nýkominn
heim eftir nokkurra ára dvöl í Sví-
þjóð (lék með Jönköping og Lands-
krona í 2. og 1. deildinni sænsku)
og er hann „spilandi" þjálfari
Sauðkræklinganna. Þeirra
„prímus-mótor" er Gústaf
Björnsson Framari m.m.
Á Seyðisfirði þjálfar Ólafur Sig-
urvinsson, sá frábæri bakvörður
með IBV og íslenska landsliðinu,
og hefur hann með sér á leikvell-
inum þekkta Valsmenn, bræðurna
Hilmar og Guðjón Harðarsyni. Sá
síðarnefndi lék einnig í nokkur ár
með KA á Akureyri og er mikill
markaskorari.
Annar leikmaður af þeirri teg-
undinni er Siglfirðingurinn Gunn-
ar Blöndal, sem um langt árabil
hefur leikið með KA á Akureyri,
en er nú „þjálfandi" leikmaður
með HSÞ sem einnig er í B-riðli 3.
deildarinnar.
Illa staðiö að
góöri breytingu
Eins og þegar hefur komið fram
var ákveðið á síðasta ársþingi KSÍ
að stofna til keppni í 4. deild á
Islandsmótinu. Nú í sumar leika
yfir 30 lið í 6 riðlum 4. deildar og
er það gott og blessað. En fram-
kvæmd þessarar breytingar er
ekki til eftirbreytni. Það er ekki
forsvaranlegt að gera svona rót-
tæka breytingu á deildaskipulag-
inu án þess að tilkynna það með
a.m.k. árs fyrirvara. Þ.e. menn
verða að vita í upphafi keppnis-
tímabils hvernig fyrirkomulagið
verður að því loknu. Það er ekki
hægt að fjölga eða fækka liðum í
einhverri deild bara með sam-
þykkt á einhverju þingi. Sé það
rétt sem mér hefur skilist er
vissulega um hróplegt óréttlæti að
ræða.
Vissulega skýrir þetta þá stað-
reynd að á meðal mjög misgóðra
liða í 4. deild leika félög eins og
Ármann og Reynir Árskógsströnd,
sem bæði léku í 2. deild fyrir fáum
árum. Ónnur þekkt félög sem leika
í 4. deild eru m.a. Grótta, Aftur-
elding, Stjarnan Garðabæ og nýja
félagið úr Kópavogi, Augnablik,
en það hefur innan sinna vébanda
þekkt nöfn úr 1. deild, s.s. Þór
Hreiðarsson (Breiðabliki/Val),
Jón Einarsson (Val/Breiðabliki)
og Jón Orra Guðmundsson
(Breiðabliki).
Ekki mun ég fara út í að spá um
framvindu mála í 4. deildinni
nýstofnuðu, en vil hvetja alla þá
sem vettlingi geta valdið til að
mæta vel á leiki í heimabyggð
sinni og hvetja sína menn til dáða,
og styrkja um leið gott málefni,
sem er æskulýðs- og íþróttastarf í
landinu.
Furöuleg staöa í 1. deild
Að 6'Æ umferð lokinni í 1. deild
karla á Islandsmótinu 1982 er
staðan sú, að öll liðin eru bæði í
topp- og botnbaráttu. Félögin 10
hafa reytt stigin hvert af öðru og
hafa hlotið frá 5 og upp í 8 stig og
er því útlit fyrir mjög jafna og
spennandi keppni um Islands-
meistaratitilinn. Breiðablik og KA
eru efst sem stendur, en IBV og
Víkingur hafa einu stigi minna og
eiga einn leik til góða.
Frammistaða KA hefur komið
skemmtilega á óvart, en ekki hef
ég trú á að liðið haldi sér í verð-
launasæti, til þess er breiddin of
lítil hjá Akureyringunum. Víking-
ur og IBV hafa sýnt ágæta
knattspyrnu í nokkrum leikjum,
en hafa þess á milli dottið niður í
meðalmennskuna. Þessi ummæli
eiga reyndar við um flest liðin í 1.
deild og þegar á heildina er litið
hef ég orðið fyrir vonbrigðum með
gæði knattspyrnunnar. Spenna sú
sem virðist ætla að verða bætir að
einhverju en alls ekki öllu leyti
upp gæðaskortinn. Breiðablik hef-
ur leikið skemmtilegustu og bestu
knattspyrnuna það sem af er, en
liðið er ungt og enn ekki nógu
stöðugt. Það skortir tilfinnanlega
1—2 reynda leikmenn, helst á
miðjuna, til að stjórna spili liðsins
og koma meiri festu á leik þess.
