Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ1982 29 Krantmmynd: Sigmundur • Framarar gefa út veglega leikskrá í tengslum við hvern heimaleik sinn í 1. deildinni í knattspyrnu og er ritstjóri hennar hinn kunni íþróttafréttamaður Sigmundur O. Stein- arsson. I nýlegu Fréttabréfi Fram eins og leikskráin nefnist, birtist þessi mynd af fræknum feðgum. Til hægri er Þorberg- ur Atlason, sem til fjölda ára lék í marki Fram og landslið- sins, og með á myndinni er sonur hans, Helgi Þorbergsson, sem nú leikur í marki 4. flokks Fram. • Þær eru ekki margar íþróttagreinarnar sem eru bannaðar hér á landi. En ein þeirra, ef þaer eni þá fleiri, eru hnefaleikar. Enda greinir marga á um hvort hnefaleikar eru íþrótt eða ekki. Alltaf annaö slagið berast fréttir al hnefaleikamönnum sem láta lífið í kappleik þar sem þeir hljóta slæm höfuð högg. Og margir fá áverka sem þeir þurfa að bera alla ævi. Á myndinni héi að ofan má sjá augnablikið þegar hnefaleikarinn fær gífurlegt hægri handa högg beint á kjálkann og andlit hans afmyndast. Enda fylgdi það sögunni ai sekúndum síðar hafi hnefaleikarinn legið í gólfinu. Ein stærsta tenniskeppni sem fram fer árlega, er Wimbledon, sem fram fer í Englandi. Að þessu sinni vantaði nokkrar af skærustu stjörnunum í keppn- ina, eins og Björn Borg, Tékkann Lendl o.fl. Sigurvegarar í keppninni uröu Martina Navratilova, sem sést með sigurlaunin hér til hægri, og Jimmy Connors, sem nú sigraði aftur í keppninni eftir átta ár. Á myndunum til hægri má sjá Connors með verðlaunin og jafnframt í lokalotunni þar sem hann slær boltann með kröftugri bakhönd yfir netið. , • íþróttaljósmyndarar ná oft á tíðum mjög skemmtilegum myndum í hinum ýmsu iþróttagreinum, er þeir „skjóta" á réttu augnahliki. A meðfylgjandi myndum má sjá furðulegar stellingar í tveimur greinum, íshokkí og fjöl- bragðaglímu. > • Þessi gæti verið tekinn í hjólreiðakeppni á íslandi, ekki satt? • „Svona, ekkert múður. Ef þú reimar ekki skóna mína, rek ég þig út af í hvelli." Eitthvað á þessa leið gæti dómarinn á myndinni verið að segja viö leikmanninn sem krýpur við fætur hans. Svo var þó ekki í þetta skipti, heldur er sá neðri að biðjast fyrirgefningar á broti sem hann framdi i leik, og verður að lelja þessa aðferð heldur óvenjulega til þess arna. En kannski einmitt þess vegna hafði hún áhrif. Myndin er úr leik í Bundesligunni, og það er einn félaga Atla og Péturs hjá Kortuna Dusseldorf, lleiner Baltes, sem slapp við gula spjaidið í þetta skipti. • Ekki er hægt að neita þvi, að þessir kumpánar eru nauðalíkir. Ron Greenwood, fyrrverandi þjálfari enska landsliðsins í 'knattspyrnu, er sá efri, en innfellda myndin er af Jóhannesi Páli páfa. Eða var það öfugt? • Daniel Passarella, fyrirliði arg- entínska landsliðsins i knattspyrnu, heldur hér á skyrtu ítalska liðsins Fiorentina, en hann mun einmitt leika með félaginu næsta keppnis- tímabil. Passarella, sem nú er orð- inn 29 ára, leiddi Argentinumenn til HM-titilsins 1978, en liðinu gekk ekki nógu vel í keppninni og var slegið út í milliriðli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.