Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 10
10 ■ MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ1982 Tillaga frá Sigurði E. Guðmundssyni í borgarstjórn: Vísað frá með 20 atkv. gegn 1 BERTIL prins og kona hans Lilian fórn utan í gærmorgun eftir að hafa verið hér í heimsókn nokkra daga í boði forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur. A myndinni eru hertogahjónin frá Hallandi ásamt gestgjafa sínum og borgarstjórahjónunum í Reykjavík, Davíð Oddssyni og Astríði Thorarensen. Myndin er tekin, er borgarstjórinn hafði boð inni í Höfða fyrir hina tignu gesti. Ljósm.: KÖE * Nýskráningu í Háskóla Islands lokið: Mest fjölgun í lög- og læknisfræði TILLÖGU frá Sigurði E. Guð- mundssyni, borgarfulltrúa Alþýðu- flokksins, um að fella niður fast- eignagjöld ellilífeyrisþega 67 ára og eldri, sem aðeins eiga eina íbúð, var vísað frá með 20 atkvæð- um gegn 1, —atkvæði hans sjálfs,— á fundi borgarstjórnar sl. fimmtudag. Rökin fyrir frávísun- inni voru þau að vegna laga- ákvæða væri tillagan óþörf. Frávísunartillagan er svohljóð- andi: „Hinn 30. apríl sl. voru á Al- þingi samþykkt lög um breytingu á lögum nr. 73/1980 um tekju- stofna sveitarfélaga. Þau lög kveða upp úr með það að sveitar- stjórnum sé skylt að „lækka eða fella niður fasteignaskatt sem elii— og öryrkjalífeyrisþegum er gert að greiða". Jafnframt segir í lögunum: „Sama gildir um slíka lífeyrisþega, sem ekki hafa veru- legar tekjur umfram elli- og ör- orkulífeyri". Ljóst er að fram- kvæmd Reykjavíkurborgar á fast- ‘eignaskattamálum framantalinna hópa og samþykkt nefndra laga, • gerir tillögu Sigurðar E. Guð- mundssonar óþarfa og er henni því vísað frá.“ Þessi tillaga borg- arstjóra, var samþykkt með 20 at- kvæðum gegn 1, eins og áður sagði. Leiðrétting Sú villa var í föstudagsblaði, þar sem fjallað var um myndsegul- bönd, að Grundig 2x4 super var sagt hafa 16 upptökudaga fram í tímann, en þeir eiga að vera 99. Einnig var Grundig sagt fást hjá Heimilistækjum hf. en Grundig fæst hjá Nesco hf. og biðjum við velvirðingar á þessu. Á föstudaginn, sl. 16. júlí, rann út umsóknarfrestur fyrir nýstúdenta til innritunar í Háskóla íslands. Sam- kvæmt upplýsingum Friðriks Sigur- björnssonar, skrifstofustjóra, þá höfóu 1.240 látið innrita sig. En 1.139 á sama tima í fyrra. Innritun i deildir skiptist á eftir- Lokað vegna sumarleyfa 21. júlí til 3. ágúst Ræðismannsskrifstofa Sviss. Sveinn Björnsson & co Austurstræti 6, Reykjavík. farandi máta. Tölur í sviga eru síð- an í fyrra, árið 1981. Guðfræðideild 16 (19), Heim- spekideild 238 (225), Félagsvísinda- deild 151 (138), Lögfræðideild 104 (70), Viðskiptadeild 195 (175), Verkfr. og raunvísindadeild 272 (267), Hjúkrunarfræði 64 (61), Sjúkraþjálfun 70 (53), Læknisfræði 136 (96), Lyfjafræði 15 (14), Tann- læknisfræði 29 (30). Aðeins 20 komast að í Sjúkra- þjálfun þar sem fjöldatakmörkun er strax inn á námsbrautina, en í öðrum greinum fá allir að byrja að öllu jöfnu, þótt eftir fyrstu prófin séu sums staðar fjöldatakmarkan- i Málþing á Kjarvalsstöðum: Hvernig má halda andlegum og lík- amlegum kröftum? í tengslum við sýninguna íslensk alþýðulist, sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum, er efnt til mál- þings nokkur kvöld. Sýningin er r www STORSPARNAÐUR í SÖGUFERÐ TIL AMSTERDAM Flug og gisting 4 dagar verð frá kr. 3.860.- 5 dagar verð frá kr. 4.100.- 1 vika verð frá kr. 4.600.- Innifalið: flug og gisting Allar nanari upplýsingar og verð á skrifstofu okkar. 101 Reykjavik, Sími: 28633 Feröaskrifstofan Laugavegi 66, haldin í tilefni árs aldraðra, og til umræðu á málþingi eru ýmis mál er snerta þjóðfélagið almennt og aldraða sérstaklega. í kvöld heldur Jón Snædal læknir fyrirlestur um efnið: Hvað er hægt að gera til að halda líkamlegum og andlegum kröft- um? Hefst fyrirlesturinn klukk- an 20.30, í fyrirlestrarsal Kjarv- alsstaða. Jón Snædal er hér heima í stuttri heimsókn, en hann stundar framhaldsnám í öldrunarfræðum í Lundi í Sví- þjóð. Sýningin á Kjarvalsstöðum er opin daglega klukkan 14 til 22. Myndbandasýning eru í dag klukkan 16.30 og stendur hún til 19.30, en á morgun eru tvær sýn- ingar, klukkan 14.30 og 18.15. Sókn fær lóðina Skipholt 52 BORGARSTJÓRN samþykkti á fundi sínum sl. fimmtudag að tillögu skipulagsnefndar, að veita Starfs- mannafélaginu Sókn lóðina á Skip- holti 52 og afturkalla úthlutun lóðar- innar til Byggingarsjóðs Reykjavík- ur. Þetta var samþykkt með 12 at- kvæðum sjálfstæðismanna gegn 9 atkvæðum minnihlutans. Á fundinum iagði Guðmundur Þ. Jónsson, borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins, það til að ný stjórn byggingarsjóðs yrði kosin og af- greiðslu á lóðarumsókn Sóknar frestað, þar til fyrir lægi umsögn stjórnarinnar. Þessi tillaga Guð- mundar hlaut 9 atkvæði minni- hlutans og því ekki stuðning. Samfara þessari samþykkt var ákveðið að breyta landnotkun á lóðinni, úr íbúðarhúsnæði í skrifstofuhúsnæði. Þegar mál þetta var afgreitt í borgarráði fyrir skömmu var tillaga skipu- lagsnefndar samþykkt með 3 at- kvæðum gegn 1 atkvæði fulltrúa Alþýðubandalagsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.