Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 25
Landssamtök sauma- og prjónastofa: MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1982 37 Áhyggjur vegna minnkandi útflutnings AÐALFUNDUR Landssamtaka sauma- og prjónastofa var haldinn á Hótel Esju, miövikudaginn 14. júlí. Fram kom á fundinum, aö staöa fyrirtækjanna hefur versnaö veru- lega á sl. starfsári. Fundarmenn lýstu áhyggjum sinum yfir minnk- andi útflutningi og lægra verði á fullunnum fatnaöi, samhliða miklum útflutningi á ullarhandi til sam- keppnisaöila okkar erlendis. Einnig voru fundarmenn áhyggjufullir yfir breyttri verkaskiptingu milli útflytjenda og framleiðenda, þar sem útflytj- endur fara í æ stærri mæli inn á verksvið framleiðenda í stað þess að leggja allt kapp á aukna sölu- starfsemi. Hjá fyrirtækjum innan LSP starfa nú um 400 manns. Veruleg fækkun starfsfólks hefur orðið á starfsárinu. Þessir voru kosnir í stjórn til næsta starfsárs: Formaður, Johnny Símonarson, Selfossi, meðstj:, Hannes Baldvinsson, Siglufirði, Leifur Ingimarsson, Kópavogi, Rúnar Pétursson, Akra- nesi, Sævar Snorrason, Hvolsvelli. Til vara: Sigurður Gunnlaugsson, Kópavogi, Sæmundur Runólfsson, Vík í Mýrdal. (FrétUlilkynning) Skammhlaup í skemmti- ferðaskipi SKAMMHLAUP varö í skemmti- feröaskipinu „Evropa", þegar þaö var á leið frá Reykjavík til Isafjarð- ar. Var skipinu snúiö viö til Reykja- víkur og komu 3 viðgerðarmenn með einkaþotu frá Hamborg ásamt for- stjóra útgerðarfyrirtækis skipsins. Flugvél kom síðan með varahluti á sunnudaginn var. Að sögn Steins Lárussonar hjá Úrvali, þá varð skammhlaup í rafkerfi skipsins og sviðnaði eitthvað út frá blossanum. Við rafmagnsleysið fór sjálvirk neyð- arhringing af stað. Voru sumir komnir af stað upp á dekk og gripu með sér björgunarvesti. En ekki varð meira úr þessu. Skemmtiferðaskipið hélt af stað frá Reykjavík um hádegisbilið í gær, mánudag. Vegna þessa óhapps var ekki komið til ísa- fjarðar, heldur reynt að vinna upp þessa tveggja sólarhringa seink- un, og áætlað að koma til Akur- eyrar í morgun kl. 7.00, þriðjudag. Sláttur hafinn við Skjálfanda llúsavík, 19. júli. SLÁTTUR hófst um helgina hjá nokkrum bændum hér í nágranna- sveitum, en aö öðru leyti er hann ekki hafinn, þvi spretta er víðast hvar léleg vegna vorkulda og lang- varandi þurrka í júní. Sól og sunnanátt hefur verið hér undanfarna daga svo freistandi er að fella grös í þurrkinn, en margir bíða eitthvað enn eftir betri sprettu, svo almennt mun sláttur ekki hefjast fyrr en í síðustu viku mánaðarins. Innkaupastjórar og súkkulaðisölumenn Söludeild Nóa og Sirius verðuropin i alresumar! Þótt verksmiöjur okkar veröi lokaöar um tíma vegna sumarleyfa starfsfólks þarf enginn aö óttast sælgætisskort. Við höfum komið okkur upp stórum ogbragögóðum lager af öllum helstu tegundunum og söludeildin á Suöur- landsbraut 4 verður opin í allt sumar. - Síminn er 28400 Gleðilegt sumar Mjög sparneytin og þýðgeng Veltistýri. Aðalliós með innbyqqðum Stillanleg fram- og aftursæti. 1600 cc eða 2000 cc vél. þokuljósum. ▲Komið, skoðið og reynsluakið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.