Morgunblaðið - 20.07.1982, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 12 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
158. tbl. 69. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1982
Prentsmidja MorRunblaðsins.
íran-írak:
Báöir guma
af sigri á suð-
urvígstöðvum
Nikósíu, 19. júlí. AP.
ÍRANIK héldu því fram í dag að
hersveitir þeirra væru aö styrkja
stöðu sína innan landamæra Iraks
eftir að hafa hrint gagnárásum íraka
við hina mikilvægu olíuhöfn Basra,
syðst í írak. írakar halda því hins
10 börn fór-
ust þegar
barnaheim-
ili hrundi
Nýju Dchlí — 19. júní. AP.
TÍII BÖRN, öll undir fimm ára
aldri, létu lífið þegar loft féll í
barnaheimili á Suður-Indlandi í
dag. 32 börn særðust, þar af fimm-
tán alvarlega, en þegar atburður
þessi varð sátu börnin að snæð-
ingi.
Tildrög slyssins voru þau að
verið var að byggja hæð ofan á
húsið og hrundi nýbyggingin með
þeim afleiðingum, að loftið í mat-
sal barnanna lét undan. Slökkvil-
iðið kom á vettvang en þegar
björgunarstarfið hófst voru tíu
börn þegar látin undir rústunum.
vegar fram að þeir hafi tögl og
hagldir á vígvellinum eftir að þar
hefði komið til mikilla sviptinga. f
yfirlýsingu íranska hersins segir að á
mánudagsmorgun hafi írakar hafið
gagnsókn, sem írönum hafi tekizt að
berja niður, og séu íranir þess nú
albúnir að hefja lokasókn og „út-
rýma óvinaherjum innan landamæra
íraks“.
Hin opinbera fréttastofa íraks
hafði það eftir háttsettum íröksk-
um herforingja í dag að „sam-
ræmt átak land- og flughers íraks
hefði leitt til þess að mörg þúsund
lík óvina hefðu dreifzt yfir vígvöll-
inn, og hefði mikill hluti innrás-
arliðsins verið felldur, um leið og
tekizt hefði að eyðileggja bæki-
stöðvar írana á víglínunni í hefnd-
arskyni fyrir innrás þeirra í írak á
þriðjudaginn var.
Svo sem sjá má stangast þessar
fréttir mjög á, en brezka útvarpið
sagði í morgun frá leiðangri nokk-
urra erlendra fréttamanna sem
höfðu farið á vígstöðvarnar ásamt
Irökum. Að sögn brezka útvarps-
ins höfðu fréttamennirnir fengið
þær upplýsingar frá íraksher að
um 100 þúsund manna íranskt
herlið hefði verið leitt í gildru og
sigrað, en vitaskuld höfðu frétta-
mennirnir ekki tök á að ganga úr
skugga um hvað hæft var í þessu.
Um þrjú hundruð Norðurlandabú-
ar, frá Svíðþjóð, Danmörku, Nor-
egi og Kinnlandi, sem eru þátttak-
endur í „Friðargöngu ’82“ komu í
dag í Petrodvorets, sem á sínum
tíma var sumarbústaður Rússa-
keisara, skammt frá Leningrad. Að
sögn sovézkra fjölmiðla tóku
hundruð Sovétmanna auk þess
þátt í göngunni. Leningrad er
fyrsta borgin af fimm sem friðar-
göngufólkið leggur leið sína til, en
til Moskvu er það væntanlegt með
lest á miðvikudag, en heimsókn-
inni til Sovétríkjanna lýkur hinn
29. júlí.
Sl. lostudag voru tveir félagar í
einu óháðu friðarsamtökunum i
Sovétríkjunum dæmdir í 15 daga
fangelsi fyrir óspektir, en þrír fé-
lagar til viðbótar fengu fyrirmæli
um að hafa sig á brott frá Moskvu
ef þeir vildu ekki eiga á hættu að
verða sagt upp störfum, en aðrir
félagar í samtökunum hafa þá
sögu að segja að þeir séu undir
stöðugu eftirliti.
Meðfylgjandi mynd var tekin
þegar gestkomandi friðarboðum
var fagnað með blómum á götum
Leningrad, sem áður hét l'éturs-
borg.
Al' símamynd.
Líbanon:
Ráðast örlög PLO í
Washington í dag?
Washinuton, Beirút. 19. júlí. Al*. ^ i ^ ^ ^
Washin^ton, Beirút. 19. júlí. AP.
REAGAN forseti ákvad í kvöld að
senda ekki 4 þúsund klasasprengjur,
sem svo eru nefndar, til ísraels,
meðan verið er að rannsaka hvort
ísraelsmenn hafa beitt þeim í Líban-
on. Á morgun, þriðjudag, hitta Reag-
an forseti og Schultz utanríkisráð-
herra, fulltrúa Arababandalagsins,
utanríkisráðherra Saudi-Arabíu og
Sýrlands, á fundi í Washington og er
talið að sá fundur muni ráða úrslit-
um um hvort ísraelsmenn geri loka-
árásina á herkvi PLO i Beirút mjög
fljótlega eða hvort þeir gefi Banda-
ríkjastjórn færi á að leysa málið frið-
samlega, þannig að milli 6 og 8 þús-
und PLO-menn komist frá Beirút
heilu og höldnu.
Lífvörður drottningar ját-
ar kynvillu og segir af sér
Talað um að Whitelaw og yfirmenn Scotland Yard neyðist til að segja af sér
Lundúnum, 19. júlí. AP.
ÞÆR fregnir berast úr ríki Eliza-
betar drottningar að þjóðinni hafi
orðið orðfall þegar William White-
law, innanrikisráðherra, fiutti
þann boðskap í Neðri málstofu
þingsins í dag, að persónulegur
lífvörður drottningarinnar, Micha-
el Trestrail, lögregluforingi hjá
Scotiand Yard, hefði viðurkennt að
hafa staðið i kynvillusambandi við
vændismann í allmörg ár, og hafi
hann, þ.e. Trestrail, sagt starfi
sínu lausu. Blaðið The Sun, sem
ýmsir telja æsifregnablað, segir frá
því í dag, að það hafi komið Scot-
land Yard á sporið eftir að maður
nokkur hafi komið að máli við rit-
stjóra blaðsins og haldið því fram
að hafa haft kynvillusamband við
Trestrail árum saman og hafi hann
viljað koma lífsreynslusögu sinni á
framfæri i blaðinu fyrir ærið fé.
„The Sun ákvað að láta þennan
mann ekki hafa neina peninga.
Scotland Yard var tilkynnt um
málið og stofnunin rannsakaði síð-
an málið,“ segir í yfirlýsingu blaðs-
ins í dag. Svo umfangsmikið er
hneykslismálið varðandi öryggi
drottningar og fjölskyldu hennar
að verða, að á þingi er nú um fátt
meira rætt en það, hvort yfirmenn
Scotland Yard neyðist til að segja
af sér, og jafnvel hvort Whitelaw
eigi um annað að velja, en að segja
af sér.
Trestrail var ábyrgur fyrir
öryggi drottningar og sá sjálfur
um allar mannaráðningar í
þeirri deild öryggisþjónustunnar
sem vakir yfir konungsfjölskyld-
unni. Svo nátengdur hefur hann
verið konungsfjölskyldunni, að
hann var dús við fjölskyldumeð-
limina. Hann er fimmtugur að
aldri og hefur aldrei kvænzt.
Vegna þessa máls gekk
Thateher, forsætisráðherra, á
fund drottningar í kvöld, og mun
hún svara spurningum í Neðri
málstofunni á morgun. White-
law hefur gefið til kynna að
hann muni skýra þinginu frá öll-
um málavöxtum á miðvikudag,
en þingmenn hafa krafizt skýr-
inga á því m.a. hvernig Trestrail
hafi getað staðizt hið stranga
próf sem lagt er fyrir þá, sem
gegna mikilvægum störfum í
öryggisþjónustunni, en persónu-
legur lífvörður þjóðhöfðingjans
er eitt mikilvægasta embættið
innan lögreglunnar í Bretlandi.
Fagan sá, sem birtist óboðinn
á rúmstokk drottningar á dögun-
um, kom í dag fyrir dómara í
Bow Street í Lundúnum og var
máli hans vísað til dómstólsins í
Old Baily, þar sem hann verður
ákærður fyrir þrjú lögbrot: að
hafa farið inn í Buckinghamhöll
í leyfisleysi hinn 7. júní og stolið
þar hálfflösku af víni, fyrir að
hafa ráðizt á stjúpson sinn hinn
26. júní og fyrir að hafa stolið bíl
16. júní.
Athygli vekur að Fagan er
ekki ákærður fyrir heimsóknina
til drottningar, en ríkissaksókn-
ari sagði í dag, að þótt það væri
alkunna að Fagan hefði farið
inn í svefnherbergi hennar 9. júlí
væru sannanir ónógar til að
halda því fram, að þar hefði
Fagan gerzt sekur um refsivert
athæfi.
ísraelskir hermenn og Palest-
ínumenn skutust á í syðstu út-
hverfum Beirút í dagrenningu og
síðan nokkru fyrir hádegi, en ísra-
elskar orrustuþotur flugu linnu-
lítið yfir herkvínni. Lögreglan í
Beirút sagði að átökin hefðu reynt
enn á hið ótrygga vopnahlé, sem
komst á fyrir tilstilli Bandaríkja-
stjórnar fyrir viku og hefur hald-
izt síðan.
Ekki er vitað hverjir urðu valdi
að hvarfi David Dodge, yfirmanns
bandaríska háskólans í Beirút í
kvöld, en tveir vonoaðir menn
spruttu út úr rauðri Renault-
bifreið og rændu Dodge þar sem
hann var á leið heim frá vinnu
síðdegis.
Habib, fulltríu Bandaríkjafors-
eta, átti í dag fund með líbönskum
ráðamönnum um leiðir til að
flytja PLO-menn frá Beirút, en
fundarmenn vildu ekkert segja um
gang viðræðnanna að þeim lokn-
um. Labadi, talsmaður PLO, hefur
vísað á bug frétt um að írakar hafi
boðizt til að veita Yasser Arafat
og liðsmönnum hans viðtöku, og
samkvæmt fréttum Líbanins-
útvarpsins í dag leggur Bandaríkj-
astjórn enn mesta áherzlu á að fá
Sýrlendinga til að veita þeim hæli.
Bandarískur öldungadeildar-
þingmaður, sem ræddi við Men-
achem Begin, forsætisráðherra ís-
raels í Jerúsalem í dag, telur að
örlög PLO-mannanna í Beirút
muni ráðast á fundinum í Wash-
ington í dag. Begin er enn sem
fyrr viðskotaillur og í ræðu í Jer-
úsalem í gærkvöldi sagði hann:
„Arafat er að reyna að beita
brögðum. Það tekur okkur ekki
langan tíma að þurrka hann út.
Við ljúkum þeirri orrustu á
skömmum tíma.“