Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ1982 VEGNA tæringar, sem fram kom í væng Boeing 720 þotu Arnarflugs sl. (ostudag, vard félagið að taka aðra vél á leigu. Leiguvélin bilaði síðan í lendingu í gær, þannig að félagiö neyddist til að taka enn aðra vél á leigu. Tildrög málsins eru þau, að við reglulega skoðun á Boeing 720 þotu Arnarflugs sl. föstudag kom í ljós að annar vængurinn var talsvert tærður. Að sögn fram- kvæmdastjóra félagsins, Gunnars Þorvaldssonar, er ekki óalgengt að tæring verði í álplötum flug- vélavængja, en hún kemur eink- um til vegna raka og seltu í lofti. Sagði hann að líklega þyrfti að skipta um plötur í neðra borði vængsins. „Það er ljóst að þessi tæring mun valda okkur talsverðu fjár- hagslegu tjóni,“ sagði Gunnar, „en hjá okkur er nú staddur mað- ur frá Boeing-verksmiðjunum í Bandaríkjunum og mun hann væntanlega skila áliti á morgun eða miðvikudag. Á meðan höfum við tekið á leigu Boeing 707 þotu frá Luxavia sem íslenskir flug- menn munu fljúga. Leigutími hennar er einn mánuður." Þegar leiguvélin frá Luxavia lenti í Þrándheimi í Noregi í gærmorgun brotnaði stykki í hjólahúsi hennar. Engan sakaði. Stykki þetta var ekki til í Noregi þannig að Arnarflug þurfti að senda litla flugvél eftir því til Luxemburg. Vegna þessa varð fé- lagið að taka DC-8 þotu Flugleiða á leigu, en hún flaug í gær til Rimini með hóp sem Arnarflug hafði tekið að sér að fljúga með til Rimini. Boeing 720 þota Arnarflugs var í leigu- og áætlunarflugi til og frá landinu. Félagið hefur haft hana í rekstri sl. 5 ár, en hún er fram- leidd árið 1968. Ekki er ljóst hve alvarlegar skemmdirnar eru. Góð sala VÉLBÁTURINN Bjarnarey frá Vest- mannaeyjum seldi 71 tonn af þorski í Hull í gærmorgun fyrir 830 þúsund krónur og var meðalverð á kílói krón- ur 11,80. Þokkalegt verð hefur fengist fyrir ísaðan fisk frá íslandi í Bretlandi síðustu daga. „Gullbjörninn“ veidir lax HINN heimskunni golfleikari, Jack Nicklaus, kom hingað til lands á sunnudagskvöld ásamt fjölskyldu sinni. Nicklaus, eða „gullbjörninn“ eins og hann er oft nefndur, kom með einkaþotu beint frá brezka opna golfmótinu, þar sem hann hafnaði í 10. ssti. Nicklaus verður við laxveiðar í Grímsá i Borgarfirði fram til laugardags en þá heldur hann af landi brott að nýju. Á myndinni er Nicklaus (annar frá vinstri) ásamt fjöl- skyldu sinni og Helga Jakobssyni, sem skipulagt hefur heimsóknina hingað. Morgunbiaðið/ kök Mánaðaryfirlit yinnumáladeildar félagsmálaráðuneytisins: Atvinnuleysi tvöfaldaðist fyrstu 6 mánuði ársins miðað við ’81 Tæring í Amarflugsvél: Varavélin bil- aði í Noregi 12 ára drengur fyrir bifreið TÓLF ára drengur frá Dalvík slasaðist þegar hann varð fyrir bifreið á Olafs- fjarðarvegi, við Spónsgerði í Arnarnes- hreppi, skömmu eftir klukkan 17 á fóstudag. Drengurinn var á reiðhjóli þegar slysið átti sér stað og var mikil rigning og skyggni slæmt. Drengurinn missti meðvitund og var fluttur í sjúkrahús á Akureyri. Hann er nú kominn til meðvitundar og eru meiðsl hans ekki eins alvarleg og T fyrstu var óttast. SKRÁÐUM atvinnuleysisdög- um í júnímánuði sl. fjölgaði um 2.480 daga frá mánuðinum á undan og um 5.500 daga miðaö við júnímánuð 1981. Skráðir atvinnuleysisdagar á landinu öllu voru 9.936 í júní mánuði sl., sem svarar til þess að 459 manns hafi verið skráðir at- vinnulausir allan mánuðinn, sem nemur 0,4% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði í mánuðinum. Þetta kemur fram í mánaðaryfirliti vinnumála- deildar félagsmálaráðuneytis- ins. Mesta aukningin á atvinnuleysi í mánuðinum er á höfuðborgar- svæðinu og munar þar 2.500 dög- um, hvort sem miðað er við mán- uðinn á undan, eða júnímánuð í fyrra. Ástæður þess eru taldar stöðvun togaraútgerðar í mánuð- inum, en það bitnaði einkum á fiskvinnsluninni í Reykjavík og Hafnarfirði, þótt áhrifanna gætti víðar, að því fram kemur í