Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1982
Eiginkona Moros
ásakar yfirvöld
Kómarborg, 19. júlí. Al*.
KKKJA Aldo Moro, fvrrum forsæt-
isráðherra Ítalíu, hefur nú skýrt
frá því að yfirvöld hafi komið i veg
fyrir tilraunir fjölskyldunnar til að
ráða milligöngumenn til að komast
í samband við Rauðu herdeildirn-
ar. Þá skýrði hún ennfremur frá
því að rannsóknarlögreglumenn
hefðu skellt skollaeyrum við upp-
lýsingum um hugsanlegan dval-
arstað hans, sem fram komu á
miðilsfundi.
Frú Elenora Moro sagði að ít-
alska stjórnin hefði gripið í
taumana og talið svissneskan
lögfræðing og starfsmenn Rauða
krossins af þeim ætlunum sínum
að komast í samband við með-
limi Rauðu herdeildanna. Þá
skýrði frú Moro ennfremur frá
því að Páll páfi sjötti hefði mætt
mikilli andstöðu yfirvalda er
hann bað Rauðu herdeildirnar í
opinberu ávarpi að leysa Moro
úr haldi. Páfi var góður heimil-
isvinur Moro-fjölskyldunnar.
I framburði frú Moro fyrir
rétti sagði hún m.a.a að lög-
reglumenn hefðu ekki skeytt um
þær upplýsingar, sem bárust af
miðilsfundi, sem haldinn var
nokkrum dögum eftir ránið á
Moro. Kom nafnið „Gradoli" þar
upp og var talin hugsanleg vís-
bending. Moro var rænt 16. mars
1978 og þann 18. apríl réðst lög-
reglan til inngöngu í íbúð, sem
var við Gradoli-stræti í Róm.
Frú Moro kom nú fyrir réttinn
öðru sinni, en talið er að réttar;
höldin kunni að taka heilt ár. í
fyrri framburði sínum lét frú
Moro þess getið að lífverðir
manns hennar hefðu engan veg-
inn verið nægilega vel þjálfaðir.
Lögregla segir stripl-
ingum stríð á hendur
Kómarborg, 19. júlí. Al’.
LÖGREGLAN á vinsælustu ferðamannastöðum Ítalíu hefur nú sagt
stríð á hendur striplingum, sem kjósa að liggja kviknaktir í sólbaði.
Hins vegar hefur illa gengið að koma þeim að óvörum og hefur
lögreglan hvað eftir annað orðið að snúa á brott sneypt eftir mis-
heppnaðar aðgerðir. Segir frá þessu í dagblaðinu II Messaggero,
sem gefið er út í Róm.
Ein tilraunin til að koma
striplingunum á óvart í því
augnamiði að leggja fram
kærur á hendur þeim fyrir
brot á velsæmislögunum var
gerð á laugardag. Um 50 lög-
reglumenn, jafnt fótgangandi,
sem á hraðbátum, réðust þá til
atlögu á einni ströndinni. Til-
raunir þeirra voru hins vegar
allar unnar fyrir gýg því sést
hafði til þeirra í tæka tíð og
fólk því náð að komast í lepp-
ana áður en komið var að því.
Það eina, sem lögreglumenn-
irnir fundu voru um 200
manns, sem lágu og sóluðu sig
í sundfötum.
Yfirvöld hafa hvað eftir
annað hafnað beiðnum sam-
taka, sem berjast fyrir því að
fólk fái að stunda sólböð
kviknakið. Samkvæmt ítölsk-
um lögum er bannað að koma
fram nakinn á meðal almenn-
ings og þeir sem verða staðnir
að slíku geta átt á hættu að
verða kærðir fyrir velsæm-
isbrot.
Arvekni sólarunnenda var
þó ekki alls staðar söm og með
miklu snarræði tókst þjóð-
varðliðum að koma þremur
þýskum ferðamönnum að
óvörum þar sem þeir sóluðu
sig í mesta sakleysi með
tveimur féiögum sínum frá
Napólí. Voru fimmmenning-
arnir kærðir fyrir brot á vel-
sæmislögum.
Gífurleg örtröð hefur verið
undanfarið við allar helstu
baðstrandir iandsins í kjölfar
hitabylgju, sem gengið hefur
yfir suðurhluta Evrópu. Hefur
hitastigið vart farið niður
fyrir 30 gráður á celsíus.
