Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1982 5 SKUTTOGARINN Ýmir, sem tók niðri á Geirfuglaskeri síðasliðinn fostudag, hefur nú verið tekinn upp í slipp i Njarðvík. Þar hafa skemmdir á skipinu verið kannaðar, en enn er ekki Ijóst hve mikið tjón hefur orðið. Meðai þess sem skemmdist er skrúfa skipsins eins og sjá má á inn- felldu myndinni. Ljósmynd Arnór Skuttogarinn Ýmir: Sjópróf hefj- ast á morgun SKEMMDIR á skuttogaranum Ými, sem tók niðri á Geirfuglaskeri síð- astliðinn föstudag, eru enn ekki full- kannaðar. Þó er talið að þær hafi verið minni, en upphaflega var búizt við. Að sögn Gunnars Felixsonar hjá Tryggingamiðstöðinni skemmdust skrúfa skipsins og stýrisdammi talsvert og tvö göt komu á botn skipsins auk þess sem hann er talsvert dældaður. Sagði Gunnar, að ekki væri hægt að meta tjónið enn sem komið væri vegna þess að eftir væri að taka botnplötur úr skipinu og þá gæti meira komið í ljós. Eins og fram kom í fréttum reyndist annar gúmbjörgunarbát- ur skipsins í ólagi, þegar til hans átti að taka. Samkvæmt þeim upp- lýsingum, sem Morgunblaðið fékk hjá Siglingamálastofnun ríkisins, stafaði það af því, að loft hafði lekið af flösku þeirri, sem notuð er til að blása upp bátinn. Ekki er ljóst hvað valdið hefur lekanum, en að sögn Páls Guðmundssonar, er slíkt afar sjaldgæft. Sagði hann að slíkt hefði að meðaltali komið í ljós við skoðanir í einum af hverj- um 300 bátum, sem Siglingamál- astofnun hefði skoðað til þessa. Að öðru leyti var báturinn í full- komnu lagi. Sjópróf vegna óhappsins hefjast hjá bæjarfógetanum í Hafnarfirði klukkan 9.00 næstkomandi mið- vikudagsmorgun. Ólafsfjörður: 400 manns á tónleik- um í Tjarnarborg Otarsfirói 19. júlí. JÓN Þorsteinsson, tenór, og Hrefna Eggertsdóttir, píanóleik- ari, efndu til tónleika í félags- heimilinu Tjarnarborg í Ólafsfirði í gærkvöldi. Var efnisskrá tón- lcikanna mjög fjölbreytt, á fyrri hluta þeirra voru íslenzk lög eftir Sigfús Einarsson, Pál ísólfsson, Jón Þórarinsson, Karl Ó. Run- ólfsson, Sigvalda Kaldalóns og Sigurð Þórðarson. A seinni hluta voru óperulög og aríur eftir Rob- ert Schumann, Franz Schubert, Mozart og Donnizctti. Var listafólkinu frábærlega vel tekið og þurftu þau að endurtaka mörg lög og flytja aukalög. Er þetta metaðsókn að félagsheimil- inu, en 400 manns sóttu tónleik- ana. Þetta eru fyrstu opinberu tón- leikar Jóns hér á landi, en hann hefur stundað söngnám erlendis undanfarin ár og sungið víða, en Hrefna hefur lagt stund á píanó- nám í Vín. Jón er ættaður héðan úr Ólafsfirði, sonur hjónanna Hólmfríðar Jakobsdóttur og Þorsteins Jónssonar, vélsmiðs. Hrefna er dóttir hjónanna Regínu Ólafsdóttur, sem er ættuð héðan úr Ólafsfirði og Eggerts Gíslason- ar, skipstjóra. Ólafsfirðingar þakka þessu frábæra listafólki komuna og ógleymanlega kvöldstund. Fréttaritari. Tveir þrælsterkir aöWESTAN Kaldræsiþol:630 amper Plötur i sellu: 15 stk. Kaldræsiþol: 460 amper Plötur i sellu: 13stk. Exide Edge og Red Camel rafgeymar eru sérstaklega gerðir fyrir adstæöur sem krefj- ast mikillar ræsiorku i kuldum (kaldræsiþol við - 18° C) og langan endingartima. Passar i flestar gerdir bifreiða isetning á stadnum Tudor-umboðið Laugavegi I80 simi 84I60 ,r ^ af vegghúsgögnum úr furu, tekk, bæsaðri eik og hnotu. Verksmiðjuútsala - Borgartúni 22 Mikið úrval af kápum, jökkum og efnisbútum. Opið 9.00 til 18.00. Komið og gerið góð kaup.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.