yfirlit- inu. Segir ennfremur að miðað við Laxamerkingar Veiðimálastofnunar auknar: 140 þúsund merktum seiðum sleppt sl. vor „VIÐ HÖFUM stóraukið laxa- merkingarnar og á síðastliðnu vori var um 140 þúsund merktum laxaseiðum sleppt,“ sagði Árni ísaksson, fiskifræðingur hjá Veiðimálastofnun, í samtali við Morgunblaðið í gær. Árni sagði að undanfarin ár hefðu um 50 til 60 þúsund seiðum verið sleppt, sem væri þokkalegt miðað við aðra, t.d. hefðu írar merkt um 100 þúsund seiði. Sagði Árni að nú væri rannsóknarverk- efni í gangi til að kanna hvað fram kæmi af merktum fiski í afla Fær- eyinga. Sagði hann að á síöasta vori hefði um 70 þúsund seiðum verið sleppt á Norður- og Norð- austuriandi og öðru eins á Suð- vesturlandi í þeim tilgangi. Það kom fram hjá Árna að þjóð- ir þær sem hagsmuna hefðu að gæta fylgdust síðan með veiðum Færeyinga til skiptis, farið væri um borð í færeyska fiskibáta og fylgst væri með því hvað kæmi mikið fram af merktum fiski. Samkvæmt einni athugun sem gerð hefði verið, hefðu komið fram 4 fiskar með svokölluðu örmerki, en það er sams konar merking og notuð er hér á landi. Þessir fiskar hefðu reynst vera frá Irlandi og Skotlandi. Hins vegar væri þessi athugun ekki marktæk nema hvað Suðvesturland varðaði, vegna þess að merktum fiski hefði aðeins ver- ið sleppt frá þeim landshluta á þeim tíma, vorið 1980. árstíma sé atvinnuleysi óvenju mikið, en það er um 3.700 dögum yfir meðaltali atvinnuleysisdaga í júní, árin 1975 til 1982, að báðum Humar- vertíð lýkur á föstudag Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að síðasti veiði- dagur á yfirstandandi hum- arvertíð verði föstudaginn 23. júlí næstkomandi. Ástæða þessarar ákvörðunar ráðu- neytisins er sú, að humarafl- inn er nú orðinn 2.600 lestir, en heildarkvótinn á þessari vertíð var ákveðinn 2.700 lest- ir. Humarveiðarnar hafa al- mennt gengið mjög vel frá öllum verstöðvum á þessari vertíð og er aflinn alls stað- ar meiri en á sama tíma í fyrra. Þá hefur humarinn, sem veiðst hefur, verið stærri en á undanförnum vertíðum. árum meðtöldum. Þá segir að hlutur kvenna í atvinnuleysinu sé 68% af skráðum dögum, en var 43% á sama tíma í fyrra. í yfirlitinu kemur fram að skráðir atvinnuleysisdagar hafi meira en tvöfaldast á fyrstu 6 mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Fyrstu sex mánuðina þá voru 63.700 skráðir atvinnuleysisdagar, en í ár námu þeir 132.600. Aukningin nemur um 108% milli ára. Varðandi atvinnuhorfur segir að mikil óvissa ríki um atvinnu- horfur í útgerð og fiskvinnslu og ljóst sé að ekki megi dragast lengur að gripið verði til úrræða, sem leysi vanda útgerðar og fisk- vinnslu og komi í veg fyrir að at- vinnuástandið haldi áfram að versna. Skærblár páfa- gaukur týndur SKÆRBLÁR páfagaukur slapp frá Bergþórugötu 1 á föstudag. Auglýst var eftir honum og var komið með ljósbláan unga, sem fundist hafði og íbúar á Bergþóru- götu 1 voru beðnir fyrir hann. Þeir lýsa eftir skærbláa páfagauknum sínum og einnig geta eigendur ljósbláa ungans vitjað hans að Bergþórugötu 1, símanúmerið er 11672. Ríkissaksóknari um seladráp: Vill svör frá land- búnaðarráðuneytinu Ríkissaksóknari hefur óskað svars frá landbúnaðarráöuneytinu um, hvort ráðuneytið telji, að hring- ormanefnd hafi tekið sér opinbert vald sem sé hjá ráðuneytinu, með því að verðlauna seladráp. I síðustu viku kærði stjórn Sam- bands dýraverndunarfélaga ís- lands opinber afskipti sölusam- taka fiskiðnaðarins og hringorma- nefndar af selaveiðum til ríkis- saksóknara, svo sem fram hefur komið í Mbl. Benti stjórnin á, að samkvæmt lögum um Stjórnarráð íslands, fari landbúnaðarráðu- neytið með veiðar í ám og vötnum og önnur veiðimál, sem ekki heyri undir önnur ráðuneyti og því hljóti það að teljast óeðlilegt og ólöglegt, að einkaaðilar hvetji til selveiða án samráðs við opinbera aðila.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.