Landamæraverðir í Sviss
skýrðu frá því að á laugardag
hefði verið um 50 km löng
bílalest við landamærin og var
þar á ferð fólk, sem ætlaði sér
í sólbað á Ítalíu. Allar ferjur
og hótel á Sardiníu voru troð-
fullar um helgina af fólki, sem
ætlaði að sleikja sólina í hit-
anum.
Sovétmenn buðu PLO
aðstoð frá Kúbu
l.undon. 19. júlí. Al*.
LEYNISKJÖL, sem ísraelsmenn segjasl hafa komist yfir í I.íbanon hafa leitt
í Ijós, art Sovétríkin buóusl til aó kalla til kúbanska hermenn fyrir þremur
árum í baráttu PLO við ísraelsmenn. Kom þetta fram í frétt enska blaósins
The Observer á sunnuday.
Skjölin eru m.a. sögð innihalda
upplýsingar um fund milli sov-
éskra leiðtoga og Yasser Arafats,
leiðtoga PLO. Ennfremur var þar
að finna skipulagsdrætti að stofn-
un frjáls ríkis í Galíleu.
Blaðið sagði, að Gideon Patt,
einn ráðherra stjórnar Begins,
hefði lesið upp fyrir blaðamann úr
arabísku skjölunum. Þar sagði
Boris Ponomarev, einn sendi-
nefndarfulltrúanna, sem var undir
forystu Andrei Gromyko, orðrétt
við Arafat:
„Við getum alltaf haft samband
við vini okkar á Kúbu og þeir geta
gegnt ákveðnu hlutverki fyrir ykk-
ur í Líbanon." Á fundinum kvört-
uðu fulltrúar PLO sáran undan
því, að Kúbumenn hefðu reynst
ósamvinnuþýðir á ótilteknum-
fundi aðilanna. Sovétmennirnir
voru fljótir að taka upp hanskann
fyrir vini sína á Kúbu og svöruðu
því til, að þrátt fyrir að þeir hefðu
ekki sýnt lipurð í umræddu tilviki,
væri þess að vænta í framtíðinni
að þeir yrðu PLO innan handar.
Miklar vopnabirgðir, sem ísra-
elsmenn hafa fundið í Líbanon,
ýta undir þann grun, að e.t.v. hafi
PLO fengið vopn frá kommúnista-
ríkjum. Segja Israelsmenn vopnin,
sem fundust, nægja fyrir 100.000
manna her, en þegar innrásin var
gerð í síðasta mánuði, var aðeins
talið að um 14.700 hermenn PLO
væru í landinu.
Swart
látinn
Prelorm, 17. júli. AP.
CHARLES Robberts Swart, fyrsti
forseti Suður-Afríku, og einn af
upphafsmönnum umdeildra laga
um aðskilnað kynþátta þar í landi,
lézt á föstudagskvöld í sjúkrahúsi,
87 ára gamall. Swart varð forseti
þegar S-Afríka sagði sig úr brezka
samveldinu 31. maí 1961.
ERLENT
Sómalir ásaka Sovét-
menn mjög harkalega
Nairóbí, Konýa, 19. júli. Al*.
SOMALIA lagði í dag fram formleg mótmæli vió Sovétríkin fyrir að reyna aó
skapa ókyrró og óstöóugleika í landinu meó því aó styója vió bakið á
uppreisnarmonnum.
Voru Sovétmenn hvattir til að
hætta stuðningi sínum við upp-
reisnarmennina hið snarasta og
hætta þar með beinum eða óbein-
um afskiptum sínum af innanrík-
ismálum Sómalíu.
Sómalir, sem hafa um nokkurt
skeið ásakað Eþíópíumerin um að
gera skæruárásir inn í landið,
lögðu fram fyrirspurn þess eðlis
hvort Sovétmenn væru með stuðn-
ingi sínum að lýsa velþóknun sinni
á áreitni Eþiópíumanna.
Fremur kalt hefur verið á milli
ráðamanna í Mogadishu og
Moskvu frá því Sovétmenn tóku að
styðja Eþíópíumenn í Ogaden-
stríðinu 1977—78. Sómalir hafa
síðan hallað sér meira að Vestur-
veldunum og ásakað Sovétmenn
um íhlutun. Mótmælin, sem lögð
voru fram í dag eru þau harðorð-
ustu af hálfu Sómala til þessa.
ROSALEG VERÐLÆKKUN