Framför — afturför
Ástæða þess að leikir 1. deildar
hafa margir hverjir verið lítt
skemmtilegir á að horfa er m.a. sú
að liðin eru mun jafnari að getu en
áður var. Þau lið sem voru í neðri
helmingi deildarinnar fyrir 4—7
árum höfðu ekkert að gera í hend-
urnar (eða öllu heldur fæturna) á
þrælsterkum liðum Vals og
Skagamanna. Síðan hefur lakari
liðunum farið mjög fram meðan
toppliðunum sem voru hefur farið
aftur. Og það er raunar ekkert
skrýtið, því þau hafa mest orðið
fyrir því að missa sína bestu menn
til útlanda. Og þarna er önnur
ástæða komin fyrir skorti á
skemmtilegum tilþrifum í ís-
lensku knattspyrnunni; það má
enginn sýna smá getu umfram
þorra leikmanna, þá er sá hinn
Hörður
ililmarsson.
A EFTIR
B0LTANUM
sami orðinn atvinnumaður innan
fárra ára. Það er vissulega gaman
fyrir þá stráka sem fá tækifæri til
að spjara sig erlendis, og ánægju-
legt að vita til þess að við íslend-
ingar eigum orðið fleiri góða
atvinnuknattspyrnumenn en hin-
ar Norðurlandaþjóðirnar að Dön-
um undanskildum. En við erum
fámennir, Islendingar, og getum
ekki endalaust framleitt góða
leikmenn, „útflutningurinn" hlýt-
ur að bitna á gæðum knattspyrn-
unnar hér heima. Nú standa yfir
kynslóðaskipti hjá mörgum 1.
deildarfélögunum, ungir piltar
taka við af þeim eldri sem hafa
hætt, eða horfið á braut, og marg-
ir mjög efnilegir leikmenn eru
nýkomnir, eða u.þ.b. að komast í
sviðsljósið. Sem dæmi má nefna
að Fram, FH og ÍBK eiga öll
sterkan 2. flokk, og er framtíðin
björt hjá þessum félögum svo og
öðrum sem lagt hafa áherslu á
unglingastarfið á síðastliðnum ár-
um.
Með von um betri knattspyrnu á
öllum vígstöðvum, það sem eftir er
af Islandsmótinu.
Breiðablik á
toppnum
í fyrstu
deild kvenna
ÞREMUR umferðum er nú lokið í I.
deildinni í kvcnnafótbolta. Úrslit
síðustu leikja urðu þessi:
Breiðablik — KR 3—1
Víkingur — ÍA 0—2
Valur — FH 2—0
Magnea Magnúsdóttir, Ásta B.
Gunnlaugsdóttir og Erna Rafnsdótt-
ir skoruðu mörk Breiðabliks en
Kolbrún Jóhannsdóttir skoraði fyrir
KR. Ragna Lóa skoraöi bæði mörk
Skagaliðsins gegn Víkingi og þær
Kristín Briem (víti) og Bryndís
Valsdóttir fyrir Val í leiknum við
FH.
Ntaöan er nú þessi:
Breiðablik
Valur
ÍA
KR
Víkingur
FH
3 0 0 10—2
2 1 0
2 0 1
1 1 1
0 0 3
0 0 3
4—1
7—2
4—4
2—8
0—10 0
Ásta B. Gunnlaugsdóttir UBK er
nú markahæst í 1. deild kvenna með
4 mörk og nokkrar hafa skorað 2
mörk.
Kraftur í
öldungunum
íslandsmót öldunga, leikmanna
30 ára og eldri, i knattspyrnu er nú
komið á fulla ferð og hefur verið
reynt að greina frá úrslitum leikja
eftir föngum. Við skulum renna yfir
stöðuna i riðlunum tveimur sem
leikið er í.
I. riðill:
Víkingur 2 2 0 0 8—1 4
KR 2 110 8—4 3
Akureyri 2 110 4—2 3
IIBK 2 10 1 3—4 2
Þróttur 2 0 111—31
Haukar 10 0 1 3—7 0
FH 1 0 0 1 0- -6 0
2. riðiil:
Fram 2 1 0 2- -1 3
Valur 1 0 ] 0 2- 2 1
ÍBK 1 0 1 0 1- -1 1
ÍA 2 0 1 1 2- -3 1
Mikill kraftur hefur verið i leikj-
unum sem fram hafa farið og leik-
menn liðanna sýna margir að þeir
hafa engu gleymt og eru jafnframt
margir hverjir í mjög góðri æfingu
Það er ekki síður skemmtun að
horfa á leiki í þessari keppni en í 1.
og 2. deild.