Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 40
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ1982 ► > ► ► > ► \ > > l f ( t > t > > ► > ! > > Reynir S í annað sætið eftir sigur á Völsungi á Húsavík Gunnar Sigurdsson, formaður kvennanefndar KSÍ, afhendir hér Rósu Ás- laugu Valdimarsdóttur, fyrirliða UBK, sigurlaunin í Bautamótinu. Ljósmynd Reynir Eiríksson REYNIR Sandgerði sótti Völsung heim um helgina i 2. deildinni i knattspyrnu. Völsungar reyndust mjög gestrisnir að þessu sinni og hirtu Sandgerðingar bæði stigin i leiknum. Skoruðu þeir eitt mark en heimamenn ekkert, og gerði Olafur Björnsson það af stuttu færi. Gat hann ekki annað en skorað þar sem hann þurfti aðeins að renna knettin- um yfir marklínuna. Hrökk knöttur- inn til hans af ójöfnu á vellinum er varnarmaður virtist hafa fullt vald á honum. Reynismenn voru mun líflegri í leiknum og börðust af krafti, og verður að telja sigur þeirra verð- skuldaðan. Völsungar voru hins vegar með daufara móti. Við sig- urinn skaust Reynir upp í annað sæti deildarinnar, er með jafn mörg stig og FH sem vermir þriðja sætið, en markahlutfall Reynismanna er hagstæðara. IIDrólllrl Enn eitt jafn- tefli hjá Fylki EYLKISMENN hafa leikið 10 leiki í 2. deildarkeppninni i knattspyrnu eins og öll önnur lið deildarinnar. En liðið hefur gert 8 jafntefli í þess- um leikjum og hlýtur það að vera íslandsmet. Liðið hefur sigrað i ein- um leik og tapað einum. Um helgina mættu Fylkismenn FH og endaði sá leikur að sjálfsögðu með jafntefli, hvort lið skoraði eitt mark. Kristján Guðmundsson skoraði mark FH í fyrri hálfleik eftir aukaspyrnu og í síðari hálfleikn- um náði Sigþór Oddsson að jafna fyrir Fylki. Liðin léku þokkalega knattspyrnu og jafntefli nokkuð sanngjörn úrslit. FH-ingar eru nú í öðru sæti deildarinnar með 12 stig, fjórum stigum á eftir Þrótti R. sem virð- ist vera nokkuð öruggur með toppsæti. Síðan koma nokkur lið í hnapp og verður örugglega hörð barátta um sætin sem losna í 1. deild að ári. Elnkunnagjðfln Lið KA: Aöalsteinn Jóhannss. 6 Eyjólfur Ágústsson 5 Guðjón Guðjónsson 5 Haraldur Haraldsson 5 Erlingur Kristjánsson 6 Gunnar Gíslason 7 Ormarr Örlygsson 4 Elmar Geirsson 7 Hinrik Þórhallsson 5 Ásbjörn Björnsson 5 Ragnar Rögnvaldsson 6 Jóhann Jakobsson (vm) 4 Lið KR: Stefán Jóhannsson 6 Siguróur Sigurðsson 4 Magnús Jónsson 4 Ottó Guðmundsson 5 Jakob Pétursson 5 Jósteinn Einarsson 5 Ágúst Már Jónsson 6 Erling Aðalsteinsson 6 Sæbjörn Guömundson 4 Óskar Ingimundarson 4 Willum Þórsson (vm) 4 Breiðablik sigraði í Bautamótinu á Akureyri annað árið í röð UBK sigraði á Bautamótinu svonefnda annað árið í röð. Liðið hefur unnið mótið þau tvö skipti sem það hefur farið fram. Bautamótiö er knattspyrnukeppni fyrir kvennalið okkar og hefur veitingastaðurinn Bautinn gefið öll verðlaun mótsins, glæsileg verðlaun sem ungu valkyrj- unum þykir akkur í að vinna. Mótið stóð yfir dagana 16.—18. og er kærkomin tilbreyting fyrir stúlkurn- ar, enda hefur það komið á daginn, að áhugi er mikill meðal keppenda jafnt sem mótsstjórnar. Útkoman var líka samkvæmt þessu, ákaflega vel heppnað mót er gekk snurðu- laust fyrir sig og ánægðir keppendur héldu heim að móti loknu. 10 lið tóku þátt í mótinu að þessu sinni, 6 úr 1. deid og 4 úr 2. deild og var leikið í 2 riðlum 2x20 mínútur og á sunnudeginum var svo leikið um sætin í keppninni. Úrslitaleikurinn milli UBK og KR fór svo fram á aðalleikvangi bæjarins í blíðskap- arveðri að viðstöddum á 3. hundrað áhorfenda. Úrslit einstakra leikja voru sem hér segir: Föstudagur: A-riðill: Kl. 19.00 UBK - KA 5-0 Kl. 19.50 Fram — Víkingur 0—1 Kl. 20.40 KA — ÍA 1-3 B-riðill: Kl. 19.00 Völsungur — FH 2—0 Kl. 19.50 KR - Þór 1-0 Kl. 20.40 Valur — Völsungur 2—0 Laugardagur: A-riðill: Kl. 10.00 UBK — Víkingur 2—1 Kl. 10.50 ÍA - Fram 5-0 Kl. 11.40 KA - Víkingur 0-1 Kl. 12.50 UBK - Fram 5-0 Kl. 13.20 ÍA - Víkingur 1-1 Kl. 14.10 KA - Fram 2-0 Kl. 15.00 UBK - ÍA 0-0 B-riðill: Kl. 10.00 FH - Valur 0-0 Kl. 10.50 Völsungur — Þór 2—1 Kl. 11.40 KR - FH 1-0 Kl. 12.50 Valur - Þór 5-0 Kl. 13.20 KR - Völsungur 1-0 Kl. 14.10 FH - Þór 0-0 Kl. 15.00 KR - Valur 0-0 A sunnudag hófst síðan keppnin um sætin og voru flestir leikirnir jafnir og spennandi. Oftar en ekki þurfti að framlengja, ellegar víta- spyrnukeppni til að fá fram úrslit. Þór vann Fram í keppninni um 9. sætið, 3—2, KA vann FH 4—3, um 7. sætið eftir framl. og vitaspyrnukeppni, Víkingur náði 5. sætinu á kostnað Völsungs, 1—0, þar eftir framl., ÍA vann Val í keppninni um 3. sætið með 3—2 eftir framl. og vítaspyrnukeppni. UBK hafði yfirburði á öllum sviðum knattspyrnunnar í úrslita- leiknum gegn KR og vann örugg- lega með þrumugóðum mörkum Ástu Reynisdóttur, 2, og Ástu B. Gunnlaugsdóttur. Öruggir sigur- vegarar UBK og hafa ekki tapað leik í ein 2 ár, liðið er firna gott og leikur ágæta knattspyrnu. MÞ m WZT' V?W vl % ' Éí' l mt •< t w£w} kF9œj*m |ml P Breiðablik úr Kópavogi, sigurvegari í Bautamótinu annað árið I röð. Liðið hefur verið yfirburðalið í kvenna- knattspyrnunni hér á landi undanfarin ár, og liðið hefur einnig gert það gott á erlendri grund. Sigraði t.d. á alþjóðlegu móti í Danmörku fyrr á árinu. Lið KR er varð í öðru sæti á Bautamótinu á Akureyri um helgina. KR-stelpurnar töpuðu úrslitaleiknum gegn Breiðabliki. íslandsmótið í útihandknattleik: Sjö lið keppa í mfl. karla ÚTIMÓTIÐ í Handknattleik 1982, verður haldið við Haukahúsið v/ Flatahraun, dagana 20.—29. júlí nk. í meistaraflokki karla verður leik- ið í tveimur riðhim, A- og B-riðli. f A-riðli leika llauka,, Valur og UBK, og í B-riðli leika íslandsmeistarar utanúss 1981 KR, FH, HK, og Grótta. í Meistaraflokki kvenna eru 5 lið og verður leikið í einum riðli. í 2. fiokki kvenna hafa 11 lið tilkynnt þátttöku og verður leikið helgina 23—25. júlí. Leikið verður eftirtalda daga í mfl. karla og kvenna: Þriðjud. 20. 7. Kl. 19.00 Haukar — Fram kv. 20.00 KR — Grótta ka. 21.15 Haukar — UBK. ka. Miðvikud. 21. 7. Kl. 19.00 FH - Valur kv. 20.00 FH — HK ka. 21.15 Valur — UBK ka. Fimmtud. 22. 7. Kl. 19.00 Haukar — ÍR kv. 20.00 Fram — Valur kv. 21.00 KR - HK ka. Föstud. 23. 7 Kl. 19.00 ÍR — Fram kv. Mánud. 26. 7. KL. 19.00 Haukar — Valur kv. 20.00 FH - ÍR kv. 21.00 FH - Grótta ka. Þriðjud. 27. 7. KL. 19.00 Fram - FH kv. 20.00 Haukar — Valur ka. 21.15 FH - KR ka. Miðvikud. 28. 7. Kl. 20.00 Valur - ÍR kv. 21.00 HK — Grótta ka. Fimmtud. 29. 7. úrslit. Kl. 19.00 Haukar - FH kv. 20.00 3.-4. sæti 21.15 1.—2. sæti. Síðasta dag mótsins fimmtu- daginn 29. 7. verður leikið til úr- slita í karlaflokki, og að úrslita- leik loknum verða verðlaun veitt. Einnig verður valinn í mfl. karla, besti markmaðurinn, besti sókn- armaðurinn og besti varnarmaður mótsins. Framkvæmaaðili mótsins er HKD. Hauka Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.