Morgunblaðið - 29.06.1982, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ1982
39
sem samborgarar þekktumst við
vel áður en okkar samstarf hófst.
En ég átti einnig samstarf við
fleiri en Asberg í þessari fjöl-
skyldu, því að um nokkurt árabil
störfuðu með mér bæði Olga, dótt-
ir hans, og Kristján, sonur hans,
og mér er bæði ljúft og skyit að
segja að þar voru góðir sam-
starfsmenn, dugleg og áreiðanleg
þar sem þau voru og báru örugg-
lega foreldrum sínum fagurt vitni.
Það er hollt fyrir þá, sem bera
fram sínar mörgu kröfur nú á dög-
um til samfélagsins, ríkis, sveitar-
félagsins, atvinnurekstrarins, að
staldra' ögn við og bera saman
lífsbaráttu þeirra sem voru að
byrja starfsævina í lok annars
áratugs þessarar aldar og langt
fram eftir fimmta áratugnum. Þá
má segja, að lífsbaráttan hafi ver-
ið hörð. Þá voru ekki gerðar kröf-
ur til annarra. Kröfurnar, sem
gerðar voru, voru fyrst og fremst
til sín sjálfs og einkunnarorðið,
sem hver og einn setti sér, var að
nú væri að duga eða að drepast.
Undir þessu einkunnarorði starf-
aði og barðist maður eins og Ás-
berg Kristjánsson og ótal margir
aðrir, sem hófu lífsbaráttuna og
starfið á líkum tíma og hann. Þá
var aldrei talað um að aðrir ættu
að koma til hjálpar. Það var fyrst
og fremst treyst á sjálfan sig, getu
sína til vinnu, og lögð var nótt við
dag að leysa þau verkefni, sem
menn tóku sér fyrir hendur. Sam-
félagið var þá ekki sú ímynd sem
allir geta krafist alls af. En sam-
félagið var líka hóflegt þá í kröf-
um sínum til þessara manna, sem
börðust harðri lífsbaráttu, en síð-
ari tímar hafa gerbreytt þjóðfé-
lagsmyndinni á þann veg, að nú
eru gerðar það miklar kröfur til
samfélagsins og um leið gerir
samfélagið kröfur til allra þeirra
sem vinna og hafa tekjur, að taka
meira af þeim en góðu hófi gegnir.
Ásberg Kristjánsson var alinn
upp í þeim anda að vera sjálfum
sér nógur, treysta á sjálfan sig í
starfi og lífi. Hann var ákveðinn
talsmaður einstaklingsfrelsis og
einstaklingshyggju. Hann gerði
sér ljóst, að félagshyggjan er
Konan mín og móöir okkar,
GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR,
Lönguhlíð 21,
lést síöastliöinn sunnudag i Landspítalanum.
Pálmi Guömundsson,
Guömundur H. Pálmason,
Garöar Ó. Pálmason.
t
Eiginmaöur minn og faðir okkar,
RAGNAR RAGNARSSON,
dýralasknir,
andaöist aö morgni hins 27. júní.
Jaröarförin veröur auglýst síðar.
Halla Bergsdóttir og börnin.
t
Hjartkær eiginmaöur minn og faöir,
GUÐMUNDUR BALDURSSON,
Bragagötu 22,
lést í Borgarspítalanum þann 27. júní.
Útför fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 1. júlí kl. 10.30.
Bryndís Bendor,
Helga Guömundsdóttir.
t
Elskulegi eiginmaöur minn, faðlr, stjúpfaöir, tengdafaöir og afi,
RAGNAR GUÐJÓNSSON,
fyrrv. forstjóri,
Kvtabryggju,
lést sunnudaginn 27. júní 1982.
Inga Kristjánsdóttir,
Gunnhildur Ragnarsdóttir,
Eygló Ragnarsdóttir,
Guörún Sigursteinsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
t
LOFTUR KRISTJÁNSSON,
fangavöröur,
frá Felli,
veröur jarösunginn frá Skálholtskirkju, miövikudaginn 30. júní
kl. 14.00. Jarösett veröur aö Haukadal.
Bílferö veröur frá Umferöarmiöstöðinni kl. 12.
Faöir og systkini hins látna.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför móöur
okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
K ATRÍNAR EYJÓLFSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki Elliheimilisins Grundar fyrir
frábæra umönnun á liönum árum.
Eyjólfur Jónsson,
Rannveig Jónsdóttir,
Guórún Jónsdóttir,
Ingimar G. Jónsson,
Aóalsteinn V. Jónsson,
Tómas Jónsson,
Svandís J. Witch,
Guórún J. Guögeirsdóttir,
Bergmundur Guölaugsson,
Vigdís Ester Eyjólfsdóttir,
Bára I. Vigfúsdóttir,
Maggý H. Jóhannsdóttir,
Raymond Witch,
barnabörn og barnabarnabörn.
nauðsyn til þess að hrinda öllum
stærri áformum í framkvæmd.
Hann var ekki maður ríkisrekstr-
ar eða umsjár ríkisins eða mið-
stýringar. Hann treysti á mátt
sinn og megin. Hann komst áfram
í lífinu. Hann byggði sitt heimili
með sinni ágætu konu, ól upp
barnahópinn sinn með þeim hætti
að þessi börn öll fóru ung að vinna
og sjá fyrir sér sjálf og fetuðu á
þann hátt dyggilega í fótspor
sinna góðu foreldra.
Að leiðarlokum vil ég þakka
Ásberg Kristjánssyni fyrir langa
samvinnu, fyrir tryggja og góða
vináttu á liðnum áratugum. Ég
sendi frú Elísabetu, börnum hans,
tengdabörnum, barnabörnum og
öðru skylduliði innilegar samúð-
arkveðjur um leið og ég bið þess að
minningin um góðan dreng megi
lifa í hjörtum þeirra og okkar all-
ra, sem hann þekktu bezt. Hann
var þreyttur maður, farinn að
heilsu, og því var honum þörf
hvíldar. Eftir lifir minningin um
góðan dreng, sem stóð fyrir sínu í
lífinu og var kær þeim, sem með
honum lifðu og störfuðu, en þó
kærastur var hann þeim sem mest
voru með honum og gerzt þekktu
hann. Guð blessi minningu Ásb-
ergs Kristjánssonar.
MaUhías Bjarnason
Gott veður um Breiða-
fjörð undanfarið
Stykkishólmi, 25. júní.
SEINUSTU daga hefir verið ágætt
veður hér um Breiðafjörð, sól oftast
og hiti. Þetta veður hafa margir not-
að sér og ferðahópar leggja nú leið
sína um Snæfellsnes. Mikið hefir að
undanfornu verið að gera á hótelinu
og um þessa helgi verður aðalfundur
Læknafélags íslands haldinn hér í
Stykkishólmi og gerir aðstaðan það
að menn vilja breyta til og halda
fundi utan Reykjavíkur.
í þessari viku var hér á vegum
Norræna félagsins 20 manna hóp-
ur kennara frá Danmörku sem
voru í orlofi og að kynna sér ýmis
viðhorf á Islandi. Þessi hópur var
einnig á vegum kennara hérlendis.
Hópur þessi gisti á heimilum hér
og skoðaði bæinn kvöldið sem
hann kom og ræddi við bæjarbúa.
Var að þessari heimsókn góð
kynning og létu hinir erlendu
gestir sérstaklega vel af dvöl sinni
hér á landi. Næsti áfangi var svo
Borgarfjörður og um kvöldið var
farið til Hveragerðis. Þá var
ákveðið að verja tveim dögum í
Vestmannaeyjum.
Fréttaritari.
Ráðið í allar
kennarastöður
Stvkkishólmi, 25. júní.
FVRSTI fundur hinnar nýkjörnu
skólanefndar hefir þegar verið hald-
inn. Auglýst var eftir kennurum
snemma í vor og nú mun vera ráðið í
allar lausar stöður hér. "
Þá er unnið af krafti við bygg-
ingu hins nýja skóla og er von
okkar að húsið komist undir þak í
haust. „ ,
Frettaritan.
auulVsincasiminn er:
22480
JMargualiIaöiÖ
SILVER
Hörku ferðatæki fyrir þá sem vita hvað þeir vilja
Stórglæsilegt ferðaútvarpstæki mneð lausum hátölurum, heyrnartæki
fylgir.
Langbylgja, FM bylgja, miðbylgja.
Metal Cassettur og venjulegar 220 volt og einnig fyrir rafhlööur. 6 gerðir.
Verö við allra hæfi.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaöastræti 10 A Sími